Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
C 17
íbúóarhúsió í Málmey, reist árið 1925 en brann Veióibjölluhreióur.
á Þorláksmessu 1950.
einu kúgildi fyrir 332 ríkisdali og
80 skildinga. Jörðin er nú eign ríkis-
ins er lét reisa vita í eynni árið
1937. Kirkja var í Málmey, en af-
lögð með konungsbréfi árið 1765.
í máldagabók Auðuns rauða Hóla-
biskups frá 1318 segir um Málmeyj-
arkirkju: „Þar skal brenna ljós í
kirkju hvetja nótt frá krossmessu
á hausti og til krossmessu á vori.“
Hefur þetta án efa verið til leiðbein-
ingar fyrir sjófarendur og verið
fyrsti vitinn í Málmey þótt ófull-
kominn væri. Og sennilega elsti
ljósvitinn við Skagafjörð og þó víðar
væri leitað.
Hestleysið í Málmey áður fyrr
var mjög bagalegt. Allt hey var
borið á bakinu svo og allir aðdrætt-
ir neðan frá sjó. Gegnir furðu að
menn sem annars voru dugnaðar-
bændur til sjós og lands skyldu una
við slíkt en gamlar venjur og þjóð-
trú átti sterk ítök í hugum manna
á liðnum öldum — og allt fram á
vora daga.
Seint á fimmtándu öld bjó sú
kona í Málmey er Guðrún hét og
var almennt kölluð Málmeyjar-
Gunna. Eftir tilvísun draummanns
var hún sem ungbarn nærð á eitri
að eigi mætti henni eitur grand
vinna síðar á ævinni. Sagt er að
hún hafi gifst tuttugu sinnum og
misst alla menn sína á fyrsta hjú-
skaparári og var-um kennt eitri því
er hún hafði neytt í æsku.
Einhveiju sinni á búskaparárum
Gunnu í Málmey bar svo við að
afli var mjög tregur í Skagafirði
og því þröngt í búi hjá mörgum,
svo við hallæri lá. En í Málmey var
gnótt skreiðar og hákarls, en Málm-
eyjar-Gunna vildi engum seija. Þótti
mönnum slíkt að vonum mikil mein-
bægni og varð svo gramt í geði til
Gunnu að nokkrir bændur tóku
saman ráð sín og fóru á náttarþeli
með hestalest mikla fram í Þórðar-
höfða um Höfðamöl og þaðan út
í tóftum íbúðarhússins í Málmey.
byggð hófst í Málmey og ekki er
hennar getið í Landnámu, en mjög
sennilegt er að eyjan hafi byggst
að minnsta kosti á seinni hluta land-
námsaldar. Þar er mjög snjólétt og
hefur því lítið þurft fyrir heyskap
að hafa með þeim búskaparháttum,
sem þá tíðkuðust. Gnægð af sel og
fugli hefur þá verið þar og örstutt
á ágæt fiskimið enda lá það orð á
Málmey fyrr á tímum að þar yrði
aldrei bjargarlaus bær. Byggð var
í Málmey til loka árs 1950 og stóð
bærinn austan til á eynni, en á
Þorláksmessu það ár gerðist það
að íbúðarhúsið, sem reist var árið
1925, brann og ekki var byggt upp
aftur. Síðustu ábúendur í Málmey
voru hjónin Erlendur Erlendsson
og Sigriður Hannesdóttir og hjónin
Þormóður Guðlaugsson og Guð-
björg Þórhallsdóttir. í Málmey hef-
ur að líkindum verið búið síðan
skömmu eftir að Skagafjörður
byggðist. Á sturlungaöld kom
Málmey nokkuð við sögu er Guð-
mundur biskup Arason settist þar
að með mönnum sínum og herjaði
þaðan á biskupssetrið á Hólum. í
Málmey þótti gott til matfanga, góð
fiskimið skammt undan. En þrátt
fyrir ýmsa kosti, sem eyjan hafði
upp á að bjóða og þrátt fyrir að
mörgum búnaðist þar vel, voru ábú-
endaskipti þar alltíð og er orsak-
anna eflaust að leita í þeirri álaga-
trú, sem hvíldi á eynni.
Árið 1709 er Málmey talin 30
hundruð að dýrleika að fornu mati.
Áhöfn er þá talin fjórar kýr, 25
ær, 26 lömb, sex tvævetra sauðir,
þrettán yeturgamlir sauðir, en hross
engin. Árið 1861 er eyjan metin
18,5 hundruð. Árið 1922 er hún
metin á 45 hundruð króna og árið
1942 á 78 hundruð króna.
Málmey var eign biskupsstólsins
á Hólum, en seld árið 1802 með
Málmeyjarrif og alla leið út í Jarð-
fall og stálu þar klyfjum á hesta
sína úr hjöllum Gunnu, bæði fiski
og hákarli. Næsta morgun varð
Gunna stuldarins vör og sá að svo
mikið var tekið að margir mundu
valda. Taldi hún sér ofvaxið að etja
kappi við þá alla enda málstaður
eigi góður þar eð hún hafði eigi
viljað hjálpa af gnægtum sínum
þegar mai'ga skorti. Lét hún því
þetta falla niður án málsóknar en
leitaði sér annars ráðs að eigi færi
svo aftur. Guðrún hafði numið fjöl-
kynngi af föður sínum og nú efldi
hún seið magnaðan til þess að
malarrifið miili lands og eyjar tæki
af í brimi. En henni þótti seint láta
að seiðnum og hét að gefa illum
vættum í Hvanndalabjargi hveija
þá konu er byggi tuttugu ár í eynni.
Kom þá voðalegt hafrót, sem sóp-
aði burt rifinu allt frá Málmey og
inn að Þórðarhöfða og hefur þar
verið sjór yfir síðan, en grunnt þó.
Ekki er þess síðar getið að Gunnu
yrði stuldur að meini enda er mælt
að hún létist skömmu síðar í eynni.
Grímur Sigurðsson, fyrrum út-
varpsvirki á Akureyri, nú látinn,
var þaulkunnugur Málmey enda
átti hann þar heima mörg ár í upp-
vexti, var þar með fósturforeldrum
sínum, Franz Jónatanssyni og konu
hans, Jóhönnu Gunnarsdóttur, sem
ráku þar um skeið stórbú. Þau
bjuggu tvívegis í Málmey, fyrst
1910-14 og aftur 1919-41, tóku
raunar jörðina til ábúðar hið seinna
sinn árið 1918, en nytjuðu hana
fyrsta árið frá Skálá þar sem þau
höfðu búið frá 1914. Grímur segir
m.a. er hann lýsir æskuárum sínum
í eynni: „Þegar ég læt hugann reika
til baka til þess tíma er ég átti
heima í Málmey frá sjö ára aldri
og fram yfir tvítugt, þá eru það
ekki erfiðleikarnir sem eru mér
mest í muna. Ég man að vísu eftir
erfiðum lendingum í brimi þegar
engu mátti skeika ef ekki átti illa
að fara og ég man eftir þungum
byrðum, sem bera varð frá sjó til
húsa heim. Ég man eftir löngum
fiskiróðrum á smáum bátkænum
út í opið haf, þar sem aðgæslan var
betri helmingur hreystinnar, ef allt
átti að ganga að óskum, og ég man
eftir löngum og þreytandi róðrum
frá því í grárri morgunskímu til
svarta myrkurs að kveldi við sela-
veiðar að vetrarlagi. En best man
ég vornæturnar þegar ég, ungur
drengur, vakti yfir túninu óg hlý
og rnjúk morgungolan að líðandi
nóttu rak á braut næturþokuna og
sólin, sem komin var á loft yfir
Austurfjöllunum, breytti milljónum
af daggardropum næturinnar í
skínandi perlur. Þetta er sú mynd
af Málmey sem mér verður minnis-
stæðust til hinstu stundar.“
Málmey er nú yfirgefin af öllum
nema sínum upprunalegu íbúum —
fuglunum sem verpa í björgunum
og uppi á eynni. Til Málmeyjar eiga
nú engir erindi nema eftirlitsmenn
vitans, sem stendur vestast á eynni
sunnanverðri og vísar sjófarendum
leiðinn„fagra fjörðinn Skaga“.
Heimildir: SkagJ'irðingabók, íslands-
handbókin, Jarða- og búcndatal í Skaga-
fjarðarsýslu 1781-1958.
JA NU SKIL EG
TUNGUMALA
/ A G L O T
ERT ÞÚ AO FARA I FEROALAG
EOAíTUNGUMÁLANÁU?
á
ú
ÍSIENSKA. DANSKA. ENSKA.
FRANSKA. ÞÝSKA, SPÆNSKA
ALLT I SÖMU TÖLVUNNI.
YFIR 3000 ORÐ OG ORÐA-
SAMBÖND Á HVERJU HINNA SEX
TUNGUMÁLÁ SEM TÖLVAN BÝR YFIR
FÆST
UM LAND ALLT
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Model 8326
232 lltra, hæð 134,9 - breidd 55
cm - dýpt 60 cm. Verð 51.267,-
Model 8342
288 Ktra, hæð 159,0 - breidd 55 cm
- dýpt 60 cm.
Verft kr. 54.626.- stgr.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/69555Ó
K0BEN GLASGOWILONDON
alla miðvikudaga
Fast verð án flugvallarskatta og
forfallatryggingar
Til samanburðar:
Odýrasta superpex kr. 33.750
Þú sparar kr. 14.000
20. sept. og 21. sept.
alla miðvikudaga
19.750 11.900 18.900
Dagsferðir
Brottför kl. 07:00
Heimkoma kl. 23.00
Flugtími aðeins 1:45 mín.
Fast verð án flugvallarskatta og
forfallatryggingar
Til samanburðar:
Ódýrasta superpex kr. 31.940
Þú sparar kr. 13.040
FLUGFERÐIR
SOLRRFLUG
Vesturgata 12,J>ímar 620066, 22100 og 15331
NG SELJCIM VID
SÍÐGSTq 8ÆTIN
I sípqsTq
ÓDÝRq
LEIGqFLqG
SqMARSINS
18. SEPT. OG
25. SEPT.
Frjálst val um hótel og bílaleigur á
20 - 40% afsláttarverði. Fjölbreytt
ferðaþjónusta í London og
Kaupmannahöfn. Framhaldsferðir
með dönskum og enskum
ferðaskrifstofum, sumarhús og
flugferðir hvert sem er um
heimsbyggðina.
ALLT VERÐ ER STAÐGREIÐSLUVERÐ