Morgunblaðið - 30.06.1991, Side 1

Morgunblaðið - 30.06.1991, Side 1
104 SIÐUR B/C 145. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vopnuð átök í Slóven- íu þrátt fyrir vopnahlé I.jubljana. Frá Önnu Hjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. VOPNAATOK milli landvarnasveita Slóveníu og júgóslavneska hersins héldu áfram í Slóveníu á aðfaranótt laugardags og fram á morgun þrátt fyrir að ráðamenn hefðu fyrir tilstilli sendinefndar Evrópubandalagsins (EB) lýst yfir vopnahléi frá klukkan 21 að staðartíma á föstudagskvöld. Einnig fóru fréttir af átökum Serba og Króata víða í Króatíu. Milan Kucan, forseti Slóveníu, sagði á biaðamannafundi í Ljubljana í gærmorgun, að þing lýðveldisins yrði að taka afstöðu til samþykktar hans og Franjos Tudjmans, forseta Króatíu, um að fresta gildistöku sjálfstæðisyfir- lýsingar lýðveldanna um þrjá mánuði, en þeir féllust á það á fundi með fuiltrúum EB. Þingið kemur að óbreyttu saman á morgun, mánudag. Kucan ítrekaði að Slóvenía ætti í átökum við innrásarlið og styrjöld geisaði í landinu. Hann sagði að sú staðreynd gæti haft áhrif á vilja þingsins og hans sjálfs að semja við ráðamenn í Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu, um slit við sambandslýðveldi Júgóslavíu og framtíðarsamvinnu. „Slóvenía getur aldrei aftur orðið hluti af Júgóslavíu. Ekki nema með innlimun," sagði Kucan. Vegatálmar — tijábolir, þungavinnuvélar og flutningabílar — lokuðu enn ölium helstu vegum á milli stærstu borganna í Slóveníu, Maribor og Ljubljana, á laugardagsmorgun. Slóvenska herlögreglan beindi allri umferð frá flugvellinum við Ljubljana. Einn liðsmað- ur hennar sagði fréttaritara Morgunblaðsins að júgóslavnesk herdeild væri á flugvallar- svæðinu en völlurinn væri í höndum Slóv- ena. Hann sagði að samningaviðræður ættu sér stað. Italskir landamæraverðir skýrðu frá því að t þriggja stundarfjórðunga skotbardagi hefbi brotist út við Skofíje-landamærastöð- ina við ítölsku landamærin í gærmorgun og þykkir reykjarbólstrar hefðu stigið til him- ins. Fjöldi sjúkrabifreiða hefði komið á stað- inn og m.a. ekið særðum á sjúkrahús í ítölsku borginni Trieste, handan landa- mæranna. Þá sagði slóvenska útvarpið að hermenn úr slóvenska heimavarnarliðinu hefðu eyðilagt fimm skriðdreka sambands- hersins og tekið 95 hermenn við Rozna Dolina-landamærstöðina í fyrrinótt og sært hermann í bardaga í borginni Ptuj í gær. Ekki fengust þessar fregnir staðfestar en útvarpsstöðin sagði í gærmorgun: „Stríðinu í Slóveníu er ekki lokið.“ Ferðamenn streymdu úr landi í gær um stöð á landamærunum við Ítalíu. Bæjarlífið í Ljubljana virtist ganga sinn vanagang þrátt fyrir spennuna sem ríkir í landinu. Leiðtogar Serbíu tilkynntu sendinefnd EB að þeir væru tilbúnir að falla frá and- stöðu sinni gegn því að Króatinn Stipe Mesic tæki við formennsku í forsætisráðinu. Þar með er bundinn endi á sex vikna kreppu i kringum ráðið, æðstu valdastofnun júgó- slavneska ríkjasambandsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Renntfyrir lax í Kjósinni Rausnarskapur borgarstjóra San Fransisco ALLAN Fong í San Fransisco hafði ekki mikið upp úr því að vera heiðarlegur. Á veitingastaðnum þar sem hann vann fann hann poka með 227.000 Banda- ríkjadölum eða um 14 milljónum ÍSK sem viðskiptavinur hafði skilið eftir. Fong varðveitti peningana þar til eig- andinn kom aftur og þegar borgarstjóri San Fransisco frétti af málinu ákvað hann að haldinn yrði sérstakur „Allan Fong-dagur“. Borgarsjóður var að vísu of fátækur til að geta veitt Fong pen- ingaverðlaun svo að hann fékk í staðinn að leggja bíl sínum endurgjaldslaust hvar sem var í borginni þennan eina dag. Frá eiganda peninganna hefur hins vegar ekki heyrst múkk en eins og Fong sagði sjálfur: „Hann hefði að minnsta kosti getað þakkað fyrir sig!“ Skapar skort- ur ájómfrúm vanda í flugi? KÍNVERSK stjórnvöld sjá fram á skort á flugfreyjum vegna of lítils framboðs af heilbrigðum jómfrúm. Flugmála- stjórnin í Kína hefur einkum leitað til menntaskóla eftir flugfreyjum og hefur aldrei verið skortur á umsækjendum. Kínverskt dagblað skýrði hins vegar frá því á föstudag að margar þeirra, sem sækja um þetta vinsæla starf, fullnægi ekki kröfum stjórnarinnar þar sem þær séu heilsuveilar, nærsýnar eða spjallað- ar. Blaðið skýrði ekki hvers vegna mey- dómur er nauðsynlegur í starfinu. • • Oryg’gisráð SÞ varar Iraka við ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ) kom saman á föstudagskvöld til að ræða framkomu íraka gagnvart eftir- litsmönnum SÞ sem í tvígang var mein- aður aðgangur að mannvirkjum í írak sem talin eru geyma kjarnorkuvopn eða efni og búnað til framleiðslu þeirra. Ráðið skipaði írökum að veita eftirlits- mönnunm tafarlausan aðgang að mann- virkjunum og sýna þeim þann búnað sem fjarlægður var í skyndingu úr herstöð sem þeim var ekki hleypt jnn í á föstu- dag. Öryggisráðið varaði íraka við því að það gæti haft alvarlegar afleiðingar ef þeir brytu aftur vopnahlésskilmálana. Þá var ákveðið að senda nefnd hátt- settra manna til Bagdad til að krefjast trygginga fyrir því að Irakar verði sam- vinnuþýðir í framtíðinni. Sérfræúingur í viðskiptum á Kolaskaga Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra í viö- tali við Morgunblaöið I Saddam Cblad er gagnrýnið viðhorf til veruleikans Viötal viö PálS. Ardal heiÖurs- 1 Á? doktoryið Ilá- JL O skóla íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.