Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 18
eftir Jörund Guðmundsson PALL S. Ardal prófessor í heimspeki við Queen’s University í Kanada var í gær skipaður heiðursdoktor við Háskóla Islands. Kunnastur er hann af verkum sínum um skoska heimspekinginn David Hume og liggja eftir hann bækur og fræðigreinar um þetta efni auk þess sem hann hefur ritstýrt og haft umsjón með útgáfu á verkum eftir þennan merka Skota. Páll er íslendinga kunnastur á sviði heimspek- innar og er svo komið að hann er í dag almennt talinn meðal þekkt- ustu fræðimanna í heimspeki Humes á erlendri grund. En fræðasvið Páls er víðtækara. Hann hefur verið umsvif- ámikill í skrifum sínum um margvís- lega þætti heim- spekinnar og þá sérstaklega sið- fræðinnar. Meðal þeirra viðfangs- efna sem Páll hefur fengist við eru siðferðileg og réttarheimspekileg vandamál er tengjast refsingum, lof- orðum og samningum. Hann hefur verið í fararbroddi heimspekinga í heimalandi sínu í því að miðla heim- spekilegri þekkingu til hagnýtrar notkunar í samfélaginu. Þannig hef- ur hann unnið umfangsmikið starf við siðfræðilega ráðgjöf meðal lækna og starfsfólks í heilbrigðisstéttum, sem og meðal afbrotamanna, en þeim hefur hann miðlað af siðfræðikunn- áttu sinni um árabil. Páll hefur komið víða við á ferli sínum. Hann var kennari um nokk- urt skeið við háskólann í Edinborg. Hann var gistiprófessor við háskól- ann í Toronto og við Dartmouth College áður en hann réðst til Queen’s University í Kingston árið 1969, en þar hefur hann starfað síð- an. Háskólinn í Kingston skipaði Páli í heiðursembætti við skólann fyrir nokkrum árum fyrir afburða framlag hans til heimspekinnar. Segðu okkur af æsku þinni og uppruna, Páll. Ég er fæddur á Akureyri 1924 í húsi afa míns og ömmu Páls Jónsson- ar Árdal og Álfheiðar Eyjólfsdóttur. Ég man vel eftir Páli en hann var blindur síðustu æviárin og á morgn- ana skreið ég oft upp í til hans pg bað hann að segja mér sögu. Ég pantaði þá gjaman efnið og vildi jafn- an fá sögur af tuttugu góðum mönn- um og ljörutíu vondum, slíkt myndi náttúrulega gera sigur góðu mann- anna meiri og betri. Svo fluttumst við til Sigluflarðar þegar ég var 7 ára gamall. Ástæðan fyrir því að við fluttum þangað var aðallega kreppan. Faðir minn stóð í verslunarrekstri sem fór á hausinn. Eftir það var lítið um vinnu, en betra að hafa ofan af fyrir sér á Siglu- firði, þar var þá alltaf síldin. Við bjuggum hjá afa mínum Hannesi Jonassyni bóksala og það var mjög þröngt um okkur. Tólf ára gamall var ég sendur í síldina. Vann á plani, en reyndist ekki nógu sterkur til að stunda þá vinnu og veiktist af brjósthimnu- bólgu og var sjúklingur næstu tvö ár: Þar af var ég rúmfastur í sex mánuði. Eftir þá legu var ég sendur á heilsuhælið í Kristnesi þar sem að móðir mín var fyrir. Á heilsuhælinu þýddi ég bók úr dönsku og byrjaði að læra ensku, en Jóhann S. Hannes- son móðurbróðir minn sem seinna varð skólameistari á Laugarvatni, fór yfir enskustílana hjá mér, en dönsk- una hafði ég lært sjálfur með því að lesa dönsku blöðin. Þegar hér var komið var ég orðinn 14 ára og tveim- ur árum á eftir í skóia. Það var því tímabært að ákveða hvernig haga ætti skólagöngu minni. Eftir þetta fór ég með móður minni að Leifsstöðum og vann þar upp það sem tapast hafði í náminu, á milli þes sem ég var í heyskap, en það er sú skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið, ef undan er skilin heim- spekin. Þannig æxluðust því málin að ég hef aldrei tekið fullnaðarpróf. Nú var afi þinn Páll J. Árdal skáld. Manstu eftir honum við þá iðju? Já, hann notaði bretti við skriftim- ar sem sett var málmteinum, en þessi tilhögun gerði honum kleift að skrifa og hann samdi ljóð og skrifaði þau á þetta bretti. Hann þótti listrænn og draga vel til stafs. Hvað er þér kærast úr hans kveð- skap? Það sem mér finnst athyglisverð- ast við skáldskap afa míns var það hvað hann var mikið á móti öllu of- stæki og reyndi að styrkja málstað lítilmagnans. Hann skrifaði til dæm- is ljóðið Svanurinn og svínið, þar sem hann bendir á að svaninum sé sýnt allt of mikið dálæti vegna þess eins að hann sé fallegur, en svínið aftur á móti lítils virt vegna þess að það lifir í saur og fegurðinni sé ekki fyr- ir að fara. Fólk sagði hann hafa kímnigáfu og það fannst mér þýðing- armest í ljóðmælum hans og öðrum verkum. Það kæmi mér ekki á óvart að áhugi minn á siðferði eigi uppruna sinn hjá Páli afa mínum. Hvað varð svo til þess að þú gekkst í Menntaskólann? að var algjörlega frá sjálfum mér komið. 'Reyndar var alltaf litið svo á heima hjá mér að reyndist ég hafa til þess nægjanlegar gáfur þá myndi ég fara í menntaskóla. Ég þurfti að taka próf upp í Menntaskól- ann og þá úr námsefni bæði fyrsta og annars bekkjar. Það var auðvitað dálítið mikið álag að komast í gegn um þetta próf og ég man eftir því að frænka mín ein taldi mig of heilsu- veilan til að þreyta slíkt próf. Það gerði mig enn ákveðnari en fyrr að ná þessu prófi. Það varð úr að ég fékk þriðju hæstu einkunn. Ég ólst upp við andrúmsloft þar sem mennt- un var mikils metin. Jóhann Sigur- jónsson skáld var frændi minn í móðurætt og einhveiju sinni mun hann hafa séð Jóhann frænda minn Hannesson og dáðst að því hvað hann væri myndarlegt barn. í fjöl- skyldunni þótti fólki mikið til Jó- hanns Siguijónssonar koma enda var Jóhann móðurbróðir minn og skírður Siguijónsson Hannesson í höfuðið á skáldinu. Svo var það einhvetju sinni að það berst í tal að Jóhann Sigur- jónsson sé einhver merkasti íslend- ingur sem búið hafi á erlendri grund. Þá á Jóhann móðurbróðir að hafa sagt: „Kannski ég verði annar“ og ég fylgt í kjölfarið og sagt: „ . . .og ég sá þriðji“. Þetta segir kannski eitthvað um metnaðinn sem ríkti heima til skólagöngu. Hvernig var svo Menntaskólavistin á þessum árum? Mjög skemmtileg og ég skeminti Rcett við Pál S. Árdal prófessor sem skipaður hefur verið heiðursdoktor við Háskóla Islands mér bæði við lestur og leik og ýmis- legt var brallað sem ekki átti að gerast. Skriðið var inn og út um glugga á heimavistum og annað slíkt. Þar kynntist ég svo konunni minni, Hörpu Ásgrímsdóttur, en hana sá ég fyrst þegar ég var að taka inntö- kuprófin, en kynni okkar urðu ekki nánari fyrr en seinna. Þegar Menntaskólanámi lýkur þá ferð þú til Skotlands. Hvað réði því vali? Stríðinu var ekki lokið þegar ég lauk námi, þannig að ég ákvað að bíða stíðsloka og þá kom Bretland fljótt ti álita bæði vegna þess að ferð- alög til Ameríku voru dýr, svo líka hitt að ég hafði þá trú að menntun væri góð í Skotlandi. Þessa trú byggði ég á því að ég hafði hitt náms- menn sem stunduðu nám við Edin- borgar-háskóla. Það varð því úr að ég beið til haustsins 1945 og fór þá til Edinborgar. í vegarnesti hafði ég svokallaðan dúxastyrk til 4 ára náms og án hans hefði ég aldrei farið til náms þó svo að styrkurinn dygði nú ekki til framfærslu., Hvað fórstu að læra? Fyrst hóf ég nám í latínu og frönsku sem ég stóð mig nú illa í. Á þriðja ári komst ég að því mér til skelfingar að til þess að Ijúka prófi þá varð ég að taka heimspeki. Ég varð æfur yfir þessu óréttlæti sem ég var beittur og mér fannst svo illa farið með mig að ég sótti um að fá viðtal við deildarforseta. Honum benti ég á óréttlætið sem fælist í því að skikka fólk til þess að stunda alls óhagnýtar greinar í stað þeirra sem væru þýðjngarmjkil fyrir verðandi kennara. Ég gleymi honum seint þar sem hann sat og tottaði austurlenska pípu sínu og sagði við mig eftir að hafa hlustað á mig óskapast yfir óréttlætinu sem ég væri beittur: „Ætli svolítil heimspeki skaði þig nú mikið, drengur minn“. Ég átti ekkert svar við því, en ekki veit ég hversu gott ég hef haft af heimspeki, en að minnsta kosti hef ég haft ofan af mér með henni. Þegar ég hef síðan nám í heimspeki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.