Morgunblaðið - 15.09.1991, Qupperneq 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER Í991
SAMKVÆMT MIKAEL ERU SÁLAR-
eftir Urói Gunnorsdóttur.
ÞÖRF mannsins til að skilgreina sjálf an sig, tak-
ast á við eigið líf og öðlast dýpri skilning á al-
heiminum tekur á sig ýmsar myndir. Hún hefur
m.a. birst í nýöldinni, sem einnig á margar hlið-
ar. Mikael-fræðin eru hluti nýaldarinnar og boða
í grunnatriðum hið sama; að til sé guð eða guð-
legt af I og að við séum hluti þess. Ekki er um
trúarbrögð að ræða, heldur leið til að f ræðast
um mannlífið, þroskaferil okkar á jörðinni og
tengsl alls sem er. Hér á landi er allnokkur hóp-
ur fólks sem kynnt hefur sér f ræðin, en hvað
er Mikael? Helga Ágústsdóttir, rithöfundur, hefur
kynnt sér Mikael-fræðin og svarar því.
ÞJÓNN: Þægilegt yfirbragð
þjðnsins.
PRESTUR: Samkenndin Ijómar
af prestinum.
HAGLEIKSMAÐUR: Tjáning og
sköpun, fastir fylgisveinar
hagleiksmannsins.
Mikael er ekki ein
persóna heldur
fjölskylda 1.100
sálna sem hafa
lokið jarðvistum
sínum og vinna
nú að því að fræða. Mikael er því
fræðsluafl, það frábiður sér átrúnað
eða tilbeiðslu i nokkurri mynd. Boð-
skapur aflsins er að til sé Guð, al-
heimskraftur, alheimskærleikur eða
hvaða nafni sem menn kjósa að nefna
þann kraft sem er allt í öllu í alheim-
inum og jafnframt skapari hans.
Einnig að í hveijum manni sé brot
af þessu guðlega afli. Við náum sam-
bandi við Mikael í gegnum miðla;
svonefnda vökumiðla en þeir falla
ekki í trans heldur eru allan tímann
meðvitaðir um umhverfí sitt. Miðl-
arnir þjálfa sig sérstaklega
vera Mikael-miðlar og
eru í raun tengiliðir okk-
ar við þessa ákveðnu
sálnaíjölskyldu. Mikael
er alls ekki eina sálna-
inga samkvæmt Michael-kenning-
unni: Davíð Scheving Thorsteinsson
er að grunngerð þjónn. Guðlaugur
Bergmann að grunngerð prestur,
Guðrún Bergmann að grunngerð
hagleiksmaður, Valgerður Matthías-
dóttir að grunngerð sögumaður,
Davíð Oddsson að grunngerð stríðs-
maður, Atli Bergmann að grunngerð
konungur og Jón Öm Marínósson
að grunngerð lærdómsmaður. Mika-
el-miðlarnir greina í hvaða hlutverki
við erum og þeim nægir mörgum
hveijum ljósmynd af viðkomandi til
þess.
Mikael segir hvern og einn lifa að
minnsta kosti 40 sinnum, flesta mun
oftar. Algengt er að lífin verði
300-400. Hver sál gengur í gegnum
35 stig og hún færist ekki upp á það
næsta fyrr en hún hefur lokið hverju
stigi en það getur tekið nokkur líf,
fjölskyldan, til eru fleiri
fræðsluöfl undir öðrum nöfnum.“
— En hvers vegna nafnið Mikael?
„Þetta fræðsluaf! hefur komið
fram áður á öldinni og kom síðast
fram fyrir um tuttugu árum í Kalifor-
níu. Þá var spurt hvað mætti kalla
aflið og það gaf upp þetta nafn, þar
sem síðasti meðlimur Ijölskyldunnar
hét Mikael í sinni hinstu jarðvist."
Sjö gerðir sálna
Samkvæmt Mikael skiptast menn- \
irnir í sjö gerðir sálna. Tvær þeirra,
þjónn og prestur, tilheyra svokölluð-
um innblástursöxli og eru oft inn-
blásið, hugljómað fólk. Tvær, hag-
leiksmaður og sögumaður, tilheyra
tjáningaröxlinum, þ.e. tjá sig með
margvíslegri sköpun, í verkum eða
orðum. Tvær gerðir sálna, stríðsmað-
ur og konungur, eru á virkniöxli,
fólk sem hrindir hlutum í fram-
kvæmd, sér um skipulagningu og ein
gerð er hlutlaus, en það er lærdóms-
maðurinn. Þjónn, hagleiksmaður og
stríðsmaður eru svonefnd miðuð
hlutverk; vinna með og tala til fárra
í senn, hafa ekki heildarmynd heldur
nánasta umhverfi í huga í verkum
og samskiptum. Prestur, sögumaður
og konungur eru nefnd víð hlutverk;
vilja tala til fjöldans, eiga auðvelt
með að halda athygli og sjá oftar
en ekki heildarmynd hlutanna. Hið
síðastnefnda á sérstaklega við um
konungana og prestana. Lærdóms-
menn eiga, vegna hlutleysis síns
auðveldast allra hlutverkanna með
að hafa hlutlausa yfirsýn og skilja
hinar sálargerðirnar.
Að sögn Helgu eru mun færri í
víðu hlutverkunum en í þeim mið-
uðu. Hérlendis eru þó óvenjulega
sterk áhrif frá konungum, sem eru
ekki nema 1-2% mannkyns og það
kemur m.a. fram í hátterni og fasi.
Þjónar, sem eru algengasta hlutverk-
ið, eru að sögn óvenju fáir á Is-
landi. „Samkvæmt kenningu Mikaels
ganga mennirnir í sama hlutverkinu
gegnum öll sín jarðnesku líf og sálin
er alltaf að bæta við sig í þroska og
visku, sem hún flytur með sér á
milli lífa í kjama sínum. Auk grunn-
gerðar hafa margir svolítil áhrif af
einhveiju hinna hlutverkanna í gerð
sinni, svokallaða röðun, fyrir svo
utan hin alþekktu áhrif sem koma
frá þjóðfélagi, umhverfi og innræt-
ingu foreldra. Þrátt fyrir heiti sálar-
hlutverkanna, eru þau jafn mikilvæg
og ekkert þeirra öðru æðra. Heitin
yísa aðeins til grunnvirkni hverrar
gerðar.
Dæmi um hlutverk þekktra íslend-
ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, BLÓMASKREYTINGAMAÐUR:
Þarf ekki að leita lengur
Samkvæmt Mikael er Oddný Halldorsdottir hagleiksmaður, sa
sem skapar. Og hún er sífellt að vinna eitthvað nýtt, vinnur
blómaskreytingar og skrautskrifar. I tvö ár hefur hún kynnt
sér Mikael-fræðin og segist hafa fundið í þeim það sem hún
hafi leitað svo lengi að.
Eg komst í bók um Mikael
fyrir tveimur árum og fann
strax að þetta væri eitthvað fyr-
ir mig, sú heimssýn sem þarna
birtist féll saman við það hvernig
ég upplifði tilveruna. Síðan þetta
varð, hef ég sótt fjögur nám-
skeið og lesið allar fáanlegar
bækur um Mikael hérlendis. Svo
ræði ég töluvert um Mikael við
þá sem áhuga hafa og hef kom-
ið mörgum á sporið.“
Oddný segir kynni sín af Mika-
el-fræðunum í raun hafa breytt
öllu fyrir sig, sér líði einfaldlega
betur nú. „Mikael kemur mér að
góðum notum í daglega lífinu, í
þessum fræðum finn ég svo mik-
ið umburðarlyndi og kærleika,
sem sárlega vantar hjá okkur
flestum. Og í þeim finn ég mikla
skynsemi og svör við því hvers
vegna maður er eins og maður
er.
Mikael-fræðin henta öllum og
þau hafa ekkert með trúarbrögð
að gera. Sjálf er ég trúuð, þó
ekki sé ég kirkjurækin."
- Finnur þú fyrir fordómum
fólks gagnvart Mikael?
„Víst eru margir fordómafullir
áður en þeir kynna sér það sem
þeir eru að beita sér gegn, en
yfirleitt láta þeir af því þegar
þeir hafa kynnt sér fræðin.“
Oddný Halldórsdóttir.