Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 27

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 27
 MORGUNBLAÐIÐ. ATVINIMA/RAÐ/SIVIA SUNWUIUGLU 5 JANÚAJi .199,2 inn: ,27 ij(^l ÝSINGAR Skrifstofa/bókhald Starfskraftur óskast á skrifstofu í Hafnarfirði til að annast bókhald og almenn skrifstofu- störf. Sveigjanlegur vinnutími ca 50%. Upplýsingar um fyrri störf og menntun sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „A - 14861“ fyrir 20. janúar nk. Starfsmaður í pakkaafgreiðslu Óskum eftir að ráða lipran og áhugasaman starfsmann í pakkaafgreiðslu okkar í Umferð- armiðstöðinni. Vaktavinna. Hentugt fyrir mann á besta aldri sem hefur gaman af sam- skiptum við fólk í annríki dagsins. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „B - 7441“. Innanhússarkitekt Óskum eftir að ráða innanhússarkitekt til starfa sem fyrst. Umsóknir leggist inn til CASA, Borgartúni 29. Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. Borgartúni 29, sími 20640. Sölumaður Tryggingafélag í borginni vill ráða sölumann til almennra sölustarfa á skrifstofu. Starfið er laust strax. Stúdentspróf af viðskiptabraut og/eða verslunarpróf eða starfsreynsla er skilyrði. Hér um að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar til 11. jan. nk. Q iðnt Tónsson RÁÐCJÖF &RÁÐÍ nJ 1 NCARhJÓN USTA T|ARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Isa FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Iá akureyri Laus er staða sérfræðings við barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akreyri. Staðan veitist frá 1. febrúar nk. í 6 mánuði. Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra sjúkrahússins fyrir 15. janúar nk. Allar frekari upplýsingar veitir Baldur Jóns- son, yfirlæknir, í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsiðá Akureyri. Rafmagnsverkfræð- ingur/rafmagns- tæknifræðingur Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstækni- fræðing til sérhæfðra starfa. Til greina koma umsækjendur með ofan- greinda menntun sem eru tilbúnir að hefja störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 1992. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00. Afleysinga- og ráðningaþjónusta Lidsauki hf. Skólavörðustíg 1 a - 101 Reykjavlk - Slmi 621355 Nýja blikksmiðjan Blikksmiðir Nýja blikksmiðjan leitar eftir blikksmiðum og aðstoðarmönnum. Mjög góð laun og mikil vinna framundan. Upplýsingar veitir verkstjóri í síma 681104. Endurskoðunar- skrifstofa óskar eftir viðskiptafræðingi af endurskoðun- arsviði, eða nema langt komnum í námi. Einnig kemur til greina starfsmaður með reynslu í bókhalds-, uppgjörs- og skattamál- um. Umsóknir sendist til Morgunblaðsins fyrir 10. janúar nk. merktar: „Endurskoðunarskrif- stofa“. Atvinnurekendur Ábyrgðarfullur, metnaðargjarn og samstarfs- góður maður leitar eftir krefjandi og vel laun- uðu starfi. Hef meðal annars hlotið eftirfar- andi menntun og starfsreynslu: Vélfræðingur með 4ra ára starfsreynslu, véltæknifræðing- ur með viðbótarþekkingu á framleiðslu úr plasti, markaðssetningu, fjármögnun og rekstur, 2ja ára starfsreynsla. Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Vél + plast - 0352“ fyrir 20. jan. Lausar stöður Lausar stöður við stjórnsýsiusvið heilsugæsiustöðva og Heiisuvernd- arstöðina í Reykjavík Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar. 1. Ritari forstjóra ífullt starf. Laus nú þegar. 2. Skrifstofumaður í fullt starf. Laus frá 1. febrúar nk. eða eftir samkomulagi. 3. Hjúkrunarfræðingur í 50% við heilsu- gæslustöðina Drápuhlíð 14-16. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöð- um, sem fást á Heilsuverndarstöðinni víð Barónsstíg 47, fyrir 20. þessa mánaðar. Allar nánari upplýsingar gefur starfsmanna- stjóri í síma 22400. Heislugæslustöðvar og Heilsuverndarstöðin í Reykjavík. RIKISSPITALAR Reyklaus vinnustaður Geðdeild Landspítalans Aðstoðardeildar- stjóri Staða deildarstjóra við deild 26 - Flókagötu 29, er laus til umsóknar. Um er að ræða fjöl- breytt og áhugavert hjúkrunarstarf á með- ferðar- og endurhæfingardeild. Frekari upplýsingar veitir Jónína Guðmunds- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 602636, eða Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 602600. Hjúkrunarfræðingur - næturvaktir Hjúkrunarfræðingur óskast í 60% starf á fastar næturvaktir. Um er að ræða 2-3 vakt- ir á vikur yfir þremur 15 rúma geðdeildum á Landspítalalóð. Frekari upplýsingar veitir Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602600. Heildverslun vantar strax ábyggilegan og nákvæmán starfskraft til lagerútkeyrslu og annarra tilfall- andi starfa. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merkt- ar: „H - 1246“ fyrir fimmtudaginn 9. janúar. Café Opera óskar að ráða framreiðslunema. Einnig aðstoðarfólk í sal. Viðtalstími á staðnum, Lækjargötu 2, nk. mánudag frá kl. 14.00-18.00. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Kátakot, leikskóli, Kjalarnesi Okkur vantar fóstru eða annan starfskraft á lítinn og skemmtilegan tveggja deilda leik- skóla. Um er að ræða starf leikskólastjóra og deildarstarf. Umsóknarfrestur er til 10. janúar nk. Upplýsingar gefur Valdís Ósk, leikskóla- stjóri, í síma 666039 og Guðfinna, formaður leikskólanefndar, í síma 667607. Leikskólanefnd. Sendimaður Laust er til umsóknar starf bílstjóra, sendi- manns, á bæjarskrifstofum Hafnarfjarðar. Umsóknum ber að skila á bæjarskrifstofurn- ar, Strandgötu 6, eigi síðar en 10. janúar nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir bæjarritari. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. HAGKAUP Lagerstörf HAGKAUP óskar eftir að ráða starfsfólk á ávaxta- og grænmetislager fyrirtækisins í Skeifunni 13. Um er að ræða almenn lager- störf og störf við pökkun á grænmeti og ávöxtum. Vinnutími kl. 7.00 til 16.00 Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 25 ára. Upplýsingar um störfin veitir rekstrarstjóri lagersins á staðnum (ekki í síma). Leikskólastjóri ★ Búðahreppur, Fáskrúðsfirði, auglýsir hér með eftir leikskólkastjóra fyrir leikskólann Kærabæ á Fáskrúðsfirði. ★ Á Fáskrúðsfirði búa 757 manns og 92 í sveitinni umlykis. Staðurinn er m.a. kunnur fyrir ein bestu hafnarskilyrði á landinu og byggir afkomu sína á sjávarútvegi og fisk- vinnslu. Á leikskólanum hafá verið gerðar verulegar endurbætur, það er á lóð og tækj- um. ★ Um er að ræða krefjandi starf fyrir metn- aðarfullan starfsmann. ★ Fyrirspurnum svara Þröstur, sveitarstjóri, í síma 97-51220 og 97-51221 (heima) og Aðalbjörg í síma 97-51218. ★ Umsækjendur sendi umsóknir á skrif- stofu Búðahrepps, Hafnargötu 12, 750 Fáskrúðsfirði, fyrir 1. febrúar 1992. Sveitarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.