Morgunblaðið - 28.12.1991, Qupperneq 55
I
I
)
I
I
I
Guðni Bergsson
ÍÞRfMR
FOLX
■ GUÐNI Bergsson meiddist í
leik Tottenham og Nottingham
Forest annan í jólum. Hann fékk
5 sentímetra skurð á ennið eftir að
hann skallaði í hnakka Des Walker
og fór útaf þegar 10 mín. voru liðn-
ar af síðari hálfleik. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
yrði ekki með Tottenham gegn
Norwich í dag. Sauma þurfti 6
spor í enni Guðna.
B NIGEL Cloug-li, sonur Brians
framkvæmdastjóra Nottingham
Forest, var rekinn af leikvelli sjö
mínútum fyrir leikslok gegn Tott-
enham fyrir að brjóta ills á Paul
Stewart. Hann skoraði fyrra mark
Forest í 2:1 sigri.
■ BRIAN McClair gerði tvö mörk
í 6:3 sigri Manchester United á
Oldham. United __ hefur tveggja
stiga forskot á Leeds, sem gerði
jafntefli við Southampton, 3:3.
United mætir Leeds í toppslag
deildarinnar á morgun, sunnudag.
■ LEEDS náði tveggja marka
foskoti gegn Southampton með
mörkum Steve Hodge í fyrri hálf-
leik. Þegar 17 mín. voru til leiks-
loka var Leeds yfir 3:1 og sigurinn
virtist í höfn, en Alan Shearer og
Iaian Dowie náðu að jafna fyrir
leikslok. Gordon Strachan lék ekki
með Leeds vegna bakmeiðsla en
hann verður líklega með gegn Un-
ited á morgun.
D BRYAN Robson, fyrirliði Man.
United, leikur ekki með liðinu geng
Leeds á morgun vegna meiðsla á
kálfa. „Hann verður frá í tvær til
þrjár vikur,“ sagði Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri United.
H MICK Harford gerði sigur-
mark Luton gegn Arsenal og var
þetta 11. mark hans á tímabilinu.
Arsenal hefur ekki unnið Luton í
hattaborginni síðustu sjö árin.
D JAN Skejstal, tékkneski mark-
vörðurinn hjá QPR, átti stórleik
gegn Liverpool og bjargaði oft
glæsilega.
■ STEVE McMalion lék fyrsta
leik sinn með Manchester City í
2:l-sigri gegn Norwich. Hann var
keyptur frá Liverpool í síðustu viku
fyrir 90 milljónir ÍSK.
■ KENT Nielsen hefur verið
seldur frá Aston Villa til danska
liðsins AGF. Nielsen, sem er 30
ára Dani, verður löglegur með AGF
1. febrúar. Danska félagið vildi
ekki gefa upp kaupverðið.
D PÉTUR Marteinsson, knatt-
spyrnumaður úr Fram sem gekk
nýlega til liðs við Leiftur á Ólafs-
firði, fer með unglingaliði Stuttg-
arts til Japans til að taka þar þátt
í sterku unglingamóti um áramótin.
D ALEXEJ Trúfan, leikmaður
Víkings , leikur með rússenska
landsliðinu í liandknattleik síð-
asta leikinn gegn Islendingum í
Víkinni annað kvöld.
■ SARA Lind Baldurdóttir mun
sýna dýfingar í Sundhöll Reykja-
víkur ásamt tveimur vinkonum sín-
um frá Svíþjóð í dag kl. 15. Á
sama tíma fer fram innanhússmót
HSK í sundi.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991
55
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Uppskárum eins
og við sáðum“
Auðveldur sigur á Rússum
ÍSLEIMDINGAR sigruðu Rússa ífyrsta landsleik þjóðanna á Akur-
eyri í gærkvöldi, 28:22. íslenska liðið átti ágæta kafla bæði í
vörn og sókn, en losarabragur einkenndi þó leik liðsins á stund-
um. „Við prófuðum 5-1 vörn. Þetta var allt í lagi - þeir eru með
sterkar skyttur og það er ekki svo slæmt að fá á sig 22 mörk i
svona opnum leik,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðs-
þjálfari, við Morgunblaðið.
Rússar skoruðu fyrsta markið
og var það í eina skiptið sem
)eir höfðu forystu í leiknum. íslend-
ingar. náðu fljótlega
Anton yfirhöndinni gegn
Benjaminsson fremur mistækum
sknfar Rússum. Konráð
Olavson var mjög
frískur í vintra horninu í fyrri hálf-
leik og skoraði mörg glæsileg mörk.
Undir lok hálfleiksins slökuðu ís-
lendingar á og Rússar gengu á lag-
ið og minnkuðu muninn í eitt mark
fyrir leikhlé.
Síðari hálfleikur var líkur þeim
fyrri, Island með frumkvæðið án
þess þó að sýna nein sérstök tilþrif
nema hvað hraðaupphlaupin voru
oft ágætlega útfærð. Þess má geta
að íslenska liðið gerði alls tíu mörk
úr hraðaupphlaupum í leiknum.
Það má segja að þetta hafi verið
ágætis æfingaleikur fyrir okkar
menn og fengu allir að leika og
m.a. fengu þrír leikmenn að spreyta
sig í hlutverki leikstjórnanda. Þeir
Gunnar Andrésson, Gunnar Gunn-
arsson og Konráð Olavson. Þor-
bergur Aðalsteinsson gat prófað
leikfléttur og kerfi og tókst oft á
tíðum ágætlega. íslenska liðið spil-
aði 5-1 vörn mestan hluta leiksins
og var vömin þétt vinstra megin,
en frekar lek hægra megin og mar-
kvarslan slök.
Konráð Olavson var góður í fyrri
hálfleik og Valdimar Grímsson í
þeim síðari. Júlíus Jónasson var
sterkur en hefði mátt reyna meira
sjálfur. Geir og Júlíus vora sterk-
ustu menn varnarinnar.
Lið Rússa er frekar ungt og
reynslulítið og flestir leikmanna
þess um tvítugt. Það vantar greini-
lega meiri breidd í liðið, en í því
er þó nokkrar góðar skyttur sem
erfitt er að eiga við.
Þjálfari liðsins, Vladimir Gladtsj-
enko, var ekki ánægður í leikslok.
Þegar hann var spurður hvort hann
hafi verið ánægður með sína menn,
hló hann og svaraðí spurningunni
ekki frekar. „Leikmenn mínir eru
flestir mjög ungir og gerðu mikið
af mistökum og eiga mikið eftir
ólært.“
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Júlíus Jónasson lék vel. með ís-
lenska liðinu gegn Rússum í gær og
skoraði 5 mörk.
- sagði Torfi Magnússon, þjálfari, eftir óvæntan sigur á Pólverjum
mm
FOLK,
D SIGURÐUR Sveinsson lék
ekki með íslenska landsliðinu gegn
Rússum í gær. Hann getur ekki
verið með vegna vinnu.
D BIRGIR Sigurðsson var heldur
ekki með í gær vegna vinnu sinnar,
en verður með í síðari leikjunum
tveimur.
D GUNNAR Gunnarsson meidd-
ist á læri undir lok fyrri hálfleiks
í gærkvöldi og taldi ólíklegt að hann
yrði með á Húsavík í dag. Óttast
var í gærkvöldi að vöðvi í læri hefði
rifnað.
D ENGIR þjóðsöngvar voru leikn-
ir fyrir landsleikinn á Akureyri.
Rússar komu ekki með hljóðupp-
töku af þjóðsöngnum og svo virtíBt
sem menn hefðu það ekki á hreinu
hvaða þjóðsöngur ætti við hjá þessu
nýja lýðveldi. Rússar komu ekki
heldur með fána, en Henson brá
skjótt við og saumaði tvo fána.
ísland - Rússland 28:22
Iþróttahöllin á Akureyri, vináttulandsleikur
í handknattleik, föstudaginn 27. desember
1991.
Gangur leiksins: 2:2, 6:3, 9:5, 10:9, 13:12,
16:13, 19:16, 23:16, 26:19, 28:22.
Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson 6, Valdi-
mar Grímsson 6, Konráð Olavson 6, Július
Jónasson 5, Geir Sveinsson 3, Einar Sig-
urðsson 1, Patrekur Jóhannesson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 5
(þai' af 2 sem fór aftur til mótheija), Guð-
mundur Hrafnkelsson 6 (þar af 2 sem fóru.
aftur til mótheija). .
Utan vallar: 6 minútur.
Mörk Rússlands: Valadímir Maltsev 8/2,
Vasili Kudinov 6, Eldar Kustiaev 3, Oleg
Maltsev 2/2, Aleksej Levsha 2, Aleksandr
Rudakov 1.
Varin skot.: Slava Iesavlenko 11.
Utan vallar: 2 mínútur.
Áhorfendur: 822 greiddu aðgang.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Erlingsson.
Island - Pólland 91:77
Iþróttahúsið i Keflavík, vináttulandsleikur
í körfuknattleik, föstudaginn 27. desember
1991. Gangur leiksins: 0:5, 3:5, 5:13,
12:17, 22:25, 30:33, 33:40, 43:40, 49:42,
53:49, 60:51, 70:60, 80:64, 84:75, 91:77.
Stig íslands: Valur Ingimundarson 18, Jón
Kr. Gíslason 15, Magnús Matthíasson 12,
Teitur Örlygsson 10, Guðmundur Bragason
9, Jón Arnar lngvarsson 8, Axel Nikulásson
7, Páll Kolbeinsson 6, Guðni ó. Guðnason
4, Sigurður Ingimundarson 2.
Stig Póllands: Adam Wojeik 19, Mariusz
Bacik 17, Jaroslaw Jechorek 15, Maciej
Zielinski 7, Tomasz Wladowski 6, Krzysztof
Blaszkowski 6, Tomasz Torgowski 5, Wal-
demar Kijanowski 2. SB
Dóinarar: Kristinn Albertsson og Leifur
5. Gai-ðarsson sem dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: Um 250.
Bjöm
Blöndal
skrifarfrá
Keflavík
ÍSLENDINGAR gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu Pólverja 91:77 í Keflavík í gær-
kvöldi og komu þessu úrslit mörgum á
óvart, því Pólverjar hafa verið sterkir í
körfuknattleik og urðu m.a. í sjöunda
sæti í síðustu Evrópukeppni. „Þetta var
sætur sigur og við uppskárum eins og
við sáðum. Mér leist ekki allskostar á
blikuna í upphafi, en eftir að við vorum
komnir í gang þá gekk dæmið upp hjá
okkur, “ sagði Torfi Magnússon lands-
liðsþjálfari eftir leikinn.
Plveijarnir byrjuðu þó betur og réðu ferðinni
í fyrstu og hélt einstaklingsframtak Vals
Iijgimundarsonar íslenska liðinu á floti lengi
vel. En. smátt og smátt fór að
kveða meira að íslenska liðinu
sem með markvissum leik náði
að jafna upp forskot Pólveijanna
og hafði 4 stiga forystu í hálf-
leik 53:49.
Sterkur leikur íslenska liðsins virtist setja
Pólveijanna algerlega út af laginu og þeir náðu
aldrei að ógna öruggum sigri íslenska liðsins
í síðari hálfleik.
„Ég veit ekki hvað var að mínum mönnum,
þeir léku hræðilega illa og ef til vill situr jólas-
teikin í þeim ennþá,“ sagði Arkadiusz Koni-
ecki, þjálfari pólska liðsins, eftir leikinn. „Við
bytjuðum svo sem ágætlega, en síðan ekki
söguna meir - við hættum að hitta úr upplögð-
um færum og gáfum eftir í vörninni. íslensku
leikmennirnir léku vel, það verður ekki frá þeim
tekið - og þá sérstaklega í vörninni. En ég get
lofað betri leik annað kvöld (í kvöld) þegar við
mætum íslendingum í annað sinn,“ sagði Koni-
ecki.
„Þetta var fyrst og fremst sigur liðsheildar-
innar þegar einn fór útaf kom annar inná og
gerði enn betur og ég er í sjöunda himni með
þessi úrslit,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari
íslenska liðsins.
Pólverjarnir voru aðeins með 9 leikmenn og
var ástæðan sú að einn liðsmanna lenti í bíl-
slysi rétt fyrir brottför og voru ekki tök á að
fylla skarð hans. Tveir leikmenn Póllands urðu
að fara af leikvelli með 5 villur í síðari hálfleik
og hafði liðið þá aðeins 2 skiptimenn.
Einstaklingsf ramtak Vals Ingimundarsonar hélt íslenska
liðinu á floti lengi vel framan af, en í síðari hálfleik var aldrei
spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi.