Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 22

Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 22
22 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakurh.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Frelsi í olíu- viðskiptum Eftir margra áratuga baráttu er svo komið, að innflutn- ingur a olíu er frjáls. Olíufélögin og aðrir, sem kunna að vilja hefja innflutning á olíu, geta ákveðið, hvaðan þeir kaupa þessa vöru með sama hætti og innflytjendur geta ákveðið hvaðan þeir kaupa ýmsar aðrar vörur. Við höfum alltof lengi bundið þessi viðskipti við Sovétríkin, sem eru ekki leng- ur til og löngu tímabært að gefa þennan innflutning fijálsan og efna til samkeppni á milli olíufé- laganna og hugsanlega annarra um þennan innflutning. En þrátt fyrir frelsi til inn- flutnings á olíu hefur verðlagn- ing innanlands ekki verið gefín fijáls með öllu, þótt frelsi sé í verðlagningu á einstökum teg- undum. Nú bregður svo við, að andstaða við verðlagsfrelsi á þessu sviði kemur úr óvæntri átt. Jón Sigurðsson, viðskipta- ráðherra, hefur látið semja frum- varp um þessi málefni, sem felur í sér, að felld er niður jöfnun flutningskostnaðar olíu á landi en hins vegar er slíkri jöfnun haldið á flutningum á sjó. I bréfi, sem þingflokkur Sjálfstæðis- manna hefur sent ráðuneytis- stjóra viðskiptaráðuneytis vegna þessa frumvarps, segir m.a.: „Skiptar skoðanir eru um frum- varpið og telur þingflokkurinn rétt að fram fari viðræður á veg- um stjórnarflokkanna með það í huga að auka fijálsræði í verð- lagningu og verðsamkeppni milli olíufélaganna en þó þannig, að hvert félag tryggi sambærilegum viðskiptamönnum sömu kjör alls staðar á landinu." Hvað á þingflokkur Sjálfstæð- isflokksins við? Hvemig ætlar þingflokkurinn að tryggja fijáls- ræði í verðlagningu á olíu og verðsamkeppni milli olíufélag- anna, ef flokkurinn ætlar jafn- framt að fyrirskipa olíufélögun- um að „tryggja sambærilegum viðskiptamönnum sömu kjör alls staðar á landinu?!“ Satt að segja þarf að lesa þennan kafla í bréfi þingflokksins a.m.k. tvisvar til þess að sannfærast um, að þessi texti standi í bréfi frá þeim stjórnmálaflokki, sem hefur ára- tugum saman barizt fyrir frelsi í viðskiptum, innflutningsfrelsi og frelsi í verðlagsmálum. Auðvitað eiga sömu viðskipta- hættir að tíðkazt með olíu eins og aðrar vörur. Viðskiptamátinn með þessa vörutegund er ótrú- legt fornaldarfyrirbæri og olíufé- lögin þijú hafa ekki verið annað en afgreiðslustofnanir í fjóra ára- tugi. Nú er að verða breyting á og þá á að sjálfsögðu að stíga skrefíð til fulls og láta koma í ljós til hvers fijáls samkeppni getur leitt á þessu sviðum sem öðrum. Víða um land er verð á neyzluvörum hærra en á Reykja- víkursvæðinu m.a. vegna flutn- ingskostnaðar. En það hefur líka komið fram, að sums staðar er verð lægra þrátt fyrir flutnings- kostnað. Til marks um þetta er sú staðreynd, að mikil samkeppni á Akureyri milli matvöruverzlana hefur tryggt Akureyringum og þeim sem þar stunda innkaup jafnvel lægra verð á sumum matvælum en í Reykjavík. Menn eiga ekki að vera hrædd- ir við þær breytingar, sem leiða af fullu frelsi í olíuviðskiptum. Þær geta orðið margvíslegar fyrst í stað en þegar fram í sæk- ir leikur varla nokkur vafi á því, að hagur neytenda hvar sem er á landinu verður betur tiyggður með frelsi og samkeppni en þeirri raunverulegu ríkiseinokun og höftum, sem ríkt hafa á þessu sviði. Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki verið þekktur fyrir að þvæl- ast fyrir umbótum á þessu sviði. Flokkurinn getur ekki látið standa sig að því að beijast fyrir viðskiptafrelsi í orði en vilja við- halda höftum, þegar að því kem- ur að horfast i augu við áhrif og afleiðingar fijálsræðis.. Tví- skinnungur af þessu tagi dugar ekki. Hitler öskraði reiði sína yfir lýðinn. Og senn fór mergðin að taka und- ir; þjóðfélag hinna útvöldu var í burðarliðnum. Gandhi náði einnig til fólksins. Hitler gerði það með hugmyndum sínum um útskúfun eða útilokun (t.a.m. gyðinga), en Gandhi með hugmyndum sínum um andspymu án ofbeldis; aðlögun fólks af ólíku bergi og umburðar- lyndi. Hitler óx úr Weimar-lýðeldinu. Það þjáðist af innanmeini. Helztu einkenni þess voru allir ókostir lýð- ræðis, en það hefur sömu takmark- anir og við sjálf. Það er þjóðfélags- form í okkar mynd og þegar kost- imir hverfa em hitlerar á næstú grösum einsog hýenur eða hræfugl- ar sem bíða særðra dýra. Sókrates talaði um mælskulistina og minnti á afvegaleiðandi mælgi málloddara og lýðskrumara, sem em einsog drep á lýðræðinu. Og því er ekki úr vegi að minna einnig á þessi orð Humes: „Þegar mælskan verður hvað mest hleypir hún skynsemi og hugs- un hvergi að. Hún talar aðeins til óra fólks og tilfinninga, og heldur þeim föngnum sem Ijá henni eyra og svínbeygir skilningsgáfu þeirra. Sem betur fer kemst hún sjaldan svona langt. En það áhrifavald sem Cíceró eða Demosþenes náðu rétt með naumindum yfír áheyrendum í Róm eða Aþenu, því getur hver annar hettumunkur, flökkuprédik- ari eða kennimaður náð yfir þorra fólks — og það í ríkara mæli, með því að höfða til lægstu og óhefluð- ustu hvata þess.“ Hvað mætti þá segja um lýð- skrumara okkar tíma; svartan gald- ur fjölmiðla og seiðskratta stjórn- málanna? M. (meira næsta sunnudag.) Á ÞAÐ HEF- •ur verið minnt sem sagt var á 19. öldinni að Rússar eru aldrei eins sterkir og þeir virðast né eins veikir og menn halda. Á þessu flaskaði Hitler. Hann hafði aðvísu réttar hugmyndir um Stalín en vanmat þjóðina sem hann stjóm- aði. „Rússar sigruðu Hitler þrátt- fyrir Stalín," segir Paul Johnson, „rétteinsog þeir sigruðu Bonaparte þrátt fyrir Alexander fyrsta.“ En þannig urðu þáttaskil í heims- sögunni og má oft litlu muna. Sagt hefur verið sagan hefði orðið með öðrum hætti ef nefið á Ifleópötru hefði verið ögn styttra(!) Öllu þessu harmsögulega sjónarspili lauk svo með því jafnvel Hitler viðurkenndi yfirsjónir sínar í lokin þegar hann sagði í neðanjarðarbyrgi sínu í Berl- ín við Martin Bormann 25. febrúar 1945: „Það verk sem ég hef tekið að mér er þvímiður ekki eins manns verkefni, eða einnar kynslóðar." En svo er forsjóninni fyrir að þakka að hann tók verkið að sér þá en byggði ekki upp Þýzkaland nazismans handa framtíðinni; ófor- betranlega þjóð einsmenna sem hefði verið ætlað það hlutverk að leggja heiminn að fótum hitlerism- ans. Sovéskir kommúnistar ætluðu einnig að búa til þessi dæmigerðu einsmenni, eða „Sovétmanninn" sem Brésnef nefndi svo, en hrun marxismans í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu og efnahagslegir erfíðleikar þar eystra sýna nú svart á hvítu að „Sovétmaðurinn" varð aldrei að veruleika; hann var óhann- að vélmenni. Við búum ekki til fólk, það gerir náttúran. Og þótt plönt- urnar séu líkar eru tilbrigðin óend- anlega mörg. Paul Johnson telur nazisminn 1939 hefði, án styij- aldar, getað orðið framtíðinni háska- samlegur. Slíkur naz- ismi hefði hægt og bítandi náð yfirráðum yfír öllu meginlandi Evrópu og brestimir í Sovét-skipu- laginu sýna okkur Sovétríkin hefðu lent inní þessu hrollvekjandi ríkis- skipulagi nazista. Slík áætlun hefði verið ömggari leið til að innlima Sovétríkin í Stór-Þýzkaland en Bar- barossa-áætlunin. Og þá, segir Paul Johnson, hefðu menntamennirnir sem ríghalda enn í marxismann og rifrildið af honum undir óskilgreind- um vígorðum um „félagshyggju" varpað stéttarkenningunni fyrir borð og farið að boða ríkiskapítal- isma uppúr Mein Kampf. „En í stað þess — og þráttfyrir allar þjáningar og lánleysið það sem af er öldinni — blasir við okkur ný Evrópa þar- sem sérhvert land er lýðræðisríki með lögum og reglum í fyrsta sinn í sögunni, eða á þeirri leið einsog leppríkin gömlu.“ Og jafnvel Rússland sjálft og samveldi fyrrum Sovétríkja. Fyrir það getum við þakkað for- sjóninni og óþoli Hitlers. En það hefur líka verið dým verði keypt og fómardýrin fleiri en heilbrigð hugsun rúmar. Einn helzti gagnrýnandi Hitlers á sínum tíma sagði hann skynjaði pólitískt landssvæði rétteinsog jarð- skjálftamælir; í ræðustólnum breyttist hann í gjallarhorn og orð- in flygju af vörum hans einsog örv- ar og hittu fyrir ógróin sár mergðar- innar; þegar hún heyrði það sem henni var efst í huga persónugerð- ist mælska tímans í þessum magn- aða lýðskrumara. Og mergðin hreyfðist í takt við orðflæðið. Þýzkaland var sært og vánvirt. HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 4. janúar Endalok sovétríkj- anna eru svo nálægt okkur, að það er erfítt að leggja hlutlægt mat á þá atburði síðustu mánaða og missera, sem leitt hafa til hrans þessa risaveldis á ótrú- lega skömmum tíma. Það er heldur ekki auðvelt að meta hlutverk og stöðu þeirra einstaklinga, sem mest hafa komið við sögu. Þó er umhugsunarverð sú skoðun Financial Times, að Gorbatsjov hafí verið eini leiðtogi Sovétríkjanna, sem ekki hafði til að bera þá eiginleika að halda völdum hvað sem það kostaði. Sá í þeim hópi, sem hafí komizt einna næst því, auk Gorb- atsjovs, hafí verið Khrústsjov. Þá er líka forvitnileg sú spuming, sem sett var fram í blaðinu, hvort Gorbatsjov hafi hugsanlega stefnt að upplausn Sovétríkjanna allan tím- ann. Efasemdir Bandaríkjamanna um Borís Jeltsín, forseta Rússlands, fara heldur ekki fram hjá áhorfendum að þessum at- burðum. Þær efasemdir virðast hafa magn- ast eftir ferð Bakers, utanríkisráðherra, til Moskvu fyrir skömmu. Bandarísk stjórnvöld hafa bersýnilega alla fyrirvara á pólitískri dómgreind Jeltsíns m.a. vegna þess hvernig hann gekk til verks síðustu daga og vikur fyrir fall Sovétríkjanna. Slíkar vangaveltur vora ekki í huga þeirra forystumanna Eystrasaltsríkja, sem voru á ferð hér fyrir u.þ.b. ári. Ljóst var, að þeir menn höfðu mikla vantrú á Gorb- atsjov og bundu allar vonir sínar við Jelts- ín, styrk hans og áhrif. Það má líka hugleiða hvað gerzt hefði í Sovétríkjunum ef Gorbatsjov hefði ekki á ákveðnu tímabili hallað sér að harðlínu- mönnum í Kreml. Þegar hann tók þann snúning og fjarlægðist umbótasinna, sem fylgt höfðu honum að málum, menn á borð við Shevardnadze og Jakovlev, vora harðlínumenn enn það sterkir, að þeir hefðu hugsanlega getað náð völdum í hall- arbyltingu. Reyndu þeir ekkert slíkt vegna þess að þeir trúðu því að Gorbatsjov hefði gengið til liðs við þá? Var það blekkingar- starfsemi af hans hálfu, sem var nauðsyn- leg til þess að koma þeim á kné? En jafnframt er ljóst, að ýmislegt á eftir að koma upp á_ yfírborðið í Moskvu á næstu mánuðum. í viðtali við Morgun- blaðið fyrir nokkrum dögum sagði Vosl- enskíj, að Gorbatsjov hefði óskað eftir náðun frá Jeltsín, en því hefði verið hafn- að. Svipaðar vísbendingar hafa komið fram í öðrum blöðum á Vesturlöndum. Hvers vegna náðun? Vegna afskipta af bylting- artilrauninni í ágúst? Eða vegna refsiverðs athæfís á meðan Gorbatsjov var aðalritari sovézka kommúnistaflokksins? Spurning- arnar era margar og svörin fá, enn sem komið er. Hins vegar er auðveldara að leggja mat á sögu og átök þessarar aldar, þegar við nú horfum til baka til atburða, sem era fjarlægari en sjálft hrun Sovétríkjanna. Um hvað hafa þessi átök snúizt? Hin hefð- bundna söguskoðun er sú, að fijálsar þjóð- ir Vesturlanda hafi síðustu hálfa öld og raunar nokkuð lengur staðið í samkeppni við tilraun til að byggja upp sósíalískt þjóð- félag, byggt á kenningum Marx og Eng- els, og að þessi tilraun hafí staðið yfir í Sovétríkjunum og nálægum ríkjum. En er það svo? Snerust átökin um þetta? Hver var munurinn á Þýzkalandi naz- ismans og Sovétríkjum sósíalismans? Hver var munurinn á Adolf Hitler og Jósep Stal- ín? í raun og veru enginn, þegar komið er að kjama málsins. Hitler komst að vísu til valda í fijálsum kosningum og með myndun samsteypustjórnar. En um leið og hann hafði tekið sér búsetu í kanslara- höllinni í Berlín heyrðu fijálsar kosningar sögunni til. Kommúnistar náðu völdum í Rússlandi með byltingu og Stalín varð arftaki Leníns með svikum, undirferli, lyg- um og manndrápum. Báðir tveir vora ósköp einfaldlega ómerkilegir einræðisherrar. Stalín notaði kenningar Marx og Engels til þess að rétt- læta myrkraverk sín. Hitler notaði ein- hvers konar afbrigði af sósíalisma, sem hann kallaði nasjónal-sósíalisma, til þess að réttlæta valdatöku sína. Vinur hans og félagi, Mússólíni, aðhylltist í upphafí kenn- ingar sósíalismans og athyglisverðar eru þær upplýsingar, sem fram koma í bók brezka rithöfundarins Paul Johnsons, Mod- ern Times, sem áður hefur verið vitnað til hér í Reykjavíkurbréfi, að Lenín hafi verið , sérstakur aðdáandi Mússólínis! Stalín lét drepa nánast alla helztu sam- starfsmenn sína eða koma þeim frá völdum og áhrifum með einhveijum hætti. Hitler lét drepa nokkra samstarfsmenn sína en ekki eins marga og Stalín lét gera. Hitler framdi þjóðarmorð á gyðingum en náði ekki að drepa jafn margar milljónir gyð- inga og Stalín lét drepa af rússneskum smábændum. Báðir þessir morðóðu einræðisherrar fengu ótrúlegan fjölda stjórnmálamanna, menntamanna, rithöfunda og blaðamanna til þess að tala máli sínu á Vesturlöndum. Munurinn var sá, að dýrðaróðurinn um Stalín og hina sósíalísku tilraun í Sovétríkj- unum stóð margfalt lengur en dýrðaróður- inn um Hitler, enda mátti Hitler ekki vera að því að bíða eftir því að leggja undir sig heiminn. Þess vegna varð valdaferill hans stuttur en blóðugur. Valdaferill Stalíns og félaga hans varð lengri en hann var ekki síður blóðugur. Allt það, sem ofangreindir gáfumenn sögðu um Stalín (og Hitler) var lygi. En stundum er rás atburðanna sér- kennileg. Fyrir þremur áratugum var ábyrgðarmaður Morgunblaðsins dæmdur í fésektir fyrir þær sakir, að blaðið sagði sannleikann um ofbeldisverk Voroshílovs, sem var forseti Sovétríkjanna þá stundina en hafði áratugum áður stjómað ofbeldis- verkum gagnvart saklausu fólki. Það tald- ist hins vegar brot á íslenzkum hegningar- lögum að segja sannleikann um þennan mann af því að hann taldist vera þjóðhöfð- ingi þessa ríkis kúgunar og lyga! Þjóðfélagskenningar Marx og Engels hefðu rykfallið í bókasöfnum í Evrópu og aldrei haft nokkur áhrif á líf og sögu þjóða heims, ef nokkrir einræðisseggir hefðu ekki beitt þeim fyrir sig. í Rússlandi var einræðisríki keisaranna fyrir byltinguna og eftir hana var einræðisríki annars kon- ar keisara, sem kölluðu sig ekki keisara heldur aðalritara kommúnistaflokksins. Það var enginn eðlismunur á stjórnarfar- inu, nema hugsanlega sá, að Lenín og Stalín og félagar þeirra voru margfalt stór- tækari í manndrápum en keisararnir. Hið rússneska einræðisríki lagði undir sig ná- læg ríki bæði fyrir og eftir byltinguna og náði mestum árangri í því á þessari öld. Einræðisherrarnir í Moskvu komu upp tvö- földum vamargarði, fyrst hinum svo- nefndu lýðveldum innan Sovétríkjanna og svo leppríkjunum í Austur-Evrópu. Þegar þeir höfðu ekki lengur ijárhags- legt bolmagn til að halda uppi hinum ytri vamargarði hurfu þeir frá honum og lögðu áherzlu á þann innri. Nú er hann hruninn og eftir stendur spurningin: Hver verður framtíð Rússlands? Við getum ekki svarað þeirri spurningu. En það er tími til kominn að við geram okkur ljóst, að það er enginn eðlismunur á þeirri baráttu sem lýðræðis- ríkin háðu við einræðisherrana tvo í Evr- ópu, Hitler og Mússólíni, á sínum tíma og þeirri baráttu sem lýðræðisríkin hafa háð við einræðisherrana í Moskvu undanfarna áratugi. Hinir síðarnefndu skipa sama sess í sögunni og hinir fyrmefndu. Að þessu leyti má segja, að heimsstyijöldinni síðari hafi ekki lokið fyrr en nú um áramótin. Hún var bara háð með öðrum hætti eftir 1945. Þetta er búið að vera 50 ára stríð. ÞEGAR HORFT ER á fall hins sovézka einræðisríkis er líka ástæða til að staldra við og minn- ast þeirra leiðtoga lýðræðisríkjanna, sem staðið hafa upp úr í þeirri baráttu, sem háð hefur verið í Evrópu og að sumu leyti um heimsbyggð- Leiðtogar lýðræðis- ríkjanna ina alla á þessari öld. Þar skara nokkrir menn fram úr og þó sérstaklega einn. Winston S. Churchill gerði þrennt: Hann varaði við Hitler löngu áður en aðrir stjórn- málamenn á Vesturlöndum áttuðu sig á því sem var að gerast í Þýzkalandi. í öðru lagi varaði hann við Stalín og áformum hans og gerði árangurslausar tilraunir til þess að koma í veg fyrir, að Stalín plataði Roosevelt, Bandaríkjaforseta. í þriðja lagi skilgreindi hann fyrstur manna hvað gerzt hafði í Evrópu eftir stríð þegar hann lýsti því yfir, að járntjald væri fallið um Evrópu þvera og endilanga. „Frá Stettin við Eystrasalt til Trieste við Adríahaf hefur fallið járntjald um álf- una alla. Handan þess jámtjalds eru allar höfuðborgir hinna aldagömlu ríkja Mið- og Austur-Evrópu ... sem ég verð að nefna hið sovézka yfírráðasvæði og öll þessi ríki eru á einn eða annan veg ekki aðeins undir sovézkum áhrifum heldur lúta þau öll í ríkum og í mörgum tilvikum í vax- andi mæli beinni stjórn frá Moskvu.“ Þetta sagði Churchill í frægri ræðu í Bandaríkjunum eftir stríð, sem hann flutti að áeggjan Harry Trumans, Bandaríkja- forseta. í ræðunni hvatti Churchill til var- anlegs varnarsamstarfs milli Bandaríkj- anna og Bretlands. „Churchill hafði komið í veg fyrir endurtekningu á þeim heim- flutningi bandarískra hermanna frá Evr- ópu 1919, sem hafði svo hörmulegar afleið- ingar“, segir Paul Johnson í Modern Times. Þegar horft er um öxl gnæfir Churchill yfír sviðið vegna framsýni og innsæis. Dómur sögunnar yfir Roosevelt á eftir að vera harður vegna þess að hann lét blekkj- ast, trúði því að hann gæti samið við Stal- ín og upplifði það síðustu mánuði ævi sinn- ar að Stalín gekk á bak orða sinna hvenær sem honum þóknaðist. Þeir sem veittu vestrænum þjóðum for- ystu eftir stríð skiptu líka sköpum. Athygl- isverð er sú niðurstaða Paul Johnsons, sem hér skal tekið undir, að Eisenhower hafí verið sterkasti forseti Bandaríkjanna á þessu tímabili. Raunar segir Paul Johnson í Modern Times, að Eisenhower hafi verið áhrifamesti Bandaríkjaforseti á þessari öld. Hver eru rökin fyrir því? Forsetatíð hans er eitthvert mesta blómaskeið Banda- ríkjanna á öldinni. Honum tókst að ljúka Kóreustríðinu, bijóta McCarthy á bak aft- ur, treysta samstöðu vestrænna ríkja, stöðva útþenslu Sovétríkjanna og tryggja efnahagslega velgengni Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu. Eisenhower hefur verið vanmetinn í samtímasögu okkar með sama hætti og Kennedy hefur verið ofmetinn. Á meginlandi Evrópu skipa þeir sér- stakan sess Konrad Adenauer og Charles De Gaulle. Hvor með sínum hætti lögðu þeir grundvöll að lýðræði ogtraustu stjóm- arfari í Vestur-Þýzkalandi og Frakklandi. Adenauer hafði ótvíræða forystu um upp- byggingu Vestur-Þýzkalands úr rústum heimsstyijaldarinnar síðari. De Gaulle tryggði festu í stjórnarháttum í Frakk- landi með stofnun fimmta lýðveldisins eft- ir valdatöku sína 1958. Sameiginlega byggðu þeir upp það samstarf Þýzkalands og Frakklands sem hefur einkennt alla þróun í Vestur-Evrópu síðustu áratugi. Hér eiga að sjálfsögðu margir fleiri hlut að máli. Truman þótti ekki merkilegur stjórnmálamaður þegar hann tók við for- setaembætti af Roosevelt, en hlutur hans í sögu aldarinnar verður stöðugt stærri eftir því sem frá líður. Það hefur verið mikil gæfa lýðræðisríkjanna að njóta for- ystu þessara manna. Sagan sýnir okkur, að það er ekki sjálfgefið að sterkir og fram- sýnir leiðtogar standi við stjórnvölinn þeg- ar mestu máli skiptir. Þess vegna m.a. komast einræðisherrar á borð við Hitler og Stalín svo langt, sem raun ber vitni. SUMIR SEGJA, AÐ menn eigi aldrei að gera upp við fortíð- ina. Vafalaust má færa ýmis rök fyrir því, ekki sízt í lífí einstaklinga. En upp- gjör við fortíðina er nauðsynlegur þáttur * Þáttur Is- lendinga Garðskagaviti. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson í því að koma í veg fyrir, að sömu mistök verði endurtekin í framtíðinni. Kalda stríð- ið náði til íslands og það gerði meira en að ná til íslands. Kalda stríðið hefur mót- að nánast alla sögu hins íslenzka lýðveld- is. Átökin á milli einræðisríkjanna og lýð- ræðisríkjanna hafa endurspeglast í stjórn- málabaráttu okkar hér með afdrifaríkum hætti. Ræða Churchills, sem áður var vitnað til, leiddi til nánara varnarsamstarfs Bandaríkjamanna og Breta og síðan lýð- ræðisríkjanna beggja vegna Atlantshafsins í Atlantshafsbandalaginu. Við skulum ekki gleyma því - og aldrei gleyma því - að þegar Alþingi íslendinga íjallaði um aðild Islands að þessu bandalagi var gerður aðsúgur að þinghúsinu. Það var gerð til- raun til þess að koma í veg fyrir, að Al- þingi gætti sinnt starfi sínu með því að beita ofbeldi. Það þurfti að kalla út lögregl- ulið og aðstoðarlið og beita táragasi til þess að þjóðþing íslendinga gæti haldið áfram störfum sínum með eðlilegum hætti. Gijótkast dundi á þinghúsinu, rúður voru brotnar og gijóti var_kastað inn í þingsal- inn. Þetta gerðist á íslandi fyrir rúmlega fjörutíu árum. Og þetta var þáttur í bar- áttu stuðningssveita Stalíns víða um heim til þess að koma í veg fyrir að honum yrði veitt viðnám. Þegar við lítum til baka yfir sögu okkar á þessu tímabili er ljóst, að það eru forystu- menn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem hafa staðið traustan vörð um utanrík- isstefnu þjóðarinnar. Bjarni Benediktsson og Ólafur Thors mótuðu hana öðrum frem- ur en Alþýðuflokkurinn stóð vörð um hana, þegar mest á reyndi í vinstri stjórninni 1956-1958. Þessir tveir flokkar hafa hrein- an skjöld í utanríkismálum. Allan þann tíma, sem baráttan stóð við einræðisöflin í austri gældi Framsóknar- flokkurinn við þau. Framsóknarmenn voru alltaf tvíátta í þessum átökum. Tvisvar sinnum mynduðu þeir ríkisstjórn sem hafði það á stefnuskrá sinni að segja upp varnar- samningnum við Bandaríkin. En til þess að allrar sanngirni sé gætt verður þó að segja, að í síðara skiptið gáfu Ólafur Jó- hannesson og Einar Ágústsson til kynna með ýmsum hætti, að þeir meintu ekki það sem þeir sögðu. En það var hættuleg- ur leikur og til þess eins að halda vinstri stjórn við völd. Framsóknarflokkurinn hélt uppi undarlegum samskiptum við einræðis- herrana, bæði í Austur-Þýzkalandi og Búlgaríu. Þeir gei’ðu hosur sínar grænar fyrir Sovétmönnum og lögðu mikla áherzlu á viðskipti við Sovétríkin á vegum Sam- bands ísl. samvinnufélaga. Framsóknar- menn geta ekki verið stoltir af þessari fortíð. Kommúnistaflokkur íslands, síðar Sós- íalistaflokkurinn og að hluta til Alþýðu- bandalagið svo og Mál og menning voru um langt skeið rekin sem eins konar útibú eða áróðursmiðstöð fyrir einræðisherrana í Moskvu. Það er sama hvort litið er á feril stjórnmálamanna þessara hreyfinga eða forystumanna þeirra í menningarmál- um á vettvangi Máls og menningar og rit- höfunda og annarra listamanna á þeirra snærum, allir þessir aðilar gengu erinda þess einræðis, sem nú er hrunið. Það er nauðsynlegt að minna á þessar köldu stað- reyndir í von um að nýjar kynslóðir láti ekki blekkjast þegar og ef nýir einræðis- herrar rísa upp á næstu árum eða áratug- um. Og þá ekki sízt hvernig angar af al- þjóðlegum kommúnisma og heimsvalda- stefnu Sovétríkjanna eins og Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna voru notuð hér í kalda stríðinu og ættu menn að kynna sér það úr frumheimildum eins og ævisögu Maríu Þorsteinsdóttur. Sú staðreynd, að morðóð einræðisöfl í Moskvu áttu sér svo sterka talsmenn hér á íslandi skipti þessari þjóð í tvo hópa áratugum saman. Enn gætir þessarar skiptingar, ekki sízt í menningarlífi okkar, og á því miður eftir að gera um skeið. En nú er kominn tími til, að þessi saga verði sögð eins og hún raunverulega er, ekki einungis hér á síðum Morgunblaðs- ins, sem hefur rakið þessa sögu dag frá degi ineira og minna allan þann tíma, sem blaðið hefur verið gefið út, heldur einnig á öðrum vettvangi m.a. og ekki sízt í skól- um landsins. Hveijum verður falið að end- urskoða þær sögubækur, sem kenndar eru í skólum landsins nú þegar ekki þarf leng- ur að deila um staðreyndir inálsins, stað- reyndirnar í blóðugri sögu 20. aldarinnar? i . „En það er tími til kominn að við gerum okkur ljóst, að það er enginn eðlismun- ur á þeirri bar- áttu sem lýðræð- isríkin háðu við einræðisherrana tvo í Evrópu, Hitl- er og Mússólíni, á sínum tíma og þeirri baráttu sem lýðræðisríkin hafa háð við ein- ræðisherrana í Moskvu undanf- arna áratugi. Hin- ir síðarnefndu skipa sama sess í sögunni og hinir fyrrhefndu. Að þessu leyti má segja, að heims- styrjöldinni síðari hafi ekki íokið fyrr en nú um áramótin. Hún var bara háð með öðrum hætti eftir 1945. Þetta er búið að vera 50 ára stríð.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.