Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 05.01.1992, Qupperneq 35
,,, i-naamiMKMÞimuxiæjMm MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1992 35 Símon E. Sigmunds- son - Minning Fæddur 12. júní 1908 Dáinn 26. desember 1991 Fyrir hartnær áttatíu árum er húsfreyjan á Brúsastöðum í Þing- vallasveit, Kristín Símonardóttir, að koma heim úr kaupstaðarferð. Heima bíður stór barnahópur komu hennar og börnin fagna þegar móðir þeirra færir þeim öllun ný, falleg axlabönd að gjöf, með þeim ummælum að nú verði þau líka að lofa að vera góð börn. Þegar líður á daginn tekur hún eftir að einn drengurinn hennar, Símon, er hljóður og hugsi uns hann kemur til móður sinnar og skilar aftur böndunum. Þegar hún innir hann eftir hvers vegna hann vilji ekki eiga þau, hvort honum finnist þau ekki falleg er svarið: „Jú, en ég get ekki lofað að vera alltaf góð- ur.“ Þetta var hann Símon frændi minn sem nýlega er látinn í hárri elli. Þessi saga lýsir betur en mörg lýsingarorð hans vandaða hugarf- ari og hve sannur og heilsteyptur hann var allt sitt líf. Símon Egill fæddist á Brúsastöð- um 12. júní 1908. Hann var fimmti í röð átta barna hjónanna Kristínar Símonardóttur og Sigmundar Sveinssonar, sem þar bjuggu á annan áratug og stunduðu jafn- framt veitingarekstur í Valhöll á Þingvöllum. Systkini Símonar voru, í aldursröð, Sesselja forstöðukona á Sólheimum í Grímsnesi, Lúðvík vélstjóri, Gróa hárgreiðslukona, Steinunn sjúkraþjálfi, Kristinn matsveinn, Sigríður tannsmiður og Þórarínn mjólkurfræðingur. Öll eru þessi systkini nú látin nema Sigríð- ur og Þórarinn. Árið 1919 flutti ijölskyldan til Reykjavíkur þar sem Sigmundur gerðist húsvörður í Miðbæjarskól- anum. Stóð heimili þeirra þar til ársins 1940, er Sigmundur lét af störfum. Símon vann' ýmis störf í Reykja- vík og fór í Kennaraskólann. Hann veiktist alvarlega áður en honum tókst að ljúka kennaraprófi og barðist hann meira og minna við heilsuleysi allt sitt líf. Á þriðja ára- tugnum fór hann utan í fótspor Sesselju systur sinnar og dvaldi í Þýskalandi til að freista þess að ná heilsu. Þar kynntust þau systkinin kenningum Rudolfs Steiners og störfuðu um skeið á stofnunum hans. Þegar heim kom tók hann þátt í að byggja upp heim- ilið á Sólheimum í Grímsnesi ásamt foreldrum sínum og systkinum, sem studdu Sesselju ötullega. Eink- um vann Símon þá við akstur og byggingarvinnu auk kennslu og uppeldisstarfa. Er mörgum nú kunnur sá þáttur í iífi þessarar fjölskyldu sem rakinn er í bók Jónínu Mikaelsdóttur, „Mér leggst eitthvað til“, en hún kom út á síðasta ári (1990). Er þar greint frá brautryðjandastarfi Ses- selju við að koma upp heimili fyrir þroskaheft og vanheil börn. Árið 1939 fór Símon til Bret- lands og dvaldi þar i 12 ár. Vann hann þar á ýmsum Steiner-stofnun- um og skólum, m.a. í Camphíll í Skotlandi, þar sem hann var undir handleiðslu eins af lærisveinum Steiners. Hann kenndi seinustu árin í Steiner-skóla í Bristol. Var unun að heyra hann segja frá að- ferðum sem hann beitti við sér- kennsiu og hve dýrmætt honum var að sjá árangur og framfarir hjá nemendum sínum sem oft voru mikið fatlaðir. Árið 1951 kom Símon alkominn heim. Var hann fyrsta sumarið Fæddur 18. maí 1971 Dáinn 20. desember 1991 Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, - líf mannlegt endar skjótt. (H. Pétursson.) Sú harmafregn barst mér 22. desember, að Kristján Fr. Bjarna- son, vinnufélagi og góður vinur, væri allur. Nú þegar hátíð ljóss og friðar fer í hönd og daginn að lengja horfi ég með söknuði á eftir Krist- jáni yfir móðuna miklu. Stjáni, eins og við krakkarnir kölluðum hann, var alltaf góður og sannur vinur og þótt við ynnum ekki lengur saman þá héldum við þó dálitlu sambandi. Ósjaldan vor- um við í góðra vina hópi, heima hjá einhveiju okkar, á rúntinum niðrí bæ eða einhvers staðar ann- ars staðar. Kristján var vinur vina sinna, alltaf var hann reiðubúinn að spjalla um lífið og tilveruna. Minnist ég samverustunda okkar á Gelgjutanga, þar sem við unnum. Þar var mikið rætt og mikið hlegið. Við Stjáni vorum ekki líkir, við komum úr ólíkum vinahópum og sáum því lífið í ólíku ljósi. Oftar enn ekki voru tilsvör og hugleiðing- ar hans gjörólíkar því sem bjó í huga mér og oft sýndi hann mér nýjar hliðar á lífinu, opnaði fyrir mér dyr inn í heiminn. Stjáni var verkmaður góður og ekki er hægt að hugsa sér betri vinnufélaga; duglegur og drífandi maður, vand- virkur og áreiðanlegur. í dag er búið að höggva stórt skarð í vinahópinn. Kristján er far- Kristján Fr. Bjama- son - Minning inn, þessi hægláti vinur er horfinn á braut. Það sem eftir stendur eru minningar um samverustundir okk- ar, minningar um góðan dreng, minningar um vin. Ættingjum og vinum votta ég djúpa samúð á þessari erfiðu stund, megi Guð veita ykkur styrk í sorg- inni. Ólafur E. Rúnarsson vinnumaður hjá foreldrum mínum í Glóru í Hraungerðishreppi en þau voru að hefja búskap þar. Mér er minnisstætt hve vel honum tókst að halda okkur systkinunum að vinnu með því að segja okkur sög- ur og ævintýri í vinnuhléum í kál- garðinum eða á engjateignum. Þá bundumst við honum böndum sem aldrei rofnuðu. Dreif hann sig eftir það í að ljúka kennaraprófinu og á árunum fram til 1955 vann hann við kennslu á Sólheimum og var síðan fyrsti starfsmaður á Kópavogshæli ásamt tveim konum og voru þau fyrsta veturinn með 3 nemendur. En árið 1955 flutti Símon aftur austur fyr- ir fjall og keypti jörðina Efra-Sel í Stokkseyrarhreppi. Þar rak hann heimili og skóla fyrir þroskahefta drengi til ársins 1964. Á heimilinu voru að jafnaði 6-7 drengir. Starfs- fólk var ekki annað en Símon og ráðskona hans, Ingibjörg Árnadótt- ir frá Hrísey. Þau Símon og Ingi- björg ráku búskap jafnframt upp- eldisstörfunum. Stundaði Símon alla kennslu og þjálfaði nemendur í bústörfum. Ingibjörg var ein með öll heimilisstörf, auk þess sem hún gekk í útivinnu. Hún á þijú börn, dóttur sem orðin var stálpuð er hún flutti að Efra—Seli og tvo syni sem ólust upp hjá þeim Símoni. Má nærri geta hve vinnuálag hefir ver- ið mikið á þessum tveim manneskj- um sem aldrei tóku sér frí, en unnu allan sólarhringinn árið um kring. Er óhætt að segja að þarna var unnið mjög merkt starf. Margir af drengjunum sem til þeirra komu þurftu mikla umönnun, nótt sem dag. Meðan Símon stundaði sér- kennslu á Sólheimum, í Efra Seli og síðar í Reykjavík komu vel í ljós hæfileikar hans til að kenna. Stand- ast vinnuaðferðir hans fyllilega samanburð við það sem þykir best og mest er gumað af í dag sem hálærðum og þróuðum aðferðum svo sem samþættingu og blöndun svo eitthvað sé nefnt. Var honum lagið að vinna með stóran hóp, allt að 15 börn, t.d. á Sólheimum. Hann skipti nemendum í hópa eftir getu og námsþörfum og fékk hveijum hópi verkefni við hæfi. Beitti hann jöfnum höndum verklegri og bók- legri kennslu. Hann þroskaði list- ræna hæfileika og andlegt atgervi nemenda í leik og starfi. Vann til dæmis með það sem er nú kallað myndmeðferð (myndtherapy). Var hægt að sækja til hans ráð í óþijót- andi reynslu og viskubrunn allt fram á síðasta dag. Ráð hans reyndust oft haldbetri í erfiðri sér- kennslu en langir fyrirlestrar há- menntaðra manna. Þessi níu ár í Efra-Seli tóku sinn + Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför eiginmanns míns og föður okkar, BJÖRGVINS KETILS BJÖRGVINSSONAR, Austurtúni 15, Bessastaðahreppi. Hafdís Einarsdóttir, Harpa Rós Björgvinsdóttir, Einar Kári Björgvinsson, Linda Kolbrún Björgvinsdóttir. toll af þreki og heilsu þeirra Símon- ar og Ingibjargar og hugðist Símon því flytja starfsemina nær höfuð- borginni þar sem auðveldara væri að fá starfsfólk. Varð úr að hann og foreldrafélag heimilisins byggðu starfsemina upp í Tjaldanesi í Mos- fellssveit. Þangað fluttu nemend- urnir 1964. Símon og Ingibjörg létu þá af störfum við heimilið, enda þrotin að kröftum. Ekki er mér grunlaust um að eitthvað hafi skoðanir frænda míns og foreldra- félagsins ekki farið saman um alla þætti kennslunnar. Trúr hugsjón sinni lagði Símon þá verkið í ann- arra hendur fremur en að vinna gegn sannfæringu sinni. Fluttist Símon þá til Reykjavíkur þar sem hann stundaði kennslustörf og síð- ar innheimtustörf meðan kraftar entust. Símon heillaðist mjög af kenn- ingum Rudolfs Steiners. Alla ævi nam hann þau fræði og blátt áfram Iaugaði sál sína í uppsprettum heimspekikenninga Steiners. Kom það sér ekki síst vel á síðustu árum þegar Elli kerling lék hann grátt. Var alveg einstakt hvernig Símon beitti hugleiðslu og heimspekileg- um þankagangi til að vinna sig út úr minnisleysi og ruglingi sem hijáði hann um tíma eftir að hann fékk heilablæðingu fyrir þrem árum. Alla ævi bar Símon hag annarrs fyrir bijósti. Ef honum áskotnaðist fé gaf hann það samstundis til líkn- arstarfa og mörg starfsemi í land- inu naut góðs af því. Hann sparaði við sig hveija krónu og naut þess að geta gefið stórgjafir þar sem honum fannst þörf vera. Nú síðast ánafnaði hann líknarstofnunum all- ar eigur sínar að sér látnum. Nú er hann fallinn í valinn eftir langt og erfitt dauðastríð. Ég veit hann trúði því að með góðu líferni hérna megin grafar væri hann að safna í sjóð sem nýttist handan landamæranna. í bjargfastri trú á orð Krists: „Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldarinn- ar“, lagði hann aftur augun annan dag jóla pg hvarf á vit síns karma. Hann var vel búinn undir vista- skiptin. Veri hann kært kvaddur og fylgi honum einlægar óskir um að hann fái meira að starfa guðs um geim. Guðrún S. Þórarinsdóttir Magnús Þórðar- son — Kveðjuorð Fæddur 4. maí 1922 Dáinn 25. desember 1991 Magnús Þórðarson' járnsmiður lést á jóladag. Andlát hans bar mjög brátt að. Hann dó á mesta hátíðisdegi ársins, degi ljóss og friðar, þegar allir kristnir menn laða fram það besta í sjálfum sér og eru góðir hver við annan. Magn- ús fæddist að Úlfsstöðum í Vallar- hreppi í Suður-Múlasýslu. Hann ólst þar upp ásamt bróður sínum, Ingimar, sem nú býr. á Egilsstöðum. Móðir þeirra lést er Magnús var aðeins fimm ára og Ingimar enn yngri. Rúmlega þrítugur fór hann að læra járnsmíði og fékk síðan meist- araréttindi. Lengstum vann hann við sitt fag í Ofnasmiðjunni. Hann var mjög handlaginn og hugmynd- aríkur, jafnvígur á tré og járn og naut þess að lagfæra og smíða. Hann smíðaði m.a. bát sem hann sigldi sjálfur á um skeið í frístund- um sínum. Systir mín Halldóra Oddsdóttir og Magnús hófu búskap saman fyrir um 36 árum. Fljótlega keyptu þau sér lítið hús og fluttu það upp að Rauðavatni. Það var margt sér- stætt i fari þessa manns. Magnús var ákafur veiðimaður en setti sér ákveðnar reglur í sambandi við Veiðiskap, enda var hann mikill dýravinur. Hann elskaði landið sitt, hafði gaman af að ferðast um það og fara í útilegur. Og ég held að hann hafi sérstaklega notið vorsins í litla húsinu þeirra við Rauðavatn, þar sem hann fylgdist grannt með lífinu sem kviknaði á vorin. Hann fylgdist af áhuga með hreiðurbygg- ingu fuglanna, frá því að þeir fóru að tína strá í körfur sínar og þar til ungarnir yfírgáfu hreiðrin. I fyr- rasumar tók ég eftir stafla af köss- um við vinnuskúr Magnúsar við*'" Rauðavatn, en í þeim var fjöldi tijá- plantna. Magnús gróðursetti þær í holtinu í kring, svona til að skilja eitthvað eftir sig að eigin sögn. Magnús Þórðarson var prúð- menni, hæglátur að eðlisfari, og fátt gat komið honum úr jafnvægi. Hann var óvenju fáorður maður, en fáum leyndist að hann var greindur vel, drengur góður og vildi öllum gera greiða enda hafa marg- ir notið þess. Margir eiga eftir að sakna hinnar góðlátlegu og hljóðu kímni sem hann sýndi svo hlýlega í svipmóti sínu. Hann var foreldrum mínum traustur og góður tengdas- onur og konu sinni hefur hanp^. reynst þolinmóður og natinn í veik- indum hennar. Magnús og Halldóra ólu upp kjördótturina Sigríði, sem gift er Gretti Gíslasyni og eiga þau þijú börn. Ég bið góðan guð að styrkja systur mína og fjölskyldu hennar í sorg þeirra. Minningin um traust- an og góðan mann lifir. Hólmfríður Oddsdóttir og börn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS KRISTJÁNSSONAR, Laugarnesvegi 42. Erla Þorsteinsdóttir, Óli Þorsteinsson, Rannveig Þorsteinsdóttir, Guðjón Eiríksson, Henný Sigurjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð- ur og afa, JÓNS GUNNARSSONAR frá Böðvarshólum, Melavegi 5, Hvammstanga. Þorbjörg Konráðsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.