Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 16

Morgunblaðið - 05.01.1992, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1992 RAMVAFMER SVHIW SIGRIÐUR EYÞORSDOTTIR SEGIR FRA FERD SINNITIL TAIWAN OG STARFISÍNU VIÐ ÁHUGALEIKHÚS Frá æfingu Perlunnar á verkinu Karnivalið í skóginum eftir Sigríði Eyþórsdóttur og Eyþór Arnalds sem frumsýnt var 1989 og sýnt hefur verið víða, hér sem erlendis. V'ð Sigríður gengum saman upp á Hverf- isgötu til þess að mæta á umræddri æfingu. Á leiðinni ræddum við um fyrri störf Sigríðar, en þetta er aldeilis ekki í fyrsta skipti sem hún vinnur með áhugafólki í leiklist. Hún hef- ur um árabil stjórnað leikhópnum Perlunni sem er sérkennilegur fyr- ir þá sök að þar eru allir leikararn- ir þroskaheftir. Einnig hefur hún kennt og stjórnað sýningum hjá nemendum í Hagaskóla og í Kram- húsinu. Hún hefur farið víða um heim í tengslum við leiklistarstarf sitt, einkum það sem snertir Peri- una. Hún er t.d. nýlega komin úr fyrirlestraferð til Taiwan.„Mér var boðið að flytja fyrirlestur í Taipei um starfsemi leikhópsins Perlunn- ar á alþjóðlegri listahátíð fatlaðra og á ráðstefnu sem haldin var í tengslum við hátíðina,“ sagði Sig- ríður. „Perlan á aðild að samtökun- um Very special arts international sem Jean Smith Kennedy stofnaði. Hún var einmitt á þessari hátíð í Taipei. Hún er ein hinna frægu Kennedysystkina í Bandaríkjun- um. Það fólk hefur sýnt málefnum fatlaðra áhuga, því ein af systrun- um er þroskaheft. Ég kynntist raunar Jean Smith Kennedy fyrst í sambandi við alþjóðlega listahátíð sem haldin var í Washington. I Taipei voru saman komnir 1.500 þátttakendur frá rösklega 60 þjóð- löndum. Það að fá að sækja svona hátíð gefur þeim mikið, sem starfa að málefnum fatlaðra. Það er engu líkt að sjá fólk verða sem heilt í list sinni. Þarna dönsuðu t.d. og léku lamaðir, einfættir og blindir, Ég hef ferðast með Perluna víða um heim. Á sýningunum hafa ver- ið tekin upp atriði og sýnd í sjón- varpi í hinum ýmsu löndum. Perlan er því orðin talsvert fræg og nýtur álits. Vegna þessa var mér boðið að koma til Taipei og kenna. Boð- unum hefur raunar, má segja, rignt yfir leikhópinn og mig. Ég vil þó ekki sogast alltof mikið inn í alls kyns alþjóðlegt undirbúningsstarf fyrir ámóta hátíðir og ráðstefnur og það sem haldið var í Taipei. Ég get ekki fremur en aðrir verið á mörgum stöðum og ég vil fyrst og fremst halda áfram að byggja upp það starf sem ég er byijuð á hér með Perlunni. En auðvitað er mjög lærdómsríkt að vinna á al- þjóðavettvangi og ég ætla að reyna að sinna því með öðrum störfum eins og ég get.“ Þetta boð til Taiwan sagði Sigríður óvenju rausnarlegt. „Mér var boðið að taka með mér tvo gesti og valdi ég Sigríði Huldu Sveinsdóttur og Björn Eiríksson kennara þoska- heftra, en þau hafa bæði verið ötulir eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur í GÆR frumsýndi leikhóp- urinn Snúður og Snælda leikritið Fugl í búri, eftir Iðunni og Kristínu Steinsd- ætur í Risinu á Hverfisgötu 105. Leikstjóri er Sigríður Eyþórsdóttir. Blaðamaður Morgunblaðsins fór á æf- ingu hjá leikhópnum, sem skipaður er fólki úr Félagi eldri borgara. I samtali við Sigríði Eyþórsdóttur sagði hún að leikritið hentaði hópnum sérlega vel af því að það fjallaði um málefni aldraðra á mjög kíminn hátt. „Þessi gamansama afstaða höfunda á vel við þennan leikhóp, innan vébanda hans er enginn vælutónn ríkjandi. Þetta er áhugafólk í leiklist og mjög áhugasamt sem slíkt,“ sagði Sigríður. „Það hefur sjálft unnið nær öll þau störf sem fylgja því að koma einu leikriti á fjalirn- ar, nema hvað við fengum auðvitað aðstoð við Ijósa- hönnun. Hana annaðist Egill Ingibergsson ljósameistari. Auk þess fengum við okkur til aðstoðar Sigurð Guð- mundsson tæknimann, Ey- þór Arnalds, sem annaðist tónlistina, og Móeiði Júníus- dóttur söngkonu.“ Sigríður og Björn villtu ekki á sér heimildir í Taipei.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.