Morgunblaðið - 25.07.1991, Page 4

Morgunblaðið - 25.07.1991, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 I Póstur og sími: Fundað með yfirmanni frá Ericsson vegna bilana YFIRMAÐUR frá L.M. Ericsson, Thorbjörn Anderson, var væntan- legur til landsins í gær og mun hann ræða við yfirmenn Pósts og síma í dag um hinar tíðu bilanir er orðið hafa á símstöðinni í Landssímahúsinu undanfarið. Tveir tæknimenn frá Ericsson fyrirtækinu hafa dvalið hérlendis að undanförnu til þess að rann- saka orsakir bilananna en engin skýring hefur enn fundist. Thorbjörn Anderson er yfirmaður þeirrar deildar innan Ericsson sem sér um hönnun, byggingu og við- hald sjálfvirkrasímstöðva. Hann kemur til landsins til þess að ræða við Ólaf Tómasson póst- og síma- málastjóra og aðra yfirmenn Pósts og síma um bilanimar sem hafa hvað eftir annað gert símstöðina í Landssímahúsinu óvirka undanfar- ið. Að sögn Hrefnu Ingólfsdóttur, blaðafulltrúa Pósts og síma, hefur Thorbjöm Anderson og aðrir yfír- menn hjá Ericsson verið í daglegu sambandi til þess að fylgjast með rannsókn tæknimanna Ericssons og starfsmanna Póst og síma á símstöðinni í Landssímahúsinu. Hrefna sagði að jafnhliða þeim rannsóknum sem em í gangi hér- lendis séu starfsmenn Ericsson í Svíþjóð að vinna úr þeim upplýsing- um sem þeir fá héðan til þess að fínna orsök bilananna. Heilsuhælið í Hveragerði: Uppsagnir lækna standa UPPSAGNIR starfsfólks á Heilsu- hæli Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði, hafa verið dregnar til baka, að sögn Péturs Jónssonar formanns bráðabirgðastjórnar hælisins. Uppsagnir læknanna standa enn og sagði Pétur að deilt væri um uppsagnartímann. Þeim var sagt upp af fyrri stjórn hælisins en bráða- birgðastjóm hælisins dró þá uppsögn til baka og sagði þeim síðar upp með löglegum hætti. Þeir hafa sex mánaða uppsagnarfrest, sem rennur út í síðasta lagi um áramót. Ný stjóm hælisins tekur við um áramót og sagði Pétur, að sú stjórn tæki þá við hreinu borð, og gæti ráðið læknana að hælinu á ný. Þeir era í leyfi frá störfum og hafa verið ráðnir læknar til afleysinga í þeirra störf. VEÐURHORFUR í DAG, 25. JÚLÍ YFIRLIT: Yfir Bretlandseyjum er 1002ja mb lægð á leið austur en1025 mb hæð yfir Grænlandi, minnkandi lægðardrag yfir íslandi. 990 mb lægð um 300 km suður af Hvarfi þokast austnorðaustur. SPÁ Heldur vaxandi austlæg átt. Nokkuð bjart veður viðast á norð- vestanverðu landinu og í innsveitum norðanlands. Sunnanlands ferað rigna á nýjan leik, u.þ.b. frá hádegi. Úrkomubeltið fikrar sig síðan hægt og rólega inn á landið eftir það. Fremur hlýtt áfram, hlýjast í innsveitum norðanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG:Austan- og suðaustan átt. Skýjað og vætusamt á Suður- og Austurlandi svo og á annesj- um norðanlands. Um landið vestanvert og í innsveitum norðan- lands verður að öllum líkindum þurrt og sums staðar léttskýjað. Fremur hlýtt í veðri, einkum norðan og norðvestantil á landinu. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. y' Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyirk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning '/ / / * / * f * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V y Skúrir El — Þoka = Þokumóða ’ , 5 Súld OO Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að isl. tíma hiti veður Akureyri 11 súld Reykjavík 12 rigning og súld Bergen 20 skýjað Helsinkl 20 skýjað Kaupmannahöfn 20 skýjað Narssarssuaq 14 rigning Nuuk 14 hálfskýjað Ósló 19 skýjað Stokkhólmur 22 iéttskýjað Þórshöfn vantar Algarve 30 heiðskírt Amsterdam 14 skúr Barcelona 29 heiðskírt Berlín 29 skýjað Chicago 29 skýjað Feneyjar 29 þokumóða Frankfurt 20 skýjað Glasgow 20 skýjað Hamborg 25 skýjað London 18 skúrásíð.klst. Los Angeles 22 alskýjað Lúxemborg vantar Madríd 32 heiðskírt Malaga 26 mistur Mallorca 30 iéttskýjað Montreal 30 hálfskýjað NewYork 37 skýjað Orlando vantar París 21 skýjað Madeira 24 léttskýjað Róm 29 hálfskýjað Vín 26 skýjað Washington 38 skýjað Winnipeg 26 skýjað Hreindýr á beit. Veiðiá 1.097 hreindýrum heimiluð í haust Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að á timabilinu 10. ágúst til 15. september megi veiða 1.097 hreindýr í Norður-Þingeyj- arsýslu, Múlasýslum og Austur- Skaftafellssýslu. Jafnframt hef- ur ráðuneytið staðfest nýjar régl- ur um hreindýraveiðar, sem eru frábrugðnar eldri reglum að því leyti, að nú er tilgreint hve marga tarfa, kýr og kálfa megi veiða i hveiju sveitarfélagi og að sveitarfélögin eiga nú að greiða tiltekið gjald fyrir hvert dýr sem fellt er til rannsókna á vegum embættis veiðistjóra. Hinar nýju reglur umhverfisráðu- neytisins um hreindýraveiðarnar gera ráð fyrir að í stað þess að til- greina einungis hvernig heildar- fjöldi þeirra dýra, sem heimilt er að veiða, skiptist milli sveitarfélaga, er nú mælt fyrir um hve marga tarfa, kýr og kálfa megi veiða í 1. Fjallahreppur 2. Skeggjastaðahreppur 3. Vopnafjarðarhreppur 4. Fljótsdalshreppur 5. Jökulsdalshreppur 6. Fellahreppur 7. Tunguhreppur 8. Hlíðarhreppur 9. Hjaltastaðahreppur 10. Borgarfjarðarhreppur 11. Seyðisljarðarkaupstaður 12. Skriðdalshreppur 13. Vallahreppur 14. Egilsstaðabær 15. Eiðahreppur 16. Mjóafjarðarhreppur 17. Norðfjarðarhreppur 18. Eskifjarðarkaupstaður 19. Reyðarfjarðarhreppur 20. Búðahreppur 21. Fáskrúðsfjarðarhreppur 22. Stöðvarhreppur 23. Breiðdalshreppur 24. Beruneshreppur 25. Búlandshreppur 26. Geithellnahreppur 27. Bæjarhreppur 28. Nesjahreppur 29. Bærinn Höfn í Hornafirði 30. Mýrahreppur Samtals hveiju sveitarfélagi. Jafnframt gera reglumar ráð fyrir, að sveitarfélög- in greiði tiltekið gjald fyrir hvert dýr, sem fellt er og gangi það gjald til rannsókna, sem embætti veiði- stjóra annast á vistfræði hreindýra- stofnsins og tengjast nýtingu hans og verndun. Samkvæmt fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu er nú talið, að í hreindýrastofninum séu rúm- lega 4.000 dýr. Það sé talið of mik- ið miðað við aðstæður og eðlilegt að stefna að töluverðri fækkun dýra á næstu þremur árum. Samkvæmt þessu hafi nú verið ákveðið, að veiða megi 1.097 dýr á tímabilinu 10. ágúst til 15. september næstkom- andi. Tala þeirra dýra, sem umhverfis- ráðuneytið hefur heimilað veiði á í ár, skiptist þannig milli eftirtaldra hreppa og kaupstaða: Fjöldi hreindýra Tarfar Kýr Kálfar Samtals 1 1 1 3 1 3 1 5 4 8 5 17 29 60 25 114 29 60 25 114 9 20 8 37 7 15 6 28 3 6 4 13 14 30 12 56 21 40 16 77 2 4 2 8 11 23 9 43 12 27 11 50 5 11 4 20 7 15 6 28 2 4 2 8 10 8 3 21 10 8 3 21 3 7 3 13 1 3 1 5 1 3 1 5 2 3 1 6 26 49 19 94 8 15 6 29 8 * 15 6 29 24 45 18 87 - 13 25 10 48 10 20 8 38 1 3 1 5 15 30 12 57 289 561 229 1079 Auk þeirra dýra sem skiptast 18 hreindýr í Borgarhafnarhreppi, samkvæmt framansögðu, má veiða óháð aldri og kyni. Blönduvirkjun: Uppistöðulónið er nánast orðið fullt FRAMKVÆMDÖt við stíflur og vatnsvegi við Blönduvirkjun eru nú á lokastigi, að sögn Páls Ólafs- sonar, yfirverkfræðings Lands- virkjunar. Hann segir einnig að uppistöðulónið á Auðkúluheiði sé nú nánast orðið fullt og fyrir eða um miðjan ágúst verði farið að hleypa vatni þaðan um 25 km leið í inntakslón virkjunarinnar. Páll Olafsson segir að 1. sept- ember sé gert ráð fyrir að inntaks- lónið verði orðið fullt og búið verði að prófa mannvirki á leiðinni og þá sé næsta skrefíð að prófa vélbún- að stöðvarinnar. Reiknað sé með að þær prófanir taki um mánuð og gert sé ráð fyrir að í október verði hægt að gangsetja fyrstu vél virkj- unarinnar og hefja framleiðslu raf- magns, sem verði dreift inn á byggðalínu. Verið Isé að vinna að því að reisa háspennulínu frá stöð- inni, sem þjóni því hlutverki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.