Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJAA/EÐUR SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 9 Lífsviðhorf ídeiglunni Kristin trú, sem gerir ráð fyrir að heimurinn sé bú- inn til af Guði, gengur um leið út frá því að sköpunin sé allt annað en skaparinn. Hann er smiðurinn, sköpunin það sem smíðað er. Það sem Guð hefur búið til spannar allar víddir tilve- runnar, andlegar og veraldlegar, líkamlegar og sálrænar. Allt er skapað af Guði. Ég held að það sé sameiginleg reynsla íslend- inga að lífríkið endurómi af Guði. Hver kann- ast ekki við það að standa berg- numinn frammi fyrir hrikalegu flalli, dynjandi fossi, úfnu hafínu eða bláklukku á sumri og fínna í öllu þessu nálægð Guðs? Það þýðir ekki þar sem að lífríkið, veröldin sé Guð. Þvert á móti. Alger eðl- ismunur hlýtur að vera á skaparan- um, Guði, og því sem hann hefur búið til, sköpuninni, nákvæmlega eins og iðnaðarmanninum og hand- verki hans. Hann er Guð, eilífur smiður alls, sköpunin er ekki Guð, ekki eilíf, ekkert annað en „eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinn og deyr“, eins og segir í þjóðsöngnum. Mað- urinn er að sjálfsögðu hluti þessar- ar sköpunar, smíðisgripur eins og önnur dýr, plöntur, stjörnur og allt sem er. Maðurinn er því ekki Guð, hefur ekki guðlegt eðli, er ekki að nokkru leyti eilífur fremur en annað það sem himnasmiðurinn hefur skapað. Munurinn á mannin- um og öðrum skepnum skaparans er sá að hann einn skapaðra vera virðist verá fær um líta út fyrir eigin líkama, að túlka líf sitt í öðru samhengi en hinu hversdags- lega brauðstriti eingöngu. Maður- inn er ekki gamall þegar hann fer að gruna að honum er mörkuð stund, að líf hans á sér upphafi og takmarkast af dauðanum. Snemma byijar barnið að spytja um takmörk alheimsins. „Hvar endar himinninn?" og „hvað er þá hinum megin?“ eru spurningar sem allir foreldrar þekkja. Þetta er nokkurskonar náðargjöf mannsins, að geta sett líf sitt í samhengi við tímann, umhverfið og Guð. Um leið er þessi náðargáfa kross mannsins því að baki hverri stund býr hin hræðilega vissa um það að „af moldu ertu kominn og að moldu skaltu aftur verða“. Þessi ógn dauðans og eyðingarinnar sem allra og alls bíáur hefur löngum fyllt karla og konur vonleysi og KRISTNIA KROSSCÖTUM eJtirÞórhall Heimtsson bölmóði. Kristin sköpunartrú hafn- ar aftur á móti slíkri bölsýni, því þó sköpunin sé hvorki guðleg né eilíf, þá er skapari hennar ekki fjarri. Guð elskar sköpun sína og lætur hana ekki verða dauða og tortímingu að bráð. Þess vegna á sköpunin öll von um eilíft líf með skapara sínum, ekki vegna þess að hún sé ódauðleg, heldur vegna þess að eilífur Guð sleppir ekki af henni hend- inni. Hin eld- forna saga i fyrsta kafla fyrstu Mósebók- ar Biblíunnar gerir betur en nokkr- ar aðrar að leiða okkur inn í hugar- heim kristinnar sköpunartrúar. Sú gamla saga er reyndar ekki að selja okkur vísindalegar staðreynd- ir eða neitt slíkt. Hún er eins og ljóð sem á myndrænan hátt túlkar takmark og tilgang alls. í því ljóði segir Guð að allt sem hann hafi gert sé gott. Sú spurning hlýtur að sækja að glöggum lesanda fyrstu Mósebókar hvort það geti nú verið rétt að veröldin og Guð séu á einhvern hátt góð? Er ekki nær að álíta veröldina mislukkaða tilraunastarfsemi einhvers klaufa- bárðar sem við köllum Guð? Móse- bók svarar með því að benda á að Guð hefur skapað heiminn fijálsan, gefíð honum frelsi til þess að þroskast. Frelsið er vissulega~gott en felur veröldinni líka þunga ábyrgð. Frelsið gefur okkur tæki- færi til að sækja fram, en hættan á misnotkun frelsisins er að stað- aldri fyrir hendi. í heiminum hefur Guð falið manninum einskonar húsvarðarstarf, ekki til þess að misnota og kúga sköpunina, heldur til þess að vinna með sér að upp- byggingu og varðveislu lífsins og hins góða. Einhvern veginn höfum við mennirnir ekki farið vel með það hlutverk eins og dæmin sanna. Mörgum finnst líka harla tilgangs- laust að reyna að standa gegn þeim eyðingaröflum sem eru á sveimi allt í kringum okkur. Þau eru máttug en við hvert og eitt svo vanmegnug. En trúin á skaparann ætti að gefa okkur þrótt til þess að standa gegn eyðingunni. Veröldin er eign Guðs. Hann elskar hana. Því eigum við að standa gegn öllu því sem fer illa með hana. Þapnig leggur sérhver grasrótarhreyfíng skaparanum lið, ef hún berst gegn mengun jarðar- innar, kynþáttahatri, fátækt, kúg- un, hungri og öllu því sem eyðir og spillir samfélagi heimsins. Að ekki sé talað um þau er hirða upp ruslið í kringum sig í náttúrunni og huga að náunganum í daglegu lífí sínu. Þrátt fyrir vaxandi áhyggjur manna af umhverfis- spjöllum hverskonar og baráttu þjóðanna gegn þeim öflum er leggja lífríkið í hlekki, þá eru það stöðugt fleiri sem afneita þeirri heimsmynd er hér hefur verið dregin upp, afneita skaparanum. Með því að afneita honum svipta menn sköpunina því gildi s.em hún fær frá Guði. Þá er ekkert sem hamlar manninum íengur í aðför hans gegn lífinu. Nema ef vera skyldi óttinn við aldauða lífríkis- ins. En sá ótti nær ekki inn í heilabú þeirra er eiga hinar eit- urspúandi verksmiðjur eða nota neyð samborgara sinna til að efla eigin völd. Ef „sköpunin“ er ekki annað en tilviljunarkenndur efn- ismassi, ef Guð er ekki til, þá get- ur hinn máttugi maður mótað heiminn allan eftir eigin höfði án þess að þurfa að taka tillit til hinna veikari. Því eins og þýski heim- spekingurinn og trúleysinginn Ni- etzche sagði síðustu öld og varð síðar eitt af slagorðum nasistanna í Þýskalandi: „Guð er dauður! Sterki maðurinn ríkir.“ Ef við af- neitum skaparanum skiptir líf, frelsi og hamingja annarra en hins sterka engu máli. Hinn sterki á og má nota þá sem tæki til að ná eigin markmiðum. Þá má segja að hinn gamli slagari eigi vel við: „Lífið er dýrt og dauðinn þess borgun, drekkum í dag og iðrumst á morgun." Einá raunhæfa vörnin gegn þeirri helför lífríkisins er staðið hefur hátt á annað hundrað ár er að opna augu allra fyrir því að tilveran er ekki söluvara eða eign manna heldur sköpun og þar með eign Guðs. Hlutverk okkar hvers og eins felst þá í þessu tvennu. Annarsvegar að treysta Guði, skapara okkar fyrir lífi okk- ar og tilveru. Hinsvegar að sæja fram gegn sérhveiju misrétti og böli í átt að betri og bættari og. réttlátari heimi. Það getum við gert á alþjóðavettvangi sem þjóð. Heima hjá okkur er ágætt að byija með því að líta í kringum sig um leið og Morgunblaði dagsins er flett og gefa þeim gaum sem næst okkur standa, börnum, maka, ætt- ingjum og vinum. Hvað getum við gert til að gleðja þau á þessum Drottins degi? Það er nú spurning- in! Höfundur er fræðslufulltrúi Þjóðkirkjunnar á Austurlandi. VEÐURHORFUR í DAG, 26. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Skammt vestur af Hvarfi er 960 mb lægð sem mjakast austur og fyrir sunnan landið er 1025 mb hæð sem einnig mjakast austur. HORFUR í DAG: Sunnanátt víða, allhvöss á vestanverðu land- inu, en hægari austantil. Rigning eða súld á Suður- og Vestur- landi og um tíma á Norðurlandi. Hlýtt í veðri. HORFUR Á MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Suðvestanátt. Él og hiti nálægt frostmarki sunnan- og vestan- lands, en úrkomulítið og víðast vægt frost norðan- og austan- lands. Svarsími Veðurstofu íslands — veðurfregnir: 990600. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6.00 í gær að ísl. tíma Staður hiti veður Staður hiti veður Akureyri 1 léttskýjað Glasgow 9 rigning Reykjavík 1 snjóéi Hamborg +7 hrímþoka Bergen 4 alskýjað London 1 þoka Helsinki +7 heiðskírt Los Angeles 14 léttskýjað Kaupmannahöfn 0 þokumóða Lúxemborg •4-3 þokumóða Narssarssuaq 0 snjókoma ' Madríd 4-3 heiðskirt Nuuk 0 snjóél Malaga 0 heiðskirt Osló ^4 þokumóða Mallorca 10 súld Stokkhólmur ■j-8 heiðskírt Montreal 4-21 léttskýjað Þórshöfn 6 skúr NewYork 4-3 léttskýjað Algarve 5 heiðskírt Orlando 7 heiðskírt Amsterdam ■i-3 þoka París 4-3 þokumóða Barcelona 6 hálfskýjað Madeira 15 skýjað Berlín h-5 hrímþoka Róm 10 skýjað Chicago +5 alskýjað Vín 4-3 þokumóða Feneyjar 3 heiðskírt Washington 4-2 léttskýjað Frankfurt ■iA kornsnjór Winnipeg 4-17 snjókoma o Heiðskírt / / r / / / / / / / Rigning V Skúrir / Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaörimar 4 Lóttskýjað * / * / / # Slydda * Slydduél vindstyrk, heil fjöður er tvö vindstig. V Hálfskýjað / * / ■JO“ Hltaatig: Ský|a» * * * * * * * * * * Snjókoma •* V Él 10 gráður á Celsíus = Þoka . m Alskýjað 9 9 9 Súld oo Mistur = Þokumóða Kvöld-, nœtur- og helgarþjónusta apótekanna i Reykjavik dagana 24. janúar til 30. janúar, að béðum dögum meðtöldum, er í Apóteki Austurbæjar, Háteigsvegi 1. Auk þess er Breiðholts Apótek, Álfabakka 12, opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar nema sunnudag. Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og Kópavog i Heilsuverndarstöð Reykjavik- ur viö Barónsstig frá kl. 17 til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og helgidaga. Nónari uppl. i s. 21230. Lögreglan í Reykjavik: Neyðarsímar 11166 og 000. Lœknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndimóttaka rúmhelga daga 10-16, s. 620064. Tannlæknavakt - neyöarvakt um helgar og stórhótíðir. Simsvari 681041. Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600). Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl. um lyfjabúðir og læknaþjón. i símsvara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini. Alnæmi: Læknir eða hjúkrunarfræðingur veitir upplýsingar é miövikud. kl. 18-19 í s. 91-622280. Ekki þarf að gefa upp nafn. Samtök óhugafólks um alnæmisvandann styðja smitaða og sjúka og aöstandendur þeirra í s. 28586. Mótefnamælingar vegna HIV smits fóst að kostnaðarlausu í Húö- og kynsjúkdómadeild, Þverholti 18 kl. 9-11.30, á rannsóknarstofu Borgarspítalans, virka daga kl. 8-10, ó göngudeild Lands- pitalans kl. 8-15 virka daga, é heilsugæslustöðvum og hjó heimilislæknum. Þag- mælsku gætt. Samtökin 78: Upplýsingar og réðgjöf í s. 91-28539 mónudags- og fimmtudagskvöld kl. 20-23. Samhjólp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein, hafa viðtalstima ó þriðjudögum kl. 13-17 í húsi Krabbameinsfólagsins Skógarhlið 8, s.621414. Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718. Mosfells Apótek: Opið virka daga 9-18.30. Laugard. 9-12. Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12. Apótek Kópavogs: virka daga 9 19 laugard. 9-12. Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apótekið: Virka daga kl. 9-16.30. Laugardaga kl. 11-14. Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardögum kl. 10-14. Apótek Norður- bæjar: Opiö mónudaga - fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum 10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14. Uppl. vaktþjónustu í s. 51600. Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100. Keflavlk: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstudag. Laugardaga, helgidaga og almenna fridaga kl. 10-12. Heilsugæslustöð, simþjónusta 4000. Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er ó laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um læknavakt fást i simsvara 1300 eftir kl. 17. Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. - Apótekið opið vkka daga til kl. 18.30. Laugardaga kl. 10-13. Sunnudaga kl. 13-14. HeimsóknartímiSjúkrahússinskl. 15.30-16ogkl. 19-19.30. Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Neyðarathvarf opið allan sólarhringinn, ætlað börn- um og unglingum að 18 ára aldri sem ekki eiga i önnur hús að venda. Opið allan sólarhringinn. S. 91-622266. Grænt númer 99-6622. Símaþjónusta Rauðakrosshússins. Róðgjafar- og upplýsingarsími ætlaður börnum og unglingum að 20 éra aldri. Ekki þarf að gefa upp nafn. Opiö allan sólarhringinn. S: 91-622266, Grænt númer: 99-6622. LAUF Landssamtök óhugafólks um flogaveiki, Ármúla 5, oplð kl. 12-15 þriöjudaga og laugardaga kl. 11-16. S. 812833. G-samtökin, landssamb. fólks um greiösluerfiöleika og gjaldþrot, Vesturvör 27, Kópa- vogi, opið 10-14 virka daga, s. 642984, (simsvari). Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s. 622217, veitir foreldrum og foreldrafól. upplýsingar: Mánud. 13-16, þriöjud., miðvikud. og föstud. 9-12. Áfengis- og fíkniefnaneytendur. Göngudeild Landspítalans, s. 601770. Viðtalstimi hjé hjúk- runarfræðingi fyrir aðstandendur þriðjudaga 9—10. Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 611205. Húsaskjól og aöstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi i heimahúsum eöa orðið fyrir nauðgun. Stigamót, Vesturg. 3, s. 626868/626878. Miðstöð fyrir konur og böm, sem oröið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Virka daga kl. 9-19. MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s. 688620. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Pósth. 8687 128 Rvík. Simsvari allan sólar- hringinn. S. 676020. Lífsvon - landssamtök til verndar ófæddum börnum. S. 15111. Kvennaráðgjöfin: Simi 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22. Fimmtud. 13.30 og 20-22. Vinnuhópur gegn sifjaspellum. Tólf spora fundir fyrir þolendur sifjaspella miðviku- dagskvöld kl. 20-21. Skrifst. Vesturgötu 3. Opiö kl. 9-19. Simi 626868 eða 626878. SÁÁ Samtök áhugafólks um ófengisvandamólið, Síðumúla 3-5, s. 82399 kl. 9-17. AL-ANON, aðstandendur alkohólista, Hafnarstr. 5 (Tryggvagötumegin). Mánud.- föstud. kl. 9-12. Laugardaga kl. 10-12, s. 19282. AA-samtökin, s. 16373, klr 17-20 daglega. FBA-samtökin. Fullorðin börn alkohólista. Fundir Tjarnargötu 20 á fimmtud. kl. 20. I Bústaðakirkju sunnud. kl. 11. Unglingaheimili ríkisins, aðstoð við unglinga og foreldra þeirra, s. 689270/31700. Vinalína Rauöa krossins, s. 916464 og grænt númer 996464. Er ætluð fullorönum sem telja sig þurfa að tjá sig. svaraö kl. 20-23 öll kvöld vikunnar. Skautar/skíði. Uppl. um opnunartima skautasvellsins Laugardag, um skíðabrekku i Breiðholti og troðnar göngubrautir i Rvik s. 685533. Uppl. um skíöalyftur Bláfjöll- um/Skólafelli s. 801111. Upplýsingamiðstöð ferðamála Bankastr. 2: Opin vetrarmán. mán./föst. kl. 10.00- 16.00, laugard. kl. 10.00-14.00. Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á stuttbylgju: Utvarpað er óstefnuvirkt allan sólarhringinn á 3295,6100 og 9265 kHz. Hódegisfréttum er útvarp- að til Norðurlanda, Bretlands og meginlands Evrópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 15790 og 13830 kHz. og kvöldfréttum. Daglega kl. 18.55-19.30 á 11402 og 13855 kHz. Til Kanada og Bandarikjanna: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 15770 og 13855 kHz. Hádegisfréttir. Daglega kl. 19.35-20.10 á 15770 og 13855 kHz. kvöldfréttir. Daglega kl. 23.00- 23.35 é 15770 og 13855 kHz. Að loknum lestri hádegisfrétta é laugardög- um og sunnudögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku. fsl. tími, sem er sami og GMT. SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin. kl. 19-20.. Sængurkvennadeild. Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-20.30. Fæðingardeildin Eiriksgötu: Heimsóknartimar: Almennur kl. 15-16. Feðra- og systkinatimi kl. 20-21. AÖrir eftir samkomulagi.Bamaspftali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspitalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Geðdeild Vífilstaðadeild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Landa- kot$8pítali: Alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16-17. - Borgarspítalinn i Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnar- búðin Alla daga kl. 14-17. - Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúkrunarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstöðin: Heimsóknartimi frjáls alla daga. Fæðingarheimili Reykjavikun Alla daga kkl. 15.30-16.00. - Klepps- sprtali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. — Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. - Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 é helgidögum. — Vífilsstaðaspitali: Heimsóknartimi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. — St. Jósefs- spítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlið hjúkrunarheimili i Kópa- vogi: Heimsóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkurfæknishér- aðs og heilsugæslustöðvar Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn ó Heilsugæslustöð Suðurnesja. S. 14000. Keflavik - sjúkrahúsið: Heimsóknartími virka daga kl. 18.30- 19.30. Um helgar og á hótíðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyri - sjúkra- húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00-8.00, S. 22209. BILANAVAKT Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hitaveitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami simi á helgidögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 686230. Rafveita Hafnarfjarðar bilanavakt 652936 SÖFN Landsbókasafn islands: Aöallestrarsalur opinn mánud. — föstud. kl. 9-19 og laugar- daga kl. 9-12. Handritasalur mánud.-fimmtud. kl. 9-19 og föstud. kl. 9-17. Útlánssal- ur (vegna heimlána) mánud.-föstud. kl. 1316. Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið mánudaga til fóstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú veittar i aðalsafni, s. 694326. Borgarbókasafn Reykjavikun Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbóka- safnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheima- safn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud. - fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn - Lestrarsalur, s. 27029. Opinn mánud. - laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s. 27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud. — föstud. kl. 15-19. Bókabilar, s. 36270. Viðkomu- staðir viðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11. Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12. Þjóðminjasafnið: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnudag kl. 11-16. Árbæjareafn: Opið um helgar kl. 10-18. Ámagarður: Handritasýning til 1. sept., alla virka daga kl. 14-16. Ásmundarsafn í Sigtúni: Opið alla daga 10—16. Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.-föstud. kl. 13-19. Nonnahús alla daga 14-16.30. Náttúrugripasafnið á Akureyri: Opið sunnudaga kl. 13-15. Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. Sýnii.garsalir: 14-19 alla daga. Listasafn islands, Frikirkjuvegi. Opið alla daga 12-18 nema mánudaga. Sumarsýning á islenskum verkum i eigu safnsins. Minjasafn Rafmagnsveitu Reykjavíkur við rafstöðina við Elliöaár. Opið sunnud. 14-16. Safn Ásgrims Jónssonar, Bergstaöastræti: Opiö alla daga nema mánudaga ki. 13.30-16. Húsdýragarðurinn: Opinn virka daga, þó ekki miðvikudaga, kl. 13-17. Opinn um helgar kl. 10-18. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg- myndagarðurinn opinn daglega kl. 11-16. Kjarvalsstaðir Opið alla daga vikunnar kl. 11-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964. Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir sunnud. þriöjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16. Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opin sunnudaga kl. 13.30-16. Á öðrum timum eftir samkomulagi. Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.-fimmtud. kl. 10-21. Föstud. 10-19. Lesstofan opin frá mánud.-föstud. kl. 13-19. Byggðasafn Hafnarfjarðan Opiö laugardaga-sunnudaga kl. 14-18 og eftir samkomu- lagi. Sjóminjasafn íslands, Hafnarfirði: Opiö laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-18. Bókasafn Kefiavikur. Opið mánud.-miðvikud. kl. 15-22, þriðjud. og fimmtud. kl. 15-19 og föstud. kl. 15-20. ORÐ DAGSINS Reykja».l< simi 10000. Akureyri s. 96-21840. SUNDSTAÐIR Sundstaðir í Reykjavik: Þessir sundstaðir: Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug og Breið- holtslaug eru opnir sem hér segir: Mánud. - föstud. 7.00-20.30, laugard. 7.30- 17.30, sunnud. 8.00-17.30. Sundhöll Reykjavikur: Mánud. - föstud. kl. 7.00-19.00. Lokað i laug kl. 13.30-16.10. Opiö i böö og potta fyrir fulloröna. Opið fyrir böm frá kl. 16.50-19.00. Stóra brettið opið frá kl. 17.00-17.30. Laugard. kl. 7.30-17.30, sunnud. kl. 8.00-17.30. Garðabasr Sundlaugin opin mánud.-föstud.: 7.00-20.30. Laugard. 8.00-17 og sunnud. 8-17. Hafnarfjörður. Suðurbæjarlaug: Mánudaga - föstudaga: 7.00-21.00. laugardaga: 8.00-18.00. Sunnudaga: 8.00-17.00. Sundlaug Hafnarfjaróar: Mánudaga - \ostudaga: 7-21. Laugardaga. 8-16. Sunnudaga: 9-11.30. Sundlaug Hveragerðis: Mánudaga - fimmtudaga: 7-20.30. Föstudaga: 7-19.30. Helg- ar: 9-15.30. Varmáriaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga - fimmtud. kl. 6.30-8 og 16-21.45, (mánud. og miðvikud. lokað 17.45—19.45). Föstudaga kl. 6.30-8 og 16—18.45. Laugar- daga kl. 10-17.30. Sunnudaga kl. 10-15.30. Sundmiðstöð Keflavikur: Opin ménudaga - föstudaga 7-21, Laugardaga 8-18. Sunnu- daga 9-16. Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga - föstudaga kl. 7-20.30. Laugardaga og sunnu- daga kl. 8-16.30. Síminn er 41299. Sundlaug Akureyrar er opin ménudaga - föstudaga kl. 7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnu- daga 8-16. Simi 23260. Sundlaug Seltjamamess: Opin mánud. - föstud. kl. 7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10- 17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.