Morgunblaðið - 26.06.1991, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991
Nýkjörin stjórn Landssambands Gídeonfélaga á íslandi ásamt fram-
kvæmdastjóra og fulltrúa alþjóðastjórnar. Sitjandi frá vinstri: Sigurð-
ur Þ. Gústafsson og David Friesen. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn
Þorkelsson, Kári Geirlaugsson, Ársæll Aðalbergsson og Geir Jón
Þórisson.
35% í alþjóða biblíu-
sjóð Gídeonfélaga
eftir Sigurbjörn
*. Þorkelsson
Landsmót Gídeonfélaganna á
íslandi var haldið á Hellu dagana
24.-26. maí sl. Yfirskrift mótsins
var tekin úr 4. kafla Jóhannesar-
guðspjalls versi 35b: „Lítið upp
og horfið á akrana, þeir eru hvítir
til uppskeru.“ Meðal gesta okkar
á mótinu voru Benedikt Arnkels-
son sem hafði Bibiíulestra og
David Friesen, en hann var full-
trúi alþjóðastjórnar Gídeonfélaga
' á mótinu.
„Markmið félagsins er
það sama og hinnar
kristnu kirkju, þ.e. að
leitast við að ávinna
menn og konur til trúar
á Frelsarann Jesúm
Krist.“
Aðalfundur
Á landsmótinu var m.a. haldin
46. aðalfundur Gídeonfélaga á ís-
landi frá stofnun félagsins 1945.
MANNÚD
OG MENNING
LEIKUR-NÁM-STARF
Ungmennahreyfing Rauða krossins gengst fyrir
tveggja vikna nárrfskeið fyrir börn á aldrinum 8-10
ára. Á námskeiðunum fræðast börnin um ólíka
menningarheima, umhverfisvernd, skyndihjálp,
starfsemi Rauða krossins og margt fleira auk þess
sem þau gróðursetja tré, mála og fara í leiki.
Námskeiðin eru haldin á eftirtöidum stöðum:
KÓPAVOGUR 1/7-12/7 kl.9.00-16.00
AKUREYRI 1/7-12/7
REYKJAVtK 15/7-26/7
HAFNARFJÖRÐUR 15/7-26/7
REYKJAVÍK 29/7-9/8
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu RKÍ
í síma 91-26722
UNGMENNAHREYFING RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Á fundinum var m.a. kosin ný
stjórn, en í henni sitja nú eftirtald-
ir: Sigurður Þ. Gústafsson forseti,
Kári Geirlaugsson varaforseti,
Ársæll Aðalbertsson gjaldkeri og
Geir Jón Þórisson kapilán. Auk
þessara einn fulltrúi frá hverri
félagsdeild: Bjarni Gunnarsson,
Reykjavík, 1, Kristján Þorgeirs-
son, Reykjavík, 2, Steinar S. Wa-
age, Reykjavík, 3, Sveinn Valdi-
marsson, Keflavík, Davíð Hös-
kuldsson, ísafirði, Guðjón Guð-
mundsson, Akranesi, Jón Viðar
Guðlaugsson, Akureyri og Smári
Björnsson, Vestmannaeyjum.
Á fundinum kom m.a. fram að
Gídeonfélagar hefðu dreift eða
komið fyrir um 8.000 eintökum
af Nýja testamentinu á starfsárinu
1990-1991.
35% í alþjóða Biblíusjóðinn
Á fundinum var ákveðið að
senda 35% af öllu því fé, sem í
Biblíusjóð Gídeonfélaga á íslandi
safnast, i alþjóða Biblíusjóð Gíde-
onfélaga. Sá sjóður stendur undir
kostnaði við prentun á þeim Nýja
testamentum og Biblíum sem
dreift er á meðal Ijölmargra Gíde-
onlanda, sem ekki hafa efni á því
að kosta prentunina sjálfir nema
þá að litlum hluta. — Þetta ættu
þeir sem leggja fram fé í Biblíu-
sjóð Gídeonfélaga að hafa í huga.
Að lokum
Gídeonfélagið er alþjóðasamtök.
Félagið starfar nú í 148 löndum,
en Island er þriðja landið hvar
Gídeonfélag var stofnað. Markmið
félagsins er það sama og hinnar
kristnu kirkju, þ.e. að leitast við
að ávinna menn og konur til trúar
á Frelsarann Jesúm Krist. Gídeon-
félagið er einskonar framlengdur
armur kirkjunnar, félagið nær með
boðskap Bíblíunnar til margra sem
ekki sækja kirkjur og í mörgum
löndum, hafa jafnvel ekki kost á
því að 'sækja kirkjur.
Gídeonfélagar hafa um árabil
gefið skólabörnum eintak af Nýja
testamentinu, en einnig eru eintök
að finna inn á hótelherbergjum,
við sjúkrarúm og víðar. Hafa
margir hlotið mikla blessun og
styrk fyrir starf Gídeonfélaga,
enda er orð Guðs bæði lifandi og
kröftugt.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Gídeonfélagsins á Islandi.
Island í
eftir Hafliða
Helgason
Hver þjóð fær þá leiðtoga sem
hún á skilið, segir einhvers staðar
og má til sanns vegar færa. Þó
finnst manni stundum að fólki sé
full grimmilega refsað fyrir
glópsku sína. Eg hef sjálfur gert
ýmis mistök um dagana og ég
ætla að játa ein þeirra fyrir lesend-
um þessa greinarkorns og bið þess
í auðmjúkri iðrun að mér verði
fyrirgefið — ég kaus Alþýðuflokk-
inn. Eg veit, lesandi góður, að þig
hlýtur að setja hljóðan, en þetta
var í góðri trú gert og ég skal
reyna að gera þetta aldrei aftur.
Ég kaus Alþýðuflokkinn, vegna
þess að ég er jafnaðarmaður og
tel mig nútímalegan þar að auki.
I mínum huga felst það, að Vera
jafnaðarmaður, m.a. í því að
greina verðmæti í_ velsæld fólks
og hamingju þess. Ég tel að okkur
beri að stefna að því að jafna að-
stöðu þeirra sem hafa hlotið skarð-
an hlut í arf. I mínum huga er
velsæld og hamingja fólgin í fleiru
en efnahagslegri velferð, þó að
vitanlega sé hún að vissu marki
frumforsenda þess að fólk fái no-
tið verðmæta, einnig þeirra sem
ekki verða metin til fjár. Af þeim
verðmætum sem hvað mikilvæg-
ust eru telst menntun fólks. Hug-
takið menntun felur í sér meira
en það að afla sér þekkingar.
Menntuninni á einnig að fylgja sá
eiginleiki að hún auki skilning
manna á samhengi hluta, þannig
að þeir lifi í senn ríkara og heil-
steyptara lífi, og geri síður mistök
eins og t.d. þau sem ég hef játað
á mig.
Frumheijar jafnaðarstefnunnar
skildu að menntun er ekki einung-
is hagsæld heldur einnig farsæld.
í krafti þeirrar hugsunar sáðu
menn í akra menningar og mennt-
unar. Slíkir menn voru vin í þeirri
eyðimörk sem fátæk og niðurlægð
þjóð horfði til, þegar hún reis upp
til þátttöku, sem fullgildur með-
limur í samfélagi menntaðra þjóða.
En þjóðin á ekki vin þar sem
Jón Baldvin og kumpánar hans í
ríkisstjórninni eru. Þeim em hug-
sjónirnar gleymdar og munar lítið
um að fórna framtíðinni fyrir
stundarhagsmuni. Þeir naga 1 ný-
SLATTUORF
meö nælonbræöi
og sagarblaði
Þyngd 5,4 kg
Sláttarþvermál
40,6 sm
Verð áður
kr. 29.700 stgr.
ISUMARTILBOÐl
kr.24.900
stgr.
FÖ
SAMBANDSINS
MIKIMMHIISÍMAR (92090-192000
O-flokk
Hafliði Helgason
„Sá nýgræðingur sem
ríkisstjórnin nagar og
lætur vindum tímans
eftir að gera örfoka er
menntun fólks í þessu
landi.“
græðinginn eins og sauðkindin,
sem hefur það óneitanlega fram
yfir þá að vera bragðgóð og nær-
ingarrík, en yrði víst neðarlega á
blaði yfir þær skepnur sem friðað-
ar yrðu sökum greindar. Sá ný-
græðingur sem ríkisstjórnin nagar
og lætur vindum tímans eftir að
gera örfoka er menntun fólks í
þessu landi, möguleiki okkar til
að vera þjóð sem stendur framar-
lega í flokki þjóða heims bæði
hvað varðar hagsæld og farsæld.
Jón Baldvin mokar framsóknar-
flórinn beint í mjólkurbrúsana og
það hefur aldrei þótt góð bú-
mennska að skíta í nyt sína.
Með því að líta á Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna sem eyðslu-
sjóð en ekki fjárfestingarsjóð er
verið að hindra fjölda fólks sem
ekki hefur digra bakhjarla í því
að nýta hæfileika sína og vinna
þjóð sinni gagn. Það eru margir
sukk- og óráðsíusjóðir sem mætti
taka til í, en úr þeim geta stjórn-
málamenn úthlutað flokksbræð-
rum og vinum að vild sinni. í Lána-
sjóð íslenskra námsmanna nær
kolkrabbinn (eins og núverandi
tengdasonur fjölskyldnanna fjórt-
án, Össur Skarphéðinsson, kallaði
guðfeðurna í Sjálfstæðisflokkn-
um) ekki með arma sína nema til
að skera niður og getur því ekki
tryggt forréttindi síns fólks, nema
með því að hindra hina efnaminni
í að byija á sama stað á hlaupa-
brautinni.
Stuðningur við það hróplega
óréttlæti sem birtist í niðurskurð-
artillögum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna er ekki í anda jafn-
aðarstefnunnar og enn síður í anda
nútímalegrar jafnaðarstefnu. For-
ystumaður sem stefnir undir
merkjum jafnaðarmennsku að
slíkum uppblæstri á ökrum
mennta er svikari við málstað sinn
og á að víkja. Geri hann það ekki
sjálfur ber þeim sem kinnroðalaust
vilja ganga veg jafnaðarmennsku
að hafna forystu hans. Slíkur for-
ystusauður leiðir hjörð sína ekki í
A-flokk, heldur í O-flokk sem Jap-
anir kaupa fyrir slikk — og éta.
Höfundur er nemi í Háskóla
íslands.
-----------
Afhenti
trúnaðarbréf
Hannes Hafstein afhenti nýlega
Jacques Poos, utanríkisráðherra
Lúxemborgar, formanni ráðherra-
ráðs EB, og Jacques Delors, for-
seta framvkæmdastjórnar E_B,
trúnaðarbréf sem sendiherra ís-
lands hjá Evrópubandalaginu.