Morgunblaðið - 26.01.1992, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D
21. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sjórán tíð við
Asíustrendur
SJÓRÁN hafa stóraukist undan strönd-
um ríkja Suðaustur-Asíu, einkum í ná-
grenni Singapore þar sem siglingaleið-
ir eru venjulega krökkar af skipum.
Hafa ræningjarnir riðið feitum hesti
frá þessum ránum og lögreglan komið
litlum vörnum við, enda hægt um vik
að komast undan þar sem hundruðt
smáeyja eru allt í kring. Ránin hafa
flest farið þannig fram að vel vopnaðir
bófahópar hafa læðst um borð í skipin
í skjóli myrkurs, komið áhöfn þeirra í
opna skjöldu og rænt fjárhirslur og
persónulegum eigum. En einnig hafa
gámar verið teknir í heilu lagi úr skip-
um. Nú hefur verið hvatt til þess að
Samband Suðaustur-Asíuríkja (ASE-
AN) grípi til samræmdra aðgerða og
átaks gegn sjóræningjum.
Kalli kanína á
að koma Rúss-
um á bragðið
Kalli kanína, Ofurmenni, Bonnie og
Clyde og fleiri liðsmenn stormsveita
bandaríska kvikmyndaiðnaðarins hefja
innreið í rússneskt menningarlíf í dag
er hafnar verða sýningar á vinsælu
bandarísku sjónvarpsefni á Stöð-1. I
eina viku mun stöðin senda vinsælt
bandarískt sjónvarpsefni út á besta
tíma. Warner-fyrirtækið hefur lagt efn-
ið til endurgjaldslaust í þeirri von að
það leiði til viðskipta þegar rússneskar
sjónvarpsstöðvar verða aflögufærar
síðar meir. Erlent léttmeti var sjaldan
sýnt í sovésku sjónvarpi nema það stæð-
ist ströngustu kröfur hugmyndafræði
kommúnista. Eftirspurn er nú ívíð
minni eftir sjónvarpsefni sem yfirvöld
létu framleiða og fylla mörg vöruhús.
Þá datt áhugi á ballett niður eftir að
valdaránsmenn fyrirskipuðu í ágúst sl.
að Svanavatnið skyldi sýnt kvölds og
morgna á hveijum degi og endursýnt
nokkrum sinnum þess á milli.
Bólivíumenn fá
aðgang að sjó
Bólivía er ekki lengur landlukt ríki
með öllu því sérstakt bólivískt fríversl-
unar- og ferðamannasvæði var stofnað
í gær við hafnarborgina IIo á Kyrra-
hafsströnd Perú með samningi við Per-
úmenn. Var svæðið vígt við hátíðlega
athöfn sem Jaime Paz Zamora Bólivíu-
forseti og Alberto Fujimori Perúforseti
tóku þátt í. -
SNUSSAÐIVESTURBÆNUM
Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson
Bandaríkjamenn auka þrýsting á Israela vegna landnáms á hernumdu svæðunum:
Stöðvun landnáms forsenda
frekari stuðnings við Israel
Washington. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, leggur nú hart að Israelum að stöðva
landnám á hernumdu svæðunum. Hefur Baker, í viðræðum sínum við ísraelska ráða-
menn, gefið í skyn að stöðvun landnáms sé forsenda þess að Bandaríkjamenn veiti
Israelum tíu milljarða dollara lán sem þeir hafa farið fram á.
Baker átti á föstudag viðræður annars veg- náfns síns getið. Israelar hafa þegar hafið
ar við Zalman Shoval, sendiherra Israels í
Bandaríkjunum, og hins vegar við öldung-
ardeildarþingmennina Patrick Leahy og Bob
Kasten. Kasten er meðal hörðustu stuðnings-
manna ísraels á Bandaríkjaþingi en Leahy er
harður andstæðingur landnám,s þeirra.
Heimildir Reuters-fréttastofunnar herma
að á fundi sínum með öldungardeildarþing-
mönnunum hafi Baker rætt um að finna þyrfti
lausn er jafnt Bandaríkjamenn sem Israelar
gætu sætt sig við en einnig lagt mikla áherslu
á að Bandaríkjamenn myndu ekki falla frá
andstöðu sinni við landnám.
„Aðalatriðið var að Baker sagði að lausnin
kynni að vera að horfa til nýbygginga frekar
en stöðvunar framkvæmda við landnám,"
sagði einn heimildarmaður sem ekki vildi láta
framkvæmdir við byggingu nokkurra þúsunda
húsa á hernumdu svæðunum.
Svo virðist sem meirihluti sé að inyndast
fyrir því á Bandaríkjaþingi að refsa Israelum
fyrir landnám á hernumdu svæðunum. Ein
þeirra tillagna sem uppi er gengur út á að fyr-
ir hvem dollara sem Israelar veija til uppbygg-
ingar á hernumdu svæðunum verði einn dollari
dreginn af aðstoð Bandaríkjamanna við þá.
Bandaríkin:
Framleiðslu kjarnavopna hætt
Washington. Reuter.
Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að hætta um óákveðinn tíma allri framleiðslu kjarn-
orkuvopna, að því er dagblaðið The Woshington Post skýrði frá á laugardag. Blaðið
sagði stjórnina einnig ætla að draga til baka einu pöntunina sem nú liggur fyrir um
framleiðslu á kjarnaoddum.
einum milljarði dollara og er ætlunin að nota
hluta þeirra fjármuna til að hreinsa þau land-
svæði sem orðið hafa fyrir umhverfisspjöllum
vegna kjarnorkuvopnaframleiðslu.
I fréttinni kemur fram að James Watkins
orkumálaráðherra hyggist gera þessa
ákvörðun opinbera á miðvikudag. Talið er
að sparnaðurinn vegna þessa muni nema um
TÓK NAUDUGUR ÞÁTT
f ÞESSUM HARMLEIK
ÚR KALDRI GRÖF
GR/ENLANDSJÖKULS
ENGIN
KRAFTAVERK
Í ALSÍR