Morgunblaðið - 05.01.1992, Síða 26
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
JS%L ■ N jgr m 1 f JGL YS Ih JG A D /\í\
Hafnarfjörður
- blaðberar
Blaðbera vantar á Hvaleyrarholtið
(nýtt hverfi).
Einnig var í Setbergið (Burknaberg, Birki-
berg, Lækjarberg og Lindarberg).
Upplýsingar í síma 652880.
Matráðskona
Matráðskona óskast nú þegar í 50% starf,
fyrir hádegi, um óákveðinn tíma á skóladag-
heimili á Seltjarnarnesi.
Upplýsingar í símum 612340 og 612237.
Forstöðumaður.
Matreiðslunemi
óskast
Reglusamur og áreiðanlegur matreiðslunemi
óskast sem fyrst.
Upplýsingar á staðnum mánudaginn
6. janúar frá kl. 9-15.
Múlakaffi,
Hallarmúla.
Lagermaður
Okkur vantar duglegan mann á lager og í
sölumennsku. Þarf að hafa bíl til umráða og
geta byrjað sem fyrst.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf skilist inn til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 13. janúar merktar: „LAG - 9828“.
Matvælafræðingur
Goða hf. vantar nú þegar matvælafræðing
til starfa í rannsóknastofu fyrirtækisins á
Kirkjusandi.
Nánari upplýsingar fást hjá Starfsmanna-
þjónustu Sambandsins í Sambandshúsinu,
Kirkjusandi, frá og með 7. janúar.
Enska
Fyrirtæki vill ráða starfsmann til að skrifa
fréttabréf á ensku. Krafist er mjög góðrar
enskukunnáttu. Helst að umsækjandi hafi
ensku að móðurmáli. Ennfremur er æskilegt
að hann hafi þekkingu á íslensku viðskipta-
og atvinnulífi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf,
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. janúar
merktar: „Enska - 14322.“
GAPt-mn
Matreiðslunemi
óskast
Matreiðslunemi óskast.
Aldur 18 ára eða eldri.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Veitingahúsið Gaflinn,
Hafnarfirði.
Ritari
Framleiðslufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
að ráða ritara strax í símavörslu og frágang
skjala.
Umsækjendur vinsamlegast skilið inn um-
sóknum fyrir 9. janúar til auglýsingadeildar
Mbl. merktum: „R - 7442“.
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa
hjá Haferninum hf. á Akranesi. Fyrirtækið
gerir út tvo togara og starfrækir fiskvinnslu.
Starfsmannafjöldi ca 70.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun og
ábyrgð á daglegum rekstri. Stefnumótun og
markmiðasetning. Samræming á starfsemi
útgerðar og fiskvinnslu.
Við leitum að hæfum manni til að stjórna
öflugu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
stjórnun á sviði fiskvinnslu- og/eða útgerðar
og geti axlað ábyrgð.
Starfið er umfangsmikið og erilsamt ábyrgð-
ar- og stjórnunarstarf, sem krefst áræðni
og frumkvæðis. Starfið er laust 1. maí 1992.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Haförnin hf.“ fyrir 10. janúar 1992.
Hagvangur h if
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Bifreiðastjóri
Röskur, vanur bifreiðastjóri óskast til út-
keyrslu á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Lágmarksaldur 30 ára.
Fiskbúðin Sæbjörg,
Eyjaslóð 7.
Starfsfólk
á fasteignasölu
Viljum ráða nú þegar í eftirtalin störf:
a) Símasvörun, vélritun, almenn skrifstofu-
störf.
b) Sölufólk, aðallega í síma.
c) Vanan sölumann/konu í fasteignasölu
Umsækjendur sendi eiginhandarumsóknir til
auglýsingadeildar Mbl. merktar:
„Fast - 14335“ fyrir 8. janúar nk.
Þjónustumaður
Ört vaxandi fyrirtæki í innflutningi á vélum
og tækjum óskar að ráða mann í þjónustu,
viðgerðir og sölumennsku.
Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða og
geta unnið sjálfstætt.
Umsóknir með upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf, skilist inn til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 13. janúar merktar:
„ÞJÓ - 9827“.
HAGKAUF
Afgreiðslustörf
HAGKAUP óskar eftir að ráða stafsfólk í
eftirtaldar verslanir fyrirtækisins:
Matvöruverslun Kringlunni
Afgreiðsla í upplýsingabás. Heilsdagsstarf
(æskilegt að umsækjendur séu eldri en 25
ára).
Afgreiðsla við sælkeraborð. Heilsdagsstarf.
Afgreiðsla við kjötborð. Heilsdagsstarf.
Umsjón með salatbar. Heilsdagsstarf.
Sérvöruverslun Kringlunni
Afgreiðsla á kassa. Heilsdagsstarf.
Eiðistorg, Seltjarnarnesi
Afgreiðsla á kassa. Heilsdagsstörf og hluta-
störf frá kl. 15.00 og um helgar.
Afgreiðsla og uppfylling í kjötdeild.
Heilsdagsstarf.
Uppfylling í matvörudeild. Heilsdagsstarf og
hlutastarf fyrir hádegi.
Uppfylling og umsjón með mjólkúrkæli.
Heilsdagsstarf.
Kjörgarður, Laugavegi 59
Afgreiðsla á kvenfatnaði. Heilsdagsstarf.
Upplýsingar um störfin veita verslunarstjórar
viðkomandi verslana á staðnum (ekki í síma).