Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 36

Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JUNI, 193,1, STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) w* Þó að viðskiptatilboð sem hrút- urinn fær líti vel út að sumu leyti er mörgum spumingum varðandi fjármálahlið þess enn ósvarað. Hann verður að standa fast á sínu. Naut (20. apríl - 20. maí) f Nautinu hættir til að eyða of miklu núna. Það spyr sig þess oft þessa dagana hvert því beri að stefna í lífi sínu og starfi. Tvtburar (21. mai - 20. júní) 5» Tvíburanum miðar lítið áfram með rannsóknarverkefni sem hann hefur með höndum. Hann ætti að vera mjög vandlátur á féiagsskap núna. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HB Krabbanum getur orðið á að sjást yfir mikilvæg atriði í starfmu. Hann verður að gæta sín þegar hann tekur einhveiju sem gefnu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið verður fyrir tímabundn- um töfum í starfi sínu núna. Það hefur áhyggjur af því að ákveðið verk taki lengri tíma en ætlað var. Það verður einn- ig fyrir vonbrigðum með eitt- hvað í félagslífínu. Meyja (23. ágúst - 22. september) <&*■ Meyjan á í miklum erfiðleikum með barnið sitt. Hún ætti ekki að skipa sér undir merki neins málstaðar nema hún sé full- komlega sátt við hann. V* : ~ (23. sept. - 22. október) & L Vogin verður að standa við öll loforð sem hún hefur gefið. Hún getur búist við aukaút- gjöldum vegna fjölskyldu og heimilis. Sporödreki (23. okt. — 21. nóvember) 9((j0 Sporðdrekinn ætti að foðast að ræða umdeild mál í dag. Hann á í erfiðleikum með að fínna réttu orðin tii að tjá hugsun sína. Hann ætti ekki að hella olíu á eldinn. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) Bogmaðurinn er of áhyggju- fullur út af fjármálunum núna svo að önnur mikilvæg mál sem hann þarf að huga að geta fallið í skuggann. Steingeit (22. des. - 19. janúar) & Það er ekki heppilegt fyrir í steingeitina að sinna ýmsum verkefnum heima fyrir í dag. Hún ætti fremur að sækja út í félagslífíð og létta sér upp. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Vatnsberinn lýkur ýmsum skylduverkefnum sem hann hefur ýtt á undan sér, en það tekur lengri tíma en hann bjóst við. Hann ætti ékki að loka á samskipti við náinn ættingja. Fiskar (19. febrúar — 20. mars) Fiskinum hættir til að ráðast í kaup á einhveiju sem er of dýrt eða hann hefur ekki þörf fyrir. Vinur hans er svo upp- tekinn að hann hefur ekki tíma til að hlusta. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DYRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI (HELDOeÐU /}B Kfáornje Ger/ Fí oc/b ? I (' *£>/rtO/H%r \/)Ð þo/ NO í/ 2/21 <? 1 lAoi/ A LJObKA EracBZT AOtiL/rOZseroi ÍTSST'' c/r >///£/ jL IÞ ‘‘ T V ■ • 7 II ^ I ■ FERDIIMAIMD M, 2fe * wnw ^^i rs.; ±jm YMM/mff/m/mt —i SMÁFÓLK / \ ) \\ aAAIHHHH /J) / \ © 3- 7 I UIONDERIF \ IT'5 P055IBLE TO \ BE IN L0VE U)ITH 1 TU)0 DIFFERENT 6IRL5 AT THE 5AMETIME.. /£= <&) I REMEMBER > ONCE U)HEN I MAD TU)0 C00KIE5..A CHOCOLATE CHIP AND A PEANUT BUTTER..ANP I LOVEPTHEM BOTH.., Skyldi það vera hægt að vera ástfanginn af tveimur ólikum telpum í einu? Ég man eitt sinn að ég fékk tvær smákökur ... súkkulaðismáköku og hnetusmjörsköku ... og ég eiskaði þær báðar ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Svo er farið fyrir dálkahöf- undi, sem og fleiri bridsmönnum, að liann hefur aldrei „hnýtt skíði á fima fætur". Eigi að síður er skíðaskáli Breiðabliks í Bláfjöll- um honum vel kunnur eftir tveggja helga viðveru þar og spilamennsku í nýstárle_gu æf- ingamóti landsliðanna. A þriðja tug spilara komu við sögu og lögðu að baki rúmlega 400 spil. Tilgangur þessa svonefnda „Pepsi-æfingamóts“ var ekki einvörðungu sá að þjálfa lands- liðin fyrir komandi átök, heldur einnig að velja B-lið íslands til þátttöku í alþjóðlegu móti í Hol- landi á næstunni. Eftir harða keppni í þeirri baráttu unnu Guðmundur Sveinsson/Valur Sigurðsson og Sverrir Ármanns- son/Guðmundur Sv. Hermanns- son sér rétt til þeirrar farar. Spilin í keppninni voni tölvugef- in, eins og nú er orðið alsiða. Menn deila sífellt um það hversu „tilviljunarkennd" tölvugjöfin er. Þeir eru til sem halda því stað- fastlega fram að tölvan sé hald- in vissum hleypidómum; hún sé hreinlega ekki fær um að dreifa spilunum samkvæmt hreinni til- viljun. Tölvan fylgir einhverri reglu við gjöfina, segja þeir, og þar sem regia ríkir á tilviljun ekki heima. Tölfræðingar hlæja að þessum rökum og finnst ekk- ert skrýtið við það þótt menn fái tvisvar með stuttu millibili 12 biksvört spil og einn hund í hjarta. Bæði spilin skópu miklar sveifiur, og við skulum líta á þau fyrst í þrautarformi, en kanna þau betur á næstu dögum. (1) Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ K98532 ¥3 ♦ - + ÁKD983 Vestur Norður Austur Suður — — — Pass 1 tígull 1 spaði Dobl Pass 1 grand ? Dobl austurs er neikvætt og lofar hjarta. hvað viltu segja við grandinu? (2) Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♦ DG642 V 7 ♦ - ♦ ÁKD9642 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 lauf 1 tígull 1 hjarta 3 tíglar ? Þú ert að spila eðlilegt kerfi og hjartasvar makkers er krafa. Hvað viltu segja? SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Evrópukeppni skákfélaga er hafin að nýju og mættust m.a. Bayern Múnchen og Hungaraoil- Honved í Búdapest um síðustu helgi. Þýzku meistararnir báru sigur úr býtum, 7-5. Þessi staða kom upp á sjötta borði í viðureign alþjóðameistaranna Csaba Hor- vath (2.460) og Gerald Hertneck (2.535), sem hafði svart og átti leik. 32. - Dbl!! 33. Re3 (Ef hvitur þiggur drottningarfórnina er hann mát eftir 33. Hxbl - Hxbl-f 34. Dxbl - Rf2 og 33. Rxd6+ - Kf8 stoðar ekki heldur) 33.- Dxc2 34. Rxc2 - Hbl! og hvítur gafst upp. Auk þessa glæsilega sigurs Hemeck vann Jóhann Hjartarson eistneska stórmeistarann Oll á þriðja borði. Öllum öðrum skákum í keppninni lauk með jafntefli, en Jóhann var einnig nálægt sigri í seinni skákinni við Oll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.