Morgunblaðið - 28.12.1991, Page 24
24
ViU 1
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 199.1
V estmannaeyjar:
ísfélagið, Hraðfrystistöðin
og Bergur-Huginn sameinast
Verður þriðja til fjórða stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins o g
gert að almenningshlutafélagi
1. janúar 1992 sameinast ísfélag Vestmannaeyja, Hraðfrystistöð
Vestmannaeyja og Bergur-Huginn í einu fyrirtæki undir nafni
ísfélags Vestmannaeyja hf. sem er elsta starfandi hlutafélag á
íslandi. Hið nýja sameinaða fyrirtæki verður þriðja til fjórða
stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, sem hefur yfir um 12.500
þorskígiidum að ráða.
Samningar í þessa veru tókust
seint í fyrrakvöld, en þeir hafa stað-
ið yfir með hléum í nokkrar vikur.
Stjórnir félaganna þriggja sam:
þykktu svo samninginn í gær. í
frétt frá félögunum þremur segir
að firmamerki hins sameinaða fé-
lags verði Skeifurnar sem eru merki
Hraðfrystistöðvarinnar.
Þar segir jafnframt: „Vegna
minnkandi aflaheimilda og rekstr-
arerfiðleika var ljóst að forsvars-
menn sjávarútvegsfyrirtækja í
Vestmannaeyjum þurftu að leita
allra leiða til hagræðingar og endur-
skipulagningar í rekstri. Ljóst varð
að hagræðing innan einstakra fyrir-
tækja leiddi ekki til nægjanlega
hagstæðrar niðurstöðu."
Hið sameinaða félag hefur yfir
tveimur frystihúsum að ráða, fiski-
mjöls- og loðnuverksmiðju, neta-
gerð, frystitogara, þremur ísfisk-
togurum, sex togskipum og þremur
loðnuskipum. Samanlagðar fisk-
veiðiheimildir þessara skipa á yfir-
standandi vertíð eru 7.510 þorsk-
ígildi, eða um 9.000 tonn af bol-
fiski. Auk þess hefur félagið yfir
um 500 tonna rækjukvóta að ráða,
fjórum sfldarkvótum, fjórum
loðnukvótum og humarkvóta. Sam-
anlagt má meta þessar veiðiheimild-
ir sem 12.500 tonn.
I fréttatilkynningunni segir að
markmið sameiningarinnar sé auk-
in hagkvæmni í veiðum og vinnslu.
Færri skip verði gerð út og því
verði einhverjum eldri skipa félags-
ins lagt eða þau seld án veiðiheim-
ilda. Allrar hagræðingar verði leitað
í vinnslu bolfisks sem að mestu leyti
verði unninn í öðru frystihúsinu, en
árstíðabundin vinnsla svo sem
loðna, humar og síld í hinu frysti-
húsinu.
„Samanlagðar skuldir félaganna
eru um tveir milljarðar króna að
frádregnum veltufjármunum.
Stefnt verður að lækkun skulda
með sölu eigna sem ekki munu
nýtast hinu sameinaða félagi. I
samkomulagi um sameiningu félag-
anna er ákveðið að auka hlutafé
sem selt verður á almennum mark-
aði og verður félagið gert að al-
menningshlutafélagi.
Öllu fastráðnu starfsfólki öðru
en verkafólki og undirmönnum á
fiskiskipum verður sagt upp störf-
um við sameiningu félaganna. Leit-
ast verður við að finna sem flestum
störf við hæfi hjá hinu sameinaða
fyrirtæki. Ljóst er þó að einhver
fækkun á starfsmönnum eftir sam-
eininguna. Stefna félagsins er að
heimamenn sitji fyrir störfum hjá
félaginu. Á fundi forsvarsmanna
fyrirtækisins með starfsmönnum í
gær kom fram, að togarinn Sigurð-
ur RE, sem gerður hefur verið út
frá Reykjavík, yrði fluttur heim svo
fljótt sem hægt yrði og stefnt að
því að manna hann heimamönnum.
Forstjóri verður Sigurður Einars-
son og aðstoðarforstjóri Magnús
Kristinsson.
Forráðamenn félagsins vænta
þess að sameining félaganna komi
til með að efla og styrkja atvinnulíf-
ið í stærstu verstöð landsins. Það
er einnig von þeirra að þessi sam-
eining skapi sterkara og öflugra
fyrirtæki bæði til lands og sjávar,
en félögin hefðu orðið hvort í sínu
lagi, starfsfólki félagsins og bæjar-
félaginu til heilla.“
í fréttatilkynningu félaganna
þriggja er einnig greint frá því að
til aðstoðar í þessum viðræðum
hafi verið þeir Svanbjörn Thorodds-
en frá Verðbréfamarkaði íslands-
banka hf., Birkir Leósson frá Lög-
giltum endurskoðendum hf. og 01-
afur Elísson frá Endurskoðun Sig.
Stefánssonar hf.
Eignir hins sameinaða
ísfélags Vestmannaeyja
Fiskimjöls- og loðnuverksmiðja
Frystitógari
Þrír ísfisktogarar
Sex
Þrjú
SAMANLAGÐAR íiskveiðheimildir þessara skipa á yfirstandandi
fiskveiðiári eru 7.510 þorskígildi eóa um 9.000 tonn af bolfiski. Félagið
hefur auk þess rækjukvóta upþ á teeþ 500 tonn, fjóra síldarkvþta, fjóra
loðnukvóta og humarkvóta. Samanlagt má meta þessar veiðiheimildir
sem 12.500 þorskígildistonn.
Tvö frystihús auk annarra fasteigna
Sigurður Einarsson:
Áhættan af óbreyttum
rekstri ekki verjandi
SIGURÐUR Einarsson forstjóri Hraðfrystistöðvarinnar og verð-
andi forstjóri hins nýja sameinaða ísfélags Vestmannaeyja segir
helsta ávinninginn af þeirri sameiningu sem Isfélagið, Hraðfrysti-
stöðin og Bergur-Huginn hafi nú ákveðið vera þann að menn geti
hagrætt þannig í rekstri að fyrirtækin verði lífvænlegri í framtíð-
inni. „Þegar upp er staðið er ég ánægður með þessa niðurstöðu,“
sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í gær.
Fyrir sameiningu störfuðu hjá
fyrirtækjunum liðlega 300 manns,
en Sigurður segir ekki hægt að
segja til um það hve mikið starfs-
mönnum fækkar við sameininguna.
Hann segir að þau skip sem fyrir-
tækin hafa gert út verði öll gerð
út áfram, til að byija með, en stefnt
sé að því að færa aflaheimildir sam-
an, þannig að skipum verði lagt,
þegar á næsta ári, eða þau seld.
„Þegar upp er staðið er ég
ánægður með þessa niðurstöðu.
Áhættan sem fylgdi því að halda
rekstrinum áfram óbreyttum. var
einfaldlega of mikil og þess vegna
ekki verjandi að taka hana. Hún
var bæði of mikil fyrir mann sjálf-
an og sérstaklega fyrir fólkið sem
vann hjá fyrirtækinu. Auðvitað
hefði maður viljað heldur reka sitt
eigið fyrirtæki áfram og fólkið
hefði líklega einnig kosið það frek-
ar, en því fylgdi bara of mikil
áhætta. Eg held að sameining fyrir-
tækjanna í eitt komi til með að
treysta rekstur þess í framtíðinni.
Ég hef meiri trú á að við getum
byggt upp lífvænlegra fyrirtæki
eftir sameiningu og þraukað þá
erfiðu tíma sem nú eru,“ sagði Sig-
urður.
ísfélag Vestmannaeyja eftir
sameiningu kemur til með að
skulda um tvo milljarða króna. Sig-
urður var spurður hvort það væri
ekki gríðarleg skuldsetning á einu
fyrirtæki. „Vissulega verður
Sigurður Einarsson
skuldastaðan mjög erfið, en við
áætlum að samlegðaráhrifin verði
50 til 100 milljónir króna, og ef
svo hefði ekki verið, er ég hræddur
um að við hefðum ekki klárað
dæmið, með þeim skuldum sem eru
á fyrirtækjunum," sagði Sigurður.
Sigurður verður forstjóri hins
sameinaða félags og Magnús Krist-
insson verður aðstoðarforstjóri.
Sigurður var spurður hvort hann
óttaðist ekkert valdabaráttu á milli
þeirra Magnúsar: „Nei, það geri
ég ekki. Við erum búnir að ræða
þetta mál alveg í botn og skipta
með okkur verkum. Ég held ekki
að það eigi neitt eftir að þvælast
fyrir okkur.“
Ekki liggur fyrir hveijir munu
skipa fimm manna stjórn félagsins,
en það mun koma á daginn í janú-
ar, þegar hluthafafundur verður
haldinn.
Sigurður var spurður hvernig
starfsmenn fyrirtækjanna hefðu
tekið ákvörðuninni um sameiningu:
„Fólk hefur tekið þessu misjafn-
lega. Þetta er áfall fyrir suma, en
við erum náttúrlega að gera það
sem við höldum áð muni koma öll-
um betur, þegar til lengri tíma er
litið. Auðvitað verður maður var
við ákveðið öryggisleysi, en tíminn
verður bara að leiða í ljós hver nið-
urstaðan verður í þessum efnum.
Línur munu skýrast frckar strax
þegar líða fer á janúarmánuð,“
sagði Sigurður.
„Það er nú að hefjast loðnuvert-
íð eftir áramótin og við vonum að
sú loðnuvertíð verði góð. Við erum
bæði með loðnuverksmiðju og
loðnuskip og vonum að það styrki
okkur við að finna fólki vinnu,“
sagði Sigurður.
Magnús Kristinsson
Magnús Kristinsson;
Metum sam-
einingar-
áhrifin á 70
til 100 millj.
MAGNÚS Kristinsson stjórnar-
formaður ísfélags Vestmanna-
eyja, sem verður aðstoðarforstjóri
hins nýja sameinaða stórfyrirtæk-
is í Vestmannaeyjum, segir að
stefnt verði að því að auka hlutafé
í nýja félaginu um 20% og gera
það að almenningshlutafélagi.
Hann segir að forsvarsmönnum
hins nýja félags teljist til að með
aukinni hagræðingu og með minni
tilkostnaði við veiðar og vinnslu
skili sér á bilinu 70 til 100 milljón-
ir króna á ársgrundvelli.
„Ég er ánægður með að þessi nið-
urstaða skuli hafa fengist úr viðræð-
um okkar sem hafa staðið yfir með
hléum síðan í byijun nóvembermán-
aðar,“ sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Við metum það
að áhrifin af sameiningunni séu það
jákvæð að þau hafi leitt til þess að
við skrifuðum undir samkomulag um
að sameina þessi þijú fyrirtæki. Við
metum það að samlegðaráhrifin gefi
okkur 70 til 100 milljónir króna. ísfé-
lag Vestmannaeyja hf. verður eftir
sameininguna helmingi stærra eftir
áramót, en það var fyrir áramót og
ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd
minna hluthafa og míns starfsfólks,“
sagði Magnús.
Magnús sagði að stefnt væri að
því að hin hefðbundna bolfiskvinnsla
yrði í öðru frystihúsi hins nýja félags
en sérvinnsla með humar, síld, loðnu
og loðnuhrognafrysting í hinu hús-
inu. „Þannig ætti að nást vinnsla
allan ársins hring í báðum húsun-
um,“ sagði Magnús.
Hvað varðar fækkun fiskiskipa
sagði Magnús að reiknað væri með
því að félagið gerði út eitt frystiskip,
fimm til sex ferskfiskskip, sem kæmu
til ’með að halda uppi vinnslu í frysti-
húsunum og þtjú loðnuskip. Því yrði
fiskiskipum félagsins fækkað um
þijú til fjögur á næstunni, en þau
yrðu þá seld án veiðiheimilda.
Magnús sagði að útilokað væri á
þessu stigi að segja hversu margir
kæmu til með að missa vinnuna við
þessa sameiningu, en Ijóst væri að
það yrðu einhveijir. „Við gerum öll
skipin út til að byrja með, en svo
verður einhveijum skipum lagt þegar
líður á vertíðina. Ekki er ákveðið
hvaða skip það verða, og ekki liggur
fyrir hvort þeir sjómenn sem eru á
þeim skipum og tapa þar vinnu sinni
komast yfir á loðnuskipin okkar. Því
miður er það þannig að einhveijir
missa vinnu sína, en þeir verða ekki
margir. Við komum til með að reyna
að bjóða þeim sem missa atvinnuna
eitthvað að gera, til þess að milda
áhrifin," sagði Magnús.
Stjórn félagsins verður skipuð
fimm aðalmönnum og tveimur til
vara. Ekki er frágengið hveijir munu
skipa hina nýju stjórn, né hver verð-
ur stjórnarformaður. Magnús sagði
þó ákveðið að hvorki hann né Sigurð-
ur Einarsson, sem verður forstjóri
ísfélagsins yrði stjórnarformaður.