Morgunblaðið - 26.06.1991, Page 38

Morgunblaðið - 26.06.1991, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1991 38 Minning: Dr. Oddur Guðjóns■ son fv. sendiherra Á hinum fallega sólríka þjóðhá- tíðardegi, 17. júní fannst mér sem skyndilega drægi ský fyrir sólu er ég frétti andlát vinar míns Odds Guðjónssonar þá um morguninn. Hann varð 85 ára 28. janúar sl. og héldu hann og Lotti kona hans myndarlega upp á það með fjöl- mennum vinahópi. Oddur var þá andlega hress og lék við hvern sinn fingur en líkamlega átti hann orðið erfitt með hreyfingar. Andlátið kom því ekki á óvart. Dr. Oddur var fæddur á Bergs- stöðum í Reykjavík, sem Bergstaða- stræti heitir eftir, og voru foreldrar hans María Guðmundsdóttir og Guðjón Gamalíelsson múrarameist- ari, en hann var á sínum tíma með- al þekktustu byggingameistara bæjarins og byggði m.a. Landspítal- ann og Kleppsspítalann. Oddur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólaunum í Reykjavík 1927 en sigldi að því loknu til Þýskalands og stundaði þar nám í hagfræði og lauk því með doktorsprófi 1934. Var hann síðan oftast kallaður doktor Oddur. Doktorsritgerð hans fjallaði um greiðslujöfnuð íslands árið 1930 og var brautryðjandi verk á því sviði. Strax eftir heimkomuna 1934 var dr. Oddur ráðinn skrifstofustjóri Verslunarráðs íslands. Gekk hann að því með miklum dugnaði að skip- uieggja og auka starfsemi ráðsins á næstu árum þar á eftir. Veit ég að þessi störf voru honum mjög kærkomin ekki síst vegna ánægju- legs og lærdómsríks samstarfs við þáverandi formann Verslunarráðs- ins, Hallgrím Benediktsson. Hann ávann sér strax mikið traust og vinsældir meðal verslunarmanna, enda hvíldi meginþungi af félags- starfí þeirra á þessum árum á hans breiða baki. Fljótlega kom að því, að dr. Odd- ur var skipaður fulltrúi verslunar- innar í opinberum nefndum. Starf- aði hann í verðlagsnefnd 1938-42; skömmtunarnefnd ríkisins 1939-43 og gjaldeyris- og innflutningsnefnd 1941-43. En í ársbyijun 1943 var hann svo skipaður í viðskiptaráð, sem falið var víðtækara starfssvið vegna stríðsástandsins en nokkur nefnd hafði áður haft. Viðskiptaráð- ið þurfti ekki aðeins að úthluta inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfum, taka verðlagsákvarðanir og sjá um vöru- skömmmtun, heldur einnig ráðstafa takmörkuðu skipsrúmi fyrir nauð- synlegustu vöruflutninga til lands- ins og annast innflutning ýmissa vörutegunda. Var hér um mjög vandasamt og heldur vanþakklátt starf að ræða, en almennt mun það viðurkennt, að það hafi farið dr. Oddi og ágætum samstarfsmönnum hans vel úr hendi. Með starfinu í viðskiptaráði hefj- ast þáttaskil í ævi og starfi dr. Odds. Hann var ekki lengur tals- maður og fulltrúi ákveðinna hags- muna heldur orðinn embættismað- ur, sem varð að meta hvert mál út frá almennum þjóðarhagsmunum. Þessi aðstaða hans var ekki auð- veld og sætti dr. Oddur stundum ómaklegri gagnrýni, sem ekki er hægt að furða sig á, þar eð ráðið fjallaði um viðkvæm hagsmuna- og deiiumái. En þeir, sem best þekkja til starfs dr. Odds á þessum árum, ijúka upp einum rómi um, að öll hans störf hafi einkennst af sér- stakri samviskusemi og sanngimi. Og það viðurkenna allir, sem til þekkja, að dr. Oddur hafi haldið vel á þeim málstað, sem hann barðist fyrir og honum fannst réttur. Hann var að eðlisfari samvinnulipur, en gat verið fastur fyrir og ákveðinn, þegar því var að skipta. Frá 1943 og til 1960 átti dr. Oddur sæti í öllum ráðum og nefnd- um, sem fjölluðu um innflutnings- og gjaldeyrisinál, verðlagsmál og fjárfestingarmál. Af viðskiptaráði tók við fjárhagsráð, síðan viðskipta- nefnd og loks innflutningsskrifstof- an sem iögð var niður 1960. í eitt ár 1961-62 gegndi dr. Oddur störf- um ráðuneytisstjóra viðskiptaráðu- neytisins í fjarveru þess sem þessar línur ritar. En á árunum 1962-68 var hann viðskiptaráðunautur ríkis- stjórnarinnar með skrifstofu í við- skiptaráðuneytinu. Fjallaði hann einkum um viðskipti og samnings- gerðir íslands við Austur-Evrópu- löndin, en á þessu sviði hafði hann mikla reynslu og þekkingu því að hann hafði frá 1950 tekið reglulega þátt í samningaviðræðum við Tékkóslóvakíu, Pólland, Ungverja- land, Rúmeníu og seinna við Sov- étríkin. Dr. Oddur sat einnig marg- ar alþjóðaráðstefnur m.a. árlega fundi efnahagsnefndar Evrópu (ECE) um austur-vestur viðskipti, ráðstefnu um vandamál þróunar- landa (UNCTAD) 1964 og físki- málaráðstefnuna í London 1964. Það var vel ráðið þegar dr. Odd- ur með sína miklu hæfileika og reynslu var árið 1968 skipaður sendiherra íslands í Sovétríkjunum og gegndi hann því starfí með mikl- um sóma til ársins 1974. Alhliða þekking hans á viðskiptamálum og áratuga reynsla í milliríkjasamning- um kom honum að góðu haldi í sendiherrastarfinu. Vann hann þar ómetanlegt starf fyrir íslenskt at- vinnulíf og útflutning. Þeir mörgu samningamenn, og þar á meðal sá sem þetta ritar, eru ævinlega þakk- látir fyrir gestrisni Odds og Lottiar og margvíslega aðstoð á meðan þeir dvöldu í Möskvu. Nú á ieiðarenda vil ég láta í ljósi sérstakt þakklæti fyrir langa og trygga vináttu Odds sem aldrei féll skuggi á. Ekki minnist ég þess að okkur hafí nokkum tíma orðið sundurorða, enda höfðum við svip- aðar skoðanir um þau mál sem við unnum saman að. Dr. Oddur sótti ekki aðeins há- skólamenntun sína til Kílar heldur líka sína ágætu konu Lieselotte fædd Laufkoetter og var hjónaband þeirra með miklum ágætum. Þeirra börn eru María Bertrand, Lieselotte Singer og Þórir Oddsson vararann- sóknarlögreglustjóri ríkisins. Dæt- urnar eru búsettar í Þýskalandi, en Þórir er giftur Jóhönnu Ottesen, viðskiptafræðingi og eru barna- börnin orðin fimm. Við Lilly vottum þeim öllum ein- læga samúð okkar. Þórhallur Ásgeirsson Þegar ég sest niður til að skrifa nokkur orð um vin minn dr. Odd Guðjónsson sem nú hefur kvatt okkur, þá koma fram í hugann margar endurminningar, enda tíminn orðinn langur síðan við kynntumst. Ég ætla ekki að rekja æviferil hans, sem er merkur og langur, það munu aðrir gera svo ekki verður um bætt. Mun ég því stikla á nokkrum atriðum, sem mér eru minnisstæð úr samskiptum okk- ar á langri leið og bregða nokkru ljósi á manninn. Fyrstu kynni mín af Oddi voru raunar ekki persónuleg heldur af afspurn. Háskólinn í Kiel í Þýska- landi hefur löngum haft nokkurt aðdráttarafl fyrir íslenska stúdenta, einkum á tveimur sviðum, hagfræði og líffræði, aðallega fískifræði. Þangað hafði Oddur haldið að loknu stúdentsprófí til náms í hagfræði, enda vissi hann að við þann skóla var ein virtasta hagfræðistofnun Þýskalands. Þaðan lauk hann svo doktorsprófi árið 1934. Það var svo árið eftir, þegar ég innritaðist í þennan háskóla, að ég hafði spum- ir af Oddi. Það var fljótt ljóst, að það var ánægjulegt að koma í fót- spor hans. Ýmsir við hagfræðistofn- unina bæði kennarar og nemendur þekktu hann og það leyndi sér ekki, að þau kynni leiddu af sér góðan orðstír. En það var ekki aðeins við skólann, sem við nutum Odds. Það tíðkaðist oft á þessum tíma, að stúd- entar drýgðu takmarkaðar yfir- færslur með því að hafa skrínukost á kvöldin og hafði Oddur verslað t Móðir mín, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Seljavegi 15, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 24. júní. Ragnhildur Guðmundsdóttir, Guðlaugur Sæmundsson, Reynir Guðlaugsson, Gerður Guðlaugsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÚN ÞORKELSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavik, lést mánudaginn 24. júní. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ANTON SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Fornhaga 26, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 21. júni. Haraldur Antonsson, Karin Hartjenstein, Steinar Antonsson, Sigurður Antonsson, Ingólfur Antonsson, Erla Eggertsdóttir, Hjalti Sigurðsson, Jóna Kristmannsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu laugardaginn 22. júní. Kveðjuathöfn fer fram í Áskirkju föstudaginn 28. júnf kl. 15.00. Útför verður gerð frá Víkurkirkju laugardaginn 29. júní kl. 14.00. Erlendur Einarsson, Margrét Helgadóttir, Steinunn Einarsdóttir Fink, Albert Fink, Erla Einarsdóttir, Gísli Felixson og fjölskyldur. t Faðir okkar, t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURJÓN JÓNSSON, HALLDÓRA AÐALSTEINSDÓTTIR, Heiðarhvammi 2, Smyrlahrauni 17, Keflavík, Hafnarfirdi, andaðist mánudaginn 24. júní. andaðist í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 25. júní sl. Júlíus Þór Sigurjónsson, Hafdís Jóhannesdóttir, Eiríkur Ólafsson, Sigriður Bi'lddal, Viðar Sæmundsson, Aðalsteinn Sæmundsson, Anna Sigurjónsdóttir, Sigurður Sæmundsson, Lísbeth Sæmundsson, Jóna Sigurjónsdóttir. barnabörn og barnabarnabörn. við konu eina, sem hafði verslun í hverfinu, sem við bjuggum í. Svo góð höfðu þau viðskipti verið, að ekki þurfti annað en nefna nafn Odds til að fá bestu kjör í verslun- inni og jafnvel lánsviðskipti ef svo bar undir. Ríkti þar fullt traust. Fyrir okkur nýgræðingana, en það vorum við Birgir Kjaran, sem hófum námið haustið 1935, var það auðvit- að ómetanlegt veganesti að eiga slíkan fyrirrennara. En dvölin í Kiel færði honum líka þá hamingju að eignast þann lífsförunaut, Liesel- otte, sem hefur verið honum styrk stoð á langri ævi. Að loknu námi kom ég heim í lok ársins 1939 og var þá ekki sérlega bjart um atvinnuhorfur. Oddur var þá skrifstofustjóri Verslunarráðs Islands og til hans leitaði ég í þeirri von að á þeim vettvangi gæti mér nýst nám mitt. Hann tók mér af þeirri ljúfmennsku, sem honum var svo lagin og ég minnist þess, að mér fannst vænkast minn hagur eftir að ég hafði rætt við hann þó ekki kæmi neitt ákveðið fram um atvinnumöguleika þá. Skömmu síð- ar talaði hann svo við mig og nú sást hylla undir starf, sem hann sagði mér að komið gæti til greina við hans stofnun. Örlögin höguðu því þó þannig, að um sama leyti bauðst mér annað starf, sem ég tók og hélt mér föstum næstu 27 árin. En söm var gerð Odds. Nú fór í hönd alllangt tímabil, þar sem við störfuðum hvor á sínum vettvangi en hittumst við ýmis tæki- færi og ávallt varð ég var við hversu annt hann lét sér um starfsframa minn og var svo alla tíð. Og svo var það að ég kynntist Oddi á nýju starfssviði þegar hann var viðskiptaráðunautur ríkisstjórn- arinnar áður en hann gerðist sendi- herra 1968. Við vorum þá saman á tveimur ráðstefnum um fískimái í London 1963 og 64. Þá var skammt liðið frá því að hinni hörðu deilu um fiskveiðimörkin var lokið með sigri okkar og ekki gróið um heilt á milli þjóðanna. Þama var um viðkvæm og vandasöm mál að ræða, bæði viðskiptalegs eðiis og sem snertu fiskveiðar utan fískveið- ilandhelginnar. Oddur reyndist hér einnig mjög liðtækur og tillögugóð- ur þó ekki væri fjallað beint um sérsvið hans, enda var hann þá margreyndur störfum á alþjóðaráð- stefnum og við milliríkjasamninga, sem kom sér vel. Árið 1971 var ég í viðskiptasend- inefnd, sem send var til Moskvu, en Oddur var þá sendiherra í Sovét- ríkjunum. Þar kynntist ég enn nýrri hlið á honum. Aðrir munu gera þessum þætti í starfi hans skil, en mér er það sérstaklega minnisstætt hversu gaman var að ræða við hann um það land og það margsiungna kerfí, sem þar ríkti. Hafði hann augsýnilega gert sér mikið far um að kynnast því og kunni skýringar á mörgum torkennilegum fyrirbær- um, sem þar urðu á vegi manns. En þá minnist ég þess líka hversu Lieselotte, hafði sett sig vel inn í mál austur þar og gat sagt manni frá á sinn skemmtilega hátt. Vil ég ljúka þessum fáu orðum með því að leggja áherslu á hversu þýð- ingarmikill þáttur hennar hefur verið í lífi og starfí Odds og færi henni og fjölskyldu hennar jafn- framt innilegustu samúðarkveðjur frá okkur Ágústu. Davíð Ólafsson Óhætt er að fullyrða að fá lönd séu_ jafn háð utanríkisviðskiptum og Island. Það er því mikilvægt að stjórnvöld velji til forystu á þeim vettvangi hæfa embættismenn, enda fylgja þeim störfum mörg vandasöm verkefni svo sem yfirum- sjón með gerð viðskiptasamninga við önnur þjóðlönd og umsjón með framkvæmd þeirra þannig að hags- muna landsins sé gætt í hvívetna. Við Islendingar höfum’ undan- tekningalítið verið heppnir með val þessara embættismanna. Með dr. Oddi Guðjónssyni eigum við á bak að sjá einum af þeim mönnum, sem skarað hafa hvað mest fram úr á þessum þýðingarmikla vettvangi, en þar vann hann þjóð sinni ómetan- legt starf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.