Morgunblaðið - 28.12.1991, Blaðsíða 45
MGRGÚNBLAÐIt) I.Al.'GAUDAGUR 2ft. DÉSÉMBRR 1991
45
UPPBOÐ
Madonna bítur Gaultier af sér
Madonna í Gaultier-gallanum sem hún losaði sig við.
Poppsöngkonan Madonna seg-
ist vera orðin æði þreytt á
fatahönnuðinu Jean Paul Gaultier
sem hefur hannað sérstaklega fyr-
ir hana furðubúningana sem hún
íklæðist gjarnan á tónleikum sín-
um vítt og breytt.
Hann gangi á eftir sér með
grasið í skónum og þrisvar hafi
hún neitað bónorði hans. Nú sé
nóg komið og hún ætli að leita
annað og hrista kappann af sér.
Þetta sé orðið hvimleitt.
Til að undirstrika orð sín, gaf
hún helstu flíkina úr Gaultier-safni
sínu til góðgerðarmála. Uppboð
eitt mikið sem fram fór um mánað-
amót nóvember og desember tii
styrktar heimilslausum var vett-
vangur þessa táknræna atburðar
í lífi poppgoðsins.
Uppboðið er tengt árlegu stór-
balli sem haldið er jafnan í Grosve-
nor House hotel í Lundúnum og
stjörnur úr ýmsum geirum gefa
gjarnan eitthvað af eigum sínum
sem vitað er að hamstola áhang-
endur vilja reiða fram stórfé til
að eignast. Til dæmis gaf Phil
Collins að þessu sinni jakkafötin
sem hann íklæddist í fyrstu heims-
reisu sinni sem sólólistamaður.
Eric Clapton gaf leðurbrækur frá
Vercace og popparinn Yazz tefldi
fram einka denímjakka sínum,
þessum eina og sanna. Annie
Lennox, söngkona Eurythmics, er
„safnari" ballsins og sjálf gaf hún
jakka og bijóstahöld sem hún
klæddist á Nelson Mandela tón-
leikunum.
HEPPNI
Fékk Happó miða í af-
mælisgjöf og vann 3,2 millj.
Jakob Lárus Sveinsson
hafði heppnina með sér
ekki alls fyrir löngu þegar
hann vann rúmlega 3,2
milljónir króna í Happó en
bróðir hans hafði gefið hon-
um nokkra Happó miða í
afmælisgjöf og kom vinn-
ingurinn á einn þeirra. Jak-
ob segist þó ekki hafa eytt
peningunum í jólagjafir og
þess háttar, heldur ætli
hahn að veija þeim til að
semja tónlist, en hann
hyggst á næstunni fara.til
Bandaríkjanna til að kynna
tónlist sína þar í landi.
Morgunblaðið/Sverrir
SIGLFIRÐINGAFÉLAGID
í Reykjavík
og nágrenni
Jólatrésskemmtun Siglfirðingatélagsins
rverður haldin í félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2,
sunnudaginn 29. des. kl. 15.00.
Leslie og Ósvaldur. Það fer vel
á með þeim...
Á innfelldu myndinni sést Patty
hæstánægð með lífið og tilver-
una...
KYNSLOÐABIL?
Skyldu systk-
inin vera
_ samrýnd?
IÁstralíu gerðist það á dögunum,
að hinn 92 ára gamli Leslie Coll-
ey sýndi að hann var ekki dauður
úr öllum æðum og gat eiginkonu
sinni barn. í heiminn kom Osvaldur
litli í fyllingu tímans og voru Leslie
og hin 38 ára gamla eiginkona hans
Patty himinlifandi, enda barnið heil-
brigt og hraust. Hér er ekki öll sag-
an sögð, því að Ósvaldur á sér eldri
bróður. Reyndar hálfbróður, en það
er Norman. Norman er 71 árs og
er það metaldursmunur systkina og
meira að segja ritstjóri Guinnes-
metabókarinnar er sagður hafa hrist
höfuðið af undrun.
Norman er sonur Leslies af fyrra
hjónabandi og sjálfur á hann tólf
barnabörn! Patti, barnsmóðirin, seg-
ir að tilkoma Ösvaldar hafi ekki
verið skipulögð, það „hafi bara
gerst“, en engu að síður hafi hún
verið afar hamingjusöm og Leslie
karlinn hafi gersamlega ljómað af
gleði er hún sagði honum að barn
væri á leiðinni. „Hann er ótrúlegur,“
segir Patty og á þá við bónda sinn,
„hann er líkari því að vera sextugur
en níræður, ég held að hann sé ekki
síður kraftaverk en hinn nýi sonur
okkar.“
VEGNA HLUTABRÉFAKAUPA
Frá því haustið 1986 heiía þúsundir einstciklinga ávaxtað speirifé sitt með kaupum
á hlutabréfum í Hlutabréfasjóðnum hf.
Með kaupum á hlutabréfum í Hlutabréfcisjóðnum hf. nýta einstaklingar þá leið til
skattalækkunar sem fylgt getur kaupum hlutabréfa. Á árinu 1991 verður
frádráttur vegna hlutabréfakaupa allt að kr. 94.000 hjá einstaklingi en allt að
kr. 188.000 hjá hjónum.
Hluthafar í Hlutabréfasjóðnum hf. eru nú á þriðja þúsund og verðmæti hreinnar
eigncir félagsins er 645 milljónir króna.
Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur áhættudreifingu að leiðarljósi. Félagið ver hlutafé
sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og skuldabréfum traustra atvinnufyrirtækja.
Verðmæti hlutabréfaeignar er nú 480 milljónir og skiptist þannig á einstök félög:
Eimskip 86,0 mkr. Olís 10,8 mkr
Faxamarkaður 4,1 - Olíufélagið 24,5 -
Flugleiðir 90,3 - SH verktakar 7,0 -
Grandi 56,3 - Sjóvá/Almennar 7,4 -
Hampiðjan 25,8 - Skagstrendingur 19,8 -
Haraldur Böðvarsson 13,3 - Skeljungur 48,2 -
Islandsbanki 2,1 - Sæplast 8,7 -
Ehf. Alþýðubankans 5,0 - T ollvörugeymslan 14,1 -
Ehf. Iðnaðarbankans 14,3 - ÚA 13,4 -
Ehf. Verslunarbankans 10,9 - Þormóður rammi 17,6 -
Hlutabréfcisjóðurinn hf. er fyrsti hlutabréfasjóðurinn sem stofnaður var hér á
landi. Hann er stærsti hlutabréfasjóður landsins.
Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins hf. eru seld hjá öllum helstu
verðbréfafyrirtækjum.
ÁHÆTTUDREIFING Á EINUM STAÐ
HLUTABREFflSJOÐURINN HF.
Skólavörðustíg 12 - Sími: 21677 - 101 Reykjavík.
A ‘ . : ;iL;sö
SKATTALÆKKUN