Morgunblaðið - 26.01.1992, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992
*
I"T\ \ /^ersunnudagur, 26.janúar, þriðji sd. eftir
■L'-íl-VJ þrettánda. 26. dagur ársins 1992. Árdegis-
flóð í Reykjavík kl. 11.08 og síðdegisf.óð kl. 23.45. Fjara
kl. 5.02 ogkl. 17.25. Sólarupprás í Rvík kl. 10.28 ogsólar-
lagkl. 16.54. Myrkurki. 17.54. (Almanak Háskóla Islands.) •
Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.
(Matt. 28,20.)
ÁRNAÐ HEILLA
fT pTára afmæli. Í dag, 26.
4 O janúar, er 75 ára
Þórður Kárason, Sund-
laugavegi 28, Rvík, fræði-
maður og fyrrv. lögreglu-
þjónn. Kona hans er Elín
Gísladóttir. Þau eru stödd er-
lendis.
pT /\ára afmæli. í dag, 26.
tlvJ þ-m., er fimmtugur
Ragnar M. Engilbertsson,
Fagrabæ 10, Rvík. Kona
hans er Gunndís Gunnars-
dóttir. Þau taka á móti gest-
um í Kiwanishúsinu, Brautar-
holti 26 í dag, afmælisdaginn
kl. 19-21.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1862 var
stofnað í Vestmannaeyjum
Bátaábyrgðir Vestmannaeyj-
ar og er það elsta trygginga-
félagið á landinu. Þennan dag
árið 1906 var Verkamannafé-
lagið Dagsbrún stofnað í
Rvík. Á morgun, 27. janúar,
eru liðin 85 ár frá stofnun
Kvenréttindafélags íslands.
DÓMSTJÓRINN í Reykjavík
augl. í nýlegu Lögbirtinga-
blaði eftir fimm löglærðum
mönnum til fulltrúastarfa við
Héraðsdóm Reykjavíkur.
Ráðið verður í þessar stöður
frá 1. júlí nk., umsóknarfrest-
inn setur dómstjórinn, Frið-
geir Bjömsson, til 10. febrúar
næstkomandi. Dómstjóri hef-
ur aðstöðu í skrifstofu borg-
arfógetaembættisins á Hall-
veigarstöðum, Túngötu.
Dómstjórinn augl. líka lausa
stöðu skrifstofustjóra. Tekið
er fram í Lögbirtingi að hann
þurfi að vera Iöglærður. Um-
sóknarfrestur um stöðuna er
jafnlangur umsóknarfrestin-
um um fulltrúastöðurnar.
VEGAGERÐ ríkisins. Sam-
g'önguráðuneytið augl. í sama
Lögbirtingi stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Vegagerð
ríkisins. Það er tæknisvið
vegagerðarinnar sem hann á
að veita forustu. Umsóknar-
frestur setur ráðuneytið til
31. þ.m.
HVASSALEITI 56-58, fé-
lagsmiðstöð aldraðra. Á
morgun, mánudag, kl. 13
verður bridskennsla og fijáls
spilamennska. Guðnin S.
Jónsdóttir stjórnar. í kaffi-
tímanum kl. 15 verður borið
fram þorrakaffi, almennur
söngur og fram fer ferða-
kynning.
SÝSLUMAÐURINN í
Reykjavík hvers embættis-
skrifstofa tekur til starfa 1.
júlí næstkomandi. Yfirborg-
arfógetinn í Reykjavík, aug-
lýsir í nýju Lögbirtingablaði
lausar stöður fimm deildar-
stjóra við embættið. Þær mun
dómsmálaráðherra veita frá
1. júlí næstkomandi. Um-
KROSSGATAN
œ
9
iFi
12 13
T
__
122 23 24
LÁRÉTT: — 1 ósvinna, 5
gladdi, 8 alda, 9 leyna, 11
kona, 14 eyktarmark, 15
kyrrt vatn, 16 ótti, 17 haf,
19 digur, 21 háttalagið, 22.
gisti, 25 starfsgrein, 26 stök,
27 stjórna.
LÓÐRÉTT: 2 gras, 3 fát,
4 ávöxtur, 5 þekktur, 6 heið-
urs, 7 málmur, 9 drep, 10
beinið, 12 kroppaðir, 13
ákveðið, 18 espaði, 20 tangi,
21 pípa, 23 drykkur, 24 flan.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 ofnum, 5 sálma, 8 Ijótt, 9 fífla, 11 Ottós,
14 lap, 15 röðul, 16 urrar, 17 ill, 19 naut, 21 mati, 22 nefnd-
ar, 25 agg, 26 far, 27 aða.
LÓÐRETT: — 2 frí, 3 ull, 4 mjalli, 5 stopul, 6 átt, 7 mjó,
9 forynja, 10 fiðlung, 12 tartara, 13 sorgina, 18 lina, 20 te,
21 MA, 23 ff, 24 dr.
Neytendasamtökin kæra til RLR:
Það er bara ekki forsvaranlegt að þeir séu að strumpast, svona fyrir framan alþjóð, Böðvar minn.
sækjendur skulu hafa emb-
ættispróf í lögum og er um-
sóknarfrestur til 7. febrúar
nk. Þá eru auk þessara starfa
lausartil umsókn^r 17 stöður
löglærða fulltrúa til starfa hjá
sýslumanninum. Umsóknar-
frestur um þessi störf er líka
til 7. febrúar næstkomandi.
BARNADEILDIN, Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur,
Barónsstíg. Opið hús þriðju-
dag kl. 15- 16 fyrir foreldra
ungra bama. Umræðuefnið
verður: Aðlögun að dagvist-
un.
HREPPSTJÓRASTÖÐUR
auglýsa tveir sýslumenn
lausar til umsóknar í Lögbirt-
ingablaðinu. Önnur staðan er
staða hreppstjórans í Suður-
dalahreppi í Dalasýslu. Um-
sóknarfrestur er til 15. febrú-
ar. Hin hreppstjórastaðan er
í Beruneshreppi, hjá sýslu-
manninum í S-Múlasýslu á
Eskifirði. Umsóknarfrestur er
til 17. febrúar nk.
BOLVÍKINGAFÉL. heldur
aðalfund sinn í dag, kl. 16 í
Glæsibæ.
EFNAVEÐRUN í jarðvegi
og jarðvegseyðing er við-
fangsefnið á næsta fræðslu-
fundi Hins ísl. náttúrufræði-
félags. Hann verður annað
kvöld, 27. janúar, í stofu 101
í Odda, hugvísindahúsi Há-
skólans. Erindi um þetta efni
flytur Ólafur Amalds jarð-
vegsfræðingur. Hann mun
segja í erindi sínu frá upp-
byggingu ísl. áfoksjarðvegs-
ins og eyðingu hans. Talað
er um flokkun ísl. rofgerða:
rofabörð, rofdílar, vatnsrásir
og skriður. Verður um þetta
Qallað í erindi ólafs. Fræðslu-
fundurinn, er sem aðrir á veg-
um Hins ísl. náttúmfræðifé-
lags eru öllum opnir.
LÍFEYRISÞEGAR SFR
halda þorragleði laugardag-
inn 1. febrúar næstkomandi
í samkomusalnum á Grettis-
götu 89 og hefst hún kl.
12.30. Nánari uppl. í s.
629644.
EMBÆTTI, sem forseti ís-
lands veitir, við væntanlegan
Héraðsdóm Reykjavíkur, er
laust til umsóknar, í dóms-
og kirkjumálaráðuneytingu.
Embættið er auglýst í nýlegu
Lögbirtingablaði, umsóknar-
frestur til 7. febrúar. Emb-
ættið verður veitt frá 1. júlí
næstkomandi.
ITC-DEILDIN Eik, Vestur-
bærinn / Seltjamarnes heldur
opinn fund mánudagskvöldið
kl. 20.30 á Hallveigarstöðum.
(Inng. frá Öldugötu).
HÁSKÓLI íslands. í tilk. frá
menntamálaráðuneytinu í
Lögbirtingi segir að dr. Krist-
berg Kristbergsson hafi verið
skipaður dósent í matvæla-
fræði (matvælavinnslu og
matvælatækni) við efnafræði-
skor raunvísindadeildar há-
skólans. Eins hefur Guðrún
Ása Grímsdóttir cand. mag.
verið skipuð sérfræðingur við
Stofnun Árna Magnússonar
(handritastofnunina).
FRÍMERKI. Póst- og síma-
málastofnun segir í fréttatilk.
að hinn 20. febrúar nk. komi
út tvö frímerki í flokknum
keppnisíþróttir, í verðgildinu
30 kr. Frímerkin sýna menn
í blaki og á skíðum. Sérstakur
útgáfudagstimpill verður í
notkun þann dag. Þá segir
að gefin hafi verið út gjafa-
mappa sem heitir „Póstskip"
með 8 frimerkjum með mynd-
um sem tengjast siglingu
póstskipa hér við land allar
götur frá árinu 1776 er gefin
var út konungleg tilskipun
um póstferðir um ísland og
til Danmerkur.
KVENRÉTTINDAFÉLAG
íslands heldur fund mánu-
dagskvöldið 27. þ.m. kl. 20 í
Kornhlöðunni í Bankastræti.
Þar verður fjallað um frum-
varp til bamaverndarlaga.
Minnst verður 85 ára afmælis
Kvenréttindafélags íslands.
Léttar veitingar.
GRENSÁSSÓKN. Kvenfélag
sóknarinnar heldur aðalfund
með kvöldverði í safnaðar-
heimilinu 10. febrúar næst-
komandi. Nánari uppl. gefur
Kristrún í s. 36040/36911.
KVENFÉLAGIÐ Hringur-
inn, Reykjavík. Afmælis-
fundur í dag, kl. 15 á Ásvalla-
götu 1.
KIRKJA
GRENSÁSKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Fundur í Æskulýðsfélaginu
Örk, mánudagskvöld kl. 20.
HÁTEIGSKIRKJA: Biblíu-
lestur mánudagskvöld kl. 21.
LAUGARNESKIRKJA:
Æskulýðsfundur í kvöld kl.
20.
NESKIRKJA: Mánudag:
Æskulýðsfundur kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu í kvöld kl. 20.30.
Starf 10-12 ára, mánudag kl.
17.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku-
lýðsfundur í kvöld kl. 20.
Foreldramorgnar þriðjudag
kl. 10-12. Gengið verður um
nágrenni kirkjunnar, súpa í
Blásteini eftir gönguna.
FELLA- og Hólakirkja:
Fyrirbænir í kirkjunni kl. 18
mánudag og starf fyrir 11-
12 ára börn kl. 18. Fundur í
æskulýðsfélaginu mánudags-
kvöld kl. 20.30. Söngur, leik-
ir, helgistund.
SELJAKIRKJA: Fundur
mánudag hjá KFUK, yngri
deild kl. 17.30, eldri deild kl.
18.30. Opið hús hjá æskulýðs-
félaginu SELA kl. 20. Helgi-
stund.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í dag er togarinn Freri vænt-
anlegur inn af veiðum, til
löndunar. Annaðkvöld er
Laxfoss væntanlegur að ut-
an.
Þessar ungu dömur eiga heima norður á Siglufirði. Þar
héldu þær hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross deildina
í bænum og söfnuðu 7.300 kr. Þær heita Ólafía Björk
ívarsdóttir og Björg Ágústa Kristinsdóttir. Fyrir aftan
þær standa Sólrún Helga Örnólfsdóttir, Bjarkey Rut Gunn-
laugsdóttir og Freydís Hreiðarsdóttir.