Morgunblaðið - 26.01.1992, Síða 18
MORGUNBlíAÐIÐ SUNNUD'AGUR 26.<JANÚAR 1990
ísbjörg (Guðrún S. Gísladóttir og
Framan af sýningunni er harka
föðurins allsráðandi, yfirgnæfandi.
ísbjörg er blaktandi strá sem tekur
öllu með jafnaðargeði. Síðan fer
hún að sækja í sig veðrið og nýta
sér lærdóma föðurins.
Röddum er kunnáttusamlega
beitt til að leggja áherslu á þanka-
gang stúlkunnar.
Stúlkan á ströndinni sem leitar
samruna við náttúruna er frelsis-
draumur ísbjargar, undankomu-
leið, vonin um að fljúga burt eins
og fuglinn. Hún gæðir verkið ljóð-
rænu. Það vantar ekki í verkið
skáldleg atriði sem lyfta því.
Pétur Pétursson, réttargæslu-
maðurinn, er hjá ísbjörgu í fanga-
klefanum til að komast að hinu
sanna um hana, hlusta á játningar
hennar sem breytast í minningar,
uppriíjun lífs hennar og vörn um
leið. Pétur er áhorfandinn/les-
andinn og verður eins og ísbjörg
segir ekki samur á eftir því að
hann uppgötvar ekki síst sannleik-
ann um sjálfan sig.
Hver er sekur eða sekari en
aðrir? má segja að spurt sé og það
er mjög í anda Vigdísar hjá Há-
vari. Sekt og sakleysi, flekkleysi
og flærð takast á og stundum verð-
ur ekki greint á milli eins og í líf-
inu sjálfu. Hvenær nær til að
mynda réttlætið að fullu fram að
ganga þegar dæmt er?
Búningar, tónlist, leikhljóð, lýs-
ing eru hluti leikmyndar Elínar
Eddu Árnadóttur og tekst allt það
samstarf vel. Smíðaverkstæðið, hið
nýja leiksvið Þjóðleikhússins, á
áreiðanlega eftir að stuðla að au-
knu og bættu leikhúslífi, að
minnsta kosti er aðstaðan nokkuð
góð.
Sviðið (og leikmyndin) nær eftir
endilöngu gólfi og sitja áhorfendur
beggja vegna og eru með því í
návígi við leikarana. Leikmyndin
með hinu mikla rými sviðsins skap-
ar í senn nánd og fjarska. Það
hvernig leikurinn berst fram og
aftur eykur hreyfingu sem sýning-
in nýtur og vekur kenndir firringar
hjá áhorfandanum. Saga ísbjargar
er líkt og að gerast öll í senn,
bæði það sem er liðið og veruleiki
fangaklefans.
Leikmyndin nær þannig tilgangi
sínum.
Leikurinn er í heild vel heppnað-
ur. Það er ekki leikurum að kenna
Bryndís Petra Bragadóttir).
þótt þeir fái ekki allir viðamiklar
persónur að glíma við, en flestir
eru í fleiri en einu hlutverki. Þær
Bryndis Petra Bragadóttir og Guð-
rún S. Gísladóttir sem leika ís-
björgu eru þróttmiklar leikkonur
sem reynir verulega á í hlutverk-
inu. Hið barnslega og óspillta er
þeim jafn tamt og hryssingslegt
mótvægi þess. Þeim var einkar
lagið að vera andstyggilegar án
þess að glata samúð áhorfenda.
Eg sá ekki betur en Guðrún S.
Gísladóttir væri að efna í nýstár-
lega túlkun og dálítið breytta hvað
hana varðar, einkum þegar hún lék
telpuna ísbjörgu.
Jóhann Sigurðarson getur nú
varla talist öfundsverður af hlut-
verki Guðmundar, föður ísbjargar,
en átti í því góða parta sem verk-
uðu sannfærandi. Skopskælda per-
sónu manns sem kaupir blíðu ís-
bjargar átti hann auðvelt nieð að
gera kátlega, en þar skaut líka upp
harmi.
Ragnheiður Steindórsdóttir lék
móðurina, hina dæmigerðu smáðu
eiginkonu og gerði henni tilætluð
skil, en hlutverkið er á mörkum
þess að duga. í gerð þess frá hendi
höfundar leikgerðar örlar þó á lífi.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir er rögg-
samur leikari og miðlar einhverri
sérstakri gleði með leik sínum þeg-
ar það á við. Það gerði hún í hlut-
verki móðursysturinnar, en hún
var einnig hjúkrunarfræðingur og
fangavörður.
Þórarinn Eyfjörð lék Pétur Pét-
ursson á geðþekkan hátt, persónu
sem er alveg í skugga Isbjargar.
Pálmi Gestsson og Hjálmar Hjálm-
arsson létu nokkuð að sér kveða,
einkum sá fyrrnefndi í samtals
fjórum hlutverkum, Hjálmar í
tveimur.
Hávar Siguijónsson skrifar í
leikskrá að þegar skáldsaga Vig-
dísar Grímsdóttur öðlist nýjan bún-
ing og sé færð upp á leiksviði geti
það „þó aldrei orðið annað en stíl-
færð augnabliksmynd af ísköldum
raunveruleikanum". Hann minnir
á að í kríngum okkur séu böm og
unglingar niðurlægð í skjóli frið-
helgi heimila.
Fullyrða má að sé það erindi
leikgerðarinnar auk listræns
ávinnings að vara við slíku, for-
dæma slíkan glæp, hafi eftirminni-
legum árangri verið náð.
Stílfærðar skyndimynd-
ir úr lífi sögupersónu
Leiklist
Jó/iann Hjá/manson
Þjóðleikhúsið - Smíðaverkstæð-
ið: Ég heiti ísbjörg. Ég er Ijón
eftir Vigdísi Grímsdóttur. Leik-
gerð: Hávar Siguijónsson. Leik-
sljórn: Hávar Siguijónsson.
Leikmynd og búningar: Elín
Edda Árnadóttir. Tónlist og
leikhljóð: Lárus Halldór Gríms-
•HotpO^
son. Lýsing: Björn B. Guð-
mundsson
Skáldsaga Vigdísar Grímsdótt-
ur, Ég heiti ísbjörg. Ég er ljón
(1989) er afar myrk bók og þung,
lýsir heimi grimmdar og örvænt-
ingar. ísbjörgu skáldsögunnar hitt-
um við aftur fýrir í leikgerð Há-
vars Siguijónssonar sem er sam-
nefnd sögunni.
Hávar Siguijónsson hefur freist-
að þess að ná andrúmslofti skáld-
sögunnar, leikgerðin byijar til
dæmis og endar á sama stað og
með sama hætti. Það er nær útilok-
að að fanga allan söguþráð skáld-
sögunnar, sérstaklega vegna þess
að hin miklu átök hennar fara fram
í huga ísbjargar. Hávar er að
mestu leyti trúr textanum í skáld-
sögunniýen hann bætir við atriðum
þegar honum þykir ástæða til.
Mesta athygli vekur að tvær
leikkonur túlka ísbjörgu. Hávar
hefur að eigin sögn valið þá leið
af því að í augum hans er Isbjörg
tvískipt. Kannski væri réttara að
segja margskipt.
Hávar hefur bent á tilfinninga-
hita og dramatík skáldsögunnar
og þessi einkenni hafa heillað hann
án þess að taka af honum öll ráð.
Leikgerð ísbjargar er óvægin.
Kannski þykir áhorfendum verkið
ganga út í öfgar í þeim myndum
sem dregnar eru upp af afbrigði-
legu fjölskyldulífi, Ijölbreytilegu
kynlífi þar sem sifjaspell og vændi
eru mest áberandi og loks sjálfs-
vígi og morði.
Það gengur því í rauninni
kraftaverki næst hve leik-
gerðin/leikstjórnin er hófsöm. Mitt
í ofbeldi og kúgun spretta fram
atriði sem í kímni sinni og jafvel
glettni fá áhorfandann til að brosa
eða hlæja eftir atvikum.
Hversdagsleg og siðavönd fjöl-
skylda Þrúðar, móðursystur ís-
bjargar, verður skopleg, en of ein-
föld. Þar er á ferð veikleiki sem
ekki telst þó stórvægilegur.
Andstæður heims Isbjargar,
fyrmefnd fjölskylda, fangaverðir,
maður með bolta eru fyrst og
fremst tákn, fulltrúar vissra mann-
gerða, fyrirbrigða í samfélaginu.
Ekki er fylgt mjög raunsæislegum
aðferðum við gerð þessara pers-
óna.
Sama marki brennd er að mestu
leyti Þórhildur, móðir Isbjargar.
Guðmundur, faðir Isbjargar, líka.
En hann er þrátt fyrir vonsku sína,
skinhelgi, kúgun fjölskyldunnar og
brenglað geð með mannlegum
undirtónum sem koma vel fram í
leikgerðinni.
UPPÞVOTTAVÉL
Model 7822
12 manna matarstell, 3 þvotta-
kerfi, hæð 85 cm - breidd 60
cm - dýpt 60 cm.
VerS kr. 56.772.- stgr.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
•Hotp0^
ÞVOTTAVÉL
Model 9535, ~ 4.1 kg.
Tveir vinduhraðar, 500 og
1000 snúningar á mlnútu 20
þvottakerfi, t.d. sparkerfi —
hraðkerfi — ullarkerfi o.s.frv.
Tromla úr ryðfríu stáli. Heitt
og kalt vatn. Hæð 85 cm -
breidd 59,5 cm - dýpt 56,3 cm.
Verð kr. 65.313.- stgr.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
Veislueldhúsið Skútan
bfður fjölbreytt úrval
af veislumat.
Heitur veisJumatur,
pottréttir, kalt borð og
ýmislegt annað sem getur
kryddað tilveruna og
komið gestum á óvart.
Við bjóðum vistlegan
veislusal ef á þarf að
halda.
Við byggjum á langri
reynslu í matargerð og
undirbúningi veislu-
halda, og okkar besta
auglýsing er ánægðir
viðskiptavinir.
SKÚTAN
í fararbroddi
VEISLUSALUR / VEISLUELDHÚS
Dalshrauni 15, 220 Hafnartjörður
símar: 51810, 651810. telefax: 652367