Morgunblaðið - 15.09.1991, Síða 24
,ÉL_£
MORGUNBLA.PID rnNNmGJkfommmw* 5EgfEM£Eft 19f)l
Martha K. Þorkels-
son - Minning
Fædd 10. september 1905
Dáin 4. september 1991
Á morgun kveð ég vinkonu mína
og tengdamóður, Mörthu Christine
Friedrike Kámpfert Þorkelsson.
Mutti, eins og hún bað mig um
að kalla sig, var fædd í Buxtehude
í Þýskalandi. Foreldrar hennar voru
Anna og Ernst Kámpfert, hann var
vélaverkstjóri í pappírsverksmiðju í
Altkloster-Buxtehude. Martha var
yngst þriggja systkina og ólst upp
á hamingjuríku heimili, þar sem
allir hjálpuðust að. Faðirinn var
löngum í burtu vegna umrótatíma
fyrri heimsstyijaldarinnar. Margir
áttu um sárt að binda á þeim tíma
og hafði sú reynsla ævarandi áhrif
á hana eins og flesta aðra sem
upplifðu þá óróatíma.
Martha kynntist mannsefni sínu,
Daníel Heiga Þorkelssyni málara-
meistara, árið 1923 og var hann
þá við framhaldsnám í Buxtehude.
Daníel sigldi til íslands 1925 og
undirbjó komu konuefnisins með
þeirri umhyggju sem einkenndi alla
tíð þann hug sem hann bar til henn-
ar. Martha kom til íslands sumaríð
1926 og giftu þau sig 20. nóvem-
ber sama ár.
Erfitt var fyrir Mörthu að koma
frá skógi klæddu Norður-Þýska-
landi til hijóstrugs lands í norðri
og leist henni ekki allt of vel á sitt
framtíðarland í byijun. Hún lét þó
ekki hugfallast heldur gerði allt sem
í hennar valdi stóð til að umhverfið
yrði sem fallegast. Blómin og gróð-
urinn urðu hennar yndi og hvar sem
hún var fylgdu þau henni. Tungu-
málið var henni einnig framandi og
má nærri geta hve erfitt hefur ver-
ið fyrir unga stúlku að koma mál-
laus hingað til lands á þessum tíma.
Martha vann þó á þessum erfiðleik-
um eins og öðru og talað góða
íslensku sem hún kenndi börnum
sínum.
Martha og Daníel eignuðust ijög-
ur börn, Önnu Svanhildi, Hákon
Svein giftan Valgerði Proppé, Ernst
Peter giftan Susan Daníelsson og
Helga, giftan undirritaðri. Hjóna-
band Mörthu og Daníels var með
eindæmum farsælt og nefndi maður
varla svo nafn annars að nafn hins
fylgdi ekki með. Daníel féll frá 28.
ágúst 1989 og áttu því þau 62 gift-
urík ár saman. Þau eignuðust 11
barnabörn og 12 barnabarnabörn.
Ég kynntist Mutti 1965 og tókst
strax á milli okkar góður vinskapur
sem aldrei bar skugga á. Fjölskyld-
an og heimilið var hennar líf og var
hún sífellt boðin og búin að aðstoða
þegar á þurfti að halda. Alla tíð
þegar bar á góma eitthvert verk
sem vinna þurfti þá var hún ávallt
manna fyrst að bjóða fram alla þá
aðstoð sem hún gat veitt. Eitt af
því fyrsta sem hún kenndi mér var
að sauma. Við áttum margar góðar
stundir við saumana. Man ég vel
þegar ég sem ung stúlka kom til
hennar með efnisstranga og bað
hana um að kenna mér að sauma
dragt. Seinna sagði hún mér að hún
hefði í raun aldrei lagt í þetta verk
ein, en samt taldi hún ekki eftir sér
að reyna að kenna mér og dragtin
varð að veruleika.
Martha var mikil listakona og
vann hún mikla handavinnu og bar
heimili hennar glöggt merki list-
rænna hæfileika hennar. Handa-
vinna hennar var persónuleg, þann-
ig að þó farið væri eftir mynstri í
upphafi þá endurbætti hún það af
smekkvísi og vann hún alla hluti
svo vel að hvergi fannst snuðra á.
Á miðjum aldri fór hún í Myndlista-
og handíðaskólann og lærði vefnað
og liggja einnig eftir hana nokkur
listaverk úr vefstólnum. Listrænn
hæfileiki hennar kom kannski ekki
síst fram í blómarækt. Garður henn-
ar í Stigahlíðinni og í sumarbú-
staðnum á Sunnuhóli bar vott um
þá eljusemi og alúð sem einkenndi
öll hennar störf.
Martha átti oft við vanheilsu að
stríða og hafði það ekki áhrif á
framkvæmdagleði hennar nema
aðeins um stundarsakir. Ef maður
spurði hana hvernig hún hefði það
þá nefndi hún frekar það sem var
í lagi en það sem á bjátaði.
Síðustu þijú árin dvaldi Martha
á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Daníel
og hún fluttu þangað á vordögum
1988. Vil ég fyrir hönd aðstandenda
þakka fyrir alla þá góðu umönnun
og hlýju sem þau nutu þar.
Þegar ég missti foreldra mína
fyrir nokkrum árum gekk Mutti
mér í móðurstað og hefði enginn
getað gert það betur. Slíkri konu,
sem tengdamóðir mín var og ég hef
reynt að minnast hér að framan í
fátæklegum orðum, vil ég þakka
af einlægni góða samfylgd og þá
alúð og tryggð er hún ávallt sýndi
mér. Nú hugga ég mig við þá hugs-
un að nú sé hún komin heim til
Danna síns.
Bið ég algóðan guð að blessa
minningu hennar.
Æ, aldrei kemur aftur þú,
en andi minn sér þig,
sem kæmir þú og kvæðir nú
með kærleik: „Grát ei mig“,-
Og kendir sanna sorgar dygð,
að syrgja, er.'vona þó
og geyma þig með trú og trygð
í tregans helgu ró.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Hanna Dóra
Elskulegur félagi og vinur, frú
Matha Kampfert Þorkelsson, lést
4. þ.m. 85 ára að aldri. Hún hafði
átt við vanheilsu að stríða nokkur
undanfarin ár. Martha var fædd í
Þýskalandi og bjó þar, þegar hún
tvítug að aldri kynntist Daníel Þor-
kelssyni málarameistara, sem þá,
ungur maður, var þar við nám í iðn
sinni.
t
Ástkær faðir, tengdasonur, tengdafaðir
og afi,
GUNNAR ÓLAFSSON
vélvirkjameistari,
til heimilis ■ Suðurhólum 24,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 12. september sl.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 17. september
nk. kl. 16.30.
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Ólafur Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson,
Karl Gunnarsson,
Tryggvi Gunnarsson,
Guðrún Arngrímsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna
fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á sjúkradeild, 3. hæð B, Hrafn-
istu, Hafnarfirði, fyrir frábæra hjúkrun og umhyggju öll þau ár sem
hún dvaldi þar.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sigurðardóttir,
Þ. Ingi Sigurðsson,
Jón G. Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson,
Ásgeir Sigurðsson,
barnabörn og
Helgi J. Sveinsson,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
Oddný S. Jónsdóttir,
Guðbjörg Hákonardóttir,
Sveinveig Guðmundsdóttir,
barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
EYJÓLFSJ. KRISTJÁNSSONAR,
Miðvangi 11,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til Jósefs Ólafssonar
læknis.
Guðmunda Loftsdóttir,
Guðrún Eyjólfsdóttir, Loftur Eyjólfsson,
Laufey Eyjólfsdóttir, Páll Eyjólfsson,
Guðmunda Eyjólfsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson,
Bragi Eyjólfsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ELÍNAR ÓLAFS,
verður frá Dómkirkjunni mánudaginn 16. september kl. 10.30.
Valgerður Guðmundsdóttir, Magni Guðmundsson,
Bergljót Ólafs, Ólafur Björgúlfsson,
Ástríður Ólafs,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
SIGURLAUG Þ. OTTESEN,
Hringbraut 84,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 16.
september kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Landspít-
alans.
Þorgeir Björnsson, Margrét Sigurðardóttir,
Ingibjörg Björnsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson,
Þuríður Björnsdóttir, Bjarni Geirsson
barnabörn og systur.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
FRÍÐA HALLGRÍMSDÓTTIR AUSTMANN,
Aragötu 10,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. september
kl. 10.30.
Hreinn Benediktsson,
Guðlaug Benediktsdóttir, Sigurður Jónsson,
Egill B. Hreinsson, Erna Árnadóttir,
Fríða Sigurðardóttir, Axel Gunnlaugsson,
Jón Svan Sigurðsson
og barnabarnabörn.
t
DANÍEL ÞÓRHALLSSON,
Hátúni 10,
Reykjavík,
fyrrv. útgerðarmaður frá Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. september
nk. kl. 15.00.
Dagmar Fanndal,
Þórhallur Daníelsson,
Sigurður Gunnar Danielsson, Elinborg Sigurgeirsdóttir,
Soffía Svava Daníelsdóttir, Birgir Guðjónsson,
Ingibjörg Daníelsdóttir, Sigurður Valdimarsson
og barnabörn.
Þau fluttu til íslands og eignuð-
ust hér hlýlegt og einstaklega fag-
urt heimili, enda var Martha af-
burða myndarleg húsmóðir, glæsi-
leg kona og sterkur persónuleiki.
Sem kunnugt er var Daníel vel
þekktur og afar vinsæll söngvari.
Hann var í hópi þeirra sem fyrst
komu fram sem einsöngvarar í út-
sendingum Ríkisútvarpsins á fyrstu
árum þess, auk þess sem hann var
alloft einsöngvari í uppfærslum
stærri tónverka. Hann var í áratugi
félagi í Karlakórnum Fóstbræðrum
og sat um tíma í stjórn hans. Þá
var hann alloft einsöngvari á tón-
leikum kórsins.
Það var því eðlilegt, að Martha
ætti samleið með Fóstbræðrakon-
um, en samvinnu, hlýlegri sam-
heidni þeirra hjóna og gagnkvæmri
virðingu var viðbrugðið.
Þau Martha og Daníel eignuðust
fjögur börn, Svanhildi, Hákon,
Ernst og Helga.
Nú, þegar leiðir skilja, vilja Fóst-
bræðrakonur votta Mörthu virðingu
og þakklæti fyrir samstarf og vin-
áttu. Við þökkum hlýhug hennar
til Fóstbræðra og alls starfs þeirra.
Þau hjónin nutu aðhlynningar á
umönnunar- og hjúkrunarheimilinu
Skjóli síðustu ár, en þar lést Daníel
28. ágúst 1989, 86 ára gamall.
Martha hefur dvalið þar síðan.
Blessuð sé minningin um heiðurs-
hjónin Mörthu og Daníel. Börnum
þeirra og fjölskyldum vottum við
einlæga samúð.
Fóstbræðrakonur
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
V J
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími 689070.
Blómastofa
Friöfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík, Sími 31099
Opið 511 kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.