Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992
Clinton og Tsongas stuðnings 25
prósenta hvor. Sex prósent kváð-
ust styðja Kerrey.
Hinir frambjóðendurnir þrír eru
Tom Harkin, öldungadeildarþing-
maður frá Iowa, Douglas Wilder,
fylkisstjóri í Virginíu, og Jerry
Brown, fyrrum fylkisstjóri Kalifor-
níu.
Möguleikar Bush
Bush og Buchanan munu einnig
leiða saman hesta sína í New
Hampshire 18. febrúar. Sam-
kvæmt skoðanakönnuninni hefur
Bush yfirburðaforystu á Buchan-
an. 59 prósent aðspurðra kváðust
styðja Bush, en aðeins 21 prósent
Buchanan.
Bush hefur átt misjöfnu gengi
að fagna í forsetatíð sinni. Gengi
hans í utanríkismálum hefur aflað
honum vinsælda, en innanríkismál-
in hafa veikt hann. Vinsældir hans
minnkuðu þegar þrátefli varð í
fjárlagaumræðu haustið 1990 og
aftur undir lok síðasta árs vegna
kreppunnar. Bush hefur meðal
annars reynt að skella skuldinni á
demókrata, sem eru með meiri-
hluta í báðum deildum Bandaríkja-
þings, fyrir ástandið í efnahags-
málum og það er spurning hvað
hann kemst langt á því að halda
uppteknum hætti í kosningabarátt-
unni. Hann sló sér hins vegar upp
á framgöngu sinni í Persaflóanum.
Nú er ástandið í heimsmálunum
og þá sérstaklega í Austurvegi
þannig að Bandaríkjamenn standa
uppi sem eina risaveldið og Bush
gæti nýtt sér það til að afla vin-
sælda heimafyrir. Hann getur jafn-
framt stillt sér upp sem eina fram-
bjóðandanum, sem hafi reynslu og
hæfileika til að tryggja Bandaríkj-
amönnum sess í heiminum eftir lok
kalda stríðsins. Ætli demókratar
að skáka Bush verða þeir að halda
vel á spöðunum. Frambjóðendurnir
sex eru lítt þekktir meðal almenn-
ings og þeir þurfa að leggja hart
að sér til að breyta því. Bush stend-
ur traustum fótum, en honum hef-
ur ekki tekist að reisa sér óvinn-
andi vígi í Hvíta húsinu og koma
þar einkum til vandræði hans í
glímunni við efnahagsvandann.
Iieimildir: Time, International Herald
Tribune og Reuter.
Liðleiki,
styrkur og þol
Er þetta umsögn um þig, eða er kominn tími til
að hrista af sér slenið og koma líkamanum í lag?
Námskeiðin eru þegar hafin og leiðbeinandi er
hin kunna vaxtarræktarkona og íþróttakennari
Rósa Ólafsdóttir.
Tímarnir eru á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 17.30-19.00 og
kl. 19.00-20.30. Hvertími samanstenduraf
hálftíma í þolleikfimi, hálftíma í tækjaæfingum og
hálftíma í teygjum.
Teygðu þig í símtækið og athugaðu hvað þú þol-
ir, síminn er 42230.
RÖ8KVA
íþróttahús Digraness, sími 42230
ryikM
STÍFT FITUBRENNSLU-NÁMSKEIÐ
SEM SKILAR ÁRANGRI
Bill Clinton, fylkisstjóri í Ark-
ansas, stendur best að vígi af fram-
bjóðendunum sex. í skoðanakönn-
uninni í New Hampshire naut hann
stuðnings 14 prósenta aðspurðra.
Næstir komu Paul Tsongas, fyrr-
um öldungadeildarþingmaður frá
Massachusetts, og Bob Kerrey,
öldungadeildarþingmaður frá
Nebraska, með sex prósent hvor.
Þegar aðspurðum var einungis
gefinn kostur á að nefna þá fram-
bjóðendur, sem í boði eru, nutu
Frambjóðendur demókrata
Sex frambjóðendur hyggjast
sækjast eftir útnefningu Demó-
krataflokksins til forsetaefnis. Þeir
munu á komandi mánuðum beijast
innbyrðis til þess að vinna hylli
kjósenda, en samkvæmt skoðana-
könnun, sem gerð var í New
Hampshire-fylki, er þeirra helsti
keppinautur maður, sem ákveðið
hefur að gefa ekki kost á sér.
Forkosningar verða haldnar í New
Hampshire 18. febrúar og þótt þar
verði aðeins kjörin tvö prósent
þeirra fulltrúa, sem velja forseta-
efni demókrata á ráðstefnu flokks-
ins í júlí, hefur sigurvegarinn í
forkosningunum þar oftar en ekki
verið útnefndur.
36 prósent aðspurðra kjósenda,
sem talið er að muni kjósa demó-
krata í New Hampshire, kváðust
myndu kjósa Mario Cuomo, fylkis-
stjóra í New York. Cuomo dró
vonglaða demókrata og kvíðna
repúblikana á því í tíu vikur hvort
hann ætlaði að gefa kost á sér.
Nokkrum dögum fyrir jól lýsti
hann svo yfír því að hann færi
ekki fram. Cuomo óttaðist að hann
væri ekki nægilega undirbúinn til
að heyja kosningabaráttu við Bush.
En helsta ástæðan fyrir því að
hann ákvað að gefa ekki kost á
sér var fjárlögin í New York. Eins
og ónefndur aðstoðarmaður Bush
orðaði það nokkrum klukkustund-
um áður en ákvörðun Cuomos lá
fyrir: „Við viljum ekki þurfa að
eiga við Mario. En fari hann fram
munu repúblikanarnir í Albany
[höfuðborg New York-fylkis] tefja
hann svo mánuðum skiptir. Fjár-
lögin verða aldrei afgreidd og hann
mun virðast setja persónulegan
metnað sinn til að verða forseti
framar opinberum skyldum sínum.
Það mun gera út af við hann.“
Einn ráðgjafa Cuomos sagði að
repúblikaninn hefði hitt naglann á
höfuðið.
Oákveðni Cuomos hefur spillt
fyrir hinum frambjóðendunum sex
eins og fram kom í skoðanakönn-
uninni. Bæði hefur hann dregið
athygli frá hinum frambjóðendun-
um og gert þeim erfíðara fyrir að
afla sér kosningafjár. Stuðningsr
menn Cuomos segjast meira að
segja ætla að setja nafn hans á
kjörseðilinn þótt hann hafí ákveðið
að bjóða sig ekki fram. Ef stuðn-
ingur við Cuomo reynist mikill í
forkosningunum gætu demókratar
skorað á hann að fara fram á
móti Bush á ráðstefnunni í New
York í júlí. En það verður að telj-
ast ólíklegt.
Mario Cuomo á rugguhestinum. Það tók fylkisstjórann í New York
heila eilífð að ákveða að bjóða sig ekki fram til forseta. Á meðan
tvístigu keppinautar hans milli vonar og ótta.
HEFST11. JANUAR
• Fitumæling og vigtun.
• Matarlistar og ráðgjöf.
• Fyrirlestrar um megrun
og mataræði.
• Þjálfun og hreyfing
5 sinnum í viku.
• Viðurkenningarskjal í lok
námskeiðsins með skráðum
árangri. Sú sem missir flest kíló
fær frítt mánaðarkort hjá Jónínu
og Ágústu.
Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkams-
þyngd er aukin hreyfing og rétt mataræði.
Við hjálpum þér að brenna fitu og kennum
hvernig á að halda henni frá fyrir fullt og
allt. Okkar metnaður er þinn árangur.
ATH! Nýr kermslustaður fyrir
Mosfellsbæ, Grafarvog, Árbæ
og Breiðholt.
LÁTIÐ SKRÁ YKKUR STRAX
SIMAR 689868 og 689824
TAKMARKAÐUR FJOLDI KEMST AÐ
*
STÚDlÓ JÓNÍNU & AGÚSTU
Skeifan 7, 108 Reyk|av>k S. 689868
BUSH BÝST TIL ÁTAKA
í SKUG6A KREPPU