Morgunblaðið - 26.01.1992, Side 17

Morgunblaðið - 26.01.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 Helgi Björnsson, Jón Sveinsson og Arngrímur Hermannsson á staðnum á Grælandsjökli þar sem þeir fundu flugvélarnar undir á 85 m dýpi. Þá uppgötvuðum við að flugvéla- bolurinn var laskaður." Draumur Taylors um að fljúga flugvélunum sjálfum af jöklinum hvarf út í veður og vind. Leiðang- ursmenn höfðu talið að um leið og flugvélarnar voru komnar niður fyrir hjarnið efst í jöklinum hefðu þær fyllst af vatni og ís á víxl áður en þær lágu endanlega þétt pakkaðar í ísnum. Klakinn inni í flugvélaskrokknum mundi herða og veija vélamar fyrir utanaðkom- andi þrýstingi af skriði jökulsins. En B-17 flugvélarnar höfðu ekki lagst fullkomlega í ís. Þar sem loftpokar höfðu haldist í skrokkn- um, þar hafði ísinn náð að kremja málminn. „Jökullinn hafði laskað flugvél- ina“, segir Taylor. „Það verður ekki hægt að fljúga henni — til þess eru skemmdirnar á skrokki og stjórnklefa of miklar. Þakið á flugstjómarklefanum hefur lagst inn um 90 sm.“ Taylor og félagar hans telja að hinar vélarnar í flugsveitinni muni reynast álíka mikið skemmdar. Beygðir en óbugaðir eru þeir nú búnir að endurskoða áætlunina. I maí reikna þeir með að ná vélunum upp í bútum, hverri eftir annarri. Þegar allt er komið upp á jökul- inn, ætla þeir að setja hlutana saman í eins margar heilar flugvél- ar og mögulegt dr. Fram að þessu era leiðangursmenn búnir að ná uppaf „Big Stoop“ byssuturninum, hríðskotabyssunum, nokkram sætum, eldsneytisgeymi, tækjum, kompásum, 200 hylkjum af 50- kalibera skotfæram, flugmannss- tígvélum og súrefnisgrímum. „Þegar ég kom heim og sagði konu minni að flugvélarnar væra laskaðar og við gætum ekki flogið þeim af jöklinum kom glampi í augun á henni og hún sagði: „Ertu ekki að segja að þessu sé lokið?“,“ í Kaupmannahöfn FÆST I BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁRÁÐHÚSTORGI segir Taylor þegar hann rifar þetta upp. „Svo heppin ertu ekki, svar- aði ég. Við ætlum að halda þessu áfram þar til ekki verður lengra komist. Kannski lengur.“ í sumar hyggjast leiðangurs- menn koma fyrir fjórum endur- bættum Super-Gopher borum, þannig að tveir og tveir vinni sam- an og bori holur sem næst öllum átta flugvélunum. Með holunum staðsettum svolítið til hliðar við flugvélarnar er hægt að dæla upp bræðsluvatninu án þess að það trufli verkið við að taka flugvél- arnar í sundur. Við endann á hveij- um bor munu menn sprauta heitu vatni úr slöngum til þess að víkka hellinn og bræða ísinn af flugvél- unum. A meðan er áformað að bora nálægar holur og láta heitt vatn bræða ísveggina milli hol- anna, svo að myndist nægilega víðir námustrokkar til að athafna sig með hlutana úr flugvéla- skrokkunum. Þá munu tæknimenn frá Georg- ia-tækniháskólanum e.t.v. koma með nýja tækni, svokallaða „plasma-arc“ Ijóskastara, en þeir brenna með gífurlegum hita. Ef þeir era notaðir gætu þessi tæki brætt 6 metra holu niður að flug- vélinni á einum degi. Textron Aerostructure í Nash- ville hefur heitið því að setja sam- an flugvél úr öllum þeim hlutum sem leiðangursmenn kunna að ná upp. Hluthafar í Greenland Exped- ition Society hafa þegar fest kaup á nokkrum af flugvélunum, burt séð frá ástandi þeirra. Aðrir munu koma inn í málið í heild. Og ef Textron getur komið flugvélunum aftur í gagnið eftir að hafa legið í frosinni glatkistu í 50 ár, þá mun „Týnda flugsveitin11 aftur fljúga um loftin. Viötal við Helya Björnsson jöklafræðing eftir Elínu Pólmadóttur EKKERT hafði gengið að finna flugvélarnar úr Týndu flug- sveitinni í Grænlandsjökli, eins og fram kemur í meðfylgjandi grein, þegar Hélgi og félagar fundu þær með íssjánni sem hafði verið notuð hér á Vatna- jökli um nokkurn tíma. „En þarna er þíðjökull og aðstæður sem við þekkjum vel héðan,“ sagði Helgi í símtali við Morg- unblaðið. ■ trú á því og leiðangursmenn að hægt verði að ná upp flugvél- unum og hefur ekki viljað hafa af því önnur afskipti en að staðsetja þær. Hann hefur ekkert heyrt frá leiðangursmönnum í ár, hélt jafn- vel að þeir væru hættir. En hann á nú allt eins von á að verða beð- inn um að koma og finna vélarnar enn einu sinni áður en þeir hefjast handa í sumar, því ísinn skríður og flugvélarnar með honum, lík- lega um 20-30 metra á ári, og öllu skiptir að lenda á nákvæmlega réttum stað með borana. Helgi telur að ákaflega erfitt verði að ná vélunum þótt í bútum sé, Þegar neðar dregur í'jökulinn er ísinn farinn að síga° saman. Hann er eins og seigfljótandi efni, sem þrýstir á og leitast við að loka borgöngunum. Eins og fram kem- ur í greininni fyllast hellirinn og göngin af vatni fyrir neðan skilin milli snævar og jökulíss þegar kemur fram á sumarið. „Sem er ágætt að því leyti að meðan vatn er í göngunum haldast þau opin,“ segir Helgi. „En ef vatninu er dælt úr þeim, þá er engin fyrir- staða lengur og þau síga saman undan ísfarginu. Ef til vill geta þeir athafnað sig í vatninu." Hann bendir á að staðurinn sé í aðeins 700-800 metra hæð og svo sunnar- lega á Grænlandsjökli að þar gæti bráðnunar á svipaðan hátt og á jöklum hér á landi. Helgi var þarna með leiðangurs- mönnum nokkur sumur, ásamt Jóni Sveinssyni tæknifræðingi og Arngrími Hermannssyni, björgun- arsveitarmanni. „Við höfum haft gaman af þessu,“ segir hann. Leiðangursmenn komu alltaf við á Islandi þegar þeir voru að leita að flugsveitinni. Höfðu ekki fundið flugvélarnar og 1983 datt þeim í hug að leita upplýsinga hjá jökla- mönnum hér. Helgi og samstarfs- menn hans voru þá búnir að vera á Vatnajökli að prófa sig áfram og bæta íssjána sem þeir smíðuðu hjá Raunvísindastofnun háskólans. En þetta tæki er sérstaklega gert til þess að sjá gegn um þíðjökul. „Leiðangursmennirnir bandarísku, sem eru frá Atlanta, höfðu ekki gert sér grein fyrir því að jökull er þíðjökull og svo gaddjökull eins og er norðar á Grænlandi. Þarna á leitarstaðnum á Grænlandsjökli eru aðstæður sem við þekkjum. Þegar við komum fyrst til þeirra var þoka og sást ekki út úr aug- um,“ segirHelgi.„Við hurfum út í buskann og byijuðum að vinna í bleytunni, eins og við værum á heimaslóðum. Þeim leist ekki á þann glannaskap, vildu bíða eftir sólskini.“ „Við fundum vélarnar á nokkr- um dögum sumarið 1984. Hittum síðan beint niður á þær með born- um 1989, sem var mjög ánægju- legt. Þeir höfðu nefnilega aldrei viljað trúa okkur að flugvélamar væru á 80-90 m dýpi. Og ég verð að fá að bæta því við, að við höfum oft útskýrt fyrir þeim að ísfargið hafi pressað vélarnar saman að nokkru leyti og hreyfing jökulsins teygt þær og togað, svo þeim yrði ekki flogið af jöklinum. Við höfum frá upphafi sagt þeim bæði að vatn hafi ekki getað náð út í vængi og stél til að halda á móti þrýstingnum og að eftir að ísinn hefur læst sig utan um vélarnar, þá sé hann á hreyfingu." í upphafi styrkti Reynolds-fyr- irtækið þessa leit að flugvélunum, veitti í það einni milljón banda- ríkjadala. Töldu því auglýsingafé vel varið, enda má ekki auglýsa tóbak í sjónvarpi í Bandaríkjunum og í mörg ár var alltaf verið að segja frá þessum leiðangri sem nefndur var Winston Recovery Team. Nafnið á Winston-sígarett- unum því alltaf í fjölmiðlum. Þeim styrk mun nú lokið. En leiðangurs- menn munu m.a. vinna að áfram- haldandi fjármögnun með því að selja hlutbréf í flugvélunum og leigja sér í því skyni bása á flug- sýningum. Helgi segir gífurlegan áhuga á þessu máli, bæði erlendis og hér á landi, sífellt verið að spyija hann um hvernig gangi. TIL SÖLrU Mitsubishi Pajero ’92, ekinn 6 þús. km., álfelgur, 32“ dekk, nýr bíll. Upplýsingar í síma 31766 eða 985-22496. HANDMENNTASKOLI ISLANDS BOX1464 121 REYKJAVÍK SÍMI: 91/627644 LISTMÁLUN Nýtt námskeið í meðferð acryilita. Kennt er eftir myndbandi Bergvíkur: Málaðu! - Kennari er John FritzMaurice Mills. Þú málar kyrralífsmynd og landslag auk þess fylgja fræðileg verkefni. HVER-ER-ÉG? Við kynnum nýja námskeiðaröð I sjálfsskoðunarfræðum. Lærðu nú allt um BlÓRYÞMA (lífshrynjandi) og útreikninga hans fyrir sjálfa(n) þig, fjöl- skyldu og vini. Á næStunni námskeið í stjörnuspeki og austrænum fræðum. HMl er bréfaskóli og hefur starfað í ellefu ár. Námskeið okkar hentar þér óháð búsetu. Símsvari allan sólarhringinn: 91-627644. ÉG ÓSKA EFTIR.AÐ FÁ SENT KYNNINGARRIT HMÍ MÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU L NAFN HEIMILISF. i Ein P-8 flugvélin á jöklinum 1942. Myndina tók einn flugmað- urinn úr „Týndu flugsveitinni".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.