Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 17

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 17
liðsmenn leikhópsins Perlunnar. Ferðir okkar og allt uppihald var greitt af samtökunum í Taiwan, sem eru félagar í alþjóðasamtökum Very special arts international. Höfuðstöðvar alþjóðasamtakanna eru í Washington og þar hefur mér verið boðið að halda fyrirlestur í júní nk., um skapandi starf á ís- landi fyrir fatlaða.“ í Taiwan sagðist Sigríður hafa séð margt framandi og sérkenni- legt. „Andstæðumar í því landi eru miklar. Eyjan er falleg en misræm- ið á milli lífskjara hinna ríku og fátæku virðist óskaplegt. Þama fer þó fram mikil uppbygging. Nægir peningar virðast vera til í landinu og nú er byrjað að bijóta niður fátækrahverfin og byggja upp frá grunni ný íbúðahverfí. Eg hef aldr- ei séð annan eins ruslahaug og fátækrahverfín í Taipei. Ég bók- staflega óð msl og aur upp í ökla og lyktin var eftir því. Á aðra hönd blöstu svo við nýbyggðar marm- arahallir. Mengunin í borginni er ofboðsleg og fnykurinn ólýsanleg- ur. Fólk gengur margt með grímur fyrir andlitinu til að veijast þessu. Umferðarreglur em þama lítt virtar. Ýkjulaust þá rann svitinn af mér í lækjum þegar ég í einni ferðinni var að reyna að spenna á mig bflbelti í leigubíl sem ýmist ók á einu hjóli eða hreinlega snéri öfugt í umferðinni. Bílstjóranum fannst þetta hins vegar óþarfa brölt í mér. Hann hristi höfuðið og benti mér að láta bflbeltið vera, annað tæki hann sem vantraust. Þetta umferðaröngþveiti stendur þó til bóta því neðanjarðaijárn- brautir era í byggingu þarna núna.“ Þrátt fyrir þessar lýsingar Sig- ríðar sagði hún að minnisstæðast væri sér viðmót fólksins í Taiwan. „Það er svo einstaklega glaðlegt, gestrisið og gjafmilt. Ef maður kom í búð þá elti afgreiðslufólkið mann með gjafír, jafnvel þó ekkert væri keypt. Mér var gefín þannig forláta perlufesti og gullfallegir kóraleymalokkar, svo eitthvað sé nefnt. Þegar við komum aftur til Amsterdam, þaðan sem við lögðum upp, fannst okkur hrein jarðarfar- arstemmning þar, og hefur þó sú borg verið orðuð við glaðværð. Okkur fannst allir þar svo dökk- klæddir og þungbúnir á svipinn, miðað við hina brosleitu og litríku Taiwanbúa. Það kom mér mjög á óvart hve þjóðsöngvar íslands og Taiwan em ótrúlega líkir. Ég hrökk í kút af undmn þegar ég heyrði þjóðsöng Taiwan leikinn á opnunarhátíðinni í Taipei. Á námskeiðinu þar sem ég flutti fyrirlestra mína vom ein- göngu þarlendir, almennir kennar- ar, sem aldrei höfðu kynnst leik- rænni tjáningu fyrr. En þeir vora mjög jákvæðir og opnir fyrir þess- ari nýjung og töldu þetta góða aðferð í allri kennslu. Það hefur raunar verið orðað við mig að útbúa handbók í leikrænni tjáningu til þess að nota við kennslu víða um heim, að afloknum slíkum nám- skeiðum sem hér um ræðir. Slík bók gæti orðið hjálp í því krefjandi starfí, sem það er að vinna með bömum, fötluðum og öldmðum. Allt tekur lengri tíma í slíku starfí, þó gangur mála sé í grundvallar- atriðum sá sami og hjá hinum.“ Þegar við Sigríður komum í Ris- ið á Hverfisgötunni ríkti þar sú smitandi spenna sem er yfir öllu starfí áhugaleikhússins. Þar vom menn að vasast í ýmsu sem leikar- ar þurfa ekki að skipta sér af í atvinnuleikhúsunum. Ein leik- kvennanna sat með hvíta sósu- könnu í höndunum og var að mála á hana bláar rósir. „Af hveiju ertu að þessu,“ spurði einn félagi henn- ar. „Hún Sigríður vill hafa ein- hvern lit á þessu,“ svaraði hún og hélt fljóthent áfram málarastarf- inu. Menn roguðust með stóla og borð og stilltu upp á sviðið meðan aðrir vom með áhyggjusvip í aug- unum út af því að ekki var búið að útvega upphækkanir fyrir stól- ana í salnum. „Ég redda þessu,“ sagði Brynhildur Olgeirsdóttir, for- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 — 1 • ■’ / r-H----i !--—,-u Sigríður leiðbeinir þeim Geirþrúði og syni hennar. Sigríður að kenna á námskeiðinu í Taiwan. 17 ------------------------------f_ maður leikhópsins, stuttaralega. í sýningunni leikur hún gelluna Maddý. Spyijandanum, Guðvarði Sigurðssyni, sem leikur bróður hennar, Árna, varð hugarhægra og kastaði í léttinum fram stöku eftir Þuru í Garði. „Við skulum láta þetta renna krakkar mínir,“ segir Sigríður og fær sér sæti á næstfremsta bekk. Ég sest fyrir aftan hana og leikar- arnir tínast inn á sviðið einn af öðrum. Prófessorsekkjan Geir- þrúður, sem á í vök að veijast fyr- ir minningu mannsins síns, börn hennar og tengdabörn. Það er óneitanlega svolítið skondið fyrst að sjá fólk leika í þessum mæli „niður fyrir sig“. Það væri ekki ónýtt að verða 75 ára svona ung- leg í sínum barnahóp eins og ekkj- an Geirþrúður, sem Sigurbjörg Sveinsdóttir leikur. Önnur börn hennar en þau tvö fyrmefndu leika Þorsteinn Olafsson og Sigrún Pét- ursdóttir. Tengdabörnin leika Ár- sælþ Pálsson og Iðunn S. Geirdal. Vinkona Geirþmðar er leikin af Rögnu Þorsteinsdóttur. Ekki hefur leiknum lengi undið fram þegar áhorfandinn hættir að reka hornin í svo ómerkilegt atriði sem lítinn aldursmun leikaranna. Þvert á móti skapar þetta sýning- unni skemmtilega sérstöðu sem undirstrikuð er af leikgleði þátt- takenda og gamansemi verksins. Með mikilli athygli fylgist ég með gangi mála á sviðinu. Þó ekki fari þar enn allt hnökralaust fram er auðséð að Sigríður Eyþórsdóttir hefur unnið vel sitt starf. Hún hefur náð að stilla saman ólíkum kröftum svo úr verði samofin heild. Löng og margþætt reynsla hennar af starfí með áhugafólki skilar sér í þessari sýningu leikhópsins Snúð- ar og Snældu. Vetrarönnin hefst 6. janúar / Skemmtileg og hressandi íþrótt, sem allir geta spilað og haft gaman af. Sími 687701 og 687801 Við bjóðum upp á fasta tíma í vetur og um leið 10 tíma kort. Eins erum við með sérstakan skólaafslátt fyrir börn og fullorðna. Tryggðu þér tíma og hringdu, við erum að innrita núna alla daga nema laugardaga og sunnudaga frákl. 17-21. s Engjateigi 1, Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.