Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992
HATTAR
Það þarf bara hatta sem passa
Um nokkurt skeið hefur verið opin athyg’lisverð sýning á handunn-
um höttum í Galleríi Sævars Karls í Bankastrætinu. Hattameistarinn
heitir Auður Sigurðardóttir, kornung, nýkomin heim úr námi hjá
hattameistara bresku drottningarmóðurinnar. Sýningin stendur til
11. janúar. Þarna getur að líta nokkra hatta sem mikið er lagt í, 20
til 25 klukkustundir í hvern að sögn Auðar og þeir heita meira að
segja ýmsum nöfnum, eins og „Sorg“, „Frjálslegur", „Utrás“, „I sjö-
unda himni“ og „Astfangin“.
Auður Sigurðardóttir og hattarnir „Útrás“ og „Ástfangin“.
Mátti skilja af orðum lista-
mannsins að nöfnin endur-
spegli eigið hugarástand er hún
vann umrædda
hatta. Því skal þó
ekki haldið fram
hér. Auður nam
fataiðn við Iðn-
skólann í Reykja-
vík á árunum
1987 til 1989, en
hélt síðan til
Lundúna þar sem
hún lagði stund á
fatahönnun við
„The Central
School of Fashion". Vinur hennar
einn vissi af hattaáhuga Auðar og
benti henni á litla auglýsingu dag
nokkurn, þar sem hattameistari
drottningarmóðurinnar bresku var
að auglýsa námskeið. Hún sótti um,
og söðlaði yfir í hattagerð.
„Þetta eru 6 manna námskeið
og ég held vaxandi eftirspurn eftir
þeim. Til þessa hafa þó fáir vitað
um þau, en það er að breytast,"
segir Auður. Hún segir ennfremur
að sér hafi alltaf þótt hattar athygl-
isverðir og sjálf gangi hún með
hatt. „Það var þó meira af forvitni
að ég fór í hattanámið, en mér leist
svo vel á það að ég ákvað að sér-
hæfa mig í því,“ bætir Auður við.
Hún hefur nú verið hér á landi síð-
asta árið og reynt að hasla sér völl
sem hattagerðarmaður. Hvernig
skyldi það nú ganga?
„Það gengur hægt. Eg átti barn
á síðasta ári og hef kannski ekki
eins mikinn tíma í þetta og æski-
legt væri. Þá er aðstaða mín enn
sem komið er fremur frumstæð,
þannig að ég veit eiginlega ekki
hvort hægt er að ná fótfestu með
þetta. Tvær verslanir, Joss og Hjá
Báru, hafa verið með hatta frá mér
í umboðssölu síðustu mánuði, en
þeir hreyfast lítið, kannski einn í
mánuði, þannig að ég er enn í mín-
us. Á sýningunni hefur ekkert selst
enn, en mér skilst samt að mikið
sé um að fólk komi og skoði. Þetta
eru þó höfuðföt, en ekki sýningar-
gripir,“ segir Auður. En eru íslend-
ingar einfaldlega nokkur hattaþjóð?
Fjúka ekki allir hattar til ijandans?
„Það er mjög vinsælt að skella
skuldinni á veðráttuna hér heima
og vissulega er til í dæminu að
menn lendi í ógöngum með hatta í
roki. En það eru
þá gjarnan hatt-
ar með börðum
sem í ofanálag
passa ekki á
hausana sem
þeir eru settir á.
Hattar sem
passa, barðalitlir
eða barðalausir,
tolla og ef eitt-
hvað er, auka á
vellíðan fólks
sem er að hlaupa á milli húsa í
roki og rigningu." Hvort Islending-
ar séu hattaþjóð? „Við erum fljót
að tileinka okkur tískustefnur og
strauma erlendis frá, en einhvern
veginn gengur það hægar þegar
hattar eru annars vegar. Erlendis
eru hattar mikið „in“ núna,“ svarar
Auður. En hvað skyldi þurfa til að
kúvenda landanum?
„Fyrst og fremst breytt hugar-
far. Fólk veit það kannski ekki,
en það er hægt að gera svo margt
með hatta, breyta „karakterum"
og leika sér á ýmsa vegu,“ segir
hattameistarinn. Liggur leiðin þá
ekki aftur til útlanda þar sem fólk
kann betur að meta list sem þessa?
„Ég er að velta því fyrir mér,“ seg-
ir Auður. Við endum á spurning-
unni hvað sé að bijótast um í höfð-
inu á hattalistamanni er hann
stendur við tól sín og tæki í upp-
hafi tarnar. Og Auður segir: „Eg
hef lært ýmsar aðferðir og svo fer
þetta ennfremur nokkuð eftir efn-
inu sem notað er hverju sinni. En
ég er alltaf með einhveija hugmynd
í höfðinu um hvernig hatturinn eigi
að vera þegar ég byija á honum.
Hvort hann verður þannig er svo
allt annar handleggur. Ég gef
hugmyndafluginu lausan taum-
inn og allt milli himins og jarðar
kemur til greina ..."
Michele Geldens
kennari
Steve Allison
kennari
Margrét Hálfdánardóttir
skrifstofustjóri
Grímur Grímsson
framkvæmdarstjóri
Cheryl Hill
Kennari
Jacqueline Foskett « «1
kennari
Carolyn Godfrey
kennari
MAL
ALLIR KENNARAR SKÓLANS EIÚ* S
Velkominn í Enskuskólann
Verið velkomin a ð líta inn í Enskuskólann
í spjall og kaffi áður en námskeiðin hefj-
ast 6. til 13. janúar.
Við bjóðum upp á 11 námsstig í ensku.
Við metum kunnáttu þína og í framhaldi
af því ráðleggjum við þér hvaða námskeið
hentar þér og þínum óskum best.
Komdu í heimsókn eða hringdu - því fylgja
engar skuldbindingar.
INNRITUN STENDUR YFIR
HRINGDUISIMA 25330 EÐA 25900 0G FADU FREKARIUPPLYSINGAR
KENNSLA HEFST 1 3. JANUAR
Fyrir fullorðna:
Almenn enska
Enskar bókmenntir
Rituð enska
Viðskiptaenska
Bretland: Saga, menning og
ferðalög
TOEFL-G MAT-GRE Námskeið
Undirbúningsnámskeið fyrir
próf sem krafist er við flesta
skóla í enskumælandi löndum
Fyrir böm:
Leikskóli fyrir 3-5 ára
Forskóli fyrir 6-8ára
Byrjendanámskeið fyrir 8-12 ára
Unglinganámskeið fyrir 13-15 ára
Önnur námskeið:
Laugardagsnámskeið
Kráarhópar
Umræðuhópar
Einkatimar
Hægt er að fá einkatíma eftir vali
ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI HJÁ OKKUR - VELKOMIN í HÓPINN...
m.
s
skólinn
i
í
i
í
i
I
TÚNGÖTU 5 101 REYKJAVÍK