Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991
31
fclk í
fréttum
REYKJAVÍK
Borgarstjóri í kynnisferð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í Elliðaárdal voru ungmenni á vegum borgarinnar og Skógræktarfélags Reykjavíkur að gróðursetja,
þegar borgarstjóri átti leið um, eins og sést á stóru myndinni. I sumar er gert ráð fyrir að gróðursett-
ar verði um milljón plöntur á vegum félagsins innan borgarmarkanna. Á myndinni til vinstri er Stefán
Hermannssonj aðstoðarborgarverkfræðingur, Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður Borgarskipii-
lags, Markús Orn Antonsson, borgarstjóri, ásamt Guðmundi Páima Kristinssyni, yfirverkfræðingi, kynna
sér framtíðarbyggingarsvæði í Grafarvogshverfi. __
MARKÚS Örn Antonsson, borgarstjóri, hefur að
undanförnu kynnt sér stofnanir og fyrirtæki
borgarinnar. Fór hann nýlega ásamt emb-
ættismönnum í kynnisferð um
borgina og kom
víða við.
Við Skúlagötu er
verið að reisa íbúð-
ir fyrir aldraða á
vegum
borgarinnar.
BORGARHLAUPIÐ
Yngsta kynslóðin
lét sig ekki vanta
Síðastliðinn laugardag var keppt
í borgarhlaupinu svokallaða en
það er undirbúningshlaup fyrir
Reykjavíkurmaraþonið. Hlaupið var
frá versluninni Frísport á Lauga-
vegi að Kringlusporti í Kringl-
unni eða fimm kílómetra
leið. Þátttakend-
ur voru
annað hundrað manns og margir
þeirra ungir að árum. Borgarhlaup-
ið var kærkomið tækifæri fyrir
marga hlaupara að hita sig upp
fyrir sjálft Maraþonhlaupið
sem verður hinn 18. ágúst.
Keppendur bíða spenntir
eftir því að hlaupið hefj-
ist. Fyrir miðju má sjá
inann í
svörtum bol en það er
Bretinn Toby Tanser
sem sigraði í hlaup-
inu. Hann hljóp
á 15,24 mín-
útum.
Sverrir
Á þessari mynd sést hvar keppendur þjóta af stað einbeittir á svip.
TÓNLIST
Eiríkur og þáþráin
ið. Ég reikna þó með að við þökkum
fyrir okkur í sumarlok, enda mun
ég hafa nóg að gera við að kynna
nýju ARTCH-plötuna, sem kemur
út í ágúst hér í Noregi og í Bret-
landi. Við, í Just 4 Fun, gerðum
eina plötu, sem gefin var út á kas-
settu og diski. Hún var gerð á ódýr-
an hátt og fyrst var ætlunin að
bjóð’a hana á bensínstöðvum og
tónleikum, en hún seldist mjög vel
og er nú komin í meira en gullsölu.'
Það virðist því sem þessi þáþrá sé
ekki í rénum, en ég er löngu búinn
að fá meira en nóg af þessari gömlu
tónlist."
Líklega ráku einhverjir upp stór
augu þegar þeir litu Eirík
Hauksson á sviði með norsku sveit-
inni Just 4 Fun í Eurovision-keppn-
inni. Ekki gekk sveitinni alls kostar
vel, en lagði ekki upp laupana þrátt
fyrir mótlætið, því fyrir skemmstu
hóf hún flutning á rokklagadagskrá
í Sonja Heine-salnum í Osló Plaza
hótelinu, glæsilegasta hóteli Ósló.
Eiríkur segir að allt hafi þetta
byrjað fyrir ári. „Ég var spurður
hvort ég vildi vera með í rokkdag-
skrá í Sarpsborg sem átti að standa
yfir í þrjár vikur. Ég var þá atvinnu-
laus og sló til. Þetta vatt smám
saman upp á sig og það endaði með
því að norska ríkissjónvarpið, NRK,
bað okkur um að vera fulltrúar
Noregs í Eurovison. Mér leist ekki
á það og sagði klárt nei til að byija
með, en félagar mínir í ARTCH
töldu mig á að gera þetta og ég lét
til leiðast. Þrátt fyrir að við náðum
ekki góðu sæti, hefur eftirspurn
eftir okkur aukist í Noregi í kjölfar-
Eiríkur Hauksson á svið-
inu í Sonja Heine-salnum
með Just 4 Fun.
TJncIe Tom) og fommi SR (luillini
gó$u !rá HarVods í Lo^bon.1989.
REYKJAVIK
£ MATSEÐILL
HAKD'RjOGK hamborsari..........................495í
GRÍSASAMLOKA..............................
EFTIRLÆTI ROKKARAMS LAMBAÖ'RILLSTEI K . . . . . 990,-
HIC KOR-y- REYK TUR BAR - B - QUE KJÚKLINGUR 990,'
^ GOSKTÍKKIR (COKE.DTET COKE, SPRITE) 95.
FIMMTUDAG, FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG
Ljjósmynd/Björg Sveinsdóttir