Morgunblaðið - 26.06.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991
19
Krosshóll
bjó m.a. Bogi Benediktsson höfundur
Sýslumannaæva. Á liðnum áratug-
um var Staðarfell skólasetur en nú
er stunduð mannrækt á veum SÁÁ.
Þegar komið er inn fyrir Klofning
er stutt í höfuðbólið Skarð. Skarð
er sú jörð hér á landi sem lengst
hefur verið í eigu sömu ættar, eftir
því sem kunnugt er, eða frá 11. öld.
Þarna sat Björn ríki Þorleifsson og
húsfrú hans Ólöf ríka á seinni helm-
ingi 15. aldar. Björn var hirðstjóri
og átti sem slíkur í útistöðum við
Englendinga, er versla vildu við ís-
lendinga. Fór svo að Björn var drep-
inn. Eru fleyg tilsvör Ólafar er henni
bárust fregnir af falli Björns: „Eigi
skal gráta Björn bónda heldur safna
liði,“
í Saurbænum var Staðarhóll höf-
uðbólið. Þar bjó Sturla lögmaður
Þórðarson, sagnaritari, á ijórða tug
ára.
Við höldum Svínadalinn til baka.
Við erum á þeim slóðum þar sem
frásögn Laxdælu er hvað áhrifarí-
kust.
„Það er fimmtudagur í páskaviku.
Kjartan Ólafsson ríður suður dalinn
um Mjósyndi. Bolli og föruneyti hans
riðu norður dalinn og námu staðar
hjá gili því er Hafragil heitir. Kjart-
an kemur suður yfir gilið og sér
fyrirsátina. Hefst nú bardaginn.
Bolli stendur þó hjá. Þegar hallar á
lið hans og undir miklum frýjunar-
orðum bregður hann sverðinu Fót-
bít. Kjartan kastar vopnum og vill
ei beijast við Bolla. Bolli veitir hon-
um banasár en sest þegar undir
herðar honum og andaðist Kjartan
á knjám Bolla.“
Við höldum heim um Skógar-
ströndina. Þegar við förum yfir Laxá
skulum við huga að tveimur klappar-
ásum sem eru litlu vestar ofanvert
við veginn. Milli ásanna er þröngt
skarð og heitir þar Fyrirsátur. Um
skarðið lá gamla gatan.
. Árið 1549 sendi Jón biskup Ara-
son á Holum syni sína Björn og Ara
vestur á Snæfeilsnes til að handtaka
þijá siðskiptamenn. Einn af þeim
var Daði Guðmundsson í Snóksdal.
Fréttu þeir, að Daði var á heimleið
vestan úr Rifi fáliðaður og gerðu
þeir honum fyrirsát þarna í skarð-
inu. Strengdu menn þeirra ólarreipi
milli klettanna þvert yfir götuna í
mitti^hæð og ætluðu að láta hest
Daða kollsteypast og yrði þá auð-
velt að handtaka hann. Myrkt var
af nóttu og reið Daði á undan mönn-
um sínum á annáluðum gæðingi,
sem kallaður var Dala-Brúnn. Sá
hesturinn hindrunina í tæka tíð og
lyfti sér léttilega yfir og hvarf út í
myrkrið með húsbónda sinn á fleygi-
ferð. Sátu fyrirsátursmenn eftir á
klettunum undrandi og agndofa.
Sumir vilja telja Dala-Brún einn
mesta hest íslandssögunnar, því að
gangur hennar hefði getað orðið all-
ur annar en raun varð á, ef þessi
hestur hefði ekki bjargað Daða frá
því að falla í hendur biskupi og son-
um hans. Ekki löngu síðar tókst svo
Daða að handtaka þá Hólafeðga á
Sauðafelli svo sem áður var greint
frá._
Áætlað er að ferð okkar ljúki í
Reykjavík kl. 20:00.
Höfum góða ferð.
Helstu heimildir: Árbækur
Ferðafélags íslands 1947 og 1986.
Höfundur er forseti Ferðafélags
íslands.
Landssamtök hjartasjúklinga efna nú til happdrættis í fyrsta skipti,
og er ætlunin að stuðla að kaupum á lijartaómsjá fyrir hjartadeild
Landspítalans. Hér eru Rúrik Kristjánsson og Kristinn Þórhallsson
að undirbúa kynningu á einurn þeirra þriggja bíla, sem eru vinningar
í happdrættinu.
verði happdrættismiða mjög í hóf
(500 krónur miðinn) og munu fé-
lagsmenn sjálfir annast alla sölu
miðanna sem er mun færri en al-
mennt tíðkast í happdrættum.
Hjartaómsjáin byggir á notkun
hátíðnihljóðbylgja til að kanna út-
lit og starfsemi hjartans. Þróun í
ómunartækni er mjög ör og flókna
hjartasjúkdóma er auðveldara að
greina og ákveða læknismeðferð.
Þetta tæki mun leysa af hólmi
fyrstu tækjagjöf : Landssamtaka
hjartasjúklinga frá árinu 1983.
Enn sem fyrr veltur það á skiln-
ingi almennings hvernig tekst til
með þessa fjáröflun. Til þess að
safna þeirri fjáriiæð, sem Lands-
samtök hjartasjúklinga hafa heitið
að leggja til þessa þarfa verkefnis
og til að hrinda í framkvæmd þeim
fjölmörgu viðfangsefnum, sem
samtökin munu beita sér fyrir á
næstunni, er vænst stuðnings
fólksins i landinu.
Sóknin gegn hjartasjúkdómum
á íslandi er hafin — árangur hefur
náðst — en mikið er þó ennþá
óunnið.
Höfundur erritarí Landssamtaka
lyartasjúklinga.
STAÐGREIÐSLA
Persónuafsláttur
hækkar 1. júlí
Mánaðarlegur persónuafsláttur hækkar í 23.922 kr.
Sjómannaafsláttur 6 dag hækkar í 660 kr.
Þann 1. júlí hækkar persónu-
afsláttur og sjómannaafsláttur
um 4,78%. Hækkunin nær ekki
til launagreiöslna fyrir júní og
hefur ekki í för meö sér aö ný
skattkort veröi gefin út.
Vakin er athygli launagreið-
enda á því að þeir eiga ekki að
þreyta fjárhæö persónuafslátt-
ar þegar um er að ræða:
• Persónuafslátt samkvæmt
námsmannaskattkorti 1991.
• Persónuafslátt samkvæmt
skattkorti meö uppsöfnuð-
um persónuafslætti 1991.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Ónýttur uppsafnaöur persónu-
afsláttur sem myndast hefur á
tímabilinu 1. janúar - 30. júní
1991 og verður millifærður
síðar hækkar ekki.
Á sama hátt gildir hækkun sjó-
mannaafsláttar ekki um milli-
færslu á ónýttum uppsöfnuð-
um sjómannaafslætti sem
myndast hefur á tímabilinu
1. janúar - 30. júní 1991.
HVÍTA HÚSID / SÍA