Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
Iþróttamiðstöð rís
af gninni á Akranesi
Akranesi.
NÚ ERU að hefjast framkvæmdir við áframhaldandi byggingu íþrótt-
amiðstöðvar við Jaðarsbakka á Akranesi. í þeim áfanga sem nú fer
af stað verður íþróttahús ÍA lengt um 10 metra og þar komið fyrir
aðstöðu á þrem hæðum. Búningsklefar verða á þeirri fyrstu, skrif-
stofur og líkamsræktaraðstaða á annarri hæð og gistirými fyrir
20-30 manns á þeirri þriðju. Þá verður einnig hafist handa við gerð
aðalinngangs íþróttamiðstöðvarinnar. Þessi verkáfangi sem nú verð-
ur unnin er uppbygging húsnæðisins á fokhelt stig og á því að vera
lokið í byijun næsta árs. Þá er fyrirtækið Tréverk sf. sem annast
byggingarframkvæmdir.
I öðrum áfanga verður síðan lok-
ið við að fullgera bygginguna innan-
dyra. Síðan verður hafist handa við
gerð búningsklefa við íþróttavöllinn
og þar verður einnig aðstaða til
veitingareksturs og félagsstarfs. Sú
bygging nær niður að knattspyrnu-
völlunum og skapar glæsilegt út-
sýni yfir vallarsvæðið.
Vonast er til að þessum fram-
kvæmdum öllum verði lokið á næstu
fjórum til fímm árum. Með tilkomu
þessara mannvirkja breytist að-
staða íþróttafólks á Akranesi til
muna. Búningsklefar eru orðnir lé-
legir og anna engan veginn þeirri
miklu notkun sem er.
Það er íþróttabandalag Akraness
og Akraneskaupstaður sem standa
að þessum byggingarframkvæmd-
um og hefur sérstakur fram-
kvæmdasamningur verið v gerður
milli aðila þar sem kveðið er á um
að íþróttabandalagið annist fram-
kvæmdir með styrk og stuðningi
bæjaryfirvalda.
Iþróttabandalag Akraness hefur
nú nýlega gert samning við Búnað-
arbanka Islands um fjánnögnun á
hluta byggingarframkvæmda og
með tilkomu hans er bandalaginu
gert kleift að auka byggingarhraða
nokkuð. Þessi samningur var undir-
ritaður á formlegan hátt af Sólon
Sigurðssyni bankastjóra_ og Magn-
úsi Oddssyni formanni ÍA.
- J.G.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Bygging íþróttamiðstöðvarinnar á Akranesi. Byggingakraninn kom-
inn á sinn stað og ekkert til fyrirstöðu að hefjast handa.
Doktor í byggingaverkfræði
GUNNAR Guðni Tómasson hef-
ur nýlega lokið doktorsprófi í
byggingarverkfræði frá
Massachusetts Institute of Tec-
hnology (MIT), Cambridge í
Bandaríkjunum.
Doktorsritgerð hans, sem er á
sviði straum- og bylgjufræði, heitir
á ensku „Nonlinear waves in a
channel: Three-Dimensionai and
Rotational Effects". Ritgerðin
fjallar um útbreiðslu ólínulegra
bylgja, sérstaklega með tilliti til
áhrifa jaðra og snúnings jarðar á
þróun þeirra. Sýnt er fram á að
fyrir margar svokallaðar innri
bylgjur í hafinu eða stöðuvötnum
eru áhrif snúnings jarðar sambæri-
leg við ólínuleg og tvístrandi (di-
spersive) áhrif. Margir eiginleikar
bylgjanna eru skýrðir út frá þess-
ari niðurstöðu.
Dr. Gunnar Guðni Tómasson
Ritgerðin var unnin undir hand-
leiðslu prófessors W.K. Melville.
Niðurstöður hennar hafa verið birt-
ar í breskum og bandarískum
vísindaritum.
Gunnar er fæddur 18. febrúar
1963. Stúdent frá Men'ntaskólan-
um við Hamrahlíð 1982. Bygging-
arverkfræðingur frá verkfræði-
deild Háskóla íslands 1986 og lauk
meistaraprófi í byggingarverk-
fræði frá MIT 1988.
Gunnar er kvæntur Sigríði
Huldu Njálsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eiga þau eina dottur',
Kristínu Maríu.
Foreldrar Gunnars eru Þóra
Kristín Eiríksdóttir og Tómas
Árnason seðlabankastjóri. Gunnar
starfar á Verkfræðistofunni
Vatnaskilum í Reykjavík.
C 23
KD®®Ca
IAPAN
VIDEOTÖKUVÉLAR
3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM
GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA ^EINT
VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MEÐ ALLRA BF.STU
MYNDGÆÐUM. - 3 4JX ÞÝÐA ALLRA BESTU
UÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM Á MARK-
AÐNUM í DAG. ÞAÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ
TALA UM LINSUOPSTÆRÐ. HELDUR VERÐUR
UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. -
MACRO LINSA 8xZOOM — SJÁLFVIRKUR
FOCUS - MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR -
SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING — VINDHUÓÐNEMI
— FADER — RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLI-
STYKKI o.íl. - VEGUR AÐEINS l.l KG.
kr. 69.950,- stgr.
munalán
3E Afborgunarskilmálar jjj[
VÖNDUÐ VERSLUN
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 í
t-Iöfdar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
SUBARU STATION 1.8DL4WD
Valkvætt fjórhjóladrif
Hátt og lágt drif
Vökvastýri
Samlæstar hurðir
Rafstillanlegir speglar
Þriggja ára ábyrgð
■
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700
Ingvar
Helgason
Sævarhöfða 2
sími 91-674000