Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
3. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Síðasta ferð
flugstjóra SAS
STEFAN Rasmussen, 44 ára gamall
danskur flugstjóri SAS-þotunnar, sem
brotlenti skömmu eftir flugtak frá
Stokkhólmsflugvelli á þriðja í jólum,
hefur flogið sitt síðasta flug, að eigin
sögn. Flugslysinu hefur verið Iýst sem
kraftaverki þar sem allir 129 sem í flug-
vélinni voru komust lífs af og þykir
Rasmussen hafa unnið ótrúlegt afrek í
því sambandi. Er hann hylltur sem hetja
um heim allan fyrir framgöngu sína. En
flugstjóri sem lendir í slysi af þessu tagi
er sagður eiga auðvelt með að fá uppá-
skrift iækna fyrir því að hann sé ófær
um að fljúga aftur, að sögn norska blaðs-
ins Aftenposten. Þar með verður hann
af flugréttindum. Flugmenn SAS hafa
komið ár sinni vel fyrir borð því missi
þeir skirteinjð fá þeir í bætur jafnvirði
5,5 milljóna ISK sem eingrciðslu og auk
þess halda þeir 60-65% af fyrri launum
þar til þeir komast á eftirlaunaaldur.
Þeim tekjum halda þeir óskertum þótt
þeir fái sér annars konar atvinnu.
Lituð gleraugu
gegn höfuðverk
KOMIÐ hefur í ljós við rannsóknir augn-
lækna við háskólann í Birmingham í
Englandi að rósrauð gleraugu geta
reynst gagnleg gegn höfuðverk en þau
eru sögð draga úr álagi flúrljósa á augn-
vefi. Voru 8-14 ára börn sem átt höfðu
til að fá höfuðverk ótt og títt fengin til
að bera gleraugu með rósrauðum gleij-
um í tilrauninni og eftir aðcins fjóra
mánuði kom í ljós að tíðni höfuðverkja-
kasta hafði lækkað úr 6,2 að meðaltali
á mánuði í 1,6. Niðurstöður rannsókn-
anna eru birtar í tímariti breskra lækna-
samtaka, Pulse.
Fætur Japana
lengjast ört
Japanskir unglingar vaxa foreldrum sín-
um yfir höfuð í bókstaflegum skilningi,
samkvæmt opinberum rannsóknum sem
fram hafa farið með reglulegu millibili
frá síðustu aldamótum, en þeir hafa
ekki þá kattarsjón sem forfeðurnir
höfðu. Þannig reyndist meðalhæð 17 ára
pilta 170,6 sentimetrar 1991 og hefur
aukist um 5,4 sm frá 1961. 17 ára meðal-
stúlka er hins vegar 157,9 sm og nemur
hækkunin 3,9 sm á 30 árum. Lengingin
hefur nær öll átt sér stað í skönkunum.
Með aukinni hæð hefur meðalþyngd vax-
ið og er 62,2 kg þjá 17 ára piltum en
52,8 kg hjá stúlkum. Sömuleiðis hefur
sjón japanskra unglinga hrakað og þarf
þriðji hver 15-17 ára unglingur á gler-
augum að halda. Hefur það hlutfall
aldrei verið hærra.
Asíuferð George Bush Bandaríkjaforseta:
Samkomulag' við Singapore
um aukið vamarsamstarf
Singapore, Kuala Lumpur. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti og Goh Chok Tong, forsætisráðherra Singapore, náðu
í gær samkomulagi um nýjan viðskiptasamning sem hefur það að markmiði að gera
fjárfestingar Bandaríkjamanna í Singapore fýsilegri. Bush, sem er á tólf daga ferða
lagi um Asíu, og Goh lýstu þvi einnig yfir að þeir hefðu náð samkomulagi um aukið
varnarsamstarf. Felst það í því að flotastjórnstöð, sem nú er staðsett á Filippseyjum,
verður flutt til Singapore. Þá sagðist Bandaríkjaforseti vilja draga enn frekar úr út-
gjöldum Bandaríkjamanna til varnarmála og lækka skatta í staðinn.
Bandaríkjamenn verða að yfirgefa her-
stöðvar sínar á Filippseyjum á næsta ári, að
kröfu þarlendra stjórnvalda, og óttast mörg
ríki í suðausturhluta Asíu að hverfi Banda-
ríkjamenn alfarið á brott úr þéssum heims-
hluta verði áhrif Japana og Kínveija þar of
mikil.
í hádegisverðarboði sem hann hélt til heið-
urs Bush í gær sagði Goh Chok Tong að þörf
væri á miklu samstarfí við Bandaríkin í efna-
hagsmálum til að vega á móti vaxandi veldi
Japana. „Enn sterkari rök fyrir því að Banda-
ríkin verði áfram mikilvægur aðili í okkar
efnahagslífí er að við viljum að bandarískar
hersveitir verði áfram á svæðinu. Án þeirra
höldum við út á braut óvissunnar," sagði Goh.
í stjómstöð sjöunda flotans, sem flutt verð-
ur til Singapore, starfa einungis um 200
manns en hún skipuleggur siglingar banda-
rískra herskipa um Kyrrahaf. Bandaríkjamenn
binda einnig vonir við að í kjölfar þessa sam-
komulags verði hægt að gera svipaða samn-
inga við fleiri ríki í þessum heimshluta, til
dæmis um viðgerðir á skipum og flugvélum.
Hefur fyrst og fremst verið rætt um Tæland
og Malasíu í því sambandi. Indónesía og Bru-
nei hafa einnig látið í ljós áhuga á að veita
bandarískum skipum einhverja aðstöðu.
Hernaðarsérfræðingar hafa bent á að vegna
tækniframfara séu risavaxnar flotastöðvar,
líkt og á Filippseyjum, ekki lengur nauðsynleg-
ar. Nægilegt sé að hafa svæðisbundnar stjórn-
stöðvar og aðgang að viðhaldi og birgðum.
IJm hundrað stuðningsmenn stjórnarand-
stöðuflokks múhameðstrúarmanna komu sam-
an fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í höfuð-
borg Malasíu, Kuala Lumpur, til að mótmæla
áformum stjórnvalda um varnarsamstarf við
Bandaríkin. Mótmælin fóru friðsamlega fram
en sumir mótmælenda hrópuðu slagorð á borð
við „Allah er mikill“ og „tortímum Bandaríkj-
unum“.
Sú ákvörðun Bandaríkjaforseta að afnema
viðskiptabann á Kambodíu er fyrst og fremst
talin vera táknræn aðgerð til að leggja áherslu
á stuðning Bandaríkjamanna við friðarsam-
komulag það sem undirritað var í París í októ-
ber af stjórnvöldum í Kambodíu og fulltrúum
þriggja skæruliðahreyfínga. Ekki er búist við
miklum viðskiptum landanna í milli fyrst í
stað þó að viðskiptabanninu, sem hefur verið
í gildi síðan 1975, verði aflétt.
Á blaðamannafundi í gær sagði Bush að
hann hygðist draga enn frekar úr útgjöldum
til varnarmála. „I hreinskilni sagt þá myndi
ég helst vilja láta þann sparnað renna beint
í vasa bandarískra skattgreiðenda,“ sagði for-
setinn og ýtti þar með undir vangaveltur um
að hann myndi boða skattalækkanir síðar í
mánuðinum.
SPAÐI
SPILIN
SOVETRIKIN
LIÐIN UNDIR LOK
BRAUÐ!
FRIÐ!
LAND!
BUSH BÝST
TILÁTAKA
í SKUGGA
KREPPU
18
KREPPU