Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 10
eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur, Kristinu Marju Baldursdóttur og Guðrúnu Guðlaugsdóttur. Myndir: Kristjón Arngrímsson Það hefur varla farið fram hjá neinum að mikili bölmóður og svartsýni ríkir í okkar litla sam- félagi nú í byrjun árs. Þrátt fyr- ir þá staðreynd að við teljum okkur með „ríkustu" þjóðum heims og lifum í vellystingum, tala menn nú um að kreppu- ástand sé yfirvofandi og að allir þegnar þessa þjóðfélags þurfi að leggjast á eitt svo stýra megi þjóðarskútunni farsællega út úr því mikla ölduróti, sem framund- an er. „Örðugleikar okkar nú um stundir blikna í samanburði við þrengingar formæðra okkar og forfeðra," sagði forseti vor, frú Vigdís Finnbogadóttir, með- al annars í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar. Ennfremur sagði hún að bölmóður leiddi af sér doða og doði fæddi af sér fram- taksleysi. Spár um ókomna tíð eru teknar misalvarlega, en til þess að varpa ljósi á framtíðina, fékk Morg- unbiaðið til liðs við sig þijá valinkunna „spá- menn“ til að spá í spil þjóðmálanna á nýju ári - árinu 1992 - en spá- menn þessir nota allir mismunandi aðferðir til þess að rýna fram á veginn. Spámennimir okkar eru Þórður Friðjóns&on, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, Gunnlaugur Guð- mundsson stjörnuspekingur og loks kaffibollaspákona, en hennar við- fangsefni í þetta sinn var kaffibolli eins af ráðamönnum þjóðarinnar. Andstreymi Flest bendir til þess að and- streymi muni setja svip sinn á íslen- skan þjóðarbúskap á árinu 1992. Þjóðhagsstofnun spáir því að lands- framleiðslan dragist saman um 4% og þjóðartekjur um 6%. Gangi þess- ar spár eftir verður árið 1992 með mestu samdráttarárum frá stofnun lýðveldisins. Einungis tvisvar áður hafa þjóðartekjur dregist jafnmikið saman, en það gerðist árið 1950 og svo aftur árið 1968. „Þessar óhagstæðu horfur má fyrst og fremst rekja til þess að fiskafli verður fyrirsjáanlega minni en á nýliðnu ári. Efnahagslegt gengi íslendinga er nú sem fyrr að miklu leyti háð því hvernig fiskast og hvaða verð fæst fyrir fiskafurðir á erlendum mörkuðum. Þar eiga flestar sveiflur í þjóðarbú- skapnum upptök sín,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar. Kjör heimil- anna rýrna „Lakari afkoma heimila og fyrir- tækja er óhjákvæmilegur fylgifisk- ur minni umsvifa í þjóðarbúskapn- um. Þótt erfítt sé að spá kjörum heimilanna, þar sem kjarasamning- ar eru nú lausir, gefa skilyrði þjóð- arbúsins tilefni til að kaupmáttur tekna heimilanna rýrni um að minnsta kosti 4-5%. Við bætist ótryggt atvinnuástand. Spáð er að atvinnuleysi allt að því tvöfaldist milli áranna 1991 og 1992. Sam- kvæmt því yrði atvinnuleysi alvar- legt áhyggjuefni hér á landi í fyrsta íæi JSW-.0ry;/.i £ aOOMIlíMHUB UMKMfitliadMM- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 mmmmm c*:*í:*:*:«®:*:*:*:í*:*:*:*:*:*:*:« ■ýNvvv' Hvernig verður árið 1992? „Svartnætti framundan/4 segir hagfræðingurinn. „Spennandi ár/‘ segir stjörnuspekingurinn Og seiðkonan segir okkur eiga gott ár í vændum á stjórnmálasviðinu og að ástandið verði ekki eins ugg- vænlegt og útlit sé nú fyrir. skipti í tuttugu ár. Þótt sjávarút- vegsJyrirtækin taki fyrst á sig skellinn vegna minni afla verða önnur fyrirtæki auðvitað einnig fyrir barðinu á minni umsvifum í þjóðarbúskapnum. Að öllu saman- lögðu virðist því ekki umflúið að erfiðleikar í atvinnumálum setji mark sitt á árið 1992.“ 15 milljarða viðskiptahalli „Staða þjóðarbúsins út á við leyf- ir ekki að erfiðleikunum sé mætt með auknum viðskiptahalla og til- heyrandi erlendri skuldasöfnun. Áætlað er að viðskiptahallinn verði um 15 milljarðar króna á árinu eða sem svarar til um 4% af landsfram- leiðslu. Þetta er meiri halli en góðu hófí gegnir. Þegar sú staðreynd blasir við að þjóðin eyðir um 15 milljörðum um efni fram og ekki eru horfur á snöggum efnahags- bata, eins og nú er, er óvarlegt að viðskiptahallinn verði svo mikill að hann auki raungildi erlendra skulda. Það er því ekki ráðlegt að halda áfram á sömu braut,“ segir Þórður. „Ymis vandkvæði eru á að meta verðlagshorfurnar. Niðurstöður þeirra kjaraviðræðna sem nú standa yfír ráða miklu um þróun verðlags á árinu. Þá skiptir miklu máli hvernig til tekst við stjórn efnahagsmála. Verði hvort tveggja, kjarasamningar og hagstjórn, reist á raunsæjum forsendum er í sjón- máli að verðbólga verði minni hér á landi en í flestum viðskiptalönd- um, eða ef til vill á bilinu 2-4%. Horfur eru á að raunvextir verði áfram tiltölulega háir. Þetta stafar bæði af mikilli opinberri lánsljár- þörf og nauðsyn aðhalds að útgjöld- um til þess að koma í veg fyrir að viðskiptahalli aukist og gengi krón- unnar veikist.“ Frávik Sjaldan ganga hagspár eftir í öllum atriðum. Sumt gengur betur en spáð er og annað verr, að sögn Þórðar. „Þess vegna getur verið gagnlegt' að velta fyrir sér líkleg- ustu frávikum. Hvað varðar ytri skilyrðin má nefna að ýmislegt bendir til þess að loðnustofninn sé á uppleið sem gæti leitt til meiri afla en gert er ráð fyrir. Á hinn bóginn er hætta á að verðlag sjáv- arafurða verði lægra en reiknað er með vegna efnahagslægðar í mikilvægum viðskiptalöndum. Verði framhald þeirrar öfugþróun- ar í efnahagsmálum í heiminum sem verið hefur að undanförnu má reyndar búast við að skilyrði þjóð- arbúsins verði verri en nú horfir. Að því er innlenda efnahagsþróun varðar ríkir mikil óvissa um verð- bólguspána. Lítið má út af bera til þess að verðbólga fari úr böndum. Hækki til dæmis laun almennt að ráði bresta forsendur verðbólgu- spárinnar bæði að því er laun varð- ar og eins stefnir það gengi krón- unnar í tvísýnu. Þetta tvennt ræður mestu um verðlagsþróunina. Ég tel að erfitt verði að ná kjarasamning- um saman vð núverandi aðstæður. Ekkert svigrúm er til almennra launahækkana og ég held að al- menningur skilji það, þó vissulega megi búast við einhveijum átökum á vinnumarkaðnum við gerð nýrra kjarasamninga. Ef laun verða al- mennt hækkuð, þá gerist það ann- ars vegar að verðbólga fer úr bönd- um og hinsvegar mun stefna í auk- in viðskiptahalla." Erfitt ár Að öllu athuguðu verður árið 1992 því um margt erfitt ár, segir Þórður. „Það skiptir því meginmáli að þeir sem mestu ráða um gang efnahagslífsins auðveldi mönnum andstreymið með raunsæjum ákvörðunum sem treysta efnahags- lífíð og skapa forsendur fyrir aukn- ingu þjóðartekna í framtíðinni og hvað því viðvíkur ríður á að draga sem mest úr þjóðarútgjöldum til að minnka viðskiptahallann og hinsvegar að skapa sem hagstæð- astar vaxtaforsendur fyrir atvinn- ulífíð,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. SJÁ NÆSTU OPNU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.