Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 28

Morgunblaðið - 05.01.1992, Page 28
28 —- MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SIUIÁ R 5. JANUAR 1992 Mötuneyti - eidhús Óskum eftir að ráða starfsmenn í: 1. Eldhús. 50% starf. Vinnutími kl. 16.00- 20.00. Vaktavinna. 2. Mötuneyti. 80% starf. Vinnutími kl. 7.30-14.30 og 11.00-20.00. Vaktavinna. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Ráðningarstofunni frá kl. 9-15. STABFS- OG ^NAMSRAÐGJOF KRINGLUNNI 4, (BORGARKRINGLUNNI), » 677448 Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur, þroskaþjálfar og fólk með uppeld- ismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Vesturborg v/Hagamel, s. 22438. Drafnarborg v/Drafnarstíg, s. 23727. Staðarborg v/Háagerði, s. 30345. Brákarborg v/Brákarsund, s. 34748. Heiðarborg v/Selásbraut, s. 77350. Upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. ÞJÓNUSTUÍBUÐIR ALDRAÐRA Dalbraut 27 - 105 Reykjavík Okkur vantar gott fólk til starfa sem fyrst við eftirtalin störf: Deildarstjóra við dagdeild aldraðra - 100% starf. Menntun á sviði hjúkrunar áskilin. Sjúkraliða í 70% starf við baðþjónustu. Starfsfólk við heimilishjálp - létt þrif á íbúð- um og vakt við umönnun íbúa. Leiðbeinanda í hlutastarf - tii leiðbeininga við smíðar og fleira. Upplýsingar um ofangreind störf gefur for- stöðumaður í síma 685377, f.h. virka daga. LANDSPITALINN Reyklaus vinnustaður Hjúkrunarfræðingar Langar ykkur í skemmtilegt starf? Þurfið þið að bæta við reynslu ykkar í hjúkrun? Viljið þið víkka sjóndeildarhringinn? Lesið þá þetta: Á Bamaspítala Hringsins vinnum við með skemmtilegum krökkum ásamt foreldrum þeirra. Við bjóðum m.a. upp á: - Aðlögunartíma með reyndum hjúkrunar- fræðingi. - Fjölbreytt, áhugavert og skapandi starf. - Litlar, notalegar deildir með aðeins 12-14 sjúklingum, s.s. lyflækningadeild- ir, handlækningadeild, ungbarnadeild og gjörgæslu nýbura. - Góða vinnuaðstöðu. - Fjölbreytni í vöktum. - Möguleika á símenntun og aðgang að bókasafni. Nánari upplýsingar gefur Hertha W. Jóns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 601033 eða 601300, eða deildarstjórar deíld- anna. AUGL YSINGAR Aðalbókari Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir að ráða aðalbókara. Umsóknarfrestur er til 10. janúar nk. Upplýsingar um starfið verða veittar á skrif- stofu H.N.R. á Suðurlandsbraut 30. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. Leikskólar Reykjavíkurborgar Matráðsmenn eða matartæknar óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360. Staðarborg v/Háagerði, s. 30345. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277. Verkstjóri Ég er ungur og framagjarn maður í atvinnu- leit. Er fiskiðnaðarmaður að mennt með matsréttindi og góða starfsreynslu í fiskiðn- aði. Get hafið störf strax. Svar sendist til Jóns Áka Bjarnasonar, póst- hólf 54, 620 Dalvík, og í síma 96-61451 eða 96-61236. & Bæjarstjóri Laus er til umsóknar staða bæjar- stjóra í Mosfellsbæ Starfssvið bæjarstjóra: ★ Bæjarstjóri hefur með höndum daglega framkvæmdastjórn bæjarfélagsins og fylgir eftir samþykktum og ákvörðunum bæjarstjórnar hverju sinni. ★ í starfinu felst yfirstjórn fjármála bæjarfé- lagsins, umsjón með gerð fjárhagsáætl- ana. ★ Yfirumsjón með starfsmannahaldi. ★ Bæjarstjóri gætir hagsmuna bæjarfélags- ins út á við og annast samskipti við stofn- anir, fyrirtæki og samtök. Ráðningarskilmálar Ráðningarsamningur bæjarstjóri ógildir til loka yfirstandandi kjörtímabils, þ.e. maí 1994. Vegna eðli starfsins er nauðsynlegt að bæj- arstjóri sé eða verði búsettur í Mosfellsbæ. Bæjarstjóri þarf að geta hafið störf sem fyrst, og eigi síðar en í mars nk. Við leitum að hæfum einstaklingi í þetta mikilvæga starf, sem hefur þekkingu og reynslu af stjórnunarstörfum. Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er æski- leg, en þó ekki skilyrði. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og lifandi áhuga á stjórnun og starfsemi bæjarfélags. Nánari upplýsing'ar veitir Þórir Þorvarðarson. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvans hf. merktar: „Bæjarstjóri Mosfellsbæjar“ fyrir 15. janúar nk. Haeva neurhf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 s—• Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Gæðastjóri Fiskiðjuver KASK, Höfn í Hornafirði, óskar eftir að ráða gæðastjóra til starfa sem fyrst. Umsækjendur hafi starfsreynslu úrfiskiðnaði og/eða annarri matvælaframleiðslu. Mennt- unar er krafist á sviði matvælafræða. Gæðastjórastarfið nær til allrar framleiðslu- starfsemi fyrirtækisins sem er: Bolfiskfrysting, síldarfrysting, humarvinnsla, hrognaverkun, saltfisk- og skreiðarverkun. Umsóknum skal skilað fyrir 14. janúar til Ara Þorsteinssonar, Fiskiðjuveri KASK, sem jafn- framt veitir allar nánari upplýsingar í síma (97) 81200. KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA 780 HÖFN — HORNAFIRDI Aðalbókari Óskum eftir að ráða aðalbókara til að sjá um bókhald og fjármál DHL á íslandi, í beinu sambandi við framkvæmdastjóra DHL á íslandi. Við bjóðum fjölbreytt og spennandi starf hjá alþjóðlegu fyrirtæki með mikla þróunarmögu- leika. Starfið krefst haldgóðrar þekkingar á bókhaldi og fjármálastjórn, auk mjög góðrar enskukunnáttu. Starfssviðið er einnig útgáfa reikninga auk umsjónar með innheimtu. Ráðning er áætluð í síðasta lagi 1. mars 1992. Skrifleg umsókn með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist til DHL Hrað- flutninga hf., Skeifunni 7, 108 Reykjavík, merkt: AB92, í síðasta lagi föstudaginn 17. janúar 1992. wonujw/oe expoess ® LANDSPITALINN Reyklaus vinnustaður Sjúkraþjálfarar Staða sjúkraþjálfara við almenna lyf- og handlækningaeiningu Landspítala er laus frá og með 1. febrúar nk. Um er að ræða 80% starf. Sjúkraþjálfara vantar einnig til afleysinga í eitt ár nú þegar við gigtlækningadeild og hjartadeild á Landspítala. Ný og glæsileg vinnuaðstaða. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Sigurjóns- dóttir, framkvæmdastjóri sjúkraþjálfunar, í síma 601430. Aðstoðardeildar- stjóri Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar í 100% starf aðstoðardeildarstjóra. Um er að ræða dagvinnu á dagspítala öldrunarlækninga- deildar Landspítala, Hátúni 108. Upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602266 eða 601000. Starfsfólk Starfsfólk óskast í ræstingu og býtibúr á Landspítala. Upplýsingar gefur ræstingarstjóri í síma 601530.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.