Morgunblaðið - 28.12.1991, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
Óhapp í Reykjavíkurhöfn:
Tog’arinn Viðey
sigldi á varðskip
TOGARINN Viðey sigldi á tvö varðskip í Reykjavíkurhöfn um kl.
22.30 á jóladagskvöld. Töluverð ferð var á Viðey er óhapp þetta
varð og eru varðskipin, Týr og Hvidbjörnen, nokkuð skemmd
eftir ásiglinguna. Togarinn slapp betur og lagði úr höfn aftur
morguninn eftir.
Óhappið varð með þeim hætti
að verið var að sigla Viðey út úr
höfninni. Togarinn náði ekki
beygju rétt við lægi varðskipanna
og þegar reynt var að bakka skip-
inu var vélin fös.t í framgír. Tókst
að stöðva vélina með neyðarhemli
en kominn var um fjögurra mílna
skriður á togarann og rakst hann
áþeirri ferð á stjórnborðshornið á
Tý að aftan. Beyglaði Viðey
lunninguna á Tý niður að dekki
en kastaðist síðan á Hvidbjörnen
og áfram milli þessara varðskipa,
reif landfestar milli þeirra og reif
niður þyrlurekkverk á báðum
varðskipunum.
Helgi Hallvarðsson, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, segir að
nú sé verið að vinna að viðgerð á
Tý og Hvidbjörnen en ljóst sé að
skipin komist ekki á sjó fyrr en
eftir nokkra daga. Mjög litlar
skemmdir urðu á Viðey, aðeins lít-
il göt á stefni togarans, og lagði
hann úr höfn eftir bráðabirgðavið-
gerð.
Unnið að viðgerð um borð í Tý.
Morgunblaðið/Sverrir
Bæklingnr Norræna jafnlaunaverkefnisins:
Varnarliðið telur
forsíðumynd kyn-
ferðislega áreitni
BANNAÐ hefur verið að dreifa
bæklingi á vegum Norræna jafn-
launaverkefnisins meðal varn-
arliðsmanna þar sem talið er að
forsíða hans geti flokkast sem
kynferðisleg áreitni á opinber-
um stað. Forsíðuna prýðir stytta
sem stendur á ráðhústorginu í
bænum Fredriksberg í Noregi
og sýnir nakið par snúa bökum
saman. Á stytta þessi að sýna
samstöðu kynjanna.
Hildur Jónsdóttir, verkefnis-
stjóri íslendinga í Norræna jafn-
launaverkefninu, segir að bækling-
ur-þessi hafi verið gefin út á öllum
Norðurlandamálunum og ensku en
hann fjalli um ráð til að jafna út
launamismun milli kynja. „Okkur
þykir leitt að þessum bæklingum
á ensku var ekki dreift meðal varn-
arliðsmanna og ég er raunar nokk-
uð hlessa á að þetta tilfelli komi
upp,“ segir Hildur. „Hins vegar
skil ég mjög sjónarmið þeirra suð-
ur á Velli og þar eru í gildi reglur
um kynferðislega áreitni sem mér
finnst mjög áhugaverðar."
í máli Hildar kemur fram að það
sé töluvert á ábyrgð starfsmanna
sjálfra að túlka hvað flokkist undir
kynferðislega áreitni og hvað ekki
og að forstöðumenn starfsmanna-
halds varnarliðsins hafi ekki viljað
taka þá áhættu að forsíðumynd
bæklings þessa væri þar talin
c
Forsíðan á bæklingi Norræna
jafnlaunaverkefnisins.
með.„Persónulega finnst mér að
þeir hafi oftúlkað reglurnar í þessu
tilfelli þar sem um styttu er að
ræða,“ segir Helga.
Friðþór Eydal, blaðafulltrúi
varnarliðsins, segir að þeir hafi
ekkert við innihald bæklingsins að
athuga nema síður væri. Hins veg-
ar væri forsíða hans þannig að
hægt væri að túlka hana sem brot
á þeim reglum sem í gildi eru um
hveiju megi dreifa og hveiju ekki
á opinberum stöðum á svæðinu.
Ertu fylgjandi eða andvígur
því að Búnaðarbanki
Islands verði seldur? □ Fyigjandi
þeir sem tóku afstöðu ■ Andvígur
Andstaða við sölu Búnað-
arbanka mest í dreifbýli
NIÐURSTÖÐUR skoðanakönn-
unar Gallup um afstöðu fólks til
sölu Búnaðarbanka íslands sýna,
að mikill meirihluti er andvígur
sölu. Þá er greinilegur munur á
afstöðu fólks eftir búsetu og eru
íbúar í dreifbýli mun andvígari
sölu en ibúar á höfuðborgar-
svæðinu og í öðru þéttbýli.
Á meðfylgjandi skýringarmynd
sést, að af þeim sem afstöðu tóku
í könnuninhi voru 73,3% andvígir
sölu, en 26,7% hlynntir henni. Töfl-
ur yfír aldursskiptingu sýna, að
andstaðan fer vaxandi með hærri
aldri. Á meðan 67% fólks á aldrinum
15-24 ára og 64,4% á aldrinum
25-34 ára eru andvíg sölu, en 88,5%
fólks í elsta hópnum, 60-75 ára,
sama sinnis. Súluritið yfir skiptingu
eftir búsetu, til hægri á skýringar-
myndinni, sýnir að íbúar dreifbýlis-
ins telja nær allir að ekki eigi að
selja bankann og aðeins 6,7% þeirra
sem tóku afstöðu eru á öðru máli.
Bjóðum allt að átta þús. kr.
lægri fargjöld en Flug'leiðir
- segir Guðni Þórðarson hjá Sólarflugi
GUÐNI Þórðarson, forstjóri ferðaskrifstofan bjóði launþega-
ferðaskrifstofunnar Sólarflugs, samtökum og farþegum sínum
segir að þau flugfargjöld sem frá því í sumar séu 3-8.000 krón-
Blysför um
Sogamýri og
Elliðaárdal
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
blysfarar og léttrar fjölskyldu-
göngu sunnudaginn 29. desemb-
er. Slík ganga var farin í fyrra
og tóku þátt í henni um 450
manns. Lagt verður af stað í
ferðina klukkan 16,30 frá nýju
félagsheihiili Ferðafélagsins,
Mörkinni 6. Blys verða til sölu á
staðnum.
Gengið verður frá hinu nýja félags-
heimili Ferðafélagsins um Soga-
mýri og Elliðaárdal. Áætlaður
göngutími er hálf önnur klukku-
stund. Meðan á göngunni stendur
mun Hjálparsveit skáta verða með
flugeldasýningu á Geirsnefi. Þetta
er síðasta af styttri ferðum félags-
ins á árinu, en síðasta Ferðafélags-
ferð ársins er áramótaferð í Þórs-
mörk.
Með blysförinni er Ferðafélag
íslands m.a. að vekja athygli á nýju
félagsheimili sínu í Mörkinni 6, en
áætlað er að starfsemi félagsins
verði flutt þangað í vor og þar mun
jafnframt verða brottfararstaður
Ferðafélagsferða í framtíðinni.
um ódýrari en fargjöld sem for-
ystumenn launþegasamtakanna
hafa samið um við Flugleiðir.
Stéttarfélögin leituðu ekki eftir
tilboðum í utanlandsferðir til Sólar-
flugs, að sögn Guðna, en hann seg-
ir að það komi ekki að sök þar sem
launþegar leiti eftir lægsta verði
eins og aðrir. Hann sagði að ferð-
skrifstofan viidi hlynna að þeim sem
hefðu lægstu launin og byði laun-
þegasamtökum, svo sem ASÍ og
verslunarmannafélaginu, auk
þeirra 11.000 farþega sem hefðu
ferðast með Sólarflugi á árinu
3-8.000 króna lægri flugfargjöld
en þau fargjöld sem forysta laun-
þegasamtakanna hefði gert samn-
ing um við Flugleiðir. Þeim sem
hvorki eru meðlimir í launþegasam-
tökum né fyrrum viðskiptavinir
Sólarflugs er boðið upp á svipuð
fargjöld hjá Sólarflugi og Flugleiðir
bjóða launþegasamtökum, að sögn
Guðna.
Viðkomustaðir Sólarflugs næsta
sumar verða Kaupmannahöfn,
Amsterdam, London og Glasgow.
Flogið verður með Atlantsflugi frá
1. maí til 1. október, að sögn Guðna.
Morgunblaðið/Svcinbjöm Berentsson
Isaksturinn endaði illa
Það fór illa fyrir piltunum tveimur, sem ætluðu að
reyna leikni sína í ísakstri á Hvaleyrarvatni um síð-
ustu helgi. Þeir voru komnir nokkurn spöl út á vatn-
ið þegar þunnur ísinn gaf sig og bifreið þeirra,
Suzuki Swift, fór á bólakaf. Björgunarsveitin Fiska-
klettur í Hafnarfirði liðsinnti piltunum, en það tók
sex klukkustundir að koma bílnum á þurrt. Til þess
þurfti að bijóta 2,5 metra breiða rennu í ísinn að
landi, um 60 metra leið. Samkvæmt upplýsingum
björgunarsveitarmanna var bíllinn furðu lítið
skemmdur, en þó mun rafkerfi hans hafa farið illa.