Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 12

Morgunblaðið - 26.06.1991, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 Tausamfellur Myndlist Eiríkur Þorláksson Þessa dagana er að ljúka í Gall- erí inn við Skólavörðustíg sýn- ingu Jóhanns Eyfells, sem lista- maðurinn hefur gefið nafnið Tausamfellur/Cloth Collapsions. Jóhann Eyfells sótti sitt listnám til Bandaríkjanna skömmu eftir síðari heimsstyijöldina, og þó hann hafi starfað hér heima um tíma, m.a. sem kennari við Mynd- lista- og handíðaskólann á síðari hluta sjöunda áratugarins, hefur hann að mestu búið og starfað í Bandaríkjunum alla tíð síðan. Hann hefur haldið góðu sambandi hingað heim, haldið einkasýning- ar og tekið þátt í samsýningum, og þannig hafa landsmenn getað fylgst með listferli hans. Jóhann hefur verið maður til- rauna og nýjunga í sinni list, og fylgt þeim tilraunum eftir með nýjum hugtökum og á tengslum efnisþátta, hugsunar og umhverf- is í listinni. Hann hefur síðan unnið eftir þessum skilgreining- um, og þannig á vissan hátt bætt nýjum sviðum inn í listheiminn. Þekktasta hugtakið sem hann hefur komið fram með er „Næmis- hyggja“ (sem er ágæt íslensk þýðing á enska heitinu „Receptu- alism“). í góðri þýðingu Hannesar Lárussonar í sýnigarskrá er að finna þessa tilraun til skilgreingar á þeirri hugsun sem hér býr að baki: „Næmishyggja er nýyrði (1970) búið til í kringum vitsmun- alega innreið í listsköpun, sem er sprottin upp af gagnrýnum og áköfum áhuga á fallvöltum veru- leika minnstufjarlægðar. í dýpri skilningi gerir næmishyggja ráð fyrir mismunsemaltæku eðliog eignar eilífa eiginleika eingöngu fagur fræðilegum og siðrænum veruháttum. Til að leggja frekari áherslu á lykilstöðu mismunar eru ólkíkir kraftar og gildi sett í sam- band viðsögulegaóaðskiljanleg hlutverknauðsynjarogtilviljunar." Þó að skilgreiningar af þessu tagi kunna að virðast flóknar við fyrstu sýn, kemur skýrt fram, að það er mismunurinn sem skiptir öllu máli, hann skapast af nauð- syn og af tilviljun, og eðli hans er mikilvægur þáttur í öllu um- hverfi mannins. Listamaðurinn telur það því eitt mikilverðasta hlutverk listarinnar að fjalla um mismuninn og tilurð hans, enda ber sýningin nú undirtitil sam- kvæmt því: Tausamfellur/Cloth Collapsions-Difference Unra- velled (Mismunur opinberaður). Sýning Jóhanns í Gallerí einn einn að þessu sinni er beint fram- hald sýningar sem hann hélt 1988 í Gallerí Svart á hvítu, sem var til húsa að Laufásvegi 17. Sú sýning bar titilinn „Pappírssam- fellur“, og í sýningarskráin nú er önnur útgáfa á sýningarskránni frá 1988, endurbætt með ágætum þýðingum, eins og fyrr segir. Sú lýsing sem þar er gefin á hvernig pappírssamfellurnar urðu til, er væntanlega í fullu gildi fyrir taus- amfellurnar í Gallerí einn einn (ef ... v'- — p >y■ vi/ -hl *"%■' ; *■> < ?■**-*<,w Jóhann Eyfells: Upp og niður/ýtt og togað. orðið „tau“ er sett fyrir „pappír“ í textanum). „I tæknilegu tilliti er pappírs- samfellurnar gerðar á þann hátt að „samloka“ er þvínguð undir verulegt farg og stöðugt álag aðdráttarafls í tímabil sem varir í nokkrar vikur. Samlokan er í þremur lögum. I miðju er örk af mynd-gleypnum pappír. Hann liggur á votu jarðrænu „bæli“ eða leðju. Ofan á pappírinn kemur sían „stimpill", sem er skapaður á listræna vísu, úr margvíslegum málmum og málmblöndum.“ Listamaðurin nýtir því frum- k-aftana, jörðina, aðdráttaraflið og tímann, sem sköpunarafl þess mismunar, sem kemur fram í verkum hans. Tausamfellurnar eru stimplaðar með þeim mynstr- um,sem listamaðurinn hefur gert, en það er háð tilviljun og fyrr- nefndum kröftum, hvernig mis- munur þeirra kemur fram, það er opinberun fyrir listamanninn engu síður en aðra gesti. Það er ætíð fengur að því að sjá hvað íslenskir listamenn er- lendis eru að fást við. Jóhann Eyfells hefur verið að bijóta nýjar leiðir í myndlistinni, og með þeim hefur hann vísvitandi leitað aftir til frumkraftanna í stað þess að fylgja eftir sífellt flóknari tækni, sem er þó einkenni tímans. í þessu felst visst andóf listamannsins, sem vissulega á rétt á sér í þeim heimi nútímalistar, sem byggir sífellt meira á fjölmiðlun, mark- aðssetningu og tækniframförum. Sýningu Jóhanns Eyfells í Gall- erí einn einn lýkur fímmtudaginn 27. júní. Nemendasýning Listdansskóla Þjóðleikhússins STRANDGÖTU 28 SÍMI652790 Einbýli — raðhús Sunnuvegur Fallegt og virðul. steinh. á tveim- ur hæðum ásamt kj. alls 162 fm í grónu og rólegu hverfi. Endurn. gluggar og gler. Falleg afgirt hraunlóð. V. 12,7 m. Fagrihjalli — Kóp. Nýl. 181 fm pallbyggt parh. ásamt bílsk. í suðurhl. Kóp. Fullb. eign. Fallegar innr. Parket og steinflísar á gólfum. Sólskáli. Þrennar svalir. Upphitað bílaplan. Frá- bært útsýni. Áhv. húsnlán ca 3,4 millj. V. 14,7 m. Túngata — Álftanesi Nýl. einbhús ca 220 fm á einni hæð ásamt tvöf. bílsk. 5 góð svefnh., sjónvhol, stofa o.fl. Áhv. langtlán ca 6,5 m. Laust 1. júlí. V. 14,5 m. Selvogsgata Gott og mikið endurn. einbhús á tveim- ur hæðum. Parket á gólfum. Nýr sól- skáli. Nýir gluggar og gler, lagnir o.fl. Áhv. húsbréf ca 4,3 millj. Verð 8,7 millj. 4ra herb. og stærri Breiðvangur Falleg og björt 4ra-5 herb. 122 fm íb. á 3. hæð. Þvottah. og geymsla innaf eldh. Stórt eldhús. Nýl. innr. Parket. Fallegt útsýni. Laus 1. ág. Verð 8,3 millj. Suðurgata Falleg 4ra herb. mikið endurn. miðhæð í góðu steinh. Nýl. gluggar og gler, eld- hinnr. o.fl. Fráb. útsýni yfir höfnina. Getur losnað fljótl. Verð 7,5 millj. Lækjarkinn Góð neðri hæð ásamt bílsk. og hluta af kj. Nýl. innr. Parket. Rólegur og góð- ur staður. Verö 9 millj. Hringbraut Góö 4ra herb. íb. á miöhæð í góðu þríbýli ásamt stórum bílsk. Áhv. hús- næðisl. ca 3,2 millj. Verð 7,9 millj. 3ja herb. Kelduhvammur Rúmg. og björt 3ja herb. ca 87 fm risíb. Fráb. útsýni. Rólegur og góður staður. V. 6,1 m. Vesturbraut 3ja herb. ca. ca. 64 fm risíb. Lítið und- ir súð. M. sérinng. V. 4,6 m. 2ja herb. Breiðvangur Rúmg. ca 87 fm íb. á 1. hæð í fjölbýli með sérinng. Rólegur og gcður staður. Miðvangur Góð 2ja herb. ca 57 fm íb. í lyftuh. Fallegt útsýni. Selvogsgata Mikið endurn. ósamþ. 2ja herb. jarðh. í þribýlish. Verð 2750 þús. INGVAR GUÐMUNDSSON Lögg. fasteígnas. heimas. 50992 JÓNAS HÓLMGEIRSSON Sölumaður, heimas. 6*41 152 í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI __________Ballett____________ Ólafur Ólafsson Það hefur skapast sú venja, að annað hvert ár hefur Listdansskóli Þjóðleikhússins nemendasýningu sýna í Þjóðleikhúsinu. Hitt árið er sýningin haldin í húsnæði skólans. Að þessu sinni fór sýningin fram í Borgarleikhúsinu, þar sem Þjóðleik- húsið var upptekið. En ein sýning á sviði, annað hvert ár, er hvergi nærri nóg. Reyndar hefur þessi sýning nokkurn aðdraganda. Einnig voru nú í júní sex sýningar í húsa- kynnum skólans, þar sem efnisskrá- Honda f91 Civic Sedan 16 ventla Verð frá kr. 1.095 þús. GLi-special GREIÐSLUSKILMÁLAR FYRIR ALLA. Rhonda VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 in var aðeins önnur. Sum atriðin, einkum með yngri nemendum, hafa verið felld út og önnur komið í stað- inn. Er það vegna þess, að hóparn- ir hafa sundrast út í sumarið, því óneitanlega er sýningin seint á ferð. Þannig var sýningin í Borgarleik- húsinu þriðji þátturinn í sýninga- hrinu vorsins hjá dönsurunum. í heildina voru allir þessir þættir góð- ir og verkefnin nauðsynlegur þáttur í námi dansaranna. Sýningin í ár var ánægjuleg og líklega eru bestu meðmæli hennar og skólastarfsins þau, að enginn var að gera hluti,sem hann hafði Suomi borðbúnaður ,,Lifslistin“ í postulíni frá Ros- enthal. Fagurborö- búnaöur á yðareigiö N j ýboi Ármúla 23, S. 813636 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! j» Sw^iisstM&frifr ekki möguleika á að ráða við. Það vill oft brenna við, að of mikið sé færst í fang á sýningu sem þess- ari. Sýningin var krefjandi fyrir dansarana, án þess að skotið væri yfir markið. Það er merki hvers góðs leiðbeinanda að þekkja vel sína nemendur og beina þeim að efri- mörkum getu sinnar, án þess að ofbjóða þeim. Það virðist takast og þá er tilgangi náð. Það er ekki ætlunin að fjalla hér um einstaka dansara, en vert er að geta um nokkur atriðanna. Flest hafa þau áður verið sýnd í æfinga- sal skólans. Þau eiga það öll sam- eiginlegt, að njóta sín betur á sviði en í æfingasalnum. Áður hefur ver- ið fjallað nokkuð um ballettinn „Þrír í einu“, ljómandi verk eftir Hlíf, Maríu og Nönnu. Frá fyrstu sýn- ingu á Listahátíð æskunnar, hefur hann orðið skýrari í meðförum hópsins. Á sýningunni þann 19. júní var það samt „blái hópurinn", sem sýndi hvað styrkastan dans og var yfirferð þeirra mjög góð. í verk- inu reyndi á klassíska tækni dansar- anna. Það sama var uppi á teningn- um í ágætum spönskum dansi úr „Coppelia". Eitt af nýju verkunum var „Viltu koma til í það?“ eftir Nönnu Ólafsdóttur, við tónlist eftir Jónas Tómasson. Þetta er nokkurs- konar tvöfaldur sólódans, þar sem tvö pör dansa samtímis sama dans- inn. Nanna túlkar hughrif tónlistar- innar í mynd og hreyfingu á næ- man og skýran hátt, þar sem hvert andartak fær að njóta sín. Útkoman verður falleg ástarsaga í ágætri túlkun ungra dansara. Listdansskóli Þjóðleikhússins byggir á klassískum grunni í kennslu sinni. Þó var efnisskráin blönduð og „Nútímadans“ eftir Margréti Gísladóttur dæmi um verk, þar sem önnur tækni var not- uð. Þetta verk, sem engan veginn naut sín í æfingasal, var nú farið að líkjast einhveiju. Kom þar tvennt til, annars vegar beittari og samæfðari dans og hins vegar svið og lýsing. Verk sem samið er fyrir svið, nýtur sín ekki í æfingasal án lýsingar, ekki frekar en Hedda Gabler á Lækjartorgi. Lengst frá hinum klassíska grunni var samt „Spuni Mozart 91“ eftir Sylviu von Kospoth. Verkið minnir á látbragðs- leik, eða farsa, eða bæði. Fólk kann að spyrja sig að því, hvort atriðið hafi átt erindi á sýninguna. Undir- ritaður er sannfærður um það, að atriðið var hollur skóli þeim, sem tóku þátt í því, sem og þeim, sem horfðu á. Það er nauðsyn ungu fólki í list- námi að fá að koma fram og reyna sig. Þar liggur mikil vinna að baki og ber að þakka skólastjóra Ingi- björgu Björnsdóttur, kennurum og nemendum fyrir sýninguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.