Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
,35
* >
Ursögn Islands úr Alþjóðahvalveiðiráðinu:
Stefnt að stofnun nýrra hvalveiði-
samtaka þjóða við N-Atlantshaf
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að jafnfrámt
úrsögn Islendinga úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu sé stefnt að því
að stofna ný hvalveiðisamtök
með öðrum hvalveiðiríkjum við
Norður-Atlantshaf. Þorsteinn
segir þó að ekki sé við því að
búast að slík samtök verði til á
skömmum tíma. Sjávarútvegs-
ráðherra segir að þessi ákvörðun
ríkisstjórnarinnar þýði ekki að
hvalveiðar verði hafnar að nýju,
og slíkt standi ekki til á árinu
1992.
„Meginástæðan fyrir því að þetta
skref er tekið, og sú ákvörðun að
draga sig út úr ráðinu, er sú að
ráðið hefur að okkar mati ekki sinnt
þeim skyldum, sem á því hvíla sam-
kvæmt stofnsamningnum,“ sagði
Þorsteinn Pálsson er hann greindi
fréttamönnum frá þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að segja Island
úr hvalveiðiráðinu. „Þar [í sáttmál-
anum] er með skýrum hætti kveðið
á um að ráðið eigi að vinna að
verndun og nýtingu hvalastofn-
anna. Á undanförnum árum hefur
ráðið smám saman verið að breyt-
ast í hreinræktuð verndunarsamtök
og við lítum svo á að það stríði
gegn megintilgangi Alþjóðahval-
veiðisáttmálans og sé þar af leið-
andi ekki í samræmi við stefnu Is-
lands og íslenzka hagsmuni."
Þorsteinn sagði að íslenzk stjórn-
völd teldu fullreynt að reyna að
breyta starfsháttum hvalveiðiráðs-
ins. „Við höfum hvað eftir annað á
undanförnum árum lagt fyrir vís-
indanefndina og hvalveiðiráðið til-
lögur af okkar hálfu. Síðast á árs-
fundinum á þessu ári voru lagðar
fyrir vísindanefndina tillögur um
veiðar, sem voru viðurkenndar í
vísindanefndinni en fengust ekki
ræddar í hvalveiðiráðinu," sagði
hann. „Við höfum á undanförnum
árum varað ráðið við því að ef ekki
yrðu breytingar á starfsháttum þess
kynni að koma að því að ísland sæi
sér ekki lengur fært að sitja í ráð-
inu. Slík viðvörun var gefin fyrir
síðasta ársfund og frá því að niður-
staða hans, sem olli okkur miklum
vonbrigðum, lá fyrir hefur þetta
mál verið í undirbúningi og leitt til
þessarar niðurstöðu."
Sjávarútvegsráðherra sagði að
ríkisstjórnin myndi leita eftir sam-
starfi við aðrar þjóðir um verndun
og nýtingu hvalastofna. Hann sagði
að ákvörðun um stofnun nýrra hval-
veiðisamtaka lægi ekki fyrir. „Við
höfum verið þátttakendur í nefnd
þjóða við Norður-Atlantshaf, þar
sem fyrst og fremst hefur verið
unnið að vísindalegum atriðum
varðandi hvalveiðar en ekki stjórn-
un hvalveiða. Við teljum rétt og
eðlilegt að ræða framhald þessa
máls á þeim vettvangi. Þar hafa
verið reifaðar hugmyndir um að
taka uþp stjórnun á smáhvölum,
sem ekki tilheyra valdsviði Alþjóða-
hvalveiðiráðsins. Við munum á
þessum vettvangi taka málið upp
Og freista þess að þróa það áfram.
Við gerum ekki ráð fyrir að stofnun
nýrra samtaka verði með skjótum
hætti. Við gerum okkur fulla grein
fyrir að það mun taka þó nokkurn
tíma. Ég ætla ekki að hafa hér
uppi spádóma um það hversu lang-
an,“ sagði ráðherra.
Hann sagði að íslenzk stjórnvöld
teldu það mikilvægt að byggja upp
ný alþjóðleg hvalveiðisamtök, sem
stæðu að ákvörðunum um stjórnun,
verndun og nýtingu hvalastofna.
„Við viljum vinna að framgangi
okkar stefnu á grundvelli þeirra
alþjóðlegu skuldbindinga sem við
höfum tekizt á hendur, meðal ann-
ars í hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna, og á þeim grunni ætlum
við að vinna að okkar markmiðum
í þessu efni, sem eru mjög skýr,“
sagði Þorsteinn. „Við höfum ekki
fyrirfram neipa tryggingu annarra
þjóða um þátttöku í alþjóðlegum
samtökum, en munum hér eftir sem
Morgunblaðið/Þorkell
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra skýrir frá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um úrsögn úr Alþjóðahvalveiðiráðinu. Hjá Þorsteini
sitja Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
og Guðmundur Eiríksson, þjóðréttarfræðingur og formaður íslenzku
sendinefndarinnar í hvalveiðiráðinu.
hingað til leita eftir samstarfi þeirra
þjóða, sem eiga sambærilegra hags-
muna að gæta, og væntum þess
að það beri árangur."
Þorsteinn tók skýrt fram að
ákvörðun ríkisstjórnarinnar þýddi
ekki að hvalveiðar yrðu hafnar á
ný. „Þessari ákvörðun fylgir ekki
að hvalveiðar verði teknar upp að
nýju við svo búið,“ sagði ráðherra
og kvað það ljóst að hvalveiðar
myndu ekki hefjast næsta sumar,
þrátt fyrir úrsögn úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu. Hann sagði að ekki
væri fyrirhugað að hefja auglýs-
inga- eða kynningarherferð erlendis
til að kynna málstað Islendinga og
orsakir ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar. „Við munum halda okkar
sjónarmiðum á lofti og gera um-
heiminum grein fyrir því hvers
vegna við tókum þessa ákvörðun
og hver okkar réttur er að alþjóða-
lögum, þótt við sjáum ekki að aug-
lýsingaherferðir dugi í því efni,“
sagði ráðherra.
Forsvarsmenn íslenzkra fisksölu-
fyrirtækja í Bandaríkjunum hafa
látið í ljós áhyggjur af því að sú
ákvörðun, sem ríkisstjórnin hefur
nú tekið, kunni að hafa neikvæð
áhrif á markaðinn og henni verði
a.m.k. að fylgja rækileg kynningar-
herferð. Aðspurður um þetta sagði
Þorsteinn að ekki væri verið að
taka ákvörðun um að hefja hval-
veiðar. „Það eru engin rök til þess
af hálfu nokkurra samtaka eða
nokkurra ríkja, að beita ísland
þrýstingi eða viðskiptaþvingunum í
tilefni af þessari ákvörðun. Fyrir
því væri ekki nokkur fótur," sagði
hann.
Tilkynning ríkisstjórnarinnar
Eftir ríkisstjórnarfund í gær
sendi ríkisstjórn íslands frá sér til-
kynningu um úrsögn úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu. í henni segir m.a.:
„Starfshættir Alþjóða hvalveiði-
ráðsins á undanförnum árum benda
alls ekki til þess að breyting verði
á afstöðu þess til friðunar hvala og
stjórnunar hvalveiða. Auk þess sem
ráðið starfar ekki eftir ákvæðum
eigin stofnsamnings er það ófært
um að nota nútíma aðferðir við
stjórnun á nýtingu sjávarauðlinda.
Rikisstjórnin telur að Alþjóða hval-
veiðiráðið hafi með núverandi
stefnu sinni brugðist þeirri skyldu
að tryggja verndun og skynsamlega
nýtingu stækkandi hvalastofna.
Alþjóða hvalveiðiráðið er því orðin
úrelt og óvirk stofnun.
íslensk stjórnvöld árétta mikil-
vægi virkrar umhverfisverndar.
Jafnframt er varað við einstreng-
ingslegri afstöðu til fortakslausrar
friðunar einstakra dýrastofna án
tillits til heildarsamhengis lífríkis
hafsins. Fáum þjóðum er brýnni
nauðsyn á að varðveita ómengað
haf. Islensk stjórnvöld munu því
áfram vinna ötullega að verndun
hafsvæðanna og lífkerfisins og í því
skyni halda áfram samvinnu við
ríki sem eru sama sinnis.“
j If
HL:
j |I 4
LÁ'S.j*.,' u
á I f
[Ji
u á
{..i
A myndinni sést langur bjartur gangur eða „galleri" sem liggur
eftir endilöngum skólanum, þar sem börnin geta leikið sér og
sem tengir einnig skólastofurnar og leiksalina.
Fyrstu verðlaun
í byggingarlist
Frá Laufeyju Helgadóttur, París.
HOGNU Sigurðardóttur arkitekt og samstarfsmönnum hennar,
André Crespel, Jean-Pierre Humbaire og Bernard Ropa, voru
fyrir nokkru veitt fyrstu verðlaun fyrir skólabyggingu sem þau
hönnuðu í nýju borginni Marne la Vallée, í umdæmi Seine et
Marne, austur af París.
Stjórnarráð Seine et Marne hér-
aðsins ákvað fyrir sjö árum að
veita ár hvert fjögur verðlaun fyr-
ir nútíma byggingarlist, sem að
mati valinnar dómnefndar skaraði
fram úr. Þegar verðlaunin voru
veitt í fyrsta skipti árið 1984 voru
þau fyrstu verðlaun sinnar tegund-
ar, og þó að lítið hafi farið fyrir
þeim í upphafi eru þau nú orðin
mjög þekkt og viðurkennd.
Dómnefndin í ár var skipuð
þrettán útvöldum sérfræðingum
sem allir eiga sameiginlegt að gera
miklar kröfur til byggingarlistar-
innar og hafa mikinn metnað fyrir
hennar hönd. Einnig er lögð
áhersla á að auglýsa þær bygging-
ar sem þeir verðlauna og vilja þeir
með því vekja almennan áhuga á
byggingarlistinni og fá fólk til þess
að vera meðvitaðra um umhverfi
sitt. Verðlaunin eru fyrst og fremst
mikil viðurkenning og um leið aug-
lýsing fyrir þá sem verðlaunin
hljóta, þó einnig sé þeim umbunað
með ferðalagi til þess að skoða
byggingarlist í Barcelóna.
Þeir sem hafa fengið fyrstu
verðlaun áður eru m.a. Francis
Soler (1984), Henri Ciriani (1987)
og Dominique Perrault (1988) svo
einhvetjir séu nefndir.
Skólabyggingin í Marne la
Vallée sem var verðlaunuð i ár
hýsir hvört tveggja í senn smá-
barna og barnaskóla og lauk bygg-
ingunni 1990.
Dómnefndin hrósaði sérstaklega
hve vel hefði tekist að aðlaga
skólabygginguna að bæ og um-
hverfi og fyrir það hve hún var
augljóst tákn opinberrar bygging-
ar. Þeir töluðu einnig um rétt hlut-
föll byggingarinnar með tilliti til
aldursflokks skólabarnanna, 3-10
ára og hve vel hefði tekist að nýta
birtuna' sem stuðlar vissulega að
frelsi og vellíðan barnanna. Að
lokum var lögð áhersla á einfald-
leikann sem einkenndi efnisvalið
og sem undirstrikaði þannig enn
betur gæði hússins.
„Ég hafði þurft að taka inn blóðþynningarmeðal að læknis-
ráði í langan tíma, þegar ég byrjaði að borða ALLIRICH-
hvítlaukinn með LECITHINl (glasið með græna miðanum).
Ég þakka því nú, að með mikilli og daglegri neyslu
\ y wm% ALLIRICH-hvítlauksins hefur orðið þvílík breyting á heilsu
adÉfásmíÉr JH minni að við reglulega skoðun hjá lækni kom í Ijós, að
blóðþrýstingurinn er orðinn eðlilegur. Fyrir mér hefur
ALLIRICH -hvítlaukurinn sannað áhritamátt sinn. Frábær
náttúruafurð, sem stendur undir nafni."
„Ég er búinn að reyna allar þessar hvítlaukstegundir á
markaðinum og ALLIRICH slær þeim öllum við. Það er
örugglega ALLICÍNIÐ sem gefur manni svona mikinn kraft
og vellíðan. Ég tek ALLIRICH daglega með lýsinu og gæti
þess að missa ekki dag úr. Ég hlakka til að reyna þann
nýja, CARLIC TIME, sem væntanlegur er bráðlega.
ALLIRICH heilsuvörur mæla með sér sjálfar."
Grétar
„Já, ég læt mér líða vel með ALLIRICH. Það er ótrúlegt
hvað ALLIRICH hvítlaukurinn gerir mann allan frískari
og hressari í lífi og starfi. Áður vissi ég ekki einu sinni að
ALLIRICH væri til. Ég borða ALLIRICH daglega. Það er
málið. Ég hvet alla, sem hugsa vilja vel um heilsuna, að
byrja á ALLIRICH lyktarlausa hvítlauknum ekki seinna
en núna. Þið finnið muninn, það gerir ALLICÍNIÐ.“
„( minni íþróttagrein, fimleikum, reynir á þolið og einbeit-
inguna. Þess vegna borða ég ALLIRICH lyktarlausa
hvítlaukinn daglega og árangurinn er ótrúlegur. Ég er
miklu hressari, andlega og líkamlega, auk þess sem
námið verður skemmtilegra. Ég sleppi aldrei degi úr,
tek 2-4 hylki með morgunmat. Meiri háttar kraftur."
Þórhallur
Linda
Laukrétt
ákvörðun
MUNDU AÐ ALLIRICH HVITLAUKURINN HEFUR MEIRA
ALLICÍNINNIHALD EN NOKKUR ÖNNUR VÍTAMÍNAFURÐ.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL. -BYRJAÐU STRAX Í DAG Á ALLIRICH.
Fæst i apótekum, heilsuhúsum og verslunum um land allt
Danberg - heildverslun,
Skúlagötu 61, 105 Reykjavík, sími 626470.