Morgunblaðið - 26.06.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991
13
Til hvers hús-
eig-endafélag?
eftir Karl Axelsson
„Hvaða hag hef ég af því að
vera í Húseigendafélaginu?" Þess-
arar spurningar erum við starfs-
menn félagsins gjarnan spurðir og
hér á eftir verður leitast við að
svara henni.
Húseigendafélagið var stofnað
árið 1923, og nefndist þá Fast-
eignaeigendafélag Reykjavíkur.
Árið 1951 var nafni þess breytt í
Húseigendafélag Reykjavíkur, en
1985 er nafninu enn breytt og
Reykjavíkur fellt út úr heiti þess.
Um leið varð félagið að landssam-
tökum fasteignaeigenda.
Framan af var félagið fyrst og
fremst hagsmunafélag leigusala,
en á síðustu áratugum hefur það
breyst í almenn hagsmunasamtök
íbúðar- og húseigenda. Félagið
virðist þó enn gjalda þess misskiln-
ings, að það sinni eingöngu mál-
efnum leigusala. Það er þó alr-
angt. Félagsmenn geta orðið allir
þeir sem fasteign eiga á íslandi.
Hér á landi lætur nærri að rúm
80% íbúðarhúsnæðis séu í eigu
þeirra sem í því búa. Þörfin fyrir
hagsmunasamtök þeirra aðila er
brýn, enda liggur aleiga hins
venjulega borgara alla jafnan í
fasteigninni hans. En félagið
sinnir ekki eingöngu hagsmunum
eigenda íbúðarhúsnæðis. Eigendur
atvinnu- og verslunarhúsnæðis
geta einnig orðið félagar, enda
skarast málefni þeirra á mörgum
sviðum við hagsmunamál hins al-
menna íbúðareiganda.
Hagsmunamál húseigenda eru
fjölmörg og leitast félagið við að
vekja á þeim athygli og fylgja
þeim eftir á hveijum tíma. Þannig
hefur félagið haft afskipti af efni
ýmiss konar löggjafar sem snertir
hagsmuni íbúðar- og húseigenda.
Einstökum málum er og fylgt eft-
ir með fundahöldum, greinaskrif-
um og annarri íjölmiðlaumræðu.
Auk þess á félagið í samstarfi og
samskiptum við ýmsa hagsmuna-
aðila, sem um málefni fasteigna-
eigenda fjalla, til dæmis Neyt-
endasamtökin og Meistara- og
verktakasamband byggingar-
manna.
Segja má að helsta og veiga-
mesta baráttumál Húseigendafé-
lagsins sé að íbúðarhúsnæði verði
í einkaeign þeirra sem í því búa.
Telur félagið það þjóðhagslega
æskilegt vegna betri nýtingar fjár-
magns, betra viðhalds og betri
umgengni.
Meðal annarra einstakra hags-
munamála sem Húseigendafélagið
lætur sig varða, má nefna eftirfar-
andi:
— Að fasteignir á íslandi verði
ávallt sem tryggust eign.
— Að lánamál séu í því horfi að
ungu fólki sé gert kleift að
eignast eigin íbúð og að skil-
yrði fyrir lánum til viðgerða og
endurbóta á húseignum verði
lýmkuð frá því sem nú er.
— Lækkun fasteignagjalda,
eignaskatta svo og annars
kostnaðar af rekstri fasteigna.
— Að hagsmunum húseigenda
verði gætt gagnvart aðilum,
sem sjá um byggingu og við-
hald húsa og ákveðnar reglur
settar um ábyrgð þeirra.
— Að ákvæðum byggingareglu-
gerða sé fylgt eftir af mun
meiri festu en nú er.
— Að tryggingar þær sem húseig-
endum standa til boða séu full-
nægjandi og kostnaði við þær
haldið í lágmarki.
— Að öryggismál húseigenda
verði ávallt í sem bestu horfi,
ekki síst á sviði brunavarna.
í ýmsum almennum hagsmuna-
málum húseigenda hefur veruleg-
ur árangur náðst fyrir tilstilli fé-
„í ýmsum almennum
hagsmunamálum húseig-
enda hefur verulegur ár-
angur náðst fyrir tilstilli
félagsins, en í öðrum
málum hefur árangur
orðið minni en skyldi.“
lagsins, en í öðrum málum hefur
árangur orðið minni en skyldi.
Félagið sinnir ennfremur
Karl Axelsson
fræðslu og upplýsingaþjónustu.
Það gefur út fréttabréf. sem dreift
er endurgjaldslaust til félags-
manna. Þar birtast greinar og
annað efni sem varðar málefni
húseigenda. Félagið hefur tekið
þátt í húseigendadögum á lands-
byggðinni, boðið hefur verið upp
á námskeið, t.d. fyrir forsvars-
menn húsfélaga, auk þess sem
félagið hefur staðið fyrir gerð
fræðslumynda. Stefna félagsins
er að auka í framtíðinni fræðslu
og útgáfustarfsemi.
Félagið rekur lögfræðiþjón-
ustu, en þó eingöngu fyrir félags-
menn. Sú þjónusta felst m.a. í
ráðgjöf, álitsgerðum, gerð
leigusamninga o.fl. Auk þess er
á skrifstofu félagsins hægt að fá
flest allar þær upplýsingar sem
húseigendum eru nauðsynlegar.
T.d. húsaleigulögin, húsaleigu-
samninga, fjölbýlishúsalögin, hús-
reglur, stöðu byggingar- og húsa-
leiguvísitölu o.fl.
Félagsgjald fyrir einstakling er
nú kr. 1.700 á ári.
Nú hefur stjórn Húseigendafé-
lagsins ákveðið að blása til nýrrar
sóknar, með það að markmiði að
auka fjölda félagsmanna verulega.
Til þess að félagið geti náð mark-
tækum árangri verður það að njóta
öflugs stuðnings breiðrar fylking-
ar húseigenda. Betur má ef duga
skal, því að þrátt fyrir að fjöldi
félagsmanna hafí vaxið á undan-
förnum árum, þá er enn nokkuð
í land með að félagið hafi náð
þeim styrk sem æskilegur er.
Framtíðarsýnin hlýtur að vera sú
að íslenskir fasteignaeigendur telji
það bæði sjálfsagt og eðlilegt að
vera félagar í Húseigendafélaginu,
enda þjóni það sannanlega hags-
munum þeirra.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Húseigendafélagsins.
HEIMSKLÚBBUR Skipulag og fararstjórn: Ingólfur Guðbrandsson Tk
INGÓLFS KYNNIR V
LISTA, OPERU OG SÆLKERAFERÐ - ÞAÐ BEZTA AITALIU
í .
"2 'Xi-
HB|
ItMiM
ITALIAIHEIMSREISUSTIL
2ja vikna listskodun og lífsnautn ífegurstu héruðum og borgum Italíu. Brottför 23. ágúst.
FERÐAMÁTI: Flug til MILANO og til baka frá Róm.
Akstur um Ítalíu í gíæsilegustu gerð farþegavagria.'*
GISTIIMG: Alls staðar á 4-5 stjörnu hótelum, sérvöldum
með tilliti til gæða og staðsetningar.
Hlaðborðsmorgunverður.
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR:
1,
t JfL
Tj(
: ■ >é ■ ^mmíuÉim
J-- -
MILANO, m.a. LA SCALA óperan, Dómkirkjan, BRARI
safnið og Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci
í Santa Maria delle Grazie.
VERONA, hin heillandi miðaldaborg Rómeós og Júlíu
og óperan TURANDOT í ARENUNNI með frægustu
söngvururm, heimsins þar á meðal Keistján Jóhanns-
son. Gist á splunkunýju glæsihóteli, LEON D’ORO.
3.
GARDAVATNIÐ með töfrandi fegurð og bæjunum
SIRMIONE, BARDOLINO, GARDA, TORBOLE, RIVA.
Siglt á vatninu.
Listir og líf í FENEYJUM. Þar sem gist verður á HOTEL
LUNA við CANAL GRANDE, rétt við MARKÚSARTORG
til að upplifa töfra borgar hertoganna á nóttu sem degi.
ítalska hjartað - listaborgin FLÓRENS, þar sem gist er
3 nætur á BERNINI PALACÉ, mitt í heimslistinni til að
sjá með eigin augum snilld endurreisnarinnar, mestu
listfjársjóði veraldar í söfnunum UFFIZI og PITTI.
PISA, SIENA OG ASSISI, borgirnar, sem eru sjálfar
eins og undurfagurt safn aftan úr öldum, ótrúlegri en
orð fá lýst. Gist á PERUGIA PLAZA.
RÓM, borgin eilífa, fyrrum miðpunktur heimsins, hefur
engu tapað af þeim segulmagnaða krafti, sem dregið
hefur að ferðamenn fá öllum heimshornum í 2000 ár.
Gist 4 nætur á REGINA BAGLIONE hótelinu við sjálfa
VIA VENETO.
Ef listir, saga og fegurð höfða til þín, er þetta ferð sem
þú mátt ekki missa af. Allur viðurgerningur, matur og vín
eins og bezt gerist í gósenlandi sælkera.
ENDURTEKIIM, ENDURBÆTT FRÁ í FYRRA.
4.
5.
6.
7.
»l
T-rti
V
~~y ■
Aörar ferðir
HEIMSKLÚBBSINS;
Lönd morgunroðans
uppseld, biölisti
Afríko -
5 sæti lous
REYNSLA FARÞEGA:
„Við hjónin höfum verið tvisvar á Italíu áður, en okkur opnað-
ist nýr heimur í Lista- og óperuferðinni, siíkur unaður var hún
og samfelld veizla, sem við vildum gjarnan endurtaka. Þetta
þökkum við fyrst og fremst skipulagi og fararstjórn Ingólfs
Guðbrandssonar, sem við teljum alveg í sérflokki. Ef fólk vill
kynnast fegurð Ítalíu, þá er þetta ferðin. Beztu kveðjur.“
EDDA GÍSLADÓTTIR LAXDAL
“Ij
;.a£A
Grípið tækifæn°!
Getumennbættvið10sætum
í þessa einstoku ferð.
Ingóifur veröur sjálfur til vtðtals
ogveitir upp'Ýs,n9ar
kl -\4-16 í da9i
[iiiik i as i ö 111
wm
AUSTURSTRÆTI17, SÍMI: (91)622011 & 622200