Morgunblaðið - 25.07.1991, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.07.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 17 Mengunin á Ströndum: Æðarungar í fóstur Heimasætan í Árnesi II hefur haft í mörg horn að líta að undanf- örnu þvi auk þess að leika sér og hjálpa til við búskapinn hefur hún séð um æðarunga sem heimilisfólkið bjargaði frá grútarmengun í Árnesey. Ungarnir eru á bilinu 20 til 30 en sérstaka athygli vekur að tveir þeirra eru albínóar það er að segja hvítir æðarungar. Heimilisfólkið á bænum hefur tek- ið eftir 1 til 2 albínóum í eyjunni frá árinu 1984 en einu sinni áður hafa hvítir ungar verið teknir í fóstur. Tók hundurinn á bænum þá miklu ástfóstur við ungana og urðu þeir hændir að honum. Af þessu leiddi að ungarnir hættu að vera hræddir við hunda og vöruðu sig ekki þegar nágrannahundur kom í heimsókn ! Talið er að allir albínóarnir séu undan sömu kollunni en athygli vek- ur að þeir virðast ekki skila sér til baka. Líkur benda til að þeir drepist en einnig er hugsanlegt að ungarnir fái eðlilegan lit þegar þeir stækka. Lítið hús hefur verið byggt fyrir fósturbörnin í Árnesi II en girt í kringum það. Ungunum gefur Rakel fuglafóður og vatn sem þeir teiga ómælt. Mestur fugladauði nyrst á Ströndum ARNÓR Sigfússon, fuglafræðingur, er nýkominn úr fuglarannsóknar- ferð um Strandir. Hann segist hafa komið auga á 300 lifandi æðarunga í fjöruborðinu frá Ófeigsfirði til Straumness. Þar eru að meðaltali 7-8 þúsund hreiður ár hvert og sagði Arnór, að almennt væri reiknað með því að tveir til þrír ungar komist á legg úr hreiðri. Þetta færi eftir árferði, sem hefði verið óvenju gott í vor. Sunnar á Ströndum er meira um lifandi fugla og til dæmis fann Arnór 600 lifandi unga í Reykjarfirði syðri. Arnór sagði, að talið væri að 10 - 15 þúsund hreiður væru á öllu svæðinu frá Straumnesi suður til Kollafjarðar. í samtali við Arnór á miðvikudag sagði hann að illmögulegt væri að gera sér grein fyrir hve mikið af fugli hefði drepist vegna mengunar- innar. Hann sagði að erfitt væri að giska á hve mikið af fugli væri á svæðinu og benti á að vargur sækti í hræin. Fram kom að 300 ungar hefðu fundist lifandi frá Ófeigsfirði til Straumness en sunnar væri meira um lifandi fugl. Arnór sá til dæmis ekki grút í Reykjarfirði syðri en þar taldi hann 600 lifandi æðarunga. I Steingríumsfirði og Kollafirði var einnig töluvert af lifandi fuglum en Arnór sagði að verið væri að kanna það svæði nánar. í Kaldbaksvík fann Amór fálkaunga sem fengið hafði á sig mengun og fiutti hann til Reykja- víkur þar sem verið er að hlúa að honum hjá Náttúrufræðistofnun ís- lands. Arnór vinnur nú að skýrslu um fugladauðann sem hann mun skila Eiði Guðnasyni, umhverfismálaráð- herra, á næstunni. Grænlenskt fótboltalið í heimsókn á Bíldudal Bíldudal. BÍLDDÆLINGAR fengu í heimsókn, fyrir skömmu, grænlenskt knatt- spyrnulið frá Kulusuk. Þetta er í annað sinn sem liðið kemur til Bíldu- dals í heimsókn til að leika knattspyrnu við heimamenn. Fyrir tveimur árum komu Græn- lendingarnir hingað fyrst og var þá stofnað til vinabæjartengsla á milli Kulusuk og Bíldudals. Úrslit knatt- spyrnuleiksins sem fór fram þá urðu þau að bæði liðin skildu jöfn með fjögur mörk hvor. Síðan gerist það að þetta sama lið kemur í heimsókn á ný og biður um knattspyrnuleik. Því var að sjálf- sögðu vel tekið og fór leikurinn fram á laugardagsmorgni þann 13. júlí síðastliðinn á Bíldudalsvelli. Leikur- inn fór þannig að Bílddælingar sigr- uðu Kulusuk 6-0. Gestirnir gistu í félagsheimilinu Baldurshaga yfir helgina og fóru til síns heima á sunnudegi. R. Schmidt. BDMRG B0MAG er leiöandi framleiðandi á þjöppum og völturum. Viö eigum eftirfarandi tæki á lager og til afgreiðslu STRAX: f VÉLHNALLA með bensínvél, 60 og 71 kg. JARÐVEGSÞJÖPPUR meö bensín- eða dieselvél, 92,137 og 168 kg. ISsT VALTARA, tveggja kefla meö dieselvél, 600 kg. ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ ! “I Ráðgjöf - Sala - Þjónusta Skútuvogi 12A - Reykjavík - «812530. Morgunblaðið/Vilmundur Hansen Kári, 5 ára, og Rakel, 7 ára, með tvo af ungunum í Árnesi II. Eins og sjá skera albínóarnir sig úr hópnum. Mengunin bráðnar í sólinni Mengun í fjörum á Ströndum bráðnaði að hluta til í sólinni um síðustu helgi. Enn er þó nokkuð eftir í fjörunni og mengunin heldur áfram að reka á land þó í minni mæli sé en áður. í samtali við Vilmund Hansen, frétt- aritara Morgunblaðiðsins í Trékylli- svík, á miðvikudag kom fram eitt- hvað af grútnum hefði bráðnaði í góðviðrinu um helgina en síðustu daga hefði verið þoka og rigning fyrir vestan. Hann sagði að enn ræki mengun á land en minna en áður og ekki í kekkjum eins og áður hefðu sést. Vilmundur sagði að allur æðar- fugl væri farinn af svæðinu en þar sveimaði kría. Hann sagði að tjald- ur og stelkur virtust ekki hafa far- ið illa út úr menguninni. Mengunarsýni úr Húnaflóa frá æðarbændum á Dröngum eru nú til rannsóknar í Reykjavík. Þá er unnið að því á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins að bera saman mengunarsýni og sýnishorn^ af rauðátu sem rannsóknaskipið Árni Friðrikssson tók á Húnaflóa fyrir helgi. HÁGÆÐA SPORTFATNAÐURINN FÉKK HREINT FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR Okkur tókst að fá aðra sendingu af hinum frábæra sportfatnaði frá H^O og er því betra að hafa hraðan á fyrir verslunarmannahelgina m.a. jogginggallar, hettubolir, stuttermabolir, stuttbuxur, sundfatnaður og fl. SENDUM í PÓSTKRÖFU VISA-EURO Laugavegi 62 Sími 13508 f/ * * f i * . , m WM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.