Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991
37
Yannick Noah kann vel við sig í félagsskap sem þessum.
UMSKIPTI
Tenniskappi í rokkið
Franski tennissnillingurinn
Jannick Noah hefur snúið baki
við íþrótt sinni og lagt út á braut
rokktónlistar. Það kom mjög á
óvart er hann neitaði blákalt að
keppa á Opna Franska meistara-
mótinu fyrir nokkru og þótti undir-
strika að honum er fúlasta alvara
með ákvörðun sinni. Noah hefur
þénað svo vel í tennisíþróttinni, að
hann ræður vel við það fjárhags-
lega að leggja spaðann á hilluna
og reyna fyrir sér á nýjum vígsstöð-
um.
Síðasta árið hefur Noah helgað
sig rokkinu í vaxandi mæli og af-
rakstur þess tíma eru 12 textar og
lög sem leikin verða inn á breið-
skífu á næstunni. Þrátt fyrir sinna-
skiptin segir Noah að það sé ekki
draumur sinn að leika rokk til
lengdar, stóri draumurinn sé sá að
festa kaup á skútu einni mikilli og
sigla í kring um hnöttinn.
Þeir sem heyrt hafa tónsmíðar
Noah segja þar vera fátt nýtt á
ferðinni. Þar bregði fyrir lagaleiftr-
um sem menn muna úr lögum eft-
ir stjömur eins og Michael Jack-
son, Prince, Rolling Stones, Marvin
Gaye og Bob Marley. Þó hefur eitt
laga hans öðrum fremur vakið
mikla athygli, það heitir „Saga
Africa“, en það fjallar um bágt
hlutskipti Afríku í skiptingu auðs-
ins í heiminum. í laginu og textan-
um þykir Noah fara á kostum og
þykir hann fyrir vikið efnilegur.
Afmælissýn-
ing Fim-
leikafélags-
ins Bjarkar
Fimleikafélagíð Björk
fagnar fertugsafmæli
sínu á þessu ári, nánar til-
tekið 1. júlí næst komandi.
Félagið hefur átt fjölmarga
íslandsmeistara í einstakl-
ingsgreinum og lið frá Björk
hafa einnig oft sigrað í hin-
um ýmsu mótum hér innan-
lands. í tilefni af afmælinu
var fyrir skömmu haldin sér-
stök afmælissýning þar sem
allar 220 Bjarkirnar komu
fram og lögðu sitt af
mörkunum.
f dag er tilvalið að líta við í nýja sýningarsal
Gísla Jónssonar & co. í Borgartúni 31 og
skoða nýju Camp-let tjaldvagnana, Royal,
Concorde og Apollo. Hörkugóðirtjaldvagnar
ó mjög hagstæðu verði. Einnig eru ó boðstól-
um margskonar ferðavörur, svo sem gasgrill,
gasvörur, borð og stólar, farangurskassar og
ýmsir aukahlutir. Camp-let er tjaldvagninn
sem reynst hefur best á fslandi.
Verið velkomin!
Gísli Jónsson & Co.
Sundaborg 11 Sími 91-686044
SKOÐADU
IDAG
PIIP
Skrifstofa Gísla Jónssonar er í Sundaborg 11, S 686644, Sýningarsalur Borgartúni 31, ® 626747. Opið alla virka daga frá kl. 10-6, laugardaga kl. 10-4.