Morgunblaðið - 28.12.1991, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 28.12.1991, Qupperneq 56
MORGVNDLADID, ADALSTILETI 6, 101 REYKJA VÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Sala hlutabréfa glæðist hjá verð- bréfafyrirtælgum SALA hlutabréfa tók verulegan kipp í gær frá því sem verið hefur í desember og var nokkuð lífleg, að sögn talsmanna verðbréfafyrirtækj- anna. Kaupendur bréfanna eru einkum einstaklingar sem hyggjast nýta sér skattafsiátt með hlutabréfakaupum. Salan nú í desember hefur hins vegar verið mun minni en á sama tíma í fyrra. Kvaðst Svanbjörn Thoroddsen, deildarstjóri hjá Verðbréfamarkaði íslands- banka, telja að ekki væri ósennilegt að salan yrði aðeins þriðjungur til helmingur af sölunni á sama tíma í fyrra eða 400-600 millj. í gær seldust upp hlutabréf í útboði rafeindafyrirtækisins Marels sem hófst þann 2. desember sl. „Það hefur verið mjög lífleg sala í dag og töluverður fjöldi hefur átt viðskipti. Mér finnst einnig áhugi — stærri aðila vera að glæðast þessa dagana og menn eru að átta sig á því að verð hlutabréfa er mjög hag- stætt í mörgum tilfeilum," sagði Svanbjörn í samtali við Morgunblað- ið. „Viðskiptin hafa aukist nokkuð en þau eru hins vegar ekki nærri eins mikil og í fyrra. Við búumst þó við því að salan taki verulega við sér þessa síðustu daga fyrir ára- mót,“ sagði Agnar Jón Ágústsson, hagfræðingur hjá Fjárfesting- arfélagi Islands. Hann sagði að salan *^feri mest í Almenna hlutabréfa- sjóðnum en einnig væri nokkuð um kaup á hlutabréfum Eimskips. Sala hlutabréfa hjá Verðbréfamarkaði Fjárfestingarfélagsins er orðin um 1 milljarður á þessu ári en allt árið í fyrra var hún um 900 milljónir. Hjá Landsbréfum var mikið að gera í gær við sölu hlutabréfa og að sögn Sigurbjörns Gunnarssonar, deildarstjóra, keyptu flestir bréf í Islenska hlutabréfasjóðnum. Hann sagði að salan á hlutabréfum sjóðins væri nú svipuð og á sama tíma í fyrra. Sala hlutabréfa einstakra félaga væri hins vegar nokkru minni. Að sögn Jóns Snorra Snorrason- ar, deildarstjóra hjá Kaupþingi, var stöðugur straumur fólks þangað í gær vegna kaupa á hlutabréfum. Hann sagði að fólk keypti mest hlutabréf í hlutabréfasjóðnum Auð- lind en einnig hefðu fjölmargir keypt hlutabréf í Marel og Eimskip. Hefðu þannig öll hlutabréf í Marel selst í gær en útboð bréfa að söluverði 28 milljónir hófst 2. desember sl. Engar tölur lágu fyrir um sölu hlutabréfa * Islendingar segja sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu: Engiii ákvörðun tekin um að hefja hvalveiðar á ný RÍKISSTJÖRNIN ákvað í gær að segja Island úr Alþjóðahvalveiðiráð- inu. Ursögnin tekur gildi 30. júní á næsta ári og munu Islendingar því sitja fyrri hluta ársfundar hvalveiðiráðsins, sem haldinn verður um mánaðamót júní og júlí, en verða fjarverandi síðari liluta fundar- ins. Full samstaða er um þessa ákvörðun í ríkisstjórninni að sögn Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra. í yfirlýsingu, sem ríkisstjórnin I ákvörðun hafi verið tekin um að sendi frá sér í gær, segir að engin | hefja hvalveiðar að nýju. Hins veg- ar verði lögð áherzla á að stofna svæðisbundin samtök hvalveiði- þjóða við Norður-Atlantshaf um verndun og skynsamlega hagnýt- ingu sjávarspendýra. Sjávarútvegs- ráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að það væri ljóst að hvalveið- ar yrðu ekki hafnar næsta sumar. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er byggð á þeirri skoðun að Alþjóða- hvalveiðiráðið starfi ekki lengur samkvæmt eigin stofnsáttmála. „í stofnsáttmálanum er með skýrum hætti kveðið á um að ráðið eigi að vinna að verndun og nýtingu hvala- stofnanna," sagði Þorsteinn. „Á undanförnum árum hefur ráðið hjá Kaupþingi en veltan á tilboðs- markaði er nú nálægt 30 milljónum frá því hann var settur á laggirnar þann 11. nóvember sl. Þar er ekki meðtalin sala í hlutabréfasjóðnum Auðlind. Þorsteinn Ólafs, forstöðumaður Verðbréfaviðskipta Samvinnubank- ans, sagði að salan hefði glæðst mikið í gær til einstaklinga sem væru að nýta sér skattafrádrátt með hlutabréfakaupum. „Eftirspurn hef- ur aukist bæði vegna þess að nú er verð lægra en áður og fólk er ad nota síðasta tækifærið til að tryggja sér lækkun skatta með hlutabréfa- kaupum. Vegna aukinnar sölu erum við byrjaðir að kaupa inn hlutabréf að nýju í nokkrum félögum." Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigur gegn Rússum Islendingar og Rússar léku landsleik í handknattleik á Akureyri í gærkvöldi og var þetta fyrsti landsleik- ur rússneska lýðveldisins í íþróttinni á erlendri grundu. íslendingar sigruðu 28-22 og skorar Konráð Olav- son eitt af sex mörkum sínum í leiknum á myndinni. Sjá íþróttasíðu bls. 55. Þrjú sjávarútveg’sfyrirtæki í Vestmannaeyjum sameinast: Kvóti nýja ísfélagsins hf. nemur 12.500 þorskígildum Aflaheimildir færðar saman og skipum lagt eða þau seld SAMNINGAR um sameiningu ísfélags Vestmannaeyja, Hraðfrysti- stöðvar Vestmannaeyja og útgerðarfélagsins Bergs-Hugins tókust í fyrrakvöld. Nýtt hlutafélag, Isfélag Vestmannaeyja hf., tekur til starfa þann 1. janúar næstkomandi og verður þriðja til fjórða stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Kvóti nýja fyrirtækisins nemur um 12.500 þorskígildum. Búist er við að starfsmönnum fækki eitthvað við sameininguna, en forsvarsmenn nýja fyrirtækisins Ieggja áherslu á að reynt verði að milda áhrif þess. Skipin, sem fyrirtækin þijú gerðu út, verða fyrst um sinn öll gerð út áfram, en stefnt er að því að færa aflaheimildir saman, þannig að skipum verði lagt þegar á næsta eða þau seld. Sigurður Einars- son, forstjóri Hraðfrystistöðvarinn- ar og verðandi forstjóri nýja fyrir- tækisins, sagði að helsti ávinningur af sameiningunni væri sá, að hægt væri að hagræða í rekstrinum. „Áhættan sem fylgdi því að halda rekstrinum áfram óbreyttum var einfaldlega of mikil," sagði hann. Magnús _ Kristinsson, stjórnar- formaður Isféiags Vestmannaeyja og verðandi aðstoðarforstjóri nýja fyrirtækisins, sagði að stefnt væri að því að auka hlutafé þess um 20% og gera það að almenningshlutafé- lagi. Bein fjárhagsleg hagræðing vegna sameiningarinnar væri talin um 70-100 milljónir á ári. Stefnt væri að því að bolfiskvinnsla yrði í öðru frystihúsi hins nýja félags, en vinnsla á humri, síld, loðnu og loðnuhrognafrysting í hinu. Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sagði að minni sjávarútvegsfyrirtæki ættu undir högg að sækja og því væri samein- ingin af hinu góða. „Auðvitað fylgja þessu ákveðnir erfiðleikar," sagði hann. „Mér skilst að starfsmanna- hald breytist eitthvað, en þegar til framtíðar er litið held ég að þetta verði bæjarfélaginu til heilla." „Okkur hefur verið sagt að þessi breyting komi ekki til með að bitna á verkafólki þannig að það missi atvinnuna og því hljótum við að fagna,“ sagði Erna Valgeirsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Snótar. „Möguleikarnir virtust þeir, að fyrirtækin sameinuðust eða að þau seldu veiðiheimildir burt og legðu niður starfsemi.“ Sjá fréit og viðtöl á bls. 24 smám saman verið að breytast í hreinræktuð verndunarsamtök og við lítum svo á að það stríði gegn megintilgangi alþjóðahvalveiðisátt- málans og sé þar af leiðandi ekki í samræmi við stefnu Islands og íslenzka hagsmuni. Við höfum hvað eftir annað á undanförnum árum lagt fyrir vísindanefndina og hval- veiðiráðið tillögur af okkar hálfu. Síðast á ársfundinum á þessu ári voru lagðar fyrir vísindanefndina tillögur um veiðar, sem voru viður- kenndar í vísindanefndinni en feng- ust ekki ræddar í hvalveiðiráðinu. Við höfum á undanförnum árum varað ráðið við því að ef ekki yrðu breytingar á starfsháttum þess kynni að koma að því að ísland sæi sér ekki lengur fært að sitja í því.“ Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra, sagði að það hefði verið sjálfsagður hlutur að segja sig úr ráðinu. „Stóra spurningin er svo hvað við tekur. Úrsögn þýðir ekki að veiðar verði hafnar sem okkur er þó heimilt. Þetta er biðleikur. En þetta er staðfesting á því að við ætlum ekki lengur að láta hafa okkur að leiksoppi í platsamtökum.11 Sjá nánar á bls. 25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.