Morgunblaðið - 26.01.1992, Qupperneq 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
EFNI
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ:
Heildarviðræður kunna að
frestast verði VR ekki með
ÞÓRARINN V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, segir að
verði verslunarmenn ekki með í
þeim heildarviðræðum sem ef til
vill hefjast eftir helgina um
kjarasamninga, kunni það að
verða til þess að af þeim verði
ekki og þeim verði frestað um
óákveðinn tíma. Magnús L.
Sveinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, sagði
I Morgunbiaðinu í gær að for-
senda fyrir þátttöku félagsins í
150 milljóna
tjón hjá Isal
í óveðrinu
fyrir ári
TJÓN íslenska álfélagsins í
Straumsvík vegna óveðursins í
febrúar á síðasta ári nemur um
150 milljónum króna, að sögn
Einars Guðmundssonar fram-
kvæmdastjóra hjá ísal. Tjónið
varð á kerum í kjölfar þess að
rafmagnslaust varð í álverinu í
sjö klukkustundir, en komið hef-
ur í ljós að líftími þeirra styttist
af þeim sökum.
í álverinu eru 320 ker, og við
kólnun á þeim mynduðust sprungur
sem dregið hafa úr endingu þeirra.
Einar sagði að fljótlega hefði þurft
að taka 10 ker úr notkun, og síðan
hefði komið í ljós að líftími annarra
keija hefði styst. Hann sagði að
tryggingar hefðu þegar greitt það
beina tjón sem hægt hefði verið að
sýna fram á strax í kjölfar óveðurs-
ins, eða um 55 milljónir króna.
viðræðum um aðalkjarasamning
á vettvangi heildarsamtakanna
séu skýr svör frá vinnuveitend-
um varðandi þá kröfu félagsins
að gerðir verði starfsgreina-
samningar. A mánudaginn mun
miðstjórn Alþýðusambands Is-
lands funda með formönnum
landssambanda og svæðasam-
banda um stöðuuna í kjaramálum
og meta það hvort grundvöllur
sé til að hefja viðræður um að-
alkjarasamning, en síðar um dag-
inn hefur verið boðaður samn-
ingafundur Verkamannasam-
bands íslands og vinnuveitenda.
Þórarinn sagði að á fundinum
á föstudag hefðu verslunarmenn
lagt fram atriði er vörðuðu nokk-
ur af þeirra starfssviðum. Vinnu-
veitendur hefðu sagt að sum
þessi atriði væru þeir tilbúnir til
þess að skoða en önnur væru
þeir ekki tilbúnir til þess að taka
upp til viðræðna. „A fundinum
lýstum við vilja til þess að við
færum að feta okkur sameig-
inlega áfram í heildarmálunum
samhliða sérmálunum og það
komu engin sérstök viðbrögð á
það, en ég geri mér vonir um að
það verði hægt að fara að þoka
málum áfram með þeim hætti,“
sagði Þórarinn.
Hann sagði að vinnuveitendur
hefðu áður sagt Verslunarmannafé-
lagi Reykjvíkur alveg skýrt að þeir
féllust ekki á að fjölga viðsemjend-
um sínum með því að VR yrði brot-
ið upp sem viðsemjandi í marga
hluta með einhveijum formlegum
hætti. „Við höfum hins vegar engu
hafnað um það að taka sérstaklega
á séraðstæðum sem snúa að starfs-
greinum inni í félaginu og það er
allt í skoðun. Það hefur verið teflt
fram gegn okkur__áhersluatriðum
gagnvart tiyggingafélögum og
dagvöruversluninni og þar erum
við að skoða ákveðin mál í sam-
einingu."
Þórarinn sagði að það væri
undarlegt ef verslunarmenn yrðu
ekki með í þeim heildarviðræðum
um kjarasamninga sem kunna að
hefjast eftir helgina, auk þess
sem afstaða þeirra kynni að hafa
áhrif á það hvort viðræður hæf-
ust á þeim grunni eða ekki. „Ég
hygg að það sé nú í þessu efni
að afstaða eins landssambands
hafi tölvert mikil áhrif á afstöðu
annars. Ég met það þannig að
það væri þá verið að taka ákvörð-
un um að fresta kjaraviðræðum
um töluvert langan tíma ef það
yrði niðurstaða manna að hafna því
að hefja viðræður um stærri málin
og halda sér við það að ræða sér-
mál. Það myndi leiða af sér miklar
tafir og óvissu, sem ég held að
væri ekki heppilegt fyrir aðila,“
sagði Þórarinn að lokum.
Góð síldveiði
á Lónsbugtínni
SILDVEIÐI var góð í fyrrmótt
en nokkrir bátar voru að veið-
um á Lónsbugt og fylltu sig
allir. Hábergið fékk 600 tonn
í heild, og reif nótina í fyrra
kastinu af tveimur. Síldin sem
veiddist í fyrrinótt er mun
stærri en verið hefur undan-
farið, yfirleitt ekki undir 33
sentimetrum. Megnið af henni
fer í bræðslu.
Sýni sem tekið var úr torfu á
Lónsbugtinni í fyrrinótt sýndi
hins vegar að stóra síldin er far-
in að skilja sig frá hinni smáu
og var síldin mun stærri en verið
hefur. „Það var veiðieftirlitsmað-
ur um borð í Höfrungi sem tók
sýni úr torfu á Lónsbugtinni og
í ljós kom að sú síld stóðst allar
mælingar svo það var því opnað
hólf þar,“ sagði Þorsteinn Símon-
arson, stýrimaður, í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Þorsteins var síldin
mjög góð, að stærstum hluta yfir
33 sentimetrar en undanfarið
hefur mikið af smásíld undir 27
sentimetrum verið innan um.
Hann sagðist telja að megnið af
þeim afla sem fékkst í fyrrinótt
færi í bræðslu.
Tók nauðugur þátt í
þessum harmleik
►Thor Ó. Thors, framkvæmda-
stjóri Sameinaðra verktaka í ítar-
legu viðtali við Morgunblaðið./ 10
Engin kraftaverk í Alsír
► Stjórnmálaástand er ótraust í
Alsír og ólíklegt að frelsishetjan
og nýi þjóðarleiðtoginn Mo-
hammed Boudiaf breyti þar miklu
um./14
Úr kaldri gröf Græn-
landsjökuls
►í sumar verður reynt að ná sex
sögufrægum hervélum frá stríðs-
árunum upp úr ísnum og njóta
leiðangursmenn leiðsagnar ís-
lenskra sérfræðinga við að finna
vélarnar. f slendingarnir telja þó
ekki miklar líkur að unnt muni
reynast að ná vélunum. /16
Nú erlag!
►íþróttaopna byijar aftur í
sunnudagsblaðinu og meðal efnis
er viðtal við Jóhann Inga Gunnars-
son, handknattleiksþjálfara, þar
sem hann metur stöðu íslenska
handknattleikslandsliðsins fyrir
B-keppnina — og er harla bjart-
sýnn. /34
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-24
Innan stokks og utan
►Jóhanna Harðardóttir skrif-
ar./14
►Fjöllin heilla ekkert síður að
vetrarlagi en um sumar. Þau geta
hins vegar verið viðsjárverð þegar
allra veðra er von, eins og margir
hafa fengið að reyna. Hér er fjall-
að um útbúnað til fjallaferða að
vetrarlagi og m.a. rætt við annan
piltanna sem komust í hann krapp-
an á Esjunni ekki alls fyrir
löngu./l
Róm — torg lífsins
►Kraftur er í Rómverjum nútím-
ans — Kannski hafa þeir hann frá
forfeðrunum sem minna stöðugt á
sig með rústum hins foma Rómar-
veldis, segir Kristín Maija Baldurs-
dóttir sem var þar á ferð./lO
Sannkallað afmælisár
►Akranes á 50 ára kaupstaðaraf-
mæli og Jón Gunnlaugsson, frétta-
ritari Morgunblaðsins á Skaganum
ræðir við frammámenn í bæjarfé-
laginu./lO
Óreiðan í náttúrunni
►Kjartan Pierre Emilsson heitir
ungur íslendingur sem stundar
nám og rannsóknir við háskólann
í Nice í Frakklandi á ringulreið
náttúrunnar og notar m.a. til þess
tölvumyndir./12
Valdhafinn sem for-
dæmdí Stalín
►Áfram verður haldið að rifja upp
sögu kommúnismans í Sovétríkj-
unum og segir nú frá valdaárum
þess litríkja stjórnmálamanns,
Nikita Khrústsjov./14
Hvarf Mónu Lísu
►Hérsegir af frægasta lista-
verkaþjófnaði sögunnar í þættin-
um Af spjöldum glæpasögunn-
ar./20
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 18c
Dagbók 8 Dægurtónlist 19c
Hugvekja 9 Fólk í fréttum 22c
Leiðari 20 Myndasögur 24c
Helgispjall 20 Brids 24c
Reykjavíkurbrét 20 Stjörnuspá 24c
Minningar 30 Skák 24c
íþróttir 34 Bíó/dans 25c
Útvarp/sjónnvarp 36 A fömum vegi 28c
Gárur 39 Velvakandi 28c
Mannlífsstr. 6c Samsafnið 30c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—6—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4