Morgunblaðið - 15.09.1991, Blaðsíða 25
morgúnbláðið MiNNiiwðMðMHfflíHft smmm m —4- 25
Minning:
Daníel Þórhalls- ^
son frá Siglufirði 1
Fæddur 1. ágúst 1913
Dáinn 7. september 1991
Hjartkær bróðir minn, Daníel,
andaðist eftir langvarandi sjúkdóm
á sjúkradeild Landspítalans, Hátúni
lOb, Reykjavík, 78 ára að aldri og
verður hann jarðsunginn nk. mánu-
dag.
Hann var sonur hjónanna Þór-
halls Daníelssonar, kaupmanns og
útgerðarmanns á Höfn í Horna-
firði, og konu hans, Ingibjargar
Friðgeirsdóttur. Hann ólst upp hjá
foreldrum sínum í stórum og glað-
værum systkinahópi. Hann nam
barnaskólafræðslu í foreldrahúsum.
Eftir það lá leið hans í Samvinnu-
skólann í Reykjavík og útskrifaðist
hann þaðan árið 1931.
Frá unga aldri var hugur hans
bundinn tónlistinni. Það kom fljótt
í ljós að hann hafði fengið_ óvenju
hreina og fagra söngrödd. Á heim-
ili foreldra okkar var sú list í heiðri
höfð. Hljóðfærin voru mörg og við
systkinin vorum öll söngelsk. Hús-
móðirin á heimilinu söng vel og lék
á gítar og húsbóndinn lék á orgel:
Það má segja að þessi eiginleiki
bróður míns hafi ráðið örlögum
hans.
Árið 1932 flyst hann til Siglu-
ijarðar. Hinn kunni athafnamaður
og söngstjóri Karlakórsins Vísis,
Þormóður Eyjólfsson, bauð honum
atvinnu og réð hann til sín sem
tenórsöngvara í kór sinn. Með kórn-
um starfaði hann í mörg ár og var
hann jafnframt einsöngvari þar og
fór oft í einsöngsferðir um Norður-
land. Hann fór með Karlakór
Reykjavík í hina frægu Ameríku-
ferð árið 1946.
Þegar síidin kom aftur til Siglu-
íjarðar eftir langa bið gerðist hann
kaupmaður og útgerðarmaður þar.
Hann gerði út síldarbáta og átti
síldarplan. Hjálpsemi var ríkur þátt-
ur í fari hans.
Hans stærsti sigur í þessum
ágæta síldarbæ var þegar hann
eignaðist hina fallegu og mætu
konu, Dagmar Fanndal, dóttir Sig-
urðar Fanndal og konu hans, Soffíu
Gísladóttur Fanndal. Með henni
átti hann Q’ögur mannvænleg börn
og barnabörnin eru sex.
Börnin eru: Þórhallur, fulltrúi hjá
SR, Siglufirði; Sigurður Gunnar,
tónlistarkennari, Hvammstanga,
hans sambýliskona er Elínborg Sig-
urgeirsdóttir, skólastjóri; Soffía
Svava, gjaldkeri á Sauðárkróki,
hennar maður er Birgir Guðjónsson,
yfirlæknir heilsugæslu; Ingibjörg,
Minning:
Elín Ólafsdóttir
Fædd 2. júlí 1909
Dáin 8. september 1991
Tengdamóðir mín, Elín Ólafs,
lést á heimili sínu 8. september sl.
Elín var fædd í miðbæ Reykjavíkur
2. júlí 1909, dóttir hjónanna Magn-
úsar Sigurðssonar bankastjóra og
Ástríðar Magnúsdóttur Stephen-
sens landshöfðingja. Hún var elst 9
systkina og hefur sú staða hennar
átt sinn þátt í að móta þá ábyrgðar-
tilfinningu sem var aðalsmerki
hennar.
Hún ólst upp á góðu embættis-
mannaheimili í Reykjavík á fyrsta
fjórðungi aldarinnar við þau verð-
mæti sem kynslóð síðustu aldar
skilaði okkur og hún varðveitti vel
þann arf. Fjölskyldan stækkaði
hratt og um fermingaraldur fór hún
fyrir 8. systkinum, sem alla tíð litu
til hennar með virðingu og þakk-
læti fyrir gott fordæmi í uppvextin-
um.
Elín naut hefðbundinnar skóla-
göngu stúlkna á þeim tíma og sat
auk þess nokkra vetur í Mennta-
skólanum í Reykjavík en hvarf frá
námi til starfa hér heima og um
tíma á Englandi.
Árið 1932 giftist Elín drengskap-
armanninum Guðmundi Ólafs lög-
fræðingi frá Mýrarhúsum á Sel-
tjarnarnesi. Eignuðust þau 4 börn:
Magnús sem dó í bernsku; Valgerði
sem gift er Magna Guðmundssyni
tæknifræðingi hjá Landsvirkjun;
Bergljótu sem gift er undirrituðum;
og Ástríði skrifstofumann hjá Flug-
leiðum. Var hjónaband þeirra Guð-
mundar farsælt og hallaðist þar
hvergi á. Guðmundur lést tæplega
77 ára gamall árið 1983. Syrgði
Elín bónda sinn svo mjög að
lífsneistinn sterki dofnaði og heilsu
hennar fór að hraka. Hún hélt samt
heimili með reisn og naut um-
hyggju dætra sinna þar til yfir lauk.
Ég kom árið fyrir stúdentspróf á
heimili þeirra við Reykjavíkurtjörn
og var strax tekið með alvöru og
jafnframt mikilli hlýju. Við Bergljót
hófum búskap okkar í kjallaranum
í Tjarnargötunni og þar fæddust
börnin okkar 3 sem nú sjá á bak
ömmu sem átti svo stóran þátt í
uppeldi þeirra.
Elín var lágvaxin, léttbyggð og
ótrúlega kvik á fæti. Hún rækti
heimili sitt og íjölskyldu af kost-
gæfni, fylgdist grannt með ferli
frænda sinna allra. Tómstundir not-
aði hún til bóklestrar og hafði á
seinni árum einkum áhuga á góðum
ævisögum innlendra sem erlendra
manna.
Elín ól allan sinn aldur í miðbæ
Reykjavíkur og þekkti þar vel til
bæði fyrr og nú. Þótt hún kynni
vel að meta nútímann og framfarir
duldist engum að gamla Reykjavík
stóð henni nær. Fannst henni sem
fleirum að oft hefði verið farið of
geyst í breytingarnar þegar gömul
virðuleg hús með merka sögu hurfu
á einni nóttu og í stað þeirra skriðu
upp þunglamaleg steinhús oft úr
samhengi við umhverfi sitt. Og
þessar skoðanir voru ekki einskorð-
XJöföar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
bankafulltrúi í íslandsbanka, henn- hafði gott veganesti úr foreldrahús
ar sambýlismaður er Sigurður um í erfðum og uppeldi.
Valdimarsson, bankafulltrúi í sama Að loknu hefðbundnu unglinga
banka. námi í Höfn hélt Daníel í Samvinnu
Ég votta Dagmar mágkonu skólann og útskrifaðist þaðan ári<
minni dýpstu samúð ásamt ofan- 1931. Árið eftir flytzt hann ti
greindri fjöiskyldu hennar. Guð Siglufjarðar, að tilmælum Þormóð
blessi sálu bróður míns. Eyjólfssonar, sem þar hafði mör;
Anna Þórhallsdóttir járn í eldi, bæði í atvinnu- og menn
ingarlífi. Það mun meðal annar
hafa vakað fyrir Þormóði, sem þi
var söngstjóri Karlakórsins Vísis
Það er- bjart yfir minningu Daní- að tryggja kómum frábæran tenór
els Þórhallssonar, útgerðarmanns söngvara, en Daníel var lengi ein
og síldarsaltanda í Siglufirði, sem söngvari með kórnum á mesti
lézt á öldrunardeild Landspítalans frægðarárum hans.
7. september síðastliðinn, eftir löng Daníel starfaði um árabil á skrif
og ströng veikindi. Það var ekki stofu Síldarverksmiðja ríkisins :
aðeins að Daníel söng sig inn í hug Siglufirði og var um tíma fram
og hjarta Siglfirðinga með sinni kvæmdastjóri Bæjarútgerðar Siglu
hreinu og fögru tenórrödd. Hann fjarðar. Hann stundaði og leng
var og hvers manns hugljúfi vegna sjálfstæðan atvinnurekstur sem út
glaðlyndis og góðvildar, sem hann gerðarmaður, síidarsaltandi 0£
miðlaði samferðamönnum sínum kaupmaður. Allir, sem kunna skil;
svo ríkulega af. Og hann lét hendur útgerðarsögu Siglufjarðar, mun:
standa fram úr ermum, í þeirra eftir happaskipinu Hring SI 34, sen
orða beztu merkingu, í atvinnu- og Daníel lét byggja og gerði út í hálf
félagsmálum bæjarbúa, meðan an annan áratug. Sama máli gegn
heilsa og þrek leyfðu. ir með söltunarstöð Daníels
Daníel fæddist á Höfn í Horna- Reykjanes hf., sem var hluti af þv
firði fyrsta dag ágústmánaðar árið margfræga siglfirzka síldarævin
1913. Foreldrar hans vóru heiðurs- týri.
hjónin Ingibjörg Friðgeirsdóttir frá Samhliða margþættum störfum
Garði í Fnjóskadal og Þórhallur bæði í þágu eigin atvinnurekstra:
Daníelsson, kaupmaður á Höfn, og annarra, lagði Daníel mörg ló<
ættaður frá Steinsstöðum í Skaga- á vogarskálar félags- og menning
fírði. Þau hjón voru brautryðjendur arlífs á Siglufirði. Kunnastur ei
í atvinnulífi Hafnar. Ekki fór á hann fyrir einsöng sinn með Karla
milli mála að Daníel, sonur þeirra, kórnum Vísi og fleiri kórum. Ham
var og einn af stofnendum Lions-
----------------------------------- klúbbs Siglufjarðar, sem var fyrst
aðar við verklegar framkvæmdir íslenzki Lionsklúbburinn utar
því stundunr fannst henni ráðamenn Reykjavíkur. Hann starfaði og leng
þjóðarinnar ekki standast þeim með Bridsfélagi Siglufjarðar, ei
gömlu snúning. Það duldist engum hann var listaspilari. Hann var un
sem þekkti Elínu að hún stóð vörð árabil í stjórn Skíðafélags Siglu-
um þann auð sem hún fékk í for- fjarðar. Og síðast en ekki sízt starf
eldrahúsum, heiðarleika og hrein- aði hann vel og lengi í samtökun
skiptni. Henni féll best að kalla hlut- siglfirzkra sjálfstæðismanna. Ac'
ina sínum réttu nöfnum og átti til auki var Daníel kunnur frímerkja-
að tala tæpitungulaust um þá sem safnari og átti verðmætt einkasafn.
staðnir voru að óheilindum. Hún Árið 1937 kvæntist Darúe
sætti sig aldrei við tvöfeldni, var Dagmar Fanndal, dóttur kaup-
enda sjálf heil í öllum samskiptum. mannshjónanna Soffíu og Sigurðæ
Þó gamli tíminn hafi staðið Elínu Fanndal, sem settu svip sinn é
nærri var hún ákaflega nútímaleg Siglufjörð á fyrri helmingi aldarinn-
í hugsunarhætti og átti auðvelt með ar. Þar steig hann mikið gæfuspor
að skilja viðhorf ungu kynslóðarinn- Börn þeirra urðu fjögur: Þórhallur.
ar. Hún átti skopskyn sem var óháð fulltrúi hjá SR; Sigurður Gunnar
tíma og rúmi, kunni vel við sig á tónlistarkennari, kvæntur Elín-
mannamótum, einkanlega í hópi borgu Sigurgeirsdóttur; Soffís
ættingja og vina. Þegar heilsu Svava, bankamaður, gift Birgi Guð-
hennar hrakaði hin síðari ár dró jónssyni; og Ingibjörg, fulltrúi hjá
hún sig að mestu í hlé en fylgdist Islandsbanka, gift Sigurði Valdi-
þó mjög vel með framgangi barna marssyni.
sinna, barnabarna, barnabarna- Daníel hafði átt við erfið veikind:
barna og frænda. Hún var fjöl- að stríða í mörg undanfarin ár. Nú
skyldumaður að upplagi, skeytti er hann genginn til feðra sinna.
minna um völt veraldargæði, en lét Við, sem áttum samleið með honum
sig meira varða heill og hamingju um sinn, minnumst góðs drengs. í
vina sinna. þeirra orða fornu merkingu. Eg
Ég kom ungur inn á heimili veit að Siglfirðingar, heima og
þeirra Guðmundar og fæ seint heiman, þakka Daníel Þórhallssyni
þakkað þann stuðning og traust líf hans og störf, áma honum farar-
sem þau sýndu mér frá fyrstu tíð. heiIla á vegferðinni sem okkar allra
Þegar ég kveð tengdamóður mína bíður senda ástvinum hans hlýj-
að leiðarlokum þakka ég henni og ar samúðarkveðjur.
fjölskyldu hennar fyrir samfylgd- utför Daníels fer fram frá Foss-
ina. Dætrum hennar og systkinum vogskirkju á rnorgun, mánudag,
sendi ég samúðarkveðjur. klukkan þijú e.h.
Ólafur Björgúlfsson Stefán Friðbjarnarson
LEGSTEINAR
Groníl s/P
HELLUHRAUNI 14-220 HAFNARFIRÐI • SÍMl 652707
OPIÐ 9-18, LAUGARDAGÁ FRÁ KL. 10-15.
AXIS
AXIS HUSGÖGN HF.
SMIÐJUVEGI 9, KÓPAVOGI
SÍMI: 43500