Morgunblaðið - 26.06.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.06.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 Sj ávarútvegnr- inn og framtíðin Sjávarútvegsstefna Alþýðuflokksins eftir Jón Sigurðsson Könnun sem Félagsvísindastofn- un Háskóla Islands gerði nýlega fyrir Morgunblaðið á viðhorfum fólks til grundvallaratriða í sjávar- útvegsmálum hefur vakið verðskul- daða athygli. Könnunin sýndi að tveir þriðju hlutar þeirra sem tóku afstöðu eru hlynntir því að útgerðar- menn greiði gjald í sameiginlegan sjóð fyrir veiðiheimildir. Þá var það leitt í ljós að meira en 80% eru hlynntir því að byggðarlögum verði tryggðar veiðiheimildir. Um helmingur aðspurðra taldi það koma til greina að semja við Evrópuþjóðir um að þær fái tak- markaðar veiðiheimildir í vannýtt- um stofnum á íslandsmiðum gegn sambærilegum veiðiheimildum fyrir íslendinga j lögsögu annarra þjóða, um leið og Islendingar fái tollfrálsan aðgang að Evrópumarkaði fyrir sjávarafurðir sínar. Loks staðfesti könnun Félagsvísindastofnunar að yfírgnæfandi meirihluti þjóðarinnar, eða 95% þeirra sem afstöðu tóku, lítur á fiskimiðin sem sameign þjóð- arinnar. Þessar niðurstöður eru merkileg- ar fyrir margra hluta sakir. Þær sýna að fólk tekur hiklaust afstöðu til mikilvægustu þátta fiskveiði- stefnunnar. Hins vegar hafa stjóm- málaflokkarnir — að Alþýðuflokkn- um undanskildum — ýmist verið andvígir eða tregir til að kveða skýrt upp úr um afstöðu sína til þessara mála. Með einföldum orðum má segja að niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar feli í sér mikinn stuðning við meginatriðin í þeirri sjávarútvegsstefnu sem Al- þýðuflokkurinn hefur boðað og kynnti fyrir síðustu kosningar. Það er þess vegna ástæða til að kynna hana á ný í þessu Ijósi. í kosningastefnuskrá Alþýðu- flokksins var fjallað ítarlega um sjávarútvegsmál. Áhersla var lögð á það, að sjávarútvegurinn er og verður um langa framtíð mikilvæg- asta atvinnugreinin í íslenskum þjóðarbúskap og undirstaða at- vinnulífs víða um land. Jafnframt er auðlindin sem sjávarútvegurinn byggir á, fiskistofnarnir umhverfis landið, sameign íslensku þjóðarinn- ar. Þetta eru þau grundvallaratriði sem sjávarútvegsstefnan þarf að byggja á. Sjávarútvegurinn, bæði veiðar og vinnsla, hefur verið undirstaða efna- hagslegra framfara hér á landi frá því fyrir síðustu aldamót. Með sam- drætti í afla á síðustu árum hefur dregið verulega úr hagvexti. Það liggur fyrir að í bráð er ekki vaxtar- von frá auknum sjávarafla. Það er fýrst og fremst með auk- inni hagkvæmni í veiðum og vinnslu og vöruþróun sem sjávarútvegurinn getur lagt sitt af mörkum til auk: inna þjóðartekna á næstu árum. í veiðunum er mikilvægast að minnka flotann og sníða hann að afraksturs- getu fiskistofnanna með úreldingu fiskiskipa. Til þess að ná þessu marki þarf að breyta kvótakerfinu og taka í áföngum upp kerfi sem byggir á endurgjaldi fyrir veiðileyfi til þess að auðvelda megi hagræðingu í fisk- veiðum og þjóðinni allri verði tryggð réttlát hlutdeild í arði af auðlindum sjávar. Veiðiheimildir eiga aldrei að mynda einkaeignarrétt. Fiskistofn- arnir eru sameign þjóðarinnar, en ekki séreign fárra útvalinna. Þetta er reyndar þegar bundið í lög. Mikilvægt skref Með breytingum á lögum um stjórn fiskveiða og hagræðingarsjóð sjávarútvegsins vorið 1990 var stig- ið mikilvægt byijunarskref í átt til endurgjalds fyrir veiðileyfi. Þá var einnig ítrekað að fiskistofnarnir væru sameign þjóðarinnar og út- hlutun veiðiheimilda myndaði ekki einkaeignarrétt. Alþýðuflokkurinn átti frumkvæði að þessum mikil- vægu breytingum á sama hátt og sameignarákvæðið kom inn í lögin 1988 að hans tillögu. Það er nauðsynlegt að frekari skref verði stigin á þessu kjörtíma- bili, til dæmis þannig að sá hluti heildarkvótans sem úthlutað er á grundvelli aflareynslu fari minnk- andi, en sá hluti sem gjald kemur fyrir fari að sama skapi vaxandi. Vandlega þarf að gæta að sam- hengi stefnunnar í fiskveiðimálum og þróunar byggðar í landinu. Til greina kemur að hluta af tekjum af veiðileyfagjaldinu verði varið til að styrkja þær byggðir sem fyrir áföllum verða og snúa vörn í sókn. Samhliða veiðigjaldinu er nauð- synlegt að gera ráðstafanir í al- mennum rekstrarskilyrðum sjávar- útvegs, þar með í gengismálum, sem komi í veg fyrir að gjaldtakan jafn- gildi skattlagningu á útveginn. Þannig væri mikilvægum áfanga náð í því að jafna starfsskilyrði inn- lendra atvinnuvega, bæði innan sjávarútvegsins milli veiða og vinnslu og ekki síður milli sjávarút- vegs og iðnaðar og nýrra atvinnu- greina. Þetta er afar mikilvægt sjón- armið. Það kemur vel til álita að þessar breytingar á fiskveiðistjórn og rekstrarskilyrðum verði gerðar á alllöngurft tíma, t.d. á næstu 5 til 10 árum. Aðalatriðið er hins vegar að skipuleggja og skynsamlega verði nú á málinu tekið. Samningar um EES Tollar á unnum fiski og styrkir til sjávarútvegs í Evrópubandalag- Jón Sigurðsson „Það kemur vel til álita að þessar breytingar á fiskveiðistjórn og rekstrarskilyrðum verði gerðar á alllöng- um tíma, t.d. á næstu 5 til 10 árum. Aðalatriðið er hins vegar að skipu- leggja og skynsamlega verði nú á málinu tek- ið.“ inu torvelda íslenskri fiskvinnslu að keppa um fiskinn sem aflast á mið- unum við landið. Við þessu hefur verið brugðist með því að leggja áherslu á aukna fríverslun með fisk- afurðir í samningaviðræðum EFTA- ríkjanna og Evrópubandalagsins. Einnig þarf að kanna vandlega hvort rétt sé að lögfesta að allur fískafli verði seldur á innlendum fískmörkuðum. Nú standa vonir til þess að samn- ingar náist um tollfrelsi fyrir allar íslenskar sjávarafurðir á Evrópu- mörkuðum í samningum um Evr- ópska efnahagssvæðið um leið og gerðir verði samningar um takmörk- uð skipti á veiðiheimildum. Toll- fijáls aðgangur að Evrópumarkaði er mikilvægasta hagsmunamálið um þessar mundir fyrir íslenskan físk- iðnað og þar með fyrir sjávarbyggð- irnar. Þá er ekki síður mikilvægt að auka hagkvæmni í innlendri fisk- vinnslu með aukinni vöruþróun og tæknivæðingu og bættri nýtingu fjárfestinga. Mótun fiskvinnslu- stefnu þarf að taka mið af nauðsyn þessa. Á undanförnum árum hefur verið losað um þá einokun sem lengi hafði ríkt í útflutningi á frystum físki. Ljóst er að í sjávarútveginum er ekki síður þörf á samkeppni en á öðrum sviðum. Því ber að afnema alla lögbundna eða leyfisbundna ein- okun á útflutningi sjávarafurða. Rjúfum kyrrstöðu Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem mynduð var 30. apríl 1991, hefur sett sér það meg- inmarkmið að ijúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun í atvinnulíf- inu, sem skili sér í bættum lífskjör- um. Ný sjávarútvegsstefna sem nær bæði til veiða og vinnslu, hamlar gegn ofveiði, eflir fískmarkaði, tre- ystir byggðina í landinu og stuðlar að hagræðingu, er snar þáttur í þessari stefnumótun til framtíðar. Það er grundvallaratriði í þessari stefnu að stjórnskipuleg staða sam- eignarákvæðis laga um stjórn físk- veiða verði tryggð og það ákvæði gert virkt. Það er greinilegt að þessi sjón- armið eiga mikinn hljómgrunn með þjóðinni. Spurningin um gjaldtöku fyrir veiðiheimildir er í senn spurn- ing um réttlæti og hagkvæmni. Hún snýst um það grundvallaratriði, að það er hvorki rétt né skynsamlegt að afhenda fámennum hópi auðlind- ir sjávar, sameign þjóðarinnar, án endurgjalds til eigendanna. Framundan er mikið starf við endurskoðun fískveiðistefnunnar. Þar verður byggt á þeirri mikilvægu reynslu sem fengist hefur frá því kvótakerfið var innleitt, en um leið þarf að horfa til framtíðar. Finna þarf leiðir til þess að tryggja hvort tveggja í senn að ekki sé gengið of nærri auðlindum sjávar og fyllstu hagkvæmni sé gætt í rekstri sjávar- útvegsins. En einnig þarf að finna leiðir til að tryggja að athafnafrelsi og fram- tak fái að njóta sín um leið og eðli- legt afgjald komi fyrir aðgang að hinni sameiginlegu auðlind. Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. KIRKJUSKJÓL eftir Bernharð Guðmundsson Ragnheiður Davíðsdóttir blaða- maður skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðinu 14. júní sl. Hún vekur máls á því sem marg- ir spjalla um, að kirkjur landsins og safnaðarheimili standi auð og ónotuð stóran hluta dagsins. Hún bendir líka á þörfina fyrir athvarf fyrir utangarðsfólk og aðra sem eru félagslega afskiptir, og vildi gjarnan sjá slíkt í kirkjuhúsun- um. Ragnheiður kveðst hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni þegar henni varð ljóst að kirkjan stóð ekki und- ir væntingum hennar um athvarf við lítilmagnann. Hún bendir hins vegar á fordæmi um félagslega aðstoð við safnaðarfójk, sem er at- hvarfið í Fella- og Holakirkju fyrir börn sem eru á eigin vegum, vegna útivinnu foreldra og kallar eftir frekari þjónustu við þá sem minna mega sín. Það er starfsmönnun kirkjunnar þakkarefni þegar vakandi og áhug- asamt fólk veltir fyrir sér hvaða möguleikar eru til þess að mæta þörfum samfélagsins þannig að líf einstaklingsins verði betra. Ragn- heiður hefur líka sýnt það með starfi sínu að vörnum gegn umferð- arslysum hveiju vakandi vilji og verkfúsar hendur fá áorkað. Tvennskonar þjónusta kirkjunnar Þjónusta kirkjunnar hefur verið greind í tvennt, innra og ytra starf safnaðarins. í samfélagi guðsþjón- ustunnar fær söfnuðurinn kraft til þjónustu við lífíð. Kirkjan er kölluð til að þjóna manneskjunni allri, lík- ama, sál og anda. Þess vegna er bæði hin ytri sem innri þjónusta kirkjunnar jafnmikilvæg og þar er um nærandi gagnverkandi áhrif að ræða. Hinn virki kjarni safnaðarins, sem þiggur næringu trú sinni í helgihaldi og samfélagi kirkjunnar, sýnir trú sína í verki í þjónustunni við náungann, hver sem hann er. Til þessa býður kirkjan alla vel- komna til starfs og samfélags og gott væri að eiga Ragnheiði og fleiri hennar líka að, til þess að leggja hönd á plóginn í þessu starfi, því að verkefni eru næg og er þá vægt til orða tekið. Kirkjuskjól í tveimur söfnuðum Sem fræðslustjóra kirkjunnar þótti mér vænt um að Ragnheiður skyldi geta tilraunarinnar um at- hvarf fyrir börn í Fella- og Hóla- kirkju. Þarna er um að ræða lág- vært starf sem virðist mæta mikilli þörf og vera vísir að meiru. Kirkjuþing 1990 samþykkti að beina þeim tilmælum til safnaða landsins „Þar sem það er kleift og þarft að boðið verði upp á athvarf á vegum safnaðarins fyrir börn sem verða að vera á eigin vegum hluta dagsins". Fræðsludeild fylgdi þessu máli eftir með starfshópi frá Reykjavík- urprófastsdæmi, sem varð til þess að opnuð voru athvörf í tveimur kirkjum, Neskirkju og Fella- og Hólakirkju, í 10 vikur í tilrauna- skyni nú í vor. Voru þau nefnd kirkj- uskjól og rekin í náinni samvinnu við söfnuðina þar sem veittu fé til tilraunarinnar, auk þess sem Kirkj- uráð studdi vel fjárhagslega. Þrír fjölskylduráðgjafar tóku að sér undirbúningi og framkvæmd þessa starfs. Strax kom í ljós, að aðeins var hægt að fá inni fyrir kirkjuskjólin á morgnana, vegna þess hve safnaðarheimilin voru ásetin síðdegis. Kom það fjölskyldu- ráðgjöfunum mjög á óvart, enda fer kirkjuleg þjónusta yfírleitt ekki mjög hátt. Eins og hjá afa og ömmu Hugmyndafræði kirkjuskjólanna fólst í því að skapa aðstæður fyrir börnin eins og „hjá afa og ömmu“. Eldri borgarar komu reglubundið og voru með börnunum og miðluðu þeim af reynslu sinni og visku og voru báðar kynslóðirnar þakklátar fyrir samveruna. Hér er um að ræða nýja áherslu í ellistarfi kirkj- unnar, þar sem roskið fólk er veit- endur en ekki sífelldir þiggjendur. Foreldrar barnanna áttu líka vísa aðstoð og ráðgjöf ef þurfti í kirkju- skjóli. Við treystum því að fleiri söfnuð- ir fylgi fordæmi safnaðanna í Nes- kirkju og Fella- og Hólakirkju, sem gerðu þetta kleift og hafa látið í ljós vilja til að halda starfínu áfram. Þessari tilraun er nú lokið. Starf- skýrsla og aðrar upplýsingar eru Bernharður Guðmundsson „Það er starfsmönn- un kirkjunnar þakkar- efni þegar vakandi og áhugasamt fólk veltir fyrir sér hvaða mögu- leikar eru til þess að mæta þörfum samfé- lagsins þanníg að líf einstaklingsins verði betra.“ fáanlegar á fræðsludeild Biskups- stofu. Stutt við fanga og utangarðsbörn En verkefnin éru næg, sem fyrr segir. í nýju tölublaði Víðförla, sem kemur nú um mánaðamót, skrifa tveir ungir prestar um starf sitt og þjónustu við þá sem eiga í erfíðleik- um. Annar hefur, í hlutastarfi á veg- um fræðsludeildar, starfað meðal ungra fanga og kallar eftir miklu meiri þjónustu við þá sem „lifa nið- urlægðu lífí“. Hinn hefur starfað með unglingum sem „eru á göt- unni“ og kallar eftir því að mark- hópur unglingastarfs kirkjunnar séu allir krakkar, ekki aðeins þau prúðu og ræktuðu, heldur miklu fremur hin ungu og óhörðnuðu ut- angarðsbörn. „Guð er kannski mest hjá þeim, því að þar er þörfin stærst,“ segir þessi ungi prestur í grein sinni. ' Virðingin og væntumþykjan Hér eru tekin dæmi um félags- lega þjónustu kirkjunnar. Það má líka benda á nýstofnaða Fjölskyldu- þjónustu kirkjunnar, sem er að hefja störf um þessar mundir. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur líka hlynnt að mörgum hér innan- lands þótt ekki fari hátt, það er líka lágvært starf. Vissulega eru þetta aðeins gárur, miðað við þörfina. Þess vegna er kallað eftir fleiri höndum, fleiri hugmyndum. Það er kallað eftir vakandi fólki með vilja til að starfa, til að þiggja krafta Guðs í samfélagi guðsþjónustunnar og miðla honum síðan í þjónustu við þá sem á einhvern hátt eru þurfandi. Sú þjónusta er margvís- lega og þar er fyrirbænin mikilvæg. Hún kveikir virðingu og vænt- umþykju með þeim sem biður, fyrir þeim sem beðið er fyrir. Slíkt verð- ur ekki til eftir pöntun, þess vegna skortir slíkar tilfínningar oft í sam- skiptum manna. Eg þakka Ragnheiði Davíðsdótt- ur vekjandi grein og vona ð hún megi efla umræðu og áhuga á hinu mikilvæga þjónustustarfí kirkjunn- ar við manneskjuna alla í margvís- legum vanda hennar. Höfundur cr forstöðumaður Fræðslu- og þjónustudeildar Biskupsstofu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.