Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNMJDAGUR' 30í JÚNÍ 1991 1"T| \ er sunnudaguf 30. júní, 181. dagur ársins -L'-ti.VJT 1991. Fimmti sd. eftir Trínitatis. Árdegis- flóð í Reykjavík kl. 8.21 og síðdegisflóð kl. 20.39. Fjara kl. 2.19 ogkl. 14.20. Sólarupprás í Rvík kl. 3.02 ogsólarlag kl. 23.59. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.31 ogtunglið er í suðri kl. 3.48. (Almanak Háskóla íslands.) Þú hefir heyrt óskir hinna voluðu, Drottinn, þú eykur þeim hugrekki, hneigir eyra þitt. (Sálm, 10,17.) ÁRNAÐ HEILLA HJÓNABAND. í Neskirkju voru gef- in saman í hjóna- band brúðhjónin Borghildur Sverr- isdóttir og Birgir Guðnason. Heimili þeirra er á Brimnes- vegi 14, Ólafsfirði. Sr. Guðmundur Óli Óskarsson gaf brúð- hjónin saman. (Stúdíó 76.) HJÓNABAND. Þetta eru brúðhjónin Þórunn Einars- dóttir og Hjörtur Ingþórsson, Hraunbæ 148, Rvík. Þau voru gef- in saman í Hall- grímskirkju af sr. Pálma Matthías- syni. (Ljósmyndar- inn, J. Long.) FRÉTTIR/MANNAMÓT reglumenn vaktir. Varðstjór- ar eru fjórir og jafnmargir aðstoðarvarðstjórar. fyrir helgina, fór út aftur í gær. Á mánudag er breskur togari væntanlegur inn. OZ\ára afmæli. í dag, 30. O U júní, er áttræð Helga Sveinsdóttir, húsmóðir í Görðum á Álftanesi. Hún er að heiman, dvelst hjá dótt- ur sinni í Þýskalandi. Á MORGUN, 1. júlí, eru liðin 146 ár frá því að hið endur- reista Alþingi kom saman til fyrsta fundar síns í Mennta- skólanum. Hinn 1. júlí árið 1886 var Landsbanki ís- lands opnaður og þann sama dag, árið 1930, opnaði Bún- aðarbanki íslands. Og 1. júlí 1863 fæddist Theodóra Thoroddsen skáldkona. FRÍMERKJASÝNING- UNNI NORDIA 91, sem var opnuð 27. júní, lýkur í dag, 30. júní. í dag verður loka- dags-póststimpillinn í umferð. Dagurinn í dag er tileinkaður íslandssöfnurum, eins og póststimpillinn ber með sér. Aðsókn hefur, að sögn póst- hússins á sýningunni, verið góð, en í dag er hún opin kl. 10-18 og er enginn aðgangs- eyrir. BARNADEILD Heilsu- verndarstöðvarinnar, Baróns- stíg. Opið hús nk. þriðjudag kl. 15-16 fyrir foreldra ungra barna. Umræðuefnið er líkamsrækt barna. LÁRÉTT: — 1 híma, 5 kalda, 8 dapra, 9 safna sam- an, 11 bárur, 14 kusk, 15 hljóðfæri, 16 fuglinn, 17 nokkur, 19 eydd, 21 mikill fjöldi, 22 glataðist, 25 tíni, 26 tóm, 27 leðja. LÓÐRÉTT: - 2 snák, 3 skaut, 4 ávaxtar, 5 einum, 6 kostur, 7 fugls, 9 óviss, 10 andlits, 12 blettótta, 13 gang- ar, 18 sættu sig við, 20 fersk, 21 mynni, 23 frumefni, 24 greinir. HÚSVERNDARDEILD. Þjóðminjasafn Islands augl. í nýju Lögbirtingablaði lausa stöðu deildarstjóra húsvernd- ardeildar safnsins. Starfið felst einkum í umsjón og rannsóknum friðaðra húsa og húsa í vörslu safnsins. Krafíst er háskólamenntunar í safn- greinum eða byggingarlist og er umsóknarfrestur settur til 10. júlí næstkomandi. VESTURGATA 7, félags- og þjónustumiðstöð aldraðra. Á mánudögum og fimmtu- dögum verður vinnustofan LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 spræk, 5 staup, 8 sunna, 9 gróin, 11 iðj- an, 14 nið, 15 torga, 16 urðar, 17 róg, 19 agns, 21 sóði, 22^nálgast, 25 afi, 26 óar, 27 tía. LÓÐRÉTT: — 2 pár, 3 æsi, 4 kunnar, 5 sniðug, 6 tað, 7 uxa, 9 gætnara, 10 ógrynni, 12 jóðsótt, 13 nomina, 18 ólga, 20 sá, 21 ss, 23 lóð, 24 ar. opin kl. 10-12. Leiðsögn ann- ast Villa. Á mánudögum kl. 13.30 fer fram danskennsla. Gönguferð verður farin á þriðjudaginn um miðbæinn, lagt af stað kl. 11. Frjáls spilamennska er á miðviku- dögum kl. 13.30. Farið verður í sund á miðvikud. kl. 9.15. Prentuð dagskrá liggur í afgr. UMFERÐARMÁL. í Lög- birtingi tilk. lögreglustjórinn í Rvík, að borgarráð hafi ákveðið að setja þrengingu á Sóleyjargötuna austan Njarð- argötu og að stöðvunarskylda verði sett á Njarðargötu sunnan gatnamóta við Sóleyj- argötu, og að stöðvunar- skylda verði sett á Hólsveg við Langholtsveg. Þessar að- gerðir í umferðarmálunum taka gildi hinn 17. júlí næst- komandi, segir í tilk. MOSFELLSBÆR. Orlof húsmæðra í Mosfellsbæ í sumar verður á Laugarvatni 15.-21. júlí næstkomandi. Hjördís í s. 666602 gefur nánari uppl. GUÐFRÆÐIDEILD Há- skóla íslands. í Lögbirtinga- blaðinu er augl. laus lektors- staða við guðfræðideildina og er staðan í kennimannlegri guðfræði. Segir í augl. að lögð verði sérstök áhersla á guð- fræði safnaðar- og trúarlífs. Um það hefur verið gerð sér- stök samþykkt í byijun jún- ímánaðar. Umsóknarfrestur er settur til 1. ágúst nk. FÉL. eldri borgara. í dag er opið hús í Goðheimum við Sigtún frá kl. 14. Spilað og dansað verður kl. 20. Lokað er í Risinu vegna sumarleyfa. KÓPAVOGSLÖGREGLA. Bæjarfógetinn í Kópavogi augl. í Lögbirtingi með um- sóknarfresti til 12. júlí lausar tvær stöður. I lögregluliði bæjarins eru það sem heitir 24 stöðugildi innan lögregl- unnar, af þeim ganga 16 lög- HÚNVETNINGAFÉL. fer í sumarferðina dagana 12.-14. júlí. Ekið verður um Fljótshlíð og Fjallabaksleið syðri. Kjart- an í s. 814800 gefur nánari uppk KRISTNESSPÍTALI. í tilk. frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu í Lögbirt- ingablaðinu segir að Stefán Yngvason læknir hafí verið settur. yfírlæknir við endur- hæfingardeild Kristnesspítala við Akureyri. Mun hann taka til starfa hinn 1. ágúst. SÉRFRÆÐINGAR. Heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytið tilk. í Lögbirtingi um veitingu starfsleyfa til sérfræðinga (lækna): Ás- mundar Jónassonar sem er sérfræðingur á sviði heimilis- lækninga, Þórðar Þorkels- sonar læknis, sem er sér- fræðingur í barnalækningum, Garðars Guðmundssonar, sem er sérfræðingur í tauga- skurðlækningum, Láru Höllu Maack, sem er sér- fræðingur í geðlækningum með réttargeðlæknisfræði sem undirgrein, og Guðjóns Kristleifssonar tannlæknis, sem er sérfræðingur í tann- og munngervalækningum. KÓPASKER. Oddviti Öxar- fjarðarhrepps og skipulags- stjóri ríkisins tilk. í nýlegu Lögbirtingablaði að fram til 5. júlí sé frestur veittur til að gera athugasemdir við skipulagstillöguna um aðal- skipulag Kópaskers 1990- 2010. KIRKJUSTARF FELLA- og Hólakirkja: Fyrirbænir mánudag kl. 18, í kirkjunni. SKIPIN REYKJAVÍKURHÖFN: í gær lagði Reykjafoss af stað til útlanda. Stella Líra, as- faltflutningaskip sem kom H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN: Á morgun er togarinn Ýmir væntanlegur inn til löndunar. Grænlandsfarið Magnús Jensen er væntanlegt í dag. MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM í hersljórnartilk. þýsku herstjórnarinnar á Rúss- landsvígstöðvunum eru stóryrðin ekki spöruð þá sagt er frá óförum her- sveita Sovétmanna. í tilk. segir að tjón Sovétherj- anna sé gífurlegt, talað er um tortímiugarorr- ustur. Sé tjónið svo ofsa- legt að það mælist aðeins á heimssögulegan mæli- kvarða. Talað um skrið- drekaorrustur norðaust- ur af borginni Minsk og að í Póllandi hafi 100 þús. fangar verið teknir, hundruð brynvagna og 300 stórar fallbyssur höfðu fallið í hendur þýsku heijanna. Þá var barist á víglínunni norð- an frá ísliafi suður að landamærum Rúmeníu. Líka er talað um ógurleg- ar loftárásir á flýjandi herdeildir Rússa í ná- munda við Riga í Lett- landi. Breska flotamála- ráðuneytið sagði í sinni tilk. að fyrir norðan Is- land hefði verið tekinn þýskur togari. Hann var þar til að senda uppl. um veður. Öll áhöfn þessa veðurathugunarskips, 22 menn, hefði verið hand- tekin. Og hér heima vann Gunnar Húseby það af- rek á 17. júní-móti íþróttamanna, að vinna „Konungsbikarinn". Hann hafði hlotið flest stig í einstakri grein. Varpaði kúlunni 14,22 m sem gaf honum 839 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.