Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 20

Morgunblaðið - 25.07.1991, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, símiA91122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Fullveldi Líbanons fótum troðið Sigurðarristan á Ramsundsberginu að hefur fárið furðu hljótt í heimsfréttunum að Sýr- Iendingar hafa í reynd tekið öll ráð í Líbanon í sínar hendur og stjórnin í Beirut er ekki annað en leikbrúða í höndum stjórnar Hafez Assad Sýrlandsforseta. Að þessu hafa Sýrlendingar stefnt leynt og ljóst um árabil og aðdragandinn rekur sig ára- tugi aftur í tímann; löngu fyrir borgarastyijaldir í Líbanon - en sú fyrsta braust út 1958 þó friði væri síðan komið á næstu sextán ár. Segja má að Sýrlendingar hafi rennt hýru auga til Líbanons frá því á tímum Ottómanveldis Tyrkja. Við hrun þess í lok heimsstyijaldarinnar fyrri fengu Frakkar svo yfirráð þess svæðis sem nú kallast Sýrland og Líban- on. Líbanir fengu sjálfstæði 1943 og gerðu þá leiðtogar kristinna manna og múhammeðstrúar- manna þar með sér sérstakan samning um hvernig völdum ætti að skipta svo réttlætis væri gætt. Næstu áratugi, eða til ársins 1975 - að stuttu skeiði árið 1958 undanskildu- var mikill upp- gangstími í Líbanon. Þar blómstruðu viðskipti og verslun, akuryrkja og iðnaður. Menntun og listir voru í hávegum. Beirut var oft nefnd perla Miðaustur- landa. Þar virtist ríkja víðsýni og uppbyggingarhugur og Líbanon var þá einatt tekið sem dæmi um fyrirmyndarríkið;þar bjuggu í sátt og samlyndi kristn- ir og múhammeðstrúarmenn og unnu saman að velferð síns lands. En óánægjan kraumaði undir því eftir því sem ár liðu þótti múhammeðstrúarmönnum þeir beittir órétti af kristnum mönn- um sem hefðu meiri völd en íjöldi þeirra réttlætti. Meiri fjölgun varð meðal múhammeðstrúar- manna, einkum shita-múslíma- og óumdeilt varð smám saman að þeir báru skarðan hlut frá borði í skiptingu valda og auðs. Vanrækt var að sinna menntun- armálum oog atvinnuuppbygg- ingu shita- en þeir bjuggu eink- um í suðurhlutanum. Þar áttu kristnir Líbanir ekki einir sökina, sunni-múslímar voru ekki áfj áðir í að efla áhrif shitanna og töldu þá ofsatrúarmenn sem þyrfti að hafa gát á. Ekki bætti úr skák að Sýr- lendingar kyntu undir óánægju shita og það duldist engum að þeir studdu einnig Palestínu- menn sem höfðu fluttst til Líban- on og voru að verða eins konar ríki í ríkinu, með vopnasending- um og virtust gera flest það sem gat leitt til að undirstöður líbanska ríkisins gæfu sig. Saga borgarastríðs í Líbanon er flóknari en svo að hún verði rakin í fáum orðum. Að henni lokinni er landið í rúst, hundruð þúsunda fallnir, tugþúsundir hafa flúið. Sýrlendingar höfðu hvað eftir annað sent liðsafla til landsins undir því yfirskini að þeir væru að stilla til friðar. Þeir studdu þá fylkingu hveiju sinni sem þeir töldu að klekkt gæti á lögmætum líbönskum stjórnvöld- um. Að lokum var svo gert sam- komulag fyrir tæpum tveimur árum, oftast kennt við Taif í Saudi Arabíu, þar sem það var undirritað. Þar var líbanska stjórnin, sem varla var þá nema að nafninu til stjórn í landinu, látin fallast á að Sýrlendingar tækju að sér forsjá Líbanons. Síðan hefur verið hnykkt á þessu nokkrum sinnum og nú fyrir nokkrum vikum var svo samein- ingin fullkomnuð og hefur verið greint frá aðalatriðum „sam- komulags “ þessa hér í Morgun- blaðinu. Líbanon hefur verið svipt fullveldi sínu og þarf líbanska stjórnin að bera allar aðgerðir undir Damaskus stjórn- ina og engar ákvarðanir, hvorki í innan né utanríkisrmálum, má taka nema að viðhöfðu samráði við Sýrlendinga. í þessu plaggi var einnig kveðið á um hert eftir- lit með útlendingum og sagt var að nauðsynlegt væri að fylgjast með að blöð skrifuðu og flyttu réttar fréttir. Á mannamáli þýðir það einfaldlega að taka skuli upp ritskoðun, en í Líbanon hafa ijölmiðlar haft meira frelsi en annars staðar á svæðinu. Menn segja að nú sé friður í Líbanon. Sá friður er hernáms- friður. Friður á þeim forsendum er byggður á sandi og færir þrautpíndum og stríðsþreyttum Líbönum varla fögnuð. Sjálfa dreymir Líbani um að geta byggt upp land sitt og endurheimt virð- ingu sjálfra sín og annarra. Þeir eru að upplagi iðjusamir og list- fengir. Þeir hafa metnað fyrir sitt land og vilja einnig græða sárin sem fimmtán ára stríð hef- ur óneitanlega skilið eftir. Undir hernámi verður sú uppbygging háð skilyrðum herraþjóðarinnar. Hernámsfriðurinn í Líbanon nú er því sjónhverfing. Til þess fall- inn að fela að fullveldi þjóðar hefur verið fótum troðið. eftir Þór Magnússon Meðal þekktustu fornminja frá vík- ingaöld á Norðurlöndum eru rúna- steinarnir svonefndu, sem flestir eru í Mið- og Suður-Svíþjóð, einnig marg- ir í Noregi og Danmörku en líka nokkrir í nálægum löndum. Rúna- steinarnir eru minnismerki, en hafa þó ekki verið reistir á gröfum dauðra manna, heldur við alfaravegu, þar sem þeir gætu komið fyrir augu sem flestra ferðamanna. Þetta eru oftast allháir granítsteinar, reistir upp á endann og áletrunin höggvin með rúnum á eina eða tvær hliðar steins- ins, oftast í bandfléttu í ormslíki, sem dregur svip af skrautstílum víkinga- aldar, enda oft talað um „rúnasteina- stíl“. Stundum hafa menn höggvið á steina, sem stóðu þar fyrir eða þá jarðfast berg, en í flestum tilvikum má ætla, að steinarnir hafi verið flutt- ir að götunni. Áletranir á rúnasteinunum eru yfirleitt keimlíkar. Þar segir oftast, að einhver vandabundinn eða nákom- inn ættingi, svo sem eiginkona, synir eða bræður, hafi látið setja steininn eftir þann, sem þar er síðan nafn- greindur. Stundum er síðan örstutt frásögn um hann, svo sem að hann hafi verið góður þegn eða hafi unnið sér margt til ágætis. Jafnvel er skýrt frá, að hann hafi sótt herfang um langan veg eða fallið í herferð fjarri heimabyggð sinni. Á steinunum er oft meira skraut en ormsfléttan ein. Stundum eru heið- in tákn, svo sem þórshamar á hinum eldri steinum, en kross á hinum yngri, sem reistir voru í kristni eða settir af kristnu fólki þótt enn væri heiðinn siður í landu Þá er á stundum klykkt út með fyrirbænum svo sem „guð hjálpi sálu hans“ eða öðru því um líku. Og fyrir kemur að sagt sé, að hinn dauði hafi dáið í hvítavoðum, þ.e. strax eftir skírn, og þá hefur hann líkast til verið skírður er hann fann dauðann nálgast. „Sjaldan bautasteinar standa brautu nær, nema reisi niður að nið,“ segir á Hávamálum, og er það ein- mitt sannmæli hér, því að sem fyrr segir eru bautasteinar við vegina fornu og yfirleitt reistir af ættingjum. Elztu rúnasteinar á Norðurlöndum eru frá 6. öld eftir Krist og þessi merkilega siðvenja og listgrein leggst síðan af um miðja 11. öld. Rúnastaf- rófið breyttist mikið á þessum tíma og jafnframt eru rúnasteinar mis- munandi eftir iöndum og landshlut- um. Það er mörgum ráðgáta, hvers vegna slíkir rúnasteinar séu ekki þekktir á íslandi. Rúnir hafa íslend- ingar þó þekkt á þessum tíma, ekki fer hjá því, og rúnir hafa verið ristar á íslandi sennilegast á öllum öldum og langt fram eftir síðustu öld. En tímasettar rúnir frá landnáms- og söguöld eru engar til frá íslandi og elsta þekkt íslensk rúnarista er talin frá 12. öld. Líklegast hefur tíska rún- asteinanna ekki náð að fylgja land- námsmönnum hingað né til annarra eylanda í vestri. Hér var þó nóg gijó- tið til að höggva í og það reyndist vel nothæft þá sjaldan mönnum datt í hug að hagnýta það í legsteina eða til steinhúsagerðar. En_ einhverra hluta vegna fengust íslendingar lengst af mest við aðra listmennt en smíðar í stein. - Þótt hér skildi leiðir og íslendingar hæfu snemma að skrifa bækur en hyggju ekki í stein, færðu Norð- urlandabúar sögur sínar og forn minni úr Eddu í nokkrum tilvikum í stein eða skáru í tré. Á marga rúna- steina og myndsteina, sem eru þó annars eðlis, eru höggvin minni úr Eddukvæðum. Stundum eru það eins einstakar myndir. Á einni er tröllkon- an Hyrrokkin, á annarp sjálfur Mið- garðsormurinn að bíta á færi Þórs, á nokkrum myndsteinum er talinn sjást Oðinn á Sleipni hinum áttfætta, og mynd af Loka er á dönskum aflsteini úr smiðju. Þekktasta rúnarista með mynda- sögu úr Eddu, og sú stærsta sem þekkt er, er á Ramsundsberginu, sem svo heitir, í Suðurmannalandi í Sví- þjóð, og sýnir þekktan atburð úr Völsungasögu. Rúnaristan og myndasagan _er höggvin á slétta, hallandi klöpp. Ut- línan er óreglulega sporbaugslaga, 4,70 m á lengd og um 2 m á hæð. Umgerðin um sjálfan myndsöguna er að ofan bandflétta úr ormalíki. Tveir ormar krækja þar hölunum í hnút, en að neðan er lengri ormur, sem virðist hafa sama höfuð og ann- ar hinna efri og í þessum ormi er áletrunin, sjálf r-únaristan, sem er auðskilin öllum íslendingum, sem á annað borð þekkja rúnastafrófíð, og er nánast stafrétt þannig á nútímaís- lensku. Sigríður gerði brú þessa, móðir Alreks, dóttir Orms, fyrir sáiu Hólm- geirs, föður Sigröðar bónda síns. Sigríður þessi Ormsdóttir, kona Sigröðar Hólmgeirssonar og móðir Alreks, gerði samkvæmt þessu brú, svo að Hólmgeir tengdafaðir hennar mætti verða sáluhólpinn. Þetta er falleg áletrun sem lýsir hug þeirrar mætu konu, sem greini- lega hefur þótt svo mikið til tengda- föðurins koma, að hún lét gera sem sálugjöf hans þetta mikla og þarfa mannvirki, trébrú, sem nú er löngu horfin en talin er hafa verið um 65 m löng með um 5 m löngum stöplum. Og að auki er álitið, að brúnni hafi fylgt um 60 m langur vegur yfir mýrarsund að vestan, en slíkir vegir voru reyndar fyrrum einnig kallaðir brýr. Og síðan minnist Sigríður þeirra allra, feðganna þriggja og sjálfrar sín, með því að láta höggva áletrun- ina í bergið við brúna. En áletrun, frásögn, var ekki nóg. Heiít listaverk skyldi fylgja og það var sótt í sögu Sigurðar Fáfnisbana, og sýnir þessi rista vel, að hin fornu Edduminni hafa verið vel þekkt í Skandinavíu á þessum tíma. Innan umgerðarinnar, sem orm- arnir þrír mynda, er myndasaga, sem Snorri segir svo snilldarlega i Eddu. Snorri segir frá því, að þá er þeir þrír æsir, Óðinn, Loki og Hænir fóru að kanna heiminn komu þeir að á nokkurri og drápu otur, er lá þar og át lax. Fáfnir og Reginn voru bræður otursins og var Hreiðmar faðir þeirra og í oturgjöld urðu æsir að reiða fram svo mikið gull, sem fyllti og hyldi belginn otursins. Þeir Reginn og Fáfnir drápu síðan föður sinn þar að hann galt þeim eigi bróðurgjöld. Reg- inn flýði eftir það brott, er hann fékk ekki sinn hluta gullsins, en Fáfnir brá sér í orms líki og lagðist á gullið í bóli sínu á Gnitaheiði. Reginn tók síðan Sigurð konungs- son til fósturs, er varð hinn ramm- asti að afli og hugdjarfur. Smíðaði Reginn honum sverðið Gram, er klauf allt er fyrir varð. Fóru þeir Reginn síðan á Gnitaheiði og gróf Sigurður gröf á leið Fáfnis og settist þar í. En er ormurinn skreið yfir gröfina lagði Sigurður sverðinu gegn um hann og varð það ormsins bani. Gerði Reginn Sigurði síðan það til sáttar að hann sleikti hjarta Fáfnis en sjálf- ur drakk Reginn blóð hans og sofn- aði síðan. Þegar Sigurður hugði, að hjartað væri fullsteikt tók hann á því, en brenndi sig og brá fingrinum í munn sér. Þegar hjartablóðið kom á tunguna skildi hann fuglamál og heyrði þá, að igðurnar, sem sátu í tijánum kváðu vísur og sögðu, að Reginn sæti á svikráðum við Sigurð. Drap Sigurður þá Regin. Tók hann síðan hest sinn Grana og batt gullið í klyfjar og settist síðan einnig á bak og reið leið sína. Þetta er einn kafli í sögu Sigurðar Fáfnisbana og einmitt sá, sem sýndur er á Sigurðaristunni. Ef horft er á myndina af ristunni sést Sigurður neðst til hægri, að vísu er hann utan við sjálfa umgerð ristunnar, orminn, en svo hlaut það að vera til að sýna mætti hann reka orminn í gegn neðan frá. Sigurður er sýndur eins og á hlaupum og rekur sverðið Gram gegnum orminn. Til vinstri sést svo oturinn líkastur hundi, en af drápi hans varð þessi atburður. Sigurður sést síðan með hjarta Fáfnis yfir loganum og bregður fingrinum í munn sér, rétt eins og Snorri skýrir frá. Lengst til vinstri sést svo búkur Regins og höfuð hans þar hjá og þar liggja smíðatól eins og smiðjubelgur og steðji allt um kring. Hægra megin sést svo tréð og igðurnar í limum þess og hesturinn grani með gullkis- turnar bundinn við það. Lepgra nær myndasagan ekki, en Snorri segir síðan frá því, er Sigurður hélt áfram ferð sinni og varð drepinn og hversu Guðrún Gjúkadóttir hefndi hans. Varð síðan af því löng saga. Talið er, að Sigurðarristan á Ras- mundsberginu sé rist nær miðri 11. öld. Á þessum tíma hafa Eddukvæði eða sögur tengdar þeim enn verið þekkt í Svíþjóð. Fyrr er nefnt, að Sigurðarristan er.stærsta þekkta rista sinnar gerð- ar. Hún er meistaralega gerð, eitt mesta snilldaiverk sinnar tegundar. Um þessar mundir er sýning um rúnasteina í Suðurmannalandi í Sví- þjóð í Þjóðminjasafni íslands. Þar eru ljósmyndir af rúnasteinum, skýring- artextar og einnig litlar eftirlíkingar af steinum. Þar er einnig eftirmynd af Sigurðarristunni, máluð á klæði, sem sýnir glöggt, hvernig þessu er öllu fyrir komið. Sýningin er afar snoturlega gerð, kom hingað fyrir tilstilli Nönnu Hermannsson forstöðu- manns Södermanlands Museum og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.