Morgunblaðið - 15.09.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MENIMINGARSTRAUMAR sunnudagur 15 skptkmber 1991
C <21
Trúbrot 10. áratugarins?
OFURSVEITIR íslenskar hafa verið fáar síðan Trú-
brot bylti rokkþróuninni. Fyrir skemmstu tóku sig til
nokkrir sveitarmenn sem voru áberandi á árunum
1986 til 88 og stofnuðu ofursveitina Rut + — Trúbrot
tiunda áratugarins?
Rut + skipa Ari Eldon
(Sogblettir, Bless og
Drulla), Björn Ealdvinsson
og Magnús Þorsteinsson
(Bleiku bastarnir), Atli Jó-
sefsson (Mússolíni og
Wapp) og Árni Kristjáns-
son (Vonbrigði og Lestir).
Sveitin á sér nokkurn að-
draganda, en ekki er nema
mánuður síðan sveitar-
menn fór að æfa með Bimi
Baldvins. Sveitarmenn
segjast spila „dýrslegt
pönk“ og hafa af nógu af
taka; lagasmíðar hafí geng-
ið einkar vel. Eins og sjá
má af upptalningunni eru
þeir hver úr sinni áttinni
tónlistarlega og því fróð-
Ljósmynd/Björg
Sveinsdóttir
Ruslrokk Rot-
þró á Rykkrokki.
Ljósmynd/Björg
Sveinsdóttir
Exit Aku-
reyrskt þunga-
rokk.
AÐ NORÐAN
OG NEÐAN
Rokkgróska er óvíða meir
en norðan heiða. Það
má meðal annars sjá af því
a fyrir skemmstu héldu Hú-
svíkingar rokkhátíð þar sem
á annan tug sveita tróð upp.
Reykvíkingar og nágrannar
hafa einnig fengið að kynn-
ast rokkurum að norðan, því
ruslrokksveitin Rotþró hefur
Plata vikunnar er Met-
allica með Metallica.
Lengi hefur verið beðið
eftir nýrri plötu frá Met-
allicu, eftir að sveitin náði
milljónasölu með And
Justice for all ... Margir
óttuðust að sveitarmenn
hygðust róa á sölumið, en
þær raddir þagna þegar og
fyrstu tónar fyrsta lags
plötunnar, Enter Sand-
man, heyrast. Með Met-
allica sannar Metallica að
sveitin stendur undir því
að vera þyngsta hljómsveit
í heimi.
leikið hér nokkrum sinnum
og var t.a.m. mneð bestu
sveitum á Rykkrokki fyrir
skemmstu. í kvöld verður svo
mikil norðanrokkhátíð í
Tveimur vinum.
F jórar norðlenskar neð-
anjarðarrokksveitir eru
væntanlegar að norðan til
að troða upp í Tveimur vin-
um, en það eru sveitirnar
Rotþró, Hrafnar, Ræsið og
Exit. Rotþró og Ræsið eru
frá Húsavík og Exit frá
Akureyri, en Hrafnar
eru beggja blands; frá
Húsavík og Akureyri.
Allar líkur eru á að
ein sunnansveit fái
að taka þátt, því
kvennasveitin Jar-
þrúður hefur verið
orðuð við tónleikana.
Óhætt er að benda
öllum rokkþyrstum á
að kynna sér norð-
anrokkið, enda er
Rotþró með
skemmtilegri sveit-
um og Exit og Ræ-
sið báðar fyrirtak, en
hinar sveitimar eru
óþekktari stærðir.
MUNAÐAR
FRÁ Senegal koma fjölmargir snjallir tón-
listarmenn og frábærar hljómsveitir. Margir
kannst við Orchestra Baobab, Toure Kunda
og Youssou N’Dour, en færri þekkja hinn
frábæra senegalíska tónlistarmann Baba
Maal.
Baba Maal er af lágstétt í Senegal, sem kall-
ast toucouleur þar í landi, og átti erfitt
uppdráttar fyrir vikið. Textar hans markast
nokkuð af baráttu hans gegn órétti og kúgun,
en tónlistin er öllu rólegri og yfirvegaðri. Baba
Maal vakti mikla athygli fyrir órafmagnaða
plötu sína, Djam Leelil, seint á síasta áratug,
en rafmagnaðar plötur sem hann hefur sent
legt að heyra hver nið-
urstaðan verður. Rut +,
sem dregur nafn sitt af
samnefndri plötu, „frábær
plata og ein af gleymdum
perlum íslenskrar rokk-
sögu“ að mati Ara Eldons,
treður upp í fyrsta sinn í
Tveimur vinum á fimmtu-
dag. Meðal annarra mun
Dr. Gunni, sem sendir innan
skamms frá sér sjötommu
á vegum finnska stórfyrir-
tækisins Bad Vugum, hita
upp.
Frumraun Rut + í Tveimur vinum á fimmtudag.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
DÆGURTONLIST
SpjararKarl Örvarsson sigeinn síns lids f
ELDFUGL
Karl Örvarsson kom
fram á sjónarsviðið
með sveitinni Stuðkompan-
íinu, sem hann rak í félagi
við bróður sinn. Stuðkomp-
aníið er
löngu iið-
ið undir
lok, en
Karl fæst
enn við
tónlist,
hefur
sent frá
sér snjöll
iög á síð-
ustu misserum og á næstu
eftir Árna
Matthíosson
Vandað popp Karl Örvarsson.
vikum er væntanleg hans
fyrsta sólóskífa. Sú skífa
ber heitið Eidfuglinn.
Karl segir að hug-
myndin um sólóferil
hafi vaknað þegar
og Stuðkompaníið
leystist upp.
Hann hafi
langað til að
þróa tónmál
sitt í aðra átt
en Stuð-
kompaníið,
eins og lögin
sem hann hef-
ur sent frá sér
síðan sýni.
„Þegar ég
hætti í Stuð-
kompaníinu
var ég með
það á hreinu
að ég vildi
gera eitthvað
annað. Það
sem ég hef
gert síðan held ég að sýni
það og þegar við byrjuðum
að gera þessa þlötu var ég
ákveðinn í að gera vandaða
poppplötu og ekki vera að
hugsa of mikið um markað-
inn.“
Karl gerir plötuna með
liðsinni Þorvaldar Bjarna
Þorvaldssonar og lætur vel
af því samstarfí. „Ég skil-
aði lögum til Þorvaldar,
sem síðan kom með tillögur
um vinnsluna, sem ég svo
samþykkti eða ekki. Það
var afskaplega gott að
vinna með Þorvaldi og
eflaust skín hann í gegn á
köflum, t.a.m. með gftar-
leik hans, en mér fínnst að
hann hafi náð því mjög vel
í gegn sem ég vildi; að
minn karakter komi vel
fram í plötunni.“
Platan átti að koma út
fyrir síðustu jól, en á síð-
ustu stundu var ákveðið að
geyma hana, enda tími of
naumur til að klára hana
svo vel væri að sögn Karls.
Hann segir þó að að hans
mati komi það ekki niður
á plötunni, „ég var hrædd-
ur um að þetta myndi koma
niður á plötunni, en hún
hljómar vel, mér finnst hún
heilsteypt og lögin sem við
vorum búnir með á síðasta
ári hafa ekkert elst“.
Karl hefur víða troðið
upp síðan Stuðkompaníið
lagði upp laupana, en þá
jafnan sem hluti af heild,
en ekki sem sólólistamaður.
Hann segist vera að setja
upp sveit með Grétari bróð-
ur sínum, sem sé ætlað að
halda tónleika og kynna
væntanlega plötu, með-
fram því sem leikið verði á
böllum. „Mér fínnst gott
að hafa þétt, stutt og hnit-
miðað tónleikaprógramm,
sem verður þau tíu lög sem
verða á plötunni, og svo
tekur eitthvað allt annað
við.“
Telur þú að það sé mögu-
leiki að þú getir lifað á eig-
in tónlist?
„Því ekki? Að vísu þyrfti
ég þá væntanlega að gefa
út sölulegri tónlist, en ég
sé ekkert því til fyrirstöðu.
Tónlistarmarkaður á ís-
landi hefur verið að breyt-
ast undanfarin ár og
Todmobile ryður þar braut-
ina. Þeirra velgengni hefur
sannað að fólk vill fá að
heyra meira en léttustu
gerð af poppi. Þetta er fyrst
og fremst vönduð popptónl-
ist, sem þarf að hlusta á,
en skilur líka meira eftir
sig. Þannig vona ég að mín
plata eigi eftir að virka, að
fólk sé tilbúið til að hlusta.“
fra sér síðar hafa notið minni
hylli. Fyrir skemmstu snedi
hann svo frá sér sína fyrstu
breiðskífu á vegum Mango,
Baayo, sem útleggst sem mun-
LEYSINGI
aðarleysingi.
Á Baayo er Baba Maal við það sama
heygarðshom og á Djam Leeli; tónlistin
er órafmögnuð og seiðandi og Baba Maal
sýnir enn að hann er með fremstu söngv-
urum Afríku. Sem fyrr syngur hann ekki á
woolof, ríkjandi máli í Senegal, heldur á
tuchuleur, sem telst ekki par fínt, en með
textunum fylgja enskar fýlgja þýðingar.
Vonandi verður Baayo til að vekja þá at-
hygli á Baba Maal sem hann á skilda.
LAGSTETTARSKALD
Maal.
Baba
■ VIÐ rappið hefur loðað
ofbeldishefð í Bandaríkjun-
um, sem sannaðist rækilega
þegar sýningar hófust á
myndinni Boyz N the
Hood, sem Ice Cuhe leikur
aðalhlutverk í. Skotbardagi
braust út fyrir utan bíó í
Kalifomíu og ung stúlka var
skotin til bana, en óeirðir
brutust út við 20 bíó fyrstu
sýningarvikuna.