Morgunblaðið - 17.12.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1991
31
dag, helgidaga sem virka daga.
Skuldin vegna virkjunar Blöndu
kostar okkur um fjórar milljónir
króna í vexti á sólarhring.
Sínum augum lítur hver á
silfrið
Með þessa síðustu tölu í huga
var það hlálegt, þegar Allen Born,
stjórnarformaður Amax, kom hér
við í þotu sinni til að hugga ís-
lensku þjóðina þá er álviðræðurnar
runnu út í sandinn. Hann svaraði
spurningu íslensks fréttamanns um
það hvort álfélögin þijú væru að
hafa okkur að fíflum á þá leið, að
enginn þyrfti að efast um einlægni
álrisanna þriggja, enda væru þeir
búnir að eyða heilli milljón dollara
í viðræðurnar frá upphafí, hvorki
meira né minna en 60 milljónum
íslenskra króna! Eða eiins og Blönd-
uskuldin ein kostar okkur í vaxta-
gjöldum á hálfum mánuði! Þar við
má svo bæta, að við íslendingar
erum núna búnir að eyða um 900
milljónum króna sérstaklega í und-
irbúning fyrir sölu til orkufreks iðn-
aðar fyrir utan tugmilljónirnar sem
fóru í Reyðarfjarðarhillingarnar,
sem aldrei urðu neitt nema kostnað-
ur.
Það hlýtur að vera fleirum en
mér umhugsunarefni, hvers vegna
hlutirnir eru með þessum ólíkindum
hér á landi. Kerfið virðist ekki geta
lært af mistökum sínum. Það virð-
ist því ekki liggja annað fyrir en
að breyta kerfinu. Kerfið virðist
vera hópur af einstaklingum, sem
eru tengdir stjórnmálaflokkunum'.
Hæfileikar þessara manna felast
oft í öðrum eiginleikum en nýtist
til þeirra starfa, sem þeir eru vald-
ir til fyrir okkar hönd.
Fá 25-50 þúsund kr. fyrir
fundinn
Hér ætti kannski ekki að vera
ástæða til að elta ólar við einstakl-
inga. Kerfið virðist bregðast hver
sem í hlut á. Ekki verður þó hjá
því komist. Eðli sínu samkvæmt
eiga þeir að þera ábyrgð. Það er
þeirra hlutverk. Fyrir það fá þeir
borgað úr okkar sameiginlegu sjóð-
um. Hér er rétt að fram komi, að
mikið er í húfi fyrir gæðinga stjórn-
málaflokkanna að komast t.d. í
stjórn Landsvirkjunar. Þar voru
haldnir 18 fundir á síðasta ári, að
meðaltali um tveggja klukkustunda
langir. Stjórnarmenn fá greiddar
um 450 þúsund krónur árlega á
núverandi verðlagi, nema stjómar-
formaðurinn fær um 900 þús. kr.
Þeir fá sem sagt 25—50.000 kr.
fyrir hvern fund og kannski ein-
hveija heima- og nefndavinnu. Þær
uppghæðir eru þó hreinustu smá-
munir miðað við kostnaðinn sem
hlýst af röngum ákvörðunum
þeirra. Ég læt hér fylgja með
nöfn þeirra sem sátu í stjóm
Landsvirkjunar þegar ákvörðun
um virkjun Blöndu var gerð og
nöfn stjórnarmanna núna:
1980: Jóhannes Nordal, formað-
ur, Árni Grétar Finnsson, Baldvin
Jónsson, Þorkell Bjarnason, Birgir
ísl. Gunnarsson, Guðmundur Vig-
fússon, Ólafur B. Thors.
1991: Jóhannes Nordal, formað-
ur, Árni Grétar Finnsson, Guð-
mundur Árni Stefánsson, Páll Pét-
ursson, Páll Gíslason, Alfreð Þor-
steinsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, Finnbogi Jónsson, Gunnar
Ragnars.
Sumir þessara manna tengjast
miklum umsvifum á vegum kerfis-
ins og væri ástæða til að skoða þau
störf betur sem og árangursleysi
stóriðjunefndar við sölu á orku.
Formaður Landsvirkjunar, Jóhann-
es Nordal, er einnig formaður stór-
iðjunefndar.
Er ekki mál að linni? Er ekki
mál að gefa flokksvaldinu og kerfis-
körlunum frí og taka upp ný vinnu-
brögð, þar sem menn verða að bera
raunverulega ábyrgð á störfum sín-
um í stað þeirrar skipunar, sem hér
ríkir? Hér sanka fulltrúar spilltra
stjórnmálaflokka að sér völdum og
vegtyllum alveg óháð getu sinni og
án þess að nokkurs sé krafist á
móti. Kerfið eins og það hagar sér
er greinilega ófært um að læra af
mistökum sínum. Vegna stærðar
vandans tel ég rétt, að störf Lands-
virkjunar verði sérstaklega tekin til
athugunar. Við eigum ekki að sætta
okkur við vinnubrögð af þessu tagi.
Höfundur starfur að kynningar-
og markaðsmálum.
'
mon/i
* Pe,m gíöra.“ aðr«-n
aðriydur,
Seðlabanki íslands styrkti landssöfnunina
meó því aó kosta birtingu þessarar auglýsingar.
tuulnphone
ÖfH1
suuatch
Nú geta tveir talað samtímis, í sama símtœkið við þriðja aðila í
TVÍBURASÍMANUM fró SWATCH — Nýtískuleg og falleg hönnun
10 mismunandi litir og útlit:
123456 789 10
UMBOÐSMENN UM LANDIÐ:
STÖÐLUÐ GERÐ (mynd 7 -
VERÐ KR. 4.990
Tónval - Endurhringing
3 styrkteikar hringingar
10)
LÚXUS GERÐ (mynd 1-6)
VERÐ KR. 5.490
Tónval - Endurhringing
20 skammvalsminni/nafnaminni
3 styrkleikar hringingar
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
Reykjavík: Hagkaup, Heimilistœki, Húsasmiðjan, Kaupstaður í Mjódd, Ljósbœr, Mikllgarður, Radíóbúðin, Raftœkjaverslunin Glóey, Títan hf., Símval
Hatnartjörður: Húsasmiðjan, Ljós og Raftœki Njarðvík: Hagkaup Keflavík: Stapafell Akranes: Málningarþjónustan, Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Kdupfélag Borgfirðinga
Stykkishólmur: Húsið Höfðagötu ísafjöröur: Húsgagnaloftið, Straumur Blöndós: Kaupfélag V. Húnvetninga Sauðárkrókur: Verslunin Hegri Akureyri: Hagkaup, Radíónaust,
Radíóvinnustofan, Rafland hf. Húsavík: Kaupfélag Þingeyinga, Öryggi sf. Eigilstaðir: Kaupfélag Héraðsbúa Seyðisfjöröur: L. Haraldsson Höfn Hornafirði: Kaupfélag A. Skaft-
fellinga Vestmannaeyjar: Brimnes Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangceinga Hella: Mosfell Selfoss: Kaupfélag Árnesinga