Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.06.1991, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 Dularfull ferjukaup eftir Friðrik Gunnarsson Samið hefur verið um smíði á ferju til þess að leysa af hólmi gömlu Vestmannaeyjafeijuna Herj- ólf. Nýja skipið er greitt af al- mannafé en verður afhent Herjólfi hf. til rekstrar. Ferjunefndir Ekki er gott að átta sig á því hve margar nefndir hafa verið skip- aðar og hafa starfað, en líklega voru þær sex eða sjö. Fyrstu nefnd- irnar athuguðu m.a. möguleika á kaupum á notaðri feiju, ákváðu hentuga stærð feiju, undirbjuggu útboð og fleira. Hvort ráðherra var að reyna flótta frá málinu skal lát- ið ósagt, en fum og fálm hafa ein- kennt meðhöndlun málsins frá upp- hafi. Útboð 20. júlí 1990 var opnað útboð í smíði 70 metra feiju. 22 stöðvar buðu í smíðina. Útboðið var fram- kvæmt á hefðbundinn hátt, upplýs- ingar voru veittar um hveijir buðu í smíðina, verð, afgreiðslutíma og kjör. 011 framkvæmd útboðs eins og menn eru vanir við opinber út- boð. Formaður þessarar nefndar var Halldór Krístjánsson frá samgöngu- ráðuneytinu, en ráðgjafar Skipa- tækni hf. Aftur útboð Ný nefnd var nú skipuð til þess að semja um smíði feijunnar. For- maður þessarar nefndar var Ragnar Óskarsson, stjórnarformaður Heij- ólfs, fulltrúi samgönguráðuneytis var Halldór Kristjánsson, fulltrúi fjármálaráðuneytis Sveinbjörn Ósk- arsson. Ráðgjafar nefndarinnar voru Jón B. Hafsteir.sson skipa- verkfræðingur og Ólafur Friðriks- son tæknifræðingur. Var nú farið fram á það við þá lægstbjóðendur sem uppfylltu öll skilyrði að dómi kaupenda, að þeir endurtækju boð sín með hliðsjón af ýmsum breytingum sem gerðar höfðu verið á skipinu og búnaði þess. Einnig vegna þess tíma er lið- inn var síðan fyrra útboð fór fram. Þetta útboð, sem fór fram að loknu forvali sbr. fyrra útboð, var opnað 19. febrúar 1991. Ekki fékkst uppgefið hveijir hefðu boðið né heldur hvaða verð og afgreiðslutíma þeir hefðu boðið. Nefndin tilkynnti samt að lægst- bjóðandi hefði verið Flekkefjord Slipp í Noregi og að teknar yrðu upp samningaviðræður við þá. Sellufundir Það kom í ljós að nefndin fól forræði í samningum þeim Svein- bimi Óskarssyni frá fjármálaráðu- neyti og ráðgjöfunum tveim, sem getið er hér að framan. Þessir aðil- ar veittu móttöku upplýsingum og „Hlýtur það að vera lágmarkskrafa að upp- lýst sé um niðurstöður útboðsins 19. febrúar síðastliðinn og hvert endanlegt samnings- verð var. Hér er vænt- anlega ekki um ríkis- leyndarmál að ræða.“ gögnum frá skipasmíðastöðvunum, matreiddu gögnin síðan fyrir nefnd- ina, og virtust hafa valið sér for- sendur og tínt til tölur er þeir settu í reikniformúlur, sem þeir hönnuðu eftir eigin höfði. Forsendur og reikniformúlur eru að sjálfsögðu leyndarmál eins og aðrar gjörðir þeirra. Strax og lægstbjóðandi hóf við- ræður við þessa trúnaðarmenn nefndarinnar virtist augljóst að trúnaðarmennirnir höfðu fastmót- aða skoðun á því að semja ætti við annan aðila en þann er nefndin hafði ákveðið. Báðu þeir um frest á viðræðunum til þess að velja ýmsan vélbúnað skipsins. Frestinn notuðu þeir ekki til þess að velja aðalvél eða búnað, ekki var búið að velja búnað en endanlegur samn- ingur var undirritaður. Þess í stað hófu þeir leynilegar viðræður við Simek, skipasmíðastöð í Flekke- fjord, Noregi. í frétt sem höfð er eftir Halldóri Kristjánssyni á þessum tíma er sagt „að viðræður standi yfir við lægst- bjóðanda, en einnig væri verið að ræða við ónefndan annan aðila“. Huldumaður Hér vil ég skjóta inn að frá Nor- egi fréttist að forstjóri Simek hafi sagt á fundi með verkstjórum stöðv- arinnar, er síðamefndu lýstu áhyggjum sínum um fyrirsjáanleg- an verkefnaskort, að þeir skyldu ekki hafa áhyggjur. Simek myndi fá Vestmannaeyjafeijuna, „vel staðsettur" umboðsmaður myndi sjá til þess. Hver er þessi umboðsmaður? Samningar Samið var við Simek A/S, samn- ingar undirritaðir 16. apríl í Vest- mannaeyjum. Samkvæmt fréttatil- kynningu af þessu tilefni er verð feijunnar sagt vera u.þ.b. 1.100 milljónir króna. Sé reiknaðmeð 10% niðurgreiðslu í Noregi og daggengi er samningsverð í NOK 137 milljón- ir. Simek tilkynnti norskum fjölm- iðlum að umsamið verð væri NOK 135 milljónir. Þrátt fyrir ítrekaðar skriflegar fyrirspumir hefur ekki fengist uppgefið hvaða verð stendur í samningnum eða annað um samn- inginn. Leynd Hin mikla leynd sem hvílir yfir þessu máli hlýtur að vekja grun- semdir um að ekki sé allt með felldu. Allar reglur um opinber útboð hafa verið brotnar. Mér er til efs að nefndarmenn í aðalnefnd hafi sett sig inn í útreikninga ráðgjafa sinna eða forsendur fyrir úttreikningun- um og uppbyggingu reikniformúla. Ekki fæst uppgefíð hver er umboðs- maður Simek, sá sami og stöðin bar svo mikið traust til. Þar sem feijan er greidd af almannafé og útboðið var á vegum samgönguráð- uneytis, hlýtur það að vera lág- markskrafa að upplýst sé um niður- stöður útboðsins 19. febrúar síðastl- iðinn og hvert endanlegt samnings- verð var. Hér er væntanlega ekki um ríkisleyndarmál að ræða. Siðferði Ekki er vitað til þess að áður hafi farið fram útboð hérlendis á vegum opinberra aðila, þar sem ekki fæst uppgefið hveijir buðu og hvað þeir buðu. Ekki er heldur vitað til þess að opinberir aðilar hafi gert stórsamninga án þess að gefið sé upp verð og um hvað var samið. Það mun ekki vera talið gott við- skiptasiðferði í nágrannalöndum okkar að leyna því hveijir bjóði í opinberar framkvæmdir eða hvem- ig opinber innkaup fara fram, jafn- vel til hernaðarþarfa. Það er og verður skýlaus krafa að samnings- nefnd um kaup á nýrri Vestmanna- eyjafeiju geri hreint fyrir sínum dyrum. Höfundur er framkvæmdastjóri í Reykjavík. Ríkið borgar tvisvar - lækkum skattana eftir Eggert Jónsson Þann 20. apríl bar ég fram fyrir- spumir í Morgunblaðinu varðandi umfang einkareksturs sumra lækna innan veggja Borgarspítalans. Þessar spurningar eiga við um öll sjúkrahús sem rekin eru fyrir al- mannafé. Engin svör hafa borist frá Borgarspítalanum, en hinsvegar frá mörgum sjúklingum sem staðfesta að þeir hafi undirritað óútfyllta reikninga jafnvel án þess að sjá viðkomandi sérfræðing. Þessar spumingar em hér með lagðar fyr- ir Tryggingarád Tryggingastofnun- ar ríkisins. í hvert sinn sem sjúklingur fer til læknis er hann látinn skrifa und- ir reikning til Tryggingastofnunar ríkisins. Það gildir einu hvoit farið er til heimilislæknis eða sérfræð- ings, undirritaður er reikningur sem er' ávísun á ríkissjóð. íslendingar eru orðnir vanir þessu, og undirrita 500.000 þús. óútfylltar ávísanir hugsunarlaust. í mörgum tilfellum man fólk ekki hvað læknirinn heitir þegar vikan er liðin. Heilbrigðis- og tryggingamálin kosta 43 millj- arða á þessu ári og af því fara margir milljarðar í iæknisþjónustu og lyf. Rekstur heilsugæslustöðva kost- ar 1599 milljónir á fjárlögum þessa árs1. Þar er húsnæðiskostnaður ekki meðtalinn né heldur verktaka- greiðslur heilsugæslulækna. Heilsu- gæslulæknar fá grunnlaun ca. 70 þús. á mán. og síðan fá þeir greit fyrir öll læknisverk. Þessar greiðsl- ur koma frá Tryggingastofnun og geta verið allt frá 100 þús. í dreif- býli - 200 þús. í þéttbýli fyrir dag- vinnu. M.ö.o. 170-270 þús. fyrir dagvinnu. Til samanburðar hefur hjaitaskurðlæknir sem er 40 ára og á hátindi síns ferils tæplega 130 þús. á mánuði f. dagvinnu. Nettó- laun margra heilsugæslulækna „Hámark vitleysunnar er þegar læknar á full- um launum á sjúkrahúsi taka verktakagreiðslur fyrir vinnu sem þeir framkvæma í vinnu- tíma sínum á sjúkrahúsi með efni og starfsliði spítalans endurgjalds- laust.“ virðast viðunandi því þeir greiða ekki húsaleigu, efni, búnað né laun hjúkrunarfólks. Rekstur heilsu- gæslustöðva mun því kosta miklu meira en 1599 milljónir í ár. Við komuna til heimilislæknis byijar þú á að undirrita óútfyllta ávisun á ríkissjóð. Það kostar þig 0 kr. að fara til heimilislæknis og það gefur augaleið að ekki er verð- Eggert Jónsson ið líklegt til aðhalds. Heimsóknin kostar ríkið a.m.k. 2.500 kr.2 í mörgum tilfellum eru sjúklingar leystir út með lyfseðlum, en greiðsluhluti sjúklings er mjög lág- ur. Mikið af lyfjum lendir uppi í skáp og þau aldrei notuð. Þegar farið er til sérfræðings í einhverri grein læknisfræðinnar er byijað á að undirrita óútfyllta ávís- un og greiða 300 kr. ef maður er gamall eða öryrki en 900 kr. ella. Sjúklingur hefur ekki hugmynd um hvað stendur á þessari ávísun þegar hún er leyst út hjá Tryggingastofn- un ríkisins. Það virðist sem fólki standi al- gjörlega á sama um þessa reikninga bara ef það sleppur með sínar 300 kr. eða 900 kr. I mörgum tilfellum er jafnframt um að ræða ávísun á ódýra skurðaðgerð, sem er ókeypis þegar þar að kemur. I slíku kerfi hafa sjúklingar engan augljósan hag af því að skipta sér af fjármál- unum og vilja ekki vita hvað hlutim- ir kosta. Hugsum okkur að vinsæl bflaumboð sem selja t.d. Mercedes Benz eða Range Rover hefðu sama háttinn á. Það væri nóg að skrá sig í viðtal fyrir 900 kr. og skrifa sig á biðlista — eftir þijú ár kemur bfllinn nýr úr kassanum og kostar þig ekkl neitt. Sumar skurðaðgerðir kosta eins og meðal fólksbíll. Svo skilur fólk ekkert í því að gamla fólkið þurfi að bíða eftir skurðað- gerðum, vegna þess að peningar ríkisins duga ekki til. Ef við sem erum á besta aldri og tiltölulega frísk greiddum sjálf okkar læknis- viðtöl og lyf upp að ákveðinni upp- hæð, til dæmis 15.000 kr. á ári, þá mundu þessi mál gjörbreytast til batnaðar. Allir býsnast yfir háum sköttum og þegar tugir milljarða fara í heilbrigðismál þá verða allir að leggjast á eitt til að lækka þenn- an kostnað. Engum heilvita manni dettur í hug að undirrita víxil eða skulda- bréf án þess að vita upphæðina, ekki einu sinni þó einhver annar eigi að borga. Hámark vitleysunnar er þegar læknar á fullum launum á sjúkra- húsi taka verktakagreiðslur fyrir vinnu sem þeir framkvæma í vinnu- tíma sínum á sjúkrahúsi með efni og starfsliði spítalans endurgjalds- laust. Sjúkrahúsið er rekið á kostn- að ríkisins með sérstöku framlagi á fjárlögum. Reikningurinn sem læknirinn sendir í eigin nafni er greiddur af ríkinu, Tryggingastofn- un ríkisins. Ríkið greiðir þannig tvisvar fyrir sama verk. Hvemig rækir Tryggingastofnun sitt trún- aðarhlutverk? Ekki sýnir hún sama örlætið við þá sem mest eiga bágt. Er þetta veijandi? Tilvitnanir: 1. Fjárlög 1991. 2. Árni Sigfússon: Ríkisstyrktur áródur gegn einkarekinni læknisþjónustu, Mbl. 25.1.90. HEIMSLJOS Höfundur er bæklunarlæknir og rekur Skyndimóttökuna Þorfinnsgötu 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.