Morgunblaðið - 25.07.1991, Síða 7
MORGUNBLAÐkí) FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991
Morgunblaðið/KGA
Málverkið „Non-Dispersion-Three Languages" eftir Kazumi Naka-
mura sem listamaðurinn gaf Listasafni Reykjavíkur við opnun sýning-
ar á japanskri nútímalist að Kjarvalsstöðum.
Kjarvalsstaðir:
Japanskur listamaður
gefur Listasafni
Reykjavíkur málverk
LISTASAFN Reykjavíkur hlaut
að gjöf verk eftir japanska lista-
manninn Kazumi Nakamura þeg-
ar sýning á japanskri nútimalist
var opnuð að Kjarvalsstöðum sl.
laugardag. Nakamura var við-
staddur opnina ásamt þremur
öðrum japönskum listamönnum
er eiga verk á sýningunni en alls
eru verk eftir 12 japanska lista-
menn á þessari sýningu.
Tilkynnt var við opnun sýningar
á japanskri nútímalist að Kjarvals-
stöðum að Kazumi Nakamura gæfi
Listasafni Reykjavíkur málverk sitt
„Non-Dispersion-Three Languag-
es“ sem er á sýningunni. Þetta verk
Nakamura er olíumálverk sem er
1,90 m á hæð og tæplega 4,69 m
á lengd. Málverkið er frá árinu
1990.
Gunnar Kvaran, forstöðumaður
Kjarvalsstaða, sagði að mjög mikill
fengur væri fyrir Listasafn
Reykjavíkur að fá þessa gjöf. Að
sögn Gunnars gefa málverk Naka-
mura og fleiri gjafir frá erlendum
listamönnum, t.d. Yoko Ono,
Reykjavíkurborg tækifæri til þess
að koma upp vísi að litlu safni í
erlendri nútímalist innan Listasafns
Reykjavíkur. Gunnar sagði að fjöl-
menni hefði verið við opnun sýning-
arinnar en hún er nokkurs konar
endurgjald Japana vegna Scandina-
vian Today sýningarinnar sem var
haldin í Japan árið 1987.
-herra
GARÐURINN
Kringlunni
TjALDA
DÁGÁR
é! ÖLL TjÖLDIN UPPSETT^YRIR^
| utan,buo»naúrval,_
—^ /
M URP'KULt10 _________- |
■ 10 % STAÐGREIÐSLUAFLSÁTTUR
®1 AÖLLUM T|ÖLDUM-mfMMTUDAGA
fcmm ___________—"■ —
-TA1 AÐU VIÐ facmennina
- CEIR VITABETUR
m
MMÍ
f/MMm
-3K/iF/R fRAMÚK
QMnRRABRAUT 60. SÍM' 12045