Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.01.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1992 37 Kveðjuorð: Skipverjar „Eldhamri“ Sigurður Kári Pálmason Fæddur 10. júní 1964 Arni Bemhard Kristinsson Fæddur 13. maí 1959 Bjami Guðbrandsson Fæddur 25. ágúst 1960. Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafíð það skilur mikil lönd. Sú ströndin stijála og auða, er stari ég héðan af, er ströndin striðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. (V. Briem.) Hinn 30. nóvember sl. voru til moldar bomir þrír ungir menn úr Grindavík, sem létust ásamt tveim öðmm ungum mönnum í hörmulega sjóslysinu við Hópsnesið 22. nóv- ember 1991. Ég kynntist Sigga fyrst, þegar frænka mín kom til að sýna mér mannsefnið sitt. Það var glaður, glettinn og indæll drengur, ávallt með bros á vör. Kynnin urðu góð en alltof stutt. Ég man hvað þau voru ánægð, þegar þau komu og sögðu mér, að þau hefðu verið að kaupa sér íbúð, Siggi væri að fá búslóð sína að norðan og hvort ég gæti geymt hana þar til þau flyttu inn. Heimili þeirra varð hlýlegt og fallegt. Ég varð fljótt heimagangur þar og alltaf á meðan ég átti heima í Grindavík og það var gaman að rabba við Sigga. Við töluðum um allt sem viðkom sjónum. Eftir að ég flutti í sveitina og kom í heim- sókn ræddum við um landbúnaðinn, því að þar var Siggi lika á heima- velli. Hann var oft að tala um að koma og heimsækja mig í sveitina. Nú vitum við að af þeirri heimsókn verður ekki. í apríl 1986 eignuðust þau fyrsta son sinn, Arnþór og í des. 1990 annan son, Fannar Geir. Siggi var góðður faðir. Hann gat setið heilu tímana inni í herbergi hjá Adda litla og raðað kubbum eða verið í bíla- leik með honum. Harpa og litlu drengirnir tveir hafa misst góðan félaga og föður. Elsku Harpa, Am- þór og Fannar Geir, Diddi bróðir, Þórey og fjölskylda Sigga. Við send- um ykkur innilegar samúðarkveðjur okkar. Áma kynntist ég unglingi í Grindavík, kátum og skemmtilegum strák. Ég kynntisl honum mikið betur eftir að leiðir hans og Erlu frænku lágu saman. Brúðkaupsdag þeirra man ég vel. Þá flutti ég í næsta hús við foreldra Áma, þeirra Kidda og Hrannar og með okkur tókust góð kynni. Oft hittumst við Ámi niður á netaverkstæði. Þá var rætt um sjómennsku, en hún átti hug hans allan. Árni var drerigur goður, laginn sjómaður og skip- stjómandi og sérstaklega um- hyggjusamur fjölskyldumaður. Það Suðuríandsbraut 10 108 Reylcjavík. Sími 31099 er sárt að sjá á bak honum í blóma lífsins. Elsku Erla, Sigurpáll og Hrönn litla, Siggi Palli, Kiddi og Hrönn. Við sendum ykkur dýpstu samúðar- kveðjur okkar. Bjarna kynntist ég, þegar hann kom á vertíð til Grindavíkur. Þá vann hann hjá Fiskanesi. Þar kynnt- ist hann frænku minni, henni Stínu Boggu. Við fyrstu kynni virtist Bjarni alvömgefinn drengur, en svo kom í ljós innri maður hans, glett- inn, geðprúður og greiðvikinn drengur, sem vildi allt fyrir alla gera. Heimili þeirra stóð mér alltaf opið. Á tímabili kom ég þar daglega mér til ánægju. Það voru margar stundir, sem við áttum þar saman. Þá var glatt á hjalla, ævinlega. Eftir að ég flutti frá Grindavík minnkuðu tengsl én rofnuðu ekki. Stutt er milli stórra högga í fjöl- skyldunni. Faðir Bjarna lést í slysi í september sl. Elsku Stína Bogga, Olla Helga, Guðbrandur og Helgi Freyr, Helgi og Olla og ijölskylda Bjarna við sendum ykkur hjartanlegar samúð- arkveðjur. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. Nú birtir senn. Og ég fínn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. (M. J.ochumsson) Kristín Helgadóttir og fjölskylda í Kóngsbakka. VALS Þrettándabrenna Vals verður á Hlíðarenda mánudaginn 6. janúar og hefst með blysför f rá Hlíðaskóla kl. 19.30. Gengið verður að Hlíðarenda þar sem kveikt veður í bálkesti um kl. 20.00. HRESS í VETUR Hvort heldur ætlun er að styrkja, liðka, og góð aðstaða tryggja góðan árangur. megra, auka þol eða allt þetta í senn Meiri styrkur og þol gefur þér nýjan þá getur þú verið viss um að fínna lífsþrótt, bætt útlit og aukið sjálfsöryggi námskeið við þitt hæfi hjá HRESS, á og vellíðan. r Vertu með í hressum hópi. tíma sem þér hentar. Frábærir kennara, Líkamsrækt Fitumæling Átak í megrun Ráðgjöf Vaxtamótun Æfingar með lóðum * Fitubrennsla (Púl) Æfingar með teygjum Fyrir barnshafandi Vatnsgufubað * Start Ótakmörkuð mæting Nýr lífsstíll Frábærir Ijósabekkir Old boys Barnagæsla frá 9.30 -16.00 Kvennaleikfimi 7 mínútur úr Breiðholti Morguntímar Dagtímar TTDFCC jazzballettet £ ni\Ljjj Vigtun Matseölar —ukamsrækt cx; yos ■■■■ BÆJARHRAUM 0/V\0 KERAVÍKURVECINN/SIMI 6S 2212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.