Morgunblaðið - 15.09.1991, Qupperneq 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUJDAGUR 15. SEPTEMBER 1991
Royal
-fjölbreyttur
skyndibúðingur
Tillaga um þróun á há-
skólastig á þremur árum
Iþróttakennaraskólinn:
Starfað eftir nýrri kennsluskrá
Laugarvatni.
Iþróttakennaraskóli íslands var settur á sunnudag. Þrjátíu og sex
nýir nemendur hefja nú nám við skólann samkvæmt nýrri kennslu-
skrá sem þróunarnefnd skólans hefur unnið að sl. ár. Kennsluskráin
byggir á einingamatskerfi háskóla þar sem námsgreinum er skipað
í násmkeið. Þrjátíu og þrír nemendur verða á öðru námsári og ljúka
prófi í vor. '
í janúar sl. var skipuð nefnd við
skólann sem í áttu sæti allir fast-
ráðnir kennarar auk skólastjóra og
námsstjóra í íþróttum sem var
starfsmaður nefndarinnar. Hlut-
verk nefndarinnar var að hefja þró-
un íþróttakennaraskólans á há-
skólastig með endurskoðun
kennsluskrár skólans og gerð áætl-
unar um framgang þróunarinnar.
Hvatinn að þessu starfí er sá að
ljóst var að mikið misvægi var að
skapast í kennaramenntuninni í
landinu þar sem KHÍ væri að hefja
fjögurra ára almennt kennaranám
(120 einingar) auk valgreina í
fþróttum (30 ein.) á sama tíma og
Iþróttakennaraskólinn útskrifaði
sérgreinakennara með full kennslu-
réttindi á tveimur árum (60 ein.).
Drög að nýjum lögum um
Iþróttakennaraskólann hafa legið
fyrir í menntamálaráðuneytinu um
nokkurt skeið en ekki verið lögð
fyrir Alþingi. Nefndarmenn eru
sammála um nauðsyn þess að skapa
skólanum betri starfsumgjörð með
nýjum lögum en vildu einbeita sér
að innra skipulagi skólans og
kennsluháttum.
Þegar námið var metið til eininga
kom strax í ljós að verulega varð
að skera niður kennsluna til að
halda 60 eininganámi. Einnig varð
að vinna nýjar námslýsingar í öllum
námsgreinum og skipa þeim í nám-
skeið sem sum ná yfír heilt misseri
en öðrum er lokið á einni viku eða
örfáum.
Þróunamefndin hefur unniðjafnt
og þétt frá því í janúar. Haldnir
voru tólf fundir og gefín út tíu drög
að kennsluskrá. Fjöldi aðila úr há-
skólum hér á Islandi aðstoðaði
nefndina við þetta starf auk þess
sem sóttar voru hugmyndir til ann-
arra landa.
Nefndin skilaði af sér nú fyrir
helgina fullmótaðri kennsluskrá
auk áætlunar um lengingu námsins
í þrjú ár (90 ein.) 1994 með fjölgun
námsbrauta. Samhliða er stefnt að
endurskoðun löggjafar skólans.
Kennsla nýnema við skólann mun
að öllu leyti fara eftir hinni nýju
kennsluskrá.
- Kári
LADA UM LANDIÐ
Bílasýning
Viö hjá Bifreiöum og landbúnaöarvélum veröum meö
Lada bifreiöasýningu næstu daga á eftirtöldum stööum. Eins og venjulega verömetum
viö eldri Lada bíla á staönum ef óskaö er og tökum þá upp í nýja.
Noröuriand
Mánudaqinn 16. sept.
Húsavík, viö bílaleigu Húsavíkur kl. 10.00-13.00 Siglufjöröur, við Olís skálann kl. 16.00-17.00
Akureyri, Vélsmiðjan Akureyri kl. 15.00-20.00 Sauöárkrókur, við Esso skálann kl. 19.00-21.00
Þriðiudaainn 17. sept. Miðvikudaginn 1g. sept Blönduósi, við Esso skálann kl. 11.00-13.00
Dalvík, við Víkurröst kl. 12.00-13.30 Hvammstangi, viö Kaupfélagið kl. 14.30-16.00
Ólafsfjöröur, við Tjarnarborg kl. 14.00-15.00 Borgarnes, við SHELL skálann kl. 19.00r20.00
BIFREIOAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13 108 Reykiavík Simar 6812 00 S 3 12 36
Ný kennslu-
bók um hljóm-
borðsleik
NÝLEGA kom út ný kennslubók
í hljómborðsleik. Bókin heitir
„Þú og hljómborðið“ og höfund-
ur er Sigfús Ólafsson tónmennta-
kennari á Selfossi.
Kennslubókin Þú og hljómborð-
ið er sérstaklega sniðin fyrir
íslenska nemendur og nótur og
annað efni er haft stórt og grein-
argott til að gera fyrstu kynni af
nótnalestri sem allra auðveldust.
Bókin er 80 síður í stóru broti.
iiiijðiflcm
FÁKAFEN 11 — SlMI 688005
CNinlendcQ
BLAÐIÐ KOMIÐ
KR 250,-
S3 Aíborgunarskilmálar (]£]
VÖNDUÐ VERSLUN
(Nintendo*)
SJÓNVARPSLEIKTÆKIÐ
SEM SLÆR ALLT í GEGN
9.950/* stgr.
M