Morgunblaðið - 26.06.1991, Page 39

Morgunblaðið - 26.06.1991, Page 39
Aðrir munu í dag rekja æviferil Odds Guðjónssonar en ég get ekki látið hjá líða, er hann er kvaddur hinstu kveðju, að minnast þeirra starfa sem hann vann í þágu ís- lenzks sjávarútvegs og þakka þann mikla stuðning, sem hann veitti okkur áratugum saman á sviði markaðsmálanna. Ég átti því láni að fagna að starfa all mikið með Oddi frá því hann var settur ráðuneytisstjóri í viðskipta- ráðuneytinu síðla árs 1961 og sam- starfið varð enn nánara er hann var skipaður viðskiptaráðunautur ríkis- stjórnarinnar ári síðar, en því starfi gegndi hann til áramóta 1967/1968 er hann var skipaður sendiherra Islands í Sovétríkjunum og fleiri Austur-Evrópulöndum. Þeim störf- um gegndi hann til 1974 en þá tók hann við sendiherrastarfi í utanrík- isþjónustunni með aðsetri í Reykja- vík. Nú þegar Oddur Guðjónsson er kvaddur sækja margar minningar á hugann og þá ekki sízt minningar frá hinum mörgu viðskiptasamn- ingaviðræðum við erlend ríki á þeim árum, er Oddur var formaður ís- lenzku ■samninganefndanna. For- ystuhæfileikar lians á því sviði voru ótvíræðir og þótt stundum blésl ekki byrlega hafði hann gott lag á að leysa vandamálin, enda var hann úrræðagóður og hafði að jafnaði meiri þolinmæði til að bera en al- mennt gerist. Óvenjuleg nákvæmni og skyldurækni einkenndi öll þessi störf Odds og hann sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn til að undirbúa sem bezt þau mál, sem féllu undir starfssvið hans. Þessir eiginleikar Odds komu ekki síður að gagni í störfum hans sem sendiherra en mikil viðskipti voru á þeim árum milli íslands og þeirra landa, sem hann var sendi- herra í. Viðskiptin við þessi lönd voru með allt öðrum hætti og mun flóknari en gengur og gerist í okk- ar heimshluta og þurfti oft á fyrir- greiðsiu íslenzka sendiráðsins að halda og var Oddur alltaf boðinn og búinn til að aðstoða okkur, sem stóðum í þesssum sérstæðu við- skiptum. Öll þessi störf leysti Oddur af hendi með stakri prýði og um leið með þeirri hógværð sem honum var töm. Þau hjón Lotti og Oddur voru góðir fulltrúar íslands á erlendri grund og það fór ekki fram hjá þeim, sem til þekktu, að þau nutu virðingar þeirra, sem við þau áttu samskipti. Einnig minnist ég margra ánægjulegra stunda í ís- lenzka sendiráðinu í Moskvu en gestrisni og hlýja sat þar í fyrir- rúmi. Oddur Guðjónsson hafði mjög náið og gott samstarf við þá aðila, sem hlut áttu að máli varðandi ut- anríkisviðskiptin og fylgdist vand- lega með sérhveijum þætti þeirra. Ahuginn var slíkur, að eftir að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir og þar til hann lagðist sína hinstu legu í vor, fylgdist hann áfram all ítar- lega með atburðarásinni. Á skilnaðarstund fylgir dr. Oddi Guðjónssyni þakklátur hugur frá mörgum vinum og samferðamönn- um. Við Sigrún sendum Lottí og öllum öðrum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Gunnar Flóvenz Er ég, sem ungur maður kynnt- ist tengdafólki mínu, fór ekki hjá því, að ég varð þess fljótlega var hvílíkur vinskapur var með þeim hjónum Elínu og Páli B. Melsteð, tengdaforeldrum mínum og dr. Oddi Guðjónssyni og Lottie, konu hans. Kynni þessi voru frá þeim tíma, er Elín Melsteð var bamfóstra Odds. Síðan varð það svo að þau bjuggu í sitt hvoru húsinu, hlið við hlið, á Freyjugötunni í mörg ár. Er ekki að orðlengja, að vinátta þessi hélst meðan Elín og Páll lifðu, en hafði þá auðvitað einnig tengt næstu kynslóðir í báðum fjölskyld- um. Það hefir ævinlega verið skemmtilegt að umgangast þau hjónin dr. Odd og Lottí. Heimsborg- ara í þess orðs fyllstu merkingu. Þau ferðuðust töluvert, fói’u ekki alltaf troðnar slóðir og urðu, sem sendiherrahjón í Sovétríkjunum og járntjaldslöndunum, útverðir ís- MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGÚR 26. JÚNl' 1991 lands í UATRI: Þau kynntust hinu framandi lífi í Moskvu á tímum Krústjoffs og Brésnefs en geislandi frásagnarandi þeirra biés lífi í það sem var að gerast í þessu annars steinrunna þjóðfélagi, svo unun var á að hlýða og maður fékk allt aðra mynd en birtist fjölmiðlum. Persón- uleg kynni dr. Odds af ráðamönnum þar eystra, sögur af þeim og sögur af kerfinu, seinaganginum, af því hve margt þarna var stórbrotið og fagurt en margt frumstætt og ljótt. Andstæðurnar í miklu heimsveldi, sem ekki allir fá að sjá, en þeir sem skynja og kunna frá að segja, glæða lífi. Dr. Oddur Guðjónsson hefir lifað mikilvægan kafla Islandssögunnar og verið virkur þátttakandi í mótun hans. Þannig mun hans einnig verða minnst á blöðum sögunnar. Þegar nú er komið að leiðarlokum viljum við hjónin þakka samfylgdina og sendum Lottie og ijölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur. Ragnar Borg Góður vinur er farinn frá okkur og hugurinn fyllist trega og tóm- leikakennd, þó maður hafi vitað að aldurinn var orðinn hár og heilsan ekki góð. Það er eins og maður vilji aldrei horfast í augu við dauðann, jafnvel ekki þó maður viti að hann sé á næsta leiti. Við Oddur þekktumst frá barn- æsku, þvf mæður okkar voru vin- konur. En vinátta okkar Odds hófst raunverulega ekki fyrr en í mennta- skóla. Þannig var að maðurinn minn, Alfreð Gíslason, og Oddur bjuggu við sömu götu, Bergstaða- stræti, og léku sér saman frá barn- æsku. Síðan fylgdust þeir að upp í menntaskólann, og þar var ég líka, þó ekki væri ég í sama bekk og þeir. Oddur var stórglæsilegur ungur maður og mikið kvennagull. Hann hafði orðið fyrir því í æsku að fót- brotna á skautum og brotið verið sett rangt saman. Þetta háði honum ekkert sem ungum manni, hann gekk teinréttur stakk aðeins lítil- lega við, en hann átti aldeilis eftir að finna fyrir þessu broti þegar á ævina leið. Oddur var ákaflega við- mótsþýður maður og var því mjög vinsæll og eignaðist marga góða vini. í menntaskólanum á þessum árum tíðkaðist það mjög að skrifast á á milli bekkja og með því hófst raunverulega vinátta okkar Odds, því ég varð „póstur" fyrir hann, og hann fyrir mig. Oddur og Alfreð voru ekki einungis alltaf saman í skólanum, heldur einnig voru þeir saman í sumarvinnu. Eitt sumarið fóru þeir saman á síld á Siglufjörð, annað sumarið voru þeir saman í steypuvinnu við byggingu Landspít- alans og þriðja sumarið voru þeir saman í málaravinnu o.s.frv. Stúdentar urðu þeir báðir árið 1927, ég var þá nokkru áður farin til Kaupmannahafnar til náms. Svo um haustið 1927 skildu leiðirþeirra vinanna. Oddur ákvað að fara til Kiel í Þýskalandi og nema þar hag- fræði, en Alfreð settist í lagadeild Háskóla íslands. Þegar Oddur var kominn til Kiel skrifaði hann mér til Kaupmanna- hafnar og stakk upp á því að við skrifuðumst á vikulega og það gerð- ,um við og bréf Odds voru sérstak- lega skemmtileg, því hann hafði góða kímnigáfu og sagði vel frá, en einhvern veginn hefur mér tek- ist að glopra þessum bréfum niður, en þau voru sannarlega þess virði að halda þeim til haga. Þegar nær dró jólum skrifar Oddur mér að hann ætli að koma til Kaupmannahafnar og halda jólin þar. Þetta þótti mér mjög gaman og kynnti ég hann fyrir ungu dönsku fólki, sem ég hafði kynnst og var þessum glæsilega Islendingi tekið mjög vel — svo vel, að þegar ég hitti eina stúlkuna, sem ég hafði kynnt hann fyrir, 20 árum síðar, þá var það fyrsta sem hún spurði um var hvernig Oddur hefði það. Þegar Oddur var að ljúka námi var hann búinn að finna þá einu réttu og hann kom hingað heint með unga, fallega, þýska stúlku að nafni Liselotte Laufkoetter og voru þau gefin saman í kyrrþey á heim- ili systur hans, Sigþrúðar, og manns hennar, Ólafs H. Jónssonar. Við- staddir voru aðeins nánustu ætt- ingjar Odds og við Alfreð, sem höfð- um gift okkur tveimur árum áður. Maður þurfti ekki að koma oft á heimili Lottíar og Odds til að sjá að hún var alveg frábær húsmóðir og var aðdáunarvert að sjá hve fljótt hún aðlagaðist öllu hér heima, sem samt hefur verið henni svo fram- t Eiginmaður minn og faðir okkar, HERMANN JÓN ÁSGEIRSSON tannlæknir, er látinn. Guðfinna Gunnþórsdóttir og börn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS GUÐMUNDSSONAR frá Þrasastöðum, Nesgötu 43, Neskaupstað. Hólmfríður Jónsdóttir, Katrin Jónsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Sólrún Jónsdóttir, Hreinn Jónsson, barnabörn og Sigurður Jónsson, Magnús Ásmundsson, Stefán Antonsson, Hilmir Jóhannesson, Páll Þorgilsson, barnabarnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, GUNNAR SIGURMUNDSSON prentari, Stórhoiti 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 27. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Vilborg Sigurðardóttir, Gylfi Gunnarsson, Debra Gunnarsson, Gerður Gunnarsdóttir, Grétar Br. Kristjánsson, Gauti Gunnarsson, Sigrún Arthúrsdóttir, Sigurður Ó. Gunnarsson, Judie Gunnarsson og barnabörn. andi, því þá voru aðrir tímar en nú, því við vorum á eyju langt út í hafi, langt frá öllu, en ekki eins og í dag þegar rnaður kemst jafnvel til annarra heimsálfa á nokkrum klukkstundum. Lottí hefur staðið við hliðina á Oddi í blíðu og stríðu öll þessi ár og það hafa verið erfiðir tímar fyr- ir hana, þegar hann varð, starfs síns vegna, að fara á meðan á stríð- inu stóð í skipalest til Bandaríkj- anna og hún var ein heima með þijú smábörn. Síðasta starfið sem Oddur hafði var að vera sendiherra íslands í Rússlandi og sagði hann mér oft margt skemmtilegt frá þeim árum. Svo komu þau heirn og sett- ust að í fallegu íbúðinni sinni á Flókagötunni. Þegar við Alfreð fluttumst til Keflavíkur árið 1938, urðu sam- göngurnar á milli heimilanna strjálli. Nokkrum árum eftir að þau komu heim þá flytjum við til Reykjavíkur, því Alfreð var orðinn sjötugur og lét þá af embætti og hugðu vinirnir þá gott til góðarinn- ar með að endunýja gamla vináttu. En það fór á annan veg, því Alfreð veiktist skömmu eftir að við fluttum ■í bæinn og andaðist tæpu ári síðar. En Oddur var ekki búinn að gleyma gömlu vinkonunni og við töluðum saman oft í viku, sérstak- lega rétt eftir að Alfreð dó, og mörg voru umtalsefnin, gamlar endurminningar rifjaðar upp og hann sagði mér oft frá ferðum sín- um. Þegar ég varð fyrir smáslysi sl. haust, sem ég þó raunar átti í til jóla, þá var nú ekki verið að hringja í mig einu sinni í viku eins og áður, Oddur hringdi stundum annan hvern dag og jafnvel á hvetj- um degi, og áminnti mig um að fara að ráðum læknis míns, svo mér batnaði sem fyrst. Það hlýjaði manni um hjartarætur að finna slík- an vinarhug og umhyggju. Með þessum orðum vil ég kveðja minn gamla, góða vin og þakka honum allt sem hann hefur gert fyrir mig og rnína. Ég og fjölskylda mín sendum Lottí og allri fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur. Vigdís Jakobsdóttir Birtíng afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. _ Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. t Eiginkona mín, SVAVA G. BJÖRNSDÖTTIR, Mánagötu 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. júní nk. kl. 13.30. Einar Einarsson. t Þökkum vináttu og hlýhug við andlát og útför JÓHÖNNU GUNNARSDÓTTUR JOHNSEN. Guðmundur Baldur Jóhannsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Ingvar Ingvarsson, Gunnar Guðmundsson, Sigríður Johnsen, Vilhelmína Gunnarsdóttir, Ólafur Ásgeirsson. t Þökkum öllum þeim, er hafa sýnt okkur vinarhug og stuðning við fráfall og útför sonar okkar, bróður og mágs, ARNAR ARNARSSONAR, Ytra-Hrauni. Arnar Sigurðsson, Sigurður Arnarsson, Guðrún Arnarsdóttir, Þorkell Arnarsson, Guðni Arnarsson, Steinunn Arnarsdóttir. Jóhanna Stefánsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR, Sæviðarsundi 40, Reykjavík, sem lést aðfaranótt 18. júní sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 27. júní kl. 13.30. Haukur Kristófersson, Margrét Hauksdóttir, Bragi Kr. Guðmundsson, Guðrún Helga Hauksdóttir, Jóhannes Bjarni Jóhannesson, Sigríður Herdfs Leósdóttir og barnabörn. ■*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.